Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
Menning
Gripimir sem aíhentir verða menningarverðlaunahöfmn DV:
Lítil málverk í
útskorinni tréöskju
- Sigrún Eldjám og Hlynur Halldórsson, Miðhúsum, sameinast um gerð gripanna
Verölaunagripirnir sem afhentir
verða menningarverölaunahöfum
DV 23. febrúar næstkomandi eru um
margt ólíkir þeim gripum sem hafa
veriö veittir sama tilefni undan-
farin ár. Um er að ræöa eins konar
ferðamálverk, þrjár litiar myndir í
öskju meö tvískiptu loki. Mynd er í
botni öskjunnar og jafnframt sín í
hvorum helmingi loksins. Öskjurnar
eru ekki stórar, um 15 sentímetra
háar og 12 sm breiðar þegar þeim er
lokaö. Höfundar gripanna eru Sigrún
Eldjám myndlistarkona og Hlynur
Halldórsson, smiður í Miðhúsum.
Sigrún segir hugmyndina að
myndunum tengjast þeim myndum
sem hún vinnur að þessa dagana en
hún er að vinna að sýningu sem sett
verður upp í Norræna húsinu í vor.
Þar verða myndir á lömum sem þó
veröur ekki hægt aö loka. En hvað
er á þessuiri myndum?
„Myndefnið tengist því sem ég hef
verið að gera. Á miðmyndinni er
mynd af konu í peysufótum og karli
með hatt. Þau eru að fást við eitthvað
eða halda á einhveriu sem tengist
þeim sjö listgreinum sem DV veitir
verðlaun í. Á mynd verðlaunahafans
í bókmenntum heldur parið til að
mynda á bók en þau eru með grímur
á myndinni sem verðlaunahafinn í
leiklist fær. Myndirnar til hliðar eru
Sigrún Eldjárn með myndasettin sjö sem sett verða inn i öskjur með loki
svo úr verður eins konar ferðamálverk sem hafa má með sér hvert á land
Hlynur Halldórsson í Miðhúsum vinnur að smíði askjanna sem myndir Sig-
rúnar fara í. öksjurnar smíðar Hlynur úr birki og útskurður verður á lok-
inu. Hlynur er þekktur listasmiður og hefur atvinnu af þvi að smiða minja-
gripi og gjafir úr tré, horni og beini auk þess sem hann sker út.
DV-mynd Örn Ragnarsson
sem er með lítilli fyrirhöfn. Á miðmyndunum eru karl og kona i þjóðlegum
búningum sem fást við eða halda á einhverju táknrænu fyrir þær sjö list-
greinar sem Menningarverðlaun DV eru veitt í; leiklist, myndlist, bókmennt-
ir, listhönnun, byggingarlist, tónlist og kvikmyndir. Til hliðar eru myndir af
hafi og himni. DV-mynd GVA
síðan af himni og hafi, fyrirbærum
sem oft ljá listamönnum innblástur
í sköpun sinni.“
Samstarf Sigrúnar og Hlyns er með
allsérstæðum hætti. Þau hafa ekki
hist ennþá en Sigrún starfar í
Reykjavík og Hlynur í Miðhúsum,
skammt frá Egiisstöðum. Sigrún hef-
ur sent Hlyni skissur og tillögur með
pósti og svo hafa þau vahð úr hug-
myndum hennar meö símtölum.
Sigrún segist hafa gert myndimar
fyrst og síðan teiknað öskjuna og
sent Hlyni.
„Það er gaman að eiga við svona
samstarfsverkefni, það er ólíkt flestu
því sem ég hef gert áður,“ segir Sig-
rún.
Úr íslensku birki
„Mér líst vel á að taka þátt í þessu
verkefni en ég kem inn í þaö sem
handverksmaður, smíða eftir fyrir-
mælum Sigrúnar. Öskjurnar smíða
ég úr íslensku birki sem verður lakk-
aö og því ljóst og fínt. Það verður
síðan útskurður á lokinu, af drek-
um,“ segir Hlynur Halldórsson í Miö-
húsum.
Hlynur tók þátt í handverkssýn-
ingu Handverks í desember og fékk
viðurkenningu fyrir verk sín þar
eins og Sigrún. Þaö varð til þess að
þau voru leidd saman og samvinna
um gerð verðlaunagripanna hófst.
Sjálfsnám
Hlynur er lærður húsgagnasmiður.
Hann hefur atvinnu af því að smíöa
minjagripi og gafir fyrir fólk og hefur
ágætt að gera. Verkefnin era marg-
vísleg en í seinni tið hefur hann smíð-
að mikið úr beini og horni og gert
útskurðarmyndir.
„Þaö má segja að ég hafi ekki farið
af bæ til að læra. Ég lærði mikið af
fóður mínum svo segja má að ég hafi
fengið þessa kunnáttu í arf og síðan
stuðst við sjálfsnám," segir Hlynur.
Hlynur hefur ekki unnið að mörg-
um verkefnum líkum þessu en hann
hefur smíðað farandgripi fyrir skóla-
skákmótið og skákdrottningu ís-
lands. Þá hefur hann smíðað Þorra,
viðurkenningu sem Egilsstaðabær
veitir þeim heimamanni sem þykir
hafa skarað fram úr á ári hverju og
veitt er á þorrablóti þar eystra.
