Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Qupperneq 17
16
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
25
Iþróttir
DV
Iþróttir
Klinsmann
ábatavegi
Þýski knattspymumaöurinn
Jurgen Klinsmann er á góðum
batavegi eftir aö hafa rotast í leik
Tottenham gegn Aston Villa í
ensku úrvalsdeiMinni í fyrra-
kvöld. I gær kom í Ijós að hann
slapp við kjálkabrot eöa nefbrot,
eins og óttast var, og getur liklega
spílað meö liðinu gegn Sunder-
land í bikarkeppninni á sunnu-
dag.
Mark Bosnich, markvöröur
Aston Villa, var miður sín eftir
að hafa keyrt Klinsmann niður
utan vítateigs með glæfralegu
stökki. Bosnich fór inn í sjúkra-
herbergi Tottenham í hálfleik til
aö ræða við Klinsmann og sagði
aö Þjóöveijinn hefði tekið sér vel.
Matthátisskormn
uppígær
Lothar Matthaus, fyrirhöí
þýska landsliösins í knattspyrnu,
var í gær skorinn upp vegna
meíðsla á hásin en hann slasaöist
í æfingaleik gegn Bielefeld í
fyrrakvöld. Ljóst er að hann spil-
ar ekki meira á þessu tímabili og
hætta er tafin á að ferli þessa
snjaUa knattspyraumanns sé
jafnvel lokið. Mattháus hefur
leikið 122 landsleiki fyrir Þýska-
land og hampaöi HM-styttunni á
italiu árið 1990.
HMáskíðum
frestaðumár
Heimsmeistaramótinu í alpa-
greinum skíðaíþrótta, semhefjast
átti í Sierra Nevada á Spáni næsta
mánudag, var í gær frestað um
eitt ár. Snjóleysi hefur sett strik
í reikninginn hjá mótshöldurum
og þar sem fjóst var í gær að ekki
myndi snjóa í tæka tíö var ekki
um annað að ræða en að aflýsa
mótinu. Sjö fslenskir skíðamenn
áttu aö keppa á mótinu og átti
þetta aö vera stærsta verkefni
Skíðasambands íslands á þessu
ári.
Pippen sektaður
ogíleikbann
Scottie Pippen, leikmaður
Chicago Buhs í NBA-deildinni í
körfuknattleik, var í gær úr-
skuröaður í eins leiks bann og aö
auki í 420.000 króna sekt fyrir
ópruðmannalega framkomu 1 leik
með Chicago gegn SA Spurs í
fyrrinótt. Pippen var rekinn í bað
þegar þrjár nu'nútur voru eftir og
á leið sinni til búnmgsherbergja
lét hann öhum illum látum og
kastaði meöal annars stól að rit-
araborðinu.
Cantona-málið í Englandi:
Leikur varla framar
fyrir Frakkland
Enska knattspymusambandið hef-
ur ákært Eric Cantona í framhaldi
af slæmri hegðun hans í leik Crystal
Palace og Man. Utd í fyrradag. Can-
tona fær 14 daga til aö útskýra hegö-
un sína.
Max Marquis, ritstjóri hins þekkta
franska tímarits, France Football,
sagði í gær að sennilega ætti Eric
Cantona ekki afturkvæmt í frönsku
knattspyrnuna. „Hegðun hans hefur
versnaö síðan hann fór til Englands
og fimm rauö spjöld á tveimur árum
segja allt sem segja þarf. Þar hefur
hann líka oft brotið af sér á hrikaleg-
an hátt og það er nokkuö sem ég sá
hann aldrei gera í Frakklandi. Hegð-
un hans er óafsakanleg, maöurinn
er gersamlega stjórnlaus," sagði
Marquis í samtali við Sky.
„Með framkomu sinni hefur Can-
tona sett Manchester United í hræði-
lega stöðu. Þetta er stórt og frábært
félag sem nú hefur sett meira ofan
en nokkru sinni í sögunni og á þaö
ekki skilið," sagði Alan Mullery,
fyrrum fyrirliði enska landsliðsins.
Engin yfirlýsing kom frá Manc-
hester United í gær og talsmaður fé-
lagsins sagði að hennar væri ekki að
vænta fyrr en í fyrsta lagi í dag.
