Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Page 12
I
12
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
Spumingin
Ætlarðu á skíði
til útlanda?
Jón Örn Sigurðsson: Nei, ekki í ár.
Sigurður Stefánsson: Nei, ekki núna.
Haraldur Björnsson: Nei.
Heiða Reynisdóttir: Nei, það held ég
ekki, ég á ekki peninga.
Kristín Jóhannsdóttir: Nei.
Helga Valtýsdóttir: Nei.
Lesendur___________________________
íslensk stjómmál í endumýjun:
Flokkakerfið
tekur kipp
Veldur endurnýjunarhæfileikinn verulegum flokkaflækingi kjósenda i kom-
andi kosningum?
Gunnlaugur Sigurðsson skrifar:
Menn hafa að sjálfsögðu tekið eftir
því að íslensk stjórnmál eru að breyt-
ast. Flokkakerfið hér á landi hefur
tekið kipp, sem ekki er séð fyrir end-
ann á. Segja má að stjómmálaflokk-
amir á vinstri vængnum séu ekki
nema en svipur hjá sjón frá þvi fyrir
nokkrum árum. Ýmist eru flokkar
að sameinast eða máttarstólpar
þeirra að færa sig um set. Þetta er
áberandi í Alþýðuflokki, Alþýðu-
bandalagi og jafnvel í Samtökum um
kvennalista. - Aðeins tveir flokkar,
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur, standa óhaggaðir að mestu
leyti.
Það mátti svo sem búast við hrær-
ingum í stjórnmálalífi hér, svo mjög
sem þjóðmál (les: stjórnmál) eru í
sviðsljósinu svo að segja dag hvern
allt árið um kring. Fáar þjóöir eru
jafn pólitískar og íslendingar, og ekki
er svo gefið til samhjálpar eða steypt
ný akbraut að ekki sé strax orðið
umfjöllunarefni dagsins. Og fólkið
vill hafa sinn flokk til að styðjast viö
og engar refjar. Þess vegna skiptast
menn hér óhjákvæmilega í flokka og
’fáir eru þeir íslendingar sem ekki
hafa álit stjórnmálum. Þess vegna
skipast líka fljótt veður í lofti og
menn eru tilbúnir að skipta um
flokka þegar þurfa þykir.
En það er óvenjumikil uppstokkun
í flokkakerfinu um þessar mundir,
og óvenjumikil endumýjun í öllum
flokkum. Ný kynslóð er bersýnilega
að taka við einmitt núna. Ný viöhorf
eru komin til sögunnar og gluggar
til austurs og vesturs hafa opnast
upp á gátt. Það þótti ekki hæfa fyrir
nokkrum árum. Meira að segja frels-
ið og markaðsbúskapurinn á upp á
pallborðið í vinstri flokkunum, og
það eitt kann að raska ró „kyrralífs-
flokkanna", Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks þegar fram i sæk-
ir. - Og slíkur er endurnýjunarhæfi-
leikinn í stjórnmálunum þessa dag-
ana að hann gæti valdið verulegum
flokkaflækingi hjá kjósendum í kom-
andi kosningum.
Eru reykingamenn ofsóttir?
S.K. skrifar:
Manni blöskrar hve ofsóknirnar
gegn reykingafólki ganga langt. - Það
skeður t.d. aftur og aftur að fólk sem
hefur stolist til að reykja á salernum
í Flugleiðavélum hefur fengið yfir sig
slíkar formælingar frá flugfreyjum
að fólk þetta er miður.sín í langan
tíma. Jafnframt lýsir einn fulltrúi
félagsins þvi yfir að allir séu ánægð-
ir með reykingabann á leiðum flugfé-
lagsins til Evrópu!
Þetta er hins vegar alrangt. Það er
mikil og almenn óánægja meö þetta
bann því að fólki finnst það svipt
mannréttindum. En öfgafólk hefur
náð sínu fram. Og dæmi eru um að
fólk kaupi alls ekkert í flugvélum og
sitji óhresst undir slíkri kúgun sem
reykingabann er. Og öruggt er að
sala á vamingi hefur stórminnkað
við banniö.
Hvernig stendur á því að flogið
hefur verið með fólk sem reykti um
borð í flugvélum Flugfélags íslands
og Loftleiða og síðan Flugleiða í yfir
30 ár? Hvaða hefur breyst? Eru öfga-
menn allsráðandi? - Eg skírskota í
leiöinni til farþega Flugleiða sem
fljúga til Ameríku en þeim er ekki
bannað að reykja. Sá fulltrúi Flug-
leiða sem lýsti því yfir að allir væru
ánægðir með reykingabannið gat
þess í leiðinni að stutt væri í reyk-
ingabann á leiðum félagsins vestur
um haf.
Mér er mjög hlýtt til Flugleiða og
vil veg þeirra sem mestan. En ég
spyr: Hver kom þessu reykingabanni
á og er réttur minn enginn í þessu
samhengi? Ég tel öll svona bönn úr-
elt og að þau muni fyrr eða síðar
heyra sögunni til. - Sum Evrópuflug-
félög, sem tóku upp reykingabann,
hafa hætt því og skipt farrými vél-
anna í reyklaust og reykingasvæði.
Ég skora hér með á umboðsmann
Alþingis að kveða upp úr hvort ekki
sé verið að bijóta á fólki, hvort sem
það er á vinnustað eða i flugvélum.
Hundar og kettir óvinir fólksins?
,Kristinn Sigurðsson skrifar:
Svona spurning er að sjálfsögðu
fáránleg því frá ómunatíð hafa hund-
ar og kettir verið kærkomin húsdýr
á þúsundum íslenskra heimila og
veriö mikill gleðigjafi bæði fyrir börn
og fullorðna og á öllum aldri. í sveit-
um eru hundar og kettir sjálfsögð
heimilisdýr og fá ekki síður umönn-
un en heimilisfólkið. Og ótal dæmi
eru um það að við óhöpp og slys er
það hundurinn sem annaðhvort hef-
ur bjargaö eða látið vita af óhappinu
með einhverjum hætti.
