Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
11
Fréttir
Mál Guðjóns Andréssonar gegn ráðherrum:
Ráðherrar og
forseti verði kall-
aðir til vitnis
- ríkislögmaður mótmælir og dómari úrskurðar hvort þeir skuli vitna
í gær var fyrirtekið í Héraðsdómi
Reykjavíkur mál Guöjóns Andrés-
sonar, fyrrverandi forstöðumanns
Bifreiðaprófa ríkisins, á hendur
dómsmálaráðherra og íjármálaráð-
herra fyrir hönd íslenska ríkisins.
Guðjón stefndi ráðherrunum
vegna tímabundinnar brottvikning-
ar sinnar úr staríl í maí árið 1991 í
kjölfar endurrannsóknar RLR á
framkvæmd tveggja ökuprófa stofn-
unarinnar. Krefst hann skaöa- og
miskabóta að íjárhæð rúmlega 20
milljóna. Guöjón var hreinsaður af
öllum grun um brot í starfi með bréfi
ríkissaksóknara en engu að síður
neitaði dómsmálaráðherra honum
um starfið aftur. Deila menn þarna
um hvort skipunarbréf Guðjóns hafi
verið með fullu gilt. Guðjón hefur
ekki fengið greidd laun frá því í sept-
ember 1991 og af gögnum málsins
má sjá að honum hefur aldrei verið
sagt endanlega upp störfum með lög-
formlegum hætti.
Meðal þeirra sem kallaðir hafa ver-
ið til vitnis í málinu eru, auk vararík-
issaksóknara, fjármálaráöherra, for-
sætisráðherra og forseti íslands, sem
öll ræddu við dómsmálaráðherra um
máhð árið 1991.
Málið verður aftur tekið fyrir 9.
febrúar næstkomandi og verður þá
tekin fyrir krafa Guðjóns um að'
embættismennirnir verði kallaðir til
vitnisburðar en ríkislögmaður hefur
mótmælt þeirri kröfu. Lögmaður
Guðjóns telur að með brottvikning-
unni hafi dómsmálaráöherra gerst
sekur um grófa mismunun og póli-
tískar ofsóknir á hendur Guðjóni en
hann var ráðinn til starfans af Óla
Þ. Guöbjartssyni, dómsmálaráð-
herra og borgaraflokksmanni. Segir
hann enn fremur Guðjón hafa undir
höndum prófgögn frá Bifreiðapróf-
unum sem sýni afdráttarlaust sam-
bærileg en þó mun stórvægilegri
mistök tveggja deildarstjóra í dóms-
málaráðuneytinu og ráðuneytis-
stjórans. Sum þessara gagna hafi
verið hluti af upphaflegri kæru lög-
reglustjóraembættisins vegna fram-
kvæmda ökuprófa en síðan verið
stungið undan frekari rannsókn RLR
þegar í ljós hafi komiö að þau væru
Guðjóni óviðkomandi. Dómsmála-
ráðherranum hafi ítrekað verið
greint frá þessum mistökum og sýnd-
ir óyggjandi pappírar þar af leiðandi
en þeim hafi verið stungiö undir stól
á sama tíma og Guðjóni var vikið frá.
Hann segir jafnframt að óeölilegur
dráttur hafi orðiö á því að niðurstaða
RLR hefði verið gerð opinber af ríkis-
saksóknara en embættiö þurfti að fá
umsögn dómsmálaráðuneytis áður
en slíka yfirlýsingu hafi veriö hægt
að gefa út. Telur Guðjón að dóms-
málaráðherra hafi gefið sér rangar
upplýsingar um gang málsins allt þar
til seinni hluta árs 1991 og hafi fyrst
gefið umsögn sína eftir aö fjármála-
ráðherra og forsætisráðherra höfðu
krafistþessafhonum. -pp
Suðumes:
Styttist í að
naf n fæðist
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesgum;
„Við erum að vinna að máhnu
og það styttist í að ákvörðun verði
tekin um nafn,“ sagöi Ellert Ei-
ríksson, bæjarstjóri í nafnlausa
sveitarfélaginu á Suðumesjum, í
samtali við DV.
Bæjarráð hefur farið sér hægt
i að ákveða hvernig staöið verður
að kosningu um nafn á sveitarfé-
lagið. Tveir Keflvikingar kærðu
til félagsmálaráðuneytisins fram-
kvæmd atkvæðagreiðslu 16. apríl
1994 þegar nafnið Suðumesjabær
var valiö af íbúum staðanna.
Ráðuneytið dæmdi atkvæða-
greiðsluna ógilda.
Eftir heimildum nú er talið að
valið standi milli nafhanna
Reykjanesbær, sem þykir sigur-
stranglegra, og Suðurnesjabær
en íbúar vilja fá nafn á sveitarfé-
lag sitt sem fyrst.
Ólafsfjöröur:
Stúlka smitað-
istaf heila-
himnubólgu
Helgi Jánssan, DV, Ólafafi.rði:
Hér á Ólafsfirði smitaöist ný-
verið stúlka af heilahimnabólgu
og var flutt á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri. Vírasinn sem
þesgu veldur er menico coccus
eða sá sami og kom upp í Reykja-
vík og á Dalvík í haust.