Cantona er fyrirhði franska lands-
liðsins og framtíð hans þar er í mik-
illi hættu. í sameiginlegri yfirlýsingu
frá forseta franska knattspyrnusam-
bandsins og formanns frönsku
deildakeppninnar í gær sagði meðal
annars: „Við vorum þrumu lostnir
þegar við sáum þetta alvarlega atvik
og lásum um það. Við munum óska
eftir öllum gögnum um málið frá
enska knattspyrnusambandinu og
grípum til allra nauðsynlegra aö-
gerða, hversu dýrkeyptar sem þær
kunna að verða.“
Gary Lineker, fyrrum miðheiji
enska landsliðsins, sem aldrei fékk
áminningu á 17 ára ferli sínum sem
atvinnumaður og vinnur nú sem
knattspyrnusérfræðingur hjá BBC,
sagði: „Þetta atvik er ótrúlegt og
óafsakanlegt. Það skiptir engu máh
hve mikið áhorfendur reyna aö æsa
þig upp, hvað sem þeir segja við þig,
þá verður þú að hafa stjóm á þér.
Cantona fær langt bann.“
Claude Simonet, forseti franska
knattspyrnusambandsins, segir aö
ferill Cantona sem knattspyrnu-
manns sé á enda eftir þessa árás.
„Því miður held ég að Cantona
verði að hætta í franska landsliðinu.
Ég segi því miður vegna þess aö hann
er leikmaður með frábæra hæfileika.
Stjórnarmenn í aganefnd Alþjóöa
knattspyrnusambandsins, FIFA, og í
evrópska knattspyrnusambandinu,
UEFA, segja að það rsé í höndum
enska knattspyrnusambandsins
hvernig verði tekið á málum Can-
tona.
100 dagar fram að HM
í dag eru 100 dagar þangað til flautað verður til léiks í heimsmeistarakeppn-
inni í handknattleik, stærsta íþróttaviðburði sem nokkurn tíma hefur fariö
fram hérlendis. Mótiö hefst sunnudaginn 7. maí og stendur yfir í 14 daga
en úrslitaleikurinn fer fram í endurbættri og stækkaðri Laugardalshöll
klukkan 15 sunnudaginn 21. maí.
í tilefni þess að 100 dagar eru þar til handknattleiksveislan hefst hafa fram-
kvæmdanefnd HM ’95 og Kringlan sameinast um hátíð um helgina þar sem
ýmsar uppákomur sem tengjast heimsmeistarakeppninni veröa á dagskrá.
NISSAN-DEILDIN
- HAUKAR
sunnudagskvöld kl. 20.00
í íþróttahúsinu v/Strandgötu
Seldar verða bökur frá Jóni Bakan fyrir
leik og í hálfleik.
Afram IH!!!
Steve Young,
liösstjóri
San Francisco 49er's.
Kosinn besti
leikmaður ársins '94
Natron Means, ruónings-
maður fyrir San Diego Chargers
okkrarre
í ruðningi
o
OVöllurinn er ÍOO
metrar* á lengd.
Liðin skiptast í
sóknarlið og
varnarlið
Breidd er svipuð # Liö^^tjórinn
“ „ M (quarterback
«tKJUfgT- stjórnar
fótboltavelh sóknarliðinu
*Amerískur yard (0,91 m) er hér metri
Markmiðið er að
koma boltanum
inn í endamörk
andstæöingsins
Sóknarliðið fær
mest 4 tilraunir
til að koma
boltanum 10
metra. Ef það
tekst ekki verða
þeir að sparka
boltanum frá sér.
Þar sem boltinn
endar byrjar
andstæðingurinn
o
Komist boltinn í
endamark fást 6
stig. Að auki fær
þaö lið tilraun til
að sparka
boltanum milli
stanganna sem
eru á enda
vallarins. 1 stig
fæst fyrir það
Lið nota stundum 4.
tilraun til vallar-
marks ef þaö er
nálægt endamörkum.
3 stig fást fyrir þaö
Leikurinn skiptist í
4 leikhluta, 12 mín.
hver
Það má halda áfram
en Stöö 2 verður
með ítarlegri tölu í
iþróttaþætti sínum á
sunnudaginn
Latrell Sprewefl er í byrjunarliði
Vesturdeildarinnar.
NBAínótt:
Meistarar Houston Rockets töp-
uðu í nótt í firamta skipti í síð-
ustu 7 leikjunum þegar þeir sóttu
granna sína i San Antonio heim.
Shaquille O’Neal átti stórleik
með Orlando gegn Chicago og
tryggöi liði sínu sigur með 3 stig-
um þegar 20 sekúndur voru eftir.
Utah vann sinn 15. útisigur í röð
og þarf aðeins einn í viðbót til aö
jafna met Lakers. Úrslitin í nótt:
AHanta - Cieveland.... 68-77
Blaylock 22 - Hill 14/10, Mills 14/11.
Detroit-Portland..... 89-106
- Strickland 15, Robinson 14.
