Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
7
Sandkom
Þátttakastuðn-
íngsmanna
flokkannaí
prófkjörum
annarra flokka
hcfurvoriötil
umraíöu, ekki
sísteftirpróf-
kjurFram-
soknariNorö
urlandivestra
ogpnífkjör
kraíaíReykja-
nesi. Er þá tilgangurinn að koma
manniúrákveðnu byggðarlagi aðí
gott sæti á framboðsiLsta svo byggð-
arlagið hafi sem flesta menn á þingi,
óháö flokkum, í þessu sambandi rifl-
aðist upp saga af þekktum sjáifstæð-
ismanni á Suðurnesjum. Fyrir ali-
mörgum árum var prófkjör meðal
krata i Keflavíkog átti að koma Karli
Steinari á þing. í því sambandi var
leitað til sjáifstæöismanna um að-
stoð. Jú, einhveijir unghðar voru
sendir á vettvang og merktu þem
kjörseðlana samkvæmt fyrirskipun-
um. Kn púkinn kom upp í umrædd-
úm sjáifstæðismánni og varð úr að
hann mætti sjálfhr á kjörstað krata.
Krötum brá heldur, þustu úr sætum
sínumogböðuðuúthðndum: „Nei,
nei... þú mátt ekki kjósa hér,“ sögöu
þeiróðamála.
Lítir Jóhannesar
Jóhannes, rit-
stjóriáHúsa-
vik, segirí blaði
sínuaðhann
hafifengið
tjolda fyrir-
spurnajiarsem
blaðiðsénúí
bláumiiíen
ekki rauðum
einsogvar.
Scuii Jóhanne-,
aðlitaskiptin
týði ekki að blaðið sé sjáiíkrafa farið
að styðja íhaldið áþesssuári. Á sama
hátt hafl rauði liturinn ekki tálmað
stuðning við ailabalia. Og þó langt sé
um liðið frá þ ví blaðiö var grænt
þýði jiað ekki að álit þess á Framsókn
hafi farið þverrandi með árunum.
Og... þó blaðið hafi aldrei verið
bleikt þýði það ekki andúð á krötum.
En hvað um Kvennalístann, Jóhann-
Úkunnugur
Hérersagaaf-
fyrrumþing-
manniFram-
sóknará Yest-
tjörðum. Gunn-
laugiFinns-
syni,semþykir
orðheppinn
maöur. Ein-
hvctjusinni :
varGunnlaug-
uráflokksþingi
______________Framsóknttrá
Akureyri. Honum leiddist eitthvað
þrefið og fékk sér göngutúr sem end-
aði á Ráðhústorgi þeírra Akur-
eyringa. Vatt sér þá að honum ung
og faiieg stúlka sem spurði hvað
klukkan væri. Gunrdaugi brá við
þessa spurningu en lét lítið á þvi bera
raeð því að líta spekingslega til allra
átta. Síðan kom svar þingmannsins
þáverandi: „Því miður, ungfrú, get
ég ekki sagt y ður það því ég er alveg
ókunnugurhér.“
Númer hvað?
Þriggjaára
drenghnokki
var þi-iin gáf um:
gæddurað
munatölur
mjögvel.Man
hann ekki nöfn :
i'ólks en fái
hnnnnðvitm
hvaða götuþað
á heitna og
númerhvað
,___ kiikkarminnið
ekki, Móðir drengsins færði honum
þau tiðindi að gamall frændi hans
hefði látist Drengurinn varð hugsi
þvi hann kotn firændanum ekki alveg
fyrir sig. Eftir að hafa fengið götu-
nafh og númer hjá mömmu skildi
hann um hvern var verið að tala. Hn
þegar móðir hans sagöi honum aö
nú fæn hann öl himna ætlaði stráksi
öruggiega að rauna eftir þeim gamla
framvegis og spuröi þvi: Himnar
númerhvað?