Ótal brunar hafa og orðið í Reykja-
vik að næturlagi þar sem hundur
kemur við sögu á þann hátt að það
er hundurinn sem vaknar og vekur
íbúa hússins. Svona mætti áfram
halda að taka dæmi. - Nýlegur sorg-
DV áskilur sér rétt
tilaöstytta
aðsend lesendabréf.
Óheillaþróun er hafin með því að
vilja útrýma blokkarkisunni, segir
bréfritari m.a.
aratburður á Vestfjörðum sýnir enn
og aftur að hundar eru enn mikils
virði hér á landi.
Sumt fólk, sem heldur hesta sína
innan um Fáksmenn sem eru upp til
hópa sómamenn, þolir ekki hunda
eða ketti. Fáksmenn hafa margir
hverjir með sér hunda sína þegar
þeir fara í útreiðartúra. Það þykir
enn vera sjálfsagður hlutur þótt öðr-
um þyki ekki mikið til koma. Þá má
nefna samtök sem hafa hafið ofsókn-
ir gegn köttum í blokkum og því
miður hefur þessu óheillafólki tekist
að fá bann við-því að fólk eigi kisur
sínar óáreitt.
Óheillaþróun er hafin í þjóðfélaginu
með því að efna til gráts og gnístranar
tanna hjá börnum og eldra fólki sem
vill halda sín gæludýr. En nú er
snobbfólkið að fara inn á þessa braut.
Nú eru hundur og köttur óvinir fólks-
ins að þess mati. Hvernig væri að
stofna samtök sem væru mótvægi
gegn þessu einstrengingslega fólki
sem er fullt af mannvonsku?
DV
Hafnaþeiröllu
á Akureyri?
Jakob hringdi:
Ég er farinn að óttast að bæjar-
stjóm Akureyrar verði undir, ef
svo má orða það, varðandi hugs-
anlega sölu á hlut sínum i Útgerð-
arfélagi Akureyringa. Sannleik-
urinn er einfaldlega sá, aö mínu
mati, að þeir sem nálægt þessu
máli koma i bæjarstjórn eru
þannig innréttaðir að þeir vilja
ekki taka á málinu af festu. Því
er hætt við aö allt málið klúðrist,
ÚA og öllum bæjarbúum á Akur-
eyri til stórfjóns. - Þetta mál var
næstum komið í höfn, með hag
Akureyringa að leiðarljósi, en nú
er hætt við að allt tapist. Enn eitt
dæmið um klúður í íslenskri
stjómsýslu.
Engin kjördæma-
leiðrétting?
Gunnar Magnússon skrifar:
Það era mikil og ill tíðindi að
Alþingi skuli ekki standa við neitt
af því sem ýjað er aö til úrbóta.
Menn bjuggust sannarlega við að
kjördæmamáliö yrði tekið fyrir á
þessu þingi og afgreiðslu þess
máls háttað á þann veg að kosið
yrði þá tvisvar á árinu til að ný
kjördæmaskipan gilti með seinni
kosningunum. Þetta virðist nú
ekki ætla að ganga eftir. Og þá
spyr maður sig hvort nokkurn
tíma verði leiðrétt það misvægi
sem nú er í gangi hvað snertir
atkvæðavægið. Þetta mál er
dæmigert fyrir seinagang og
stjómleysi það sem ríkir á Al-
þingi hin síðustu ár.
Skýrslan
ógnvænlega
Sigmundur skrifar:
Mér þykir skýrslan sem meiri-
hluti bæjarstjómar í Hafnarfirði
sendi frá sér um kærur vegna
samskipta Hagvirkis-Kletts og
bæjarsjóðsins ætla að draga dilk
á eftir sér. Það virðist a.m.k. ætl-
un krata að krefjast þess að for-
sætisráðherra hreinlega láti þetta
mál niður falla með boðskipun
þar um til meirihlutans i Hafnar-
firði. - Það má því með réttu
nefha skýrslu þessa Skýrsluna
ógnvæniegu, því hún kann að
setja allt á annan endann í sam-
starfi ríkisstjómarflokkanna
ri'eggja á lokasprettinum.
Viðskiptafarsinn
áAkureyri
Sigfús hringdi:
Það verður fróðlegt að heyra
hverjar verða lyktir á Akureyri
vegna tilboðanna til bæjarstjórn-
arinnar í eignarhlut bæjarins í
Útgerðarfélaginu. Hingað til hef-
ur málið allt mest líkst farsa, og
ég sé ekki hvernig bæjarstjórnin
ætlar að ganga aö hinu svokall-
aða „sprengjutilboði" Söluiniö-
stöðvarinnar, án þess aö veita
íslenskum sjávarafurðum hf„
hinu nýja og endurreista SÍS í
sjávarútvegi, þungt höfuðhögg i
leiðinni.
Tilvísunarkerfið
ersjálfsagt
F.K.Á. hringdi:
Það yrði mikill skaði fyrir neyt-
endur, sem eru sjúklingar í þessu
tilviki, ef tilvisunarkerfið marg-
rædda yrði ekki að veruleika. Þaö
styrkir trúna á heilbrigðiskerfið
og gefur möguleika á að halda
mun betur utan um þær greíðslur
og verk sem unnin eru af sér-
fræðingum á stofum sínum. Lát-
um sérfræðingana bara segja sig
úr lögum við kerfið. Hvaöan
halda þeir aö peningarnir kæmu
þá?
(
í
I
c
i
4
€
4
\