Indiana - Phoenix..... 86-92
Smits 26 - Perry 14, Green 14, Bar-
kley 11/19.
NewYork-LAClippers.... 87-74
Bwing 21/10, Davis 18 -
Washington- Golden St.... 118-121
Cheaney 32 - Hardaway 30, Gatling
18/12, Morton 14.
Orlando-Chicago.......102-99
Shaq 37/17, Scott 19, Anderson 15
- Blount 16, Kukoc 15.
San Antonio - Houston.103-100
Elliott 26, Robinson 25 - Olajuwon
36/14.
Seattle -Utah........108-120
Kemp 19, Gill 18 - Malone 28,
Stockton 18, Hornacek 18, Keefe 16.
Sljömuleikur
Stjörnuleikurinn í NBA þar
sem mætast úrvalslíð austur-
strandarinnar og vesturstrand-
arinnar veröur leikinn í Phoenix
12. febrúar. Byrjunarliöið hafa
verið vaiin af áhangendum lið-
anna í NBA.
í fyrsta sinn i sögunni var þaö
nýliðí sem fékk flest atkvæðin en
Grant Hill, miðhetji Detroit, fékk
1.289.589 atkvæði eða rúmum
26.000 fleiri en Shaquille O’Neal,
Orlando, sem kom næstur. Þeir
tveir skipa byrjunarliö austur-
strandarinnar ásamt: Scottie Pip-
pen, Chicago, Anfemee
Hardaway, Orlando og Reggie
Miller, Indiana.
Vesturströndin: Charles Bar-
kley og Dan Majerle, báðir úr
Phoenix, Hakeem Olajuwon, Ho-
uston, Shawn Kemp, Seattle og
Latrell Sprewell, Golden State.
=llP
Bikarúrslit í körfu: Grindavík - Keflavík:
AIKeða
ekkert
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta verður einn stærsti leikurinn á
þessum áratug og þetta verður brjálaöur
leikur. Þetta eru tvö mjög sterk lið meö
mikla breidd og fullt af mönnum meö
mikla hæfileika. Það eru margir leik-
menn sem geta tekiö leikinn í sínar
hendur. Grindvíkingarnir eiga mjög
góðar þriggja stiga skyttur og ef þeir fá
aö leika lausum hala verður erfitt aö
stöðva þá. Reynsla okkar er ekkert meiri
en Grindvíkinga en þá hungrar í bikar-
inn,“ sagði Valur Ingimundarson, þjálf-
ari og leikmaður Njarðvíkinga.
„Leikurinn leggst vel í mig og ég er
bjartsýnn á aö þetta verði mjög jafn og
spennandi leikur. Það má búast við
miklum átökum því aö í þessum leik er
þaö allt eða ekkert. Liöin er mjög jöfn
en þetta verður einvígi ársins og ég býst
við metaðsókn. Ég vonast eftir mikilli
og góðri stemningu og þaö er ekkert
sjálfgefiö að þessi lið mætist aftur í vet-
ur. Þaö er draumur allra að vera komn-
ir í bikarúrslitin,” sagði Friðrik Rúnars-
son, þjálfari Grindvíkinga.
„Við þurfum aö spila okkar toppleik
til að leggja þá að velli. Þeir hafa góðu
liði á að skipa. Þeir eru með margar
góðar skyttur og vonandi verða þær ekki
heitar. Við verðum að stöðva þá en það
er okkar hlutverk að stöðva þá. Það er
þessi eini leikur, við fáum ekki annað
tækifæri ef illa fer. Þess vegna verðum
við að spila á fullu allan leikinn,” sagði
Rondey Robinsson, leikmaðúrinn öflugi
úr Njarðvík,-
„Þetta verður hörkuleikur en ég vona
að strákarnir hiksti ekki eins og síðast
á móti þeim. Það verður fjölmennt úr
Grindavík og ég reikna með að þúsund
manns komi þaðan. Ég vona að við náum
bikarnum á afmælisdaginn minn á laug-
ardaginn,” sagði Ægir Sigurðsson, form-
aður körfuknattleiksdeildar Grindavík-
ur.
„Ég er ánægður með að vera kominn
í hölhna aftur. Njarðvik hefur ekki verið
þekkt fyrir að tapa tveimur úrslitaleikj-
um í röð. Við erum með sterkt lið og við
vinnum þetta. Ég er ánægður að mæta
Grindvíkingum en þetta eru tvö sterk-
ustu liðin í dag. Ég yrði óánægður aö fá
ekki átta hundrað manns úr Njarðvík á
leikinn. Þá tel ég að Keflvíkingar styöji
okkur en við búum í sama sveitarfé-
lagi,“ sagði Ólafur Eyjólfsson, formaður
körfuknattleiksráðs Njarðvíkur.