Fréttir
Bensínsöluáform Hagkaups og Bónuss:
Leituðu fyrst til
þriggja erlendra aðila
áður en samningar tókust við Skeljung
Samkvæmt heimildum DV leituðu
forráðamenn Hagkaups og Bónuss
fyrst til þriggja erlendra aðila, þ.á
m. Irving Oil, um samstarf á sölu
bensíns á íslandi áður en samningar
tókust við Skeljung og félagið Orkan
hf. var stofnað. Ekki eru liðnar nema
þijár vikur síðan viðræður við Skelj-
ung hófust en eigendur Hagkaups og
Bónuss hafa a.m.k. haft uppi áform
um bensínsölu frá því aðstoðarstjóri
Olís, Hörður Helgason, var ráðinn
sl. haust, ef ekki enn lengur. Hörður
er framkvæmdastjóri Orkunnar.
Eins og kom fram í DV á laugardag
stefnir Orkan að sölu bensíns við
þrjá stórmarkaði Hagkaups og Bón-
uss; á Seltjarnarnesi, í Kópavogi og
við Holtagarða í Reykjavík. Umsókn-
ir um starfsleyfi í þessum sveitarfé-
lögum hafa verið lagðar inn.
Orkan mun kaupa bensín af Skelj-
ungi á heildsöluverði og hafa Orku-
menn boðað „töluvert“ lægra bensín-
verð til neytenda. Þegar gengið er á
þá um hversu mikla lækkun verði
að ræða vilja þeir ekki gefa slíkt upp
að svo stöddu. Hlutafé Orkunnar er
60 miiljónir króna, þar af er hlutur
Skeljungs 15 milljónir. Ljóst er að
Skeljungur hefði ekki slegið til nema
vegna áforma Irving Oil um starf-
semi á íslandi.
Til að ná fram lægra bensínverði
ætlar Orkan að hafa litla yfirbygg-
ingu og hafa þjónustuna öðruvísi en
til þessá hefur verið hjá olíufélögun-
um þremur. Hvemig þjónustan verð-
ur nákvæmlega vilja Orkumenn ekki
gefa upp.
En hvernig ætla olíufélögin þrjú
að bregðast við væntanlegri sam-
keppni frá Orkunni? Verður dregið
úr þjónustustiginu?
„Það verður brugðist við sam-
keppni en hvernig og hvenær er of
snemmt að greina frá. Ég vil benda
á að fram til l. september sl. giltu lög
um eitt bensínverð í landinu. Sam-
keppnin byggðist því á þjónustu.
Kerfið í dag er barn síns tíma og við
erum rétt að prófa gírana á því. Þú
sveiflar ekki frá því aö vera byggður
upp á einn veg yfir í að vera ómönn-
uð sjálfsafgreiðsla úti í bæ og ætlast
til að viðskiptavinurinn kunni að
meta það. Ég held að mér sé óhætt
að segja að við séum með tiltölulega
hátt þjónustustig. Þegar verið er að
kaupa bensín í roki, slyddu, rigningu
eða frosti þá eru margir sem eru
ánægðir með að geta rennt seðlinum
út um rifuna á bíirúðunni og þurfa
ekki að fara út að dæla,“ sagði Geir
Magnússon, forstjóri Olíufélagsins,
viðDV.
Geir sagði að á öllum bensínstöðv-
um nema þeim stærstu í Reykjavík
dygöi smásöluálagningin ekki til að
reka þær, þess vegna væri veitinga-
sala og fleira rekið samhliða.
Arthur Irving, einn aðaleigenda kanadíska olíufélagsins Irving Oil, ásamt
sonum sínum, Arthur yngri og Kenneth. DV-mynd ÞÖK
Landvinningar Irving Oil:
Umsóknir út fyrir
höfuðborgarsvæðið
- ein á Suöurnesjum auk Akraness
Eins og fram hefur komið í DV
hefur kanadíska olíufélagið Irving
Oil sótt um lóð undir bensínstöð á
Akranesi. Það er staðfesting á því að
félagið ætlar ekki aö láta birgðastöð
og þrjár bensínstöðvar í Reykjavík
og á Seltjarnarnesi, sem vilyrði hefur
fengist fyrir, duga. Félagið hefur
kannað málin á íleiri stöðum á suð-
vesturhorni landsins. Þannig hefur
DV heimildir fyrir því að erindi hafi
borist sameinuðu sveitarfélagi Kefla-
víkur, Njarðvikur og Hafna um lóð
undir eina bensínstöð. Umboðsmað-
ur Irving Oil, Othar Örn Petersen
hrl., staðfesti þetta í samtali við DV
en vildi ekki segja hvort félagið hefði
sótt um víðar utan höfuðborgar-
svæðisins.
