Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Page 14
14
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)563 2700
FAX: Auglýsingar: (91)563 2727 - aðrar deildir: (91)563 2999
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk.
Gagnrýni svarað
í tveimur leiðurum í þessari viku hefur verið vikið
að málum sem nokkra athygli hafa vakið og snerta fram-
boð og þingmennsku. í öðru tilvikinu var fjallað um þá
háttsemi margra alþingismanna að skrá lögheimili sín
úti á landsbyggðinni enda þótt þessir sömu þingmenn
haldi heimih að staðaldri í Reykjavik og nágrenni. Þetta
sýnist gert til að „svindla á kerfmu“, fá greidda húsa-
leigu, dagpeninga og ferðastyrki til að drýgja laun sín.
I hinu tilvikinu er íjallað um framboð Ögmundar Jón-
assonar sem óháðs frambjöðanda á lista Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík. Bent er á þverstæðuna og tvískinn-
unginn í þeirri póhtík Ögmundar að binda trúss sitt við
einn tiltekinn stjórnmálaflokk á sama tíma og hann þyk-
ist geta verið óháður í framboði sínu og þingmennsku
ef af henni verður. í lok þess leiðara er minnt á þau
hagsmunatengsl sem voru á mhh Ögmundar Jónassonar
og fyrirtækisins Svart á hvítu en Ólafur Ragnar Gríms-
son, þáverandi fármálaráðherra, varð frægur fyrir að
taka gagnabanka fyrirtækisins sem veð upp í söluskatts-
skuldir. Sú ákvörðun hefur verið tahn í hópi þeirra spih-
ingarmála sem eru „lögleg en siðlaus“.
í framhaldi af þessum skrifum er rétt cg skylt að geta
þess að tveir þeirra sem nafngreindir eru í áðumefndum
leiðurum, Sighvatur Björgvinsson og Ólafur Ragnar
Grímsson, hafa viljað gera athugasemdir við það sem að
þeim snýr. Ennfremur er það haft eftir Ögmundi Jónas-
syn að óheiðarlega hafi verið að sér vegið.
Sighvatur telur ómaklegt að nefna sig sérstaklega í
tengslum við vafasöm lögheimili alþingismanna. Hann
hafi setið meira og minna 1 tuttugu ár á Alþingi og hafi
aðeins eitt árið látið skrá sig í fyrrum húsakynnum Hjálp-
ræðishersins á ísafirði.
Ólafur Ragnar Grímsson segir að engin tengsl hafi
verið á milli þess að hann hafi veðsett gagnabanka Svarts
á hvítu og veðbanda á húseign Ögmundar Jónassonar.
Það hafi ekki verið á hans valdi að ahétta veðskuldum
af þeirri húseign.
Þessum athugasemdum er hér með komið á framfæri
enda ekki ætlunin að hafa neinn fyrir rangri sök. Það
breytir ekki því að sú gagnrýni sem fram kemur í áður-
nefndum tveim leiðurum stendur óhögguð og hún er sú
að alþingismenn og ráðherrar eru staðnir að því að mis-
nota aðstöðu sína með löglegum en siðlausum hætti.
Alþingismenn eiga að sjá sóma sinn í því að leggja
niður þær reglur sem gera þeim kleift að svindla á kerf-
inu varðandi lögskráningu heimila sinna. Gildir þá einu
hvort þeir hafi sjálfir, hver og einn, notfært sér göt í
reglunum einu sinni eða oftar. Meðan sá ósómi við-
gengst er hann á ábyrgð þeirra ahra.
Og Ólafur Ragnar situr uppi með þá staðreynd að
hafa beitt valdi sínu sem ráðherra til að samþykkja ónot-
hæfan gagnabanka tiltekins fyrirtækis sem veð fyrir
skuld gagnvart ríkissjóði. Af því máh er póhtískur fnyk-
ur sem settur er í samhengi við annað.