Hvað segja „gömlu refimir“:
„Hápunkturinn“
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum:
„Þessi leikur er hápunktur keppnistímabils-
ins. Ég er alveg viss um að þarna verður leik-
inn glæsilegur körfubolti. Ég hef mikla trú á
mínum mönnum og spái þeim naumum sigri,”
sagði Ólafur Þór Jóhannesson en hann lék
með liði Grindvíkinga til margra ára.
„Til þess aö vinna Njarðvík verður lið
Grindavíkur að leika vel í sókninni en hún
brást í síðasta leik gegn Njarðvík. Við megum
ekki taka ótímabær skot í sókninni. Rondey
Robinson er það sterkur undir körfunni að
strákarnir fá ekki annað tækifæri í sókninni.
Ef Booker spilar eins og hann gerir best þá
þurfum við engu að kvíða. Það eru snjallir
leikmenn í öllum stöðum hjá báðum liðum
og þetta verður hörkuleikur. Áhorfendur fjöl-
menna og víða að. Það hafa verið þrengsli í
húsunum hér á Suðurnesjum í mörgum úr-
slitaleikjum en nú ættu allir að komast á
þennan draumaleik allra körfuboltaáhuga-
manna,” sagði Ólafur.
• „Leikurinn verður skemmtilegur. Þetta
eru tvö bestu lið landsins í dag. Allir körfu-
boltaáhugamenn hlakka til að sjá þessi góðu
Uð mætast. Ef ég ætti að tippa á sigurvegara
þá tippaði ég á Njarðvík,” sagði Gunnar Þor-
varðarson sem lék lengi með Njarðvík og hefur
þjálfað bæði liðin.
„Dagsformið mun ráða miklu. Úr-
slitin ráðast í blálokin. Þetta verður
toppleikur,” sagði Gunnar.
• „Viö vinnum þetta í jöfnum og
spennandi leik. Booker átti lélegan
leik síðast á móti þeim. Hann á eftir
að gera mun betur í þessum leik og
það munar um minna,” sagði Eyjólfur
Guðlaugsson, gamalreyndur leikmað-
ur með Grindavík.
„Njarðvíkingar vita hvaö þarf til að
vinna svona leiki en það kemur að
Grindvíkingum. Úrslitin ráðast ekki
fyrr en dómarinn flautar af,“ sagði
Eyjólfur.
• Bogi Þorsteinsson hefur oft verið nefndur faðir körfuboltans á Islandi. Hann verður heiðursgestur á leik
Grindvíkinga og Njarðvikinga í Laugardalshöll á morgun. Bogi hefur verið sæmdur mörgum heiðursmerkjum
og sést hér með fálkaorðuna, heiðurskross ÍSÍ og heiðurskross KKÍ. DV-mynd ÆMK
Bikarúrslitin 1 körfuknattleik á morgun:
„Þetta verður jaf nt“
- seglr Bogi Þorsteinsson, heiðursgestur á bikarúrslitaleiknuni
Ægir Mar Kárason, DV, Suöumesjum:
„Úrslitaleikurinn verður ákaf-
lega jafn og skemmtilegúr. Ef leik-
mönnum liðanna tekst vel upp eiga
þau að geta sýnt allt það besta sem
til er í íslenskum körfubolta í dag.
Þótt Njarðvík hafi unnið síðasta
deildarleik liðanna þá eru bikar-
leikir allt öðruvísi. Okkur er minn-
isstætt þegar við töpuðum fyrir
Keflavík í bikarúrshtunum í
fyrra,“ sagði Bogi Þorsteinsson úr
Njarðvík.
Bogi hefur oft verið nefndur faðir
körfuboltans á íslandi og hann
verður heiðursgestur KKÍ á bikar-
úrslitaleik Grindvíkinga og Njarð-
víkinga sem fram fer á morgun kl.
16 í Laugardalshöll. Bogi hefur
fylgst með íslenskum körfubolta
síðan 1952. Hann var fyrsti formað-
ur KKÍ árið 1961 og var formaður
í tæp 10 ár. Hann hefur unnið hug
og hjarta margra körfuboltaunn-
enda með gífurlega miklu starfi í
þágu körfuboltans í gegnum tíðina.
Bogi hefur meðal annars hlotið
fálkaorðuna, heiðurskrossa ÍSÍ og
KKÍ.
„Grindavík er með gífurlega
skemmtilegt liö. í því er mikið af
góðum leikmönnum. Þeir