„Þaö er lítið um þetta að segja
i rauninni. Þetta getur komið upp
alveg eins og kvef eða botnlanga-
bólga," segir Hjörtur Þór Hauks-
son læknir. Hann sagöi aö erfitt
væri aö komast að því hvaðan
þetta bærist og yfirleitt tækist
það ekki.
Óveður á Ólafsfirði:
Miklar skemmdir
á bryggju
Helgi Jónsson, DV, Ólafefixði:
Mikil kvika fylgdi óveðrinu í síðustu
viku ásamt töluveröu róti í höfninni á
Ólafsfirði með þeim afleiðingum að
klæðning rifnaði upp á norðurenda
bryggjunnar. Sjórinn féll með þvílíkum
krafti til baka að borðin lyftust hrein-
lega upp á bryggjunni.
Samfara þessu barst mikið grjót
yfir hafnargarðinn og inn á bryggj-
una. Hún er ónothæf, að sögn Ölafs
Sæmundssonar, en reynt verður að
gera við hana til bráðabirgða. Talið
er líklegt að Viðlagatrygging bæti
tjónið að einhverju leyti.
Ljósir punktar í Þverárhreppi:
Tvö hús í smíðum
Þórhallur Asrtumdsson, DV, Norðurl. vestra:
í Þverárhreppi í Vestur-Húna-
vatnssýslu var hafin bygging tveggja
íbúðarhúsa á síðasta ári og verða það
að teljast talsveröar framkvæmdir í
ekki stærra sveitarfélagi.
„Það eru ljósir punktar hjá okkur
þó að fólki fækki frekar en hitt í
hreppnum," sagði Agnar J. Leví odd-
viti og bóndi á Hríshóli.
Þá hefur verið unnið að gerð nýs
skipulags fyrir sumarbústaðabyggð
við Vesturhópsvatn. Fjöldi sumarbú-
staða þar er kominn á fjórða tug.
Skipulagt hefur verið svæði í landi
Litluborgar, Stóruborgar og Hvols
fyrir 70-80 sumarbústaði til viðbótar.
Ung hjón, þau Jónína Jónsdóttir og
Halldór Pálsson, em byrjuð búskap á
Súluvöllum, en þar hefur búið Jón Stef-
ánsson, faðir Jónínu. Ungu hjónin em
aðeins hálfþrítug og síðasta sumar létu
þau reisa einingahús úr timbri sem
fengið var frá Samtaki á Selfossi. í vet-
ur hafa þau verið að innrétta jafnframt
bústörfunum og stefna að þvi að flytja
í nýja húsið seinna á árinu.
A Stóruborg syðri var einnig hafin
bygging íbúðarhúss á liðnu sumri og
áætlaö er að húsið rísi í þessum
mánuði, en það er úr timbureining-
um smíðað hjá Hjörleifi Júlíussyni,
byggingameistara á Blönduósi.
Styrkja Súðvíkinga með
síldarsölu
Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum:
Fyrirtæki og einstaklingar í Vest-
mannaeyjum, meö bæjarsjóö í broddi
fylkingar, hafa staðið fyrir pökkun á
marineraðri síld í legi í 7500 pakkn-
ingar, sem seldar verða í verslunum
Hagkaups á höfuðborgarsvæðinu
fostudaginn 27. jan. frá kl. 17-21 og
daginn eftir frá kl. 10-17.
Öll innkoma rennur óskipt til
Rauða kross íslands til styrktar þeim
sem eiga um sárt að binda vegna
náttúruhamfara í Súðavík. Áætlað
eraðsalan gefi af sér 2 millj. króna.
Hátt uppi
Litlir strákar sem hætta sér upp á hæstu snjóruðningana á Akureyri líta
eflaust á sig sem „stóra karia" eins og þessi ungi maður sem var „hátt
uppi“ á snjóruðningi á mótum Steinahlíðar og Smárahlíðar og hafði gott
útsýni til allra átta. DV-mynd gk
CD
O)
oo
cn
c
'CD
»o
<
MYNDBANDAGETRAUN
BONUSVIDEO
9 9-17-50
Myndbandagetraun Bónusvídeós er
skemmtilegur leikur þar sem þátttakendur eiga
þess kost aö vinna gjafakort meö úttekt á þrem
myndbandsspólum frá nýrri og stórglæsilegri
myndbandaleigu Bónusvídeós aö Nýbýlavegi
16. Þaö eina sem þarf aö gera er að hringja í
síma 99-1750 og svara fimm laufléttum
spurningum um myndbönd. Svörin við
spurningunum er aö finna í blaðauka DV um
dagskrá, myndbönd og kvikmyndir sem fylgir DV
á fimmtudögum.
Dregið daglega úr pottinum!
Daglega frá fimmtudegi til miövikudags veröa
nöfn þriggja heppinna þátttakenda dregin úr
pottinum og hreppa þeir hinir sömu gjafakort
frá Bónusvídeói. Allir sem svara öllum fimm
spurningunum rétt komast í pottinn. Munið aö
svörin við spurningunum er aö finna í
myndbandaumfjöllun DV á fimmtudögum.
Nöfn vinningshafa veröa birt í blaðauka DV um dagskrá,
myndbönd og kvikmyndir í vikunni á eftir.
BONUSVIDEO
Nýbýlavegi 16. Sími 564-4733
Opiö virka daga frá 10 - 23.30.
Laugard. og sunnud. frá 12 - 23.30