Af þessum atvikum eru dregnar ályktanir. Hvert eitt
mál sem er á mörkum velsæmis er kannski ekki svo stórt
að viðkomandi verði dæmdir til ólífis í póhtík. Ögmund-
ur Jónasson er enginn svikahrappur og hefur í rauninni
ekkert til saka unnið annað en það eitt að vera kominn
í framboð í krafti þess að segjast vera fulltrúi póhtísks
skírlífis. Þá verður hann líka að sætta sig við að vera
skoðaður í því ljósi og þau tengsl sem mynduðust og al-
mælt eru í sambandi við sorgleg endalok Svarts á hvítu.
Ehert B. Schram
... of snemmt að afskrifa herhlaup Jeltsíns í Tsjetsjeníu sem mistök,“ segir m.a. í grein Gunnars í dag.
Símamynd Reuter
j
Jettsín sýnir réttan lit
Því hefur víöa veriö slegiö föstu
á Vesturlöndum aö Borís Jeltsín sé
að grafa sér sína eigin gröf með
herferöinni í Tsjetsjeníu. Víst er
það að hann hefur valdiö aðdáend-
um sínum meðal leiötoga Vestur-
landa miklum vonbrigðum og horf-
ur eru á að hernaðurinn muni
bitna illilega á Rússum.
Lánveitingar að vestan eru í bið-
stöðu, fordæmingar hvaðanæva
dynja á Jeltsín, veröbólga er á upp-
leið, einmitt þegar virtist farið að
rofa til í efnahagsmálum, og síðast
en ekki síst hefur orðstír rússneska
hersins beðið mikinn hnekki Vegna
þess klúðurs sem einkennt hefur
hernaðinn í Tsjetsjeníu enda þótt
sigur ynnist að lokum í Grosní. En
veikir þetta Jeltsín í raun og veru?
Við þeirri spurningu er ekki ein-
hlítt svar, vera má að Jeltsín þekki
sitt fólk betur en vestrænir frétta-
menn og póhtíkusar.
Vestræn gildi
Lýðræði er framandi hugtak fyrir
Rússum, lengst af hafa þeir tahð
aö það þýddi alræði meirihlutans.
Sá meginþáttur lýðræðis að taka
tillit til minnihlutasjónarmiða hef-
ur verið þeim illskiljanlegur.
Mannréttindi í vestrænum skiln-
ingi hafa aldrei þekkst í Rússaveldi.
Þótt Vesturlandamenn vilji trúa
að Rússar þrái það heitast að líkj-
ast Bandaríkjamönnum sem mest
eru Rússar fyrst og fremst ákafir
ættjarðarvinir og þjóðernissinnar.
Tortryggni á allt vestrænt á sér
djúpar rætur. í skoðanakönnunum
kemur enda í ljós að alþýða manna
utan Moskvu styður herferðina
eindregið og Jeltsín með. Það er
fyrst og fremst í Moskvu, þar sem
vestrænna áhrifa gætir helst, sem
andstaða gegn henni á gerir vart
við sig. - Moskva er ekki allt Rúss-
land.
KjáHarinn
Gunnar Eyþórsson
blaðamaður
Sú lína sem Jeltsín hefur nú tekið
er afdráttarlaus þjóðernisstefna og
upphafning Rússlands umfram að-
ar þjóðir sem er mjög í anda hins
klassíska rússneska hugsunarhátt-
ar. Þar við bætist andstyggð á
Tsjetsjenum vegna illræmdrar
glæpastarfsemi þeirra sem og á
Tsjetsjeníu sjálfri sem hefur veriö
griðland bófaflokka sem herja í
Rússlandi í Mafíustíl. Rússar gráta
þurrum tárum yfir örlögum
Tsjetsjena i Grosní.
Sjálfstæðisyfirlýsing
Það er virðurkennt með semingi
á Vesturlöndum, a.m.k. í Banda-
ríkjunumn, að Jeltsín hafi rétt til
að beita valdi til að halda Rússa-
veldi saman. Það er yfirdrifiö að
hkja þessu stríði við Afganistan.
Tsjetsjenar hafa, þótt ekki sé nema
landfræðilega, enga möguleika til
aö halda uppi hernaði til lengdar
þótt þeir geti stundað skærur og
skemmdarverk. Né heldur gæti
sjálfstætt ríki þeirra staðist því að
það er einangraö á alla vegu nema
að Georgíu og þaðan er ekki vin-
semdar að vænta.
Eimitt þess vegna mætti spyrja
hvers vegna ekki var reynt til
þrautar að semja því að Tsjetsjenar
vita að þeir fá ekki þrifist án ná-
inna samskipta við Rússland. Svar-
ið við því hlýtur að liggja í hugar-
farsbreytingu Jeltsíns enda var
hann sjálfur aldrei sannfærandi
sem lýðræöislegur leiðtogi.
Striðið er eins konar sjálfstæðis-
yfirlýsing, það áréttar að Rússar
gera það sem þeim sýnist, utanað-
komandi ríki geta étið það sem úti
frýs. Þessi hugsunarháttur kann
vel að vera í betri samhljóm við
rússneska þjóðarsál en erlent lýð-
ræðis- og mannréttindahjal. Því er
of snemmt aö afskrifa herhlaup
Jeltsíns í Tsjetsjeníu sem mistök.
Því fer fjarri að öll kurl séu komin
th grafar.
Gunnar Eyþórsson
„Þaö er viðurkennt meö semingi á
Vesturlöndum, a.m.k. 1 Bandaríkjun-
um, aö Jeltsín hafi rétt til aö beita valdi
til að halda Rússaveldi saman.“
Skodanir aimarra
Kauphækkanir -
samkeppnisstaða
„Samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja hefur batn-
að. Þessum árangri megum við ekki glutra niður.
Kauphækkanir umfram það sem gengur og gerist í
nágrannalöndum okkar munu veikja stööu okkar
og raska því jafnvægi sem er forsenda hagvaxtar og
atvinnuuppbyggingar. í hita leiksins sést mönnum
yfir þá staðreynd, að grundvöhur aukinnar hagsæld-
ar er traust atvinnulíf sem býr við hagstæð og stöð-
ugstarfsskilyröi."
Sveinn Hannesson framkv.stj. í Mbl. 26. jan.
Samkeppni í olíusölu
„Aukin samkeppni olíufélaganna hefur sprottið
upp vegna þess að fyrirtækin hafa að hlúta verið
leyst úr opinberum viðjum veröstýringar og af-
skipta. ... Það skal dregið í efa að Irving OU heföi
litið á ísland sem vænlegan fjárfestingarkost, heföi
hið úrelta kerfi sameiginlegra innkaupa, opinberrar
verðstýringar með kröfunni um eitt verð fyrir alla
óháð magni eða kostnaði við sölu, veriö í gildi. Til
aö stíga skrefið til fulls verður að afnema fiutnings-
jöfnun sem alþingismenn heyktust á aö gera fyrir
tæpu ári.“ Úrforystugrein Viðskiptablaðsins 25. jan.
Tvær skýrslur
„Tvær skýrslur, sem Ríkisendurskoðun hefur ný-
lega sent frá sér, vekja nokkra athygU. Niðurstöður
beggja leiða í ljós að stjórn ríkisfjármála og þær aö-
gerðir, sem gripið hefur verið til á undanförnum
árum, eru tUvUjanakenndar.... Þaö er ljóst að gjör-
breyta þarf vinnubrögðum varðandi ríkisjjármáhn,
en það verk bíður þeirra sem við taka eftír kosning-
ar. TUvitnaöar skýrslur ásamt fleiri úttektum Ríkis-
endurskoðunar ættu að vera góður grunnur tU slíkra
breytinga." Úr forystugrein Timans 26. jan.