Sigrún hefur starfað sem myndlist-
armaður frá 1978. Hún hefur haldið
fjölda einkasýninga og tekið þátt í
samsýningum, bæði hérlendis og er-
lendis. Þá hefur hún einnig ritað
fjölda bamabóka og séð um að mynd-
skreyta bæði þær og fjölda bóka eftir
aöra höfunda.
Nýtt náttúruvemdarfrímerki:
Grafendur eftir ungan Englending
Fjorða náttúruverndarmerki Nátt-
úruverndarráðs er komið út. Merkið
prýðir mynd af grafóndum eftir ung-
an Englending, John Cox. Hann hef-
ur unniö til verðlauna fagtímarita
fyrir myndir sínar og hefur vel-
gengni hans á þeim vettvangi orðið
til þess að hann ákvað að gera list-
ræna túlkun fuglalífs og náttúru aö
ævistarfi. Ágóði af sölu merkjanna
rennur í Friðlýsingarsjóð Náttúru-
verndarráös sem stuðlar að fræðslu
um náttúruvernd og náttúrufar,
einkum á friðlýstum svæöum.
Stuttmynda-
dagaríapríl
Stuttmyndadagar í Reykjavík
1995 verða haldnir dagana 11., 12.
og 13. apríl næstkomandi. Eins
og fyrr er óskað eftir stuttmynd-
um af öllum stærðum og gerðum
til þátttöku í keppninni. Fimm
bestu myndirnar verða verðlaun-
aðar og veitt vegleg verðlaun fyr-
ir þær myndir sem hafna i 1.-3.
sæti. Auk sýninga á stuttmynd-
um verða hddnir fyrirlestrar um
kvikmyndagerð og skyld málefni.
Tekiö er á móti myndum á VHS-
myndbandi hjá Kvikmyndafélagi
íslands, Bankastræti 11, Reykja-
vík. Síðasti skiladagur er 1. apríl.
Þátttaka í Stuttmyndadögum var
geysimikil í fyrra og má búast við
að sama verði uppi á teningnum
í ár.
íslenskarbækur
áöðrum
tungumálum
Englar alheimsins, bók Einars
Más Guðmundssonar, sem hann
fékk Menningarverðlaun DV fyr-
ir í fyrra og tilnefnd var til Norð-
urlandaráðsverðlauna af íslands
hálfu, er væntanleg á dönsku og
ensku síðar á þessu ári. Einar
hefur gert samning við Mál og
menningu um útgáfu verka sinna
en hann var áður hjá AB. Yíir 20
bækur frá Máli og menningu og
Foriaginu eru væntanlegar í er-
lendri þýðingu á árinu. Má nefna
Tröllakirkju, skáldsögu Ólafs
Gunnarssonar, sem verður gefln
út á ensku hjá Greyhound Press,
í vor. Þá er verið að þýða Falsara
Björns Th. Bjömssonar á dönsku
og kemur hún út hjá forlaginu
Samleren í haust. Von er á Gull-
eyju Einars Kárasonar á þýsku
og Heimskra manna ráðum á
sænsku. Náttvíg Thors Vil-
hjálmssonar, sem hefur fengið
góðar viðtökur i Danmörku, er
væntanleg á frönsku.
Bók Þorsteins E. Jónssonar,
Dansað í háloftunum, var gefin
úr í Bretlandi í desember. Þor-
steinn þýddi bókina sjálfur á
ensku og geröi ýmsar berytingar
á henni svo hún yrði frekar við
hæfi erlendra lesenda. Breska
útgáfufyrirtækið hefur einnig
sýnt áhuga á að gefa út seinni bók
Þorsteins, Viðburðaríka flug-
mannsævi, og vinnur Þorsteinn
að þýðingu hennar.
Borgarleikhúsið:
Nýttíslenskt
leikritfrumsýnt
Framtíðardraugar heitir nýtt
íslenskt leikrit eftir Þór Tulirrius
sem frumsýnt verður á Litla sviði
Borgarleikhússins 16. febrúar.
Verkið gerist i samfélagi með 20
prósenta atvinnuleysi og mikilli
glæpaöldu þar sem fiskimiðin eru
tóm og fjallar um ungt lánsamt
ólánsfólk. Þór, sem einnig er leik-
stjóri verksins, hefur áður skrif-
að leíkrít upp úr smásögu H.G.
Wells sem nefnist Dalur hinna
blindu.
Málverkí
Gerðarsafni
Sýning sex myndiistarmanna
verður opnuð í Gerðarsafni í
Kópavogi um helgina undir yfir-
skriftinni Málverk. Sýnendur eru
málararnir Daði Guðbjömsson,
Eyjólfur Einarsson, Gunnar Öra,
Jón Axel Björnsson, Jón Óskar
og Sigurður Örlygsson. Hafa þeir
valist saman þar sem ákveðnum
atriðum í list þeirra svipar saman
og allir eiga það sameiginlegt aö
mála figúratíft þótt verk þeirra
séu að ýmsu öðru leyti ólík. Sýn-
ingin varpar Ijósi á þróunina í
íslenskri myndlist nú þegar stytt-
ist í aldarlok.