Áður hefur komið fram að Irving
Oil hefur kannað lóðamál í Hafnar-
firði, Garðabæ, Kópavogi og Mos-
fellsbæ. Þær beiðnir hafa ekki hlotið
afgreiðslu í viðkomandi sveitarfélög-
um.
Við eftirgrennslan á stöðum eins
og Selfossi, Hveragerði, Borgarnesi
og Grindavík kom í ljós að Irving
Oil hefur ekki sent beiðni þangað um
bensínstöðvalóðir.
Borgarráð:
Ibúar mótmæla staðsetn-
ingu Irving Oil
íbúar í Stekkjahverfi og við Boða-
granda hafa mótmælt staðsetningu
bensínstöðva Irving Oil við Eiðsgranda
og Stekkjarbakka en borgaryfirvöld
hafa fyrirhugað að selja forráðamönn-
um Irving Oil þrjár lóðir undir bensín-
stöðvar; við Eiðsgranda, Stekkjar-
bakka og Bæjarháls. Mótmælin voru
kynnt á borgarráðsfundi.
„Við teljum að staðsetningin við
Stekkjarbakka sé óheppileg og
óþægUega nærri Elhðaánum. Það er
aldrei hægt að koma alveg í veg fyrir
slys þó að ýtrustu varúðar sé gætt
auk þess sem útsýnið úr dalnum
beint upp í bensínstöðina er leiðin-
legt,“ segir Bryndís Kristjánsdóttir,
formaður umhverfismálaráðs
Reykjavíkur.
Umhverfismálaráð fjallaði um lóð-
ir handa Irving Oil á fundi í síðustu
viku og lagði til að fundinn yrði nýr
staður í stað lóðar við Stekkjar-
bakka.
Irving Oil hefur leitaö til ýmissa fyrirtækja:
Vildi kaupa lóð af Versló
Samkvæmt heimildum DV heftu-
Irving Oil leitað til ýmissa fyrirtækja
og stofnana sem eiga ónýttar lóðir á
höfuðborgarsvæðinu og boðið háar
fjárhæðir fyrir lóðirnar eða hluta
þeirra. Meðal annars hafa fulltrúar
félagsins leitað til Verslunarskólans
vegna 10 þúsund fermetra lóðar við
Ofanleiti uppi við Kringlumýrar-
braut.
Þorvarður Elíasson, skólastjóri
Verslunarskólans, kannast við til-
raunir Irving Oil til að komast yfir
lóðir. Meðal annars hafi fulltrúar
kanadíska ohufélagsins falast eftir
helmingi þeirrar lóðar sem skóhnn á.
„Við höfnuðum þessu. Þetta var
tekið fyrir á skólanefndarfundi fyrir
viku. Við höfum hugsað okkur að
byggja á þessari lóð. Okkur yeitir
ekkert af henni allri. Þeir voru með
hugmyndir sem alls ekki fara saman
við starfsemi skólans."
Að sögn Þorvarðs komst málið ekki
á það stig að rætt hefði verið um fjár-
hæðir í tengslum við lóðina. Ljóst sé
hins vegar að lóðin sé dýr enda hafi
Verslunarskólinn nú þegar sett um
52 milljónir króna í hana. Allar upp-
hæðir í þessu sambandi eru svim-
andi,“ segir hann.
„Við fognum allri samkeppni. Við
höldum okkar striki og erum að
vinna í málinu. Það kemur síðan í
ljós hvert framhaldið verður," segir
Óthar Örn Petersen, umboðsmaður
Irving Oil á íslandi, við þeim tíðind-
um að eigendur Hagkaups, Bónuss
og Skeljungs hafi stofnað nýtt félag,
Orkuna hf., til að hefja sölu á ódýru
eldsneyti hér á landi.
Irving Oil hefur fengið vilyrði fyrir
þremur lóðum í Reykjavík fyrir
bensínsölu; við Eiðsgranda, Stekkj-
arbakka og í Árbæ. Sótt var um 6
lóðir en að sögn Othars Amar er ijóst
að Irving Oil þarf 6 til 8 lóðir undir
starfsemi sína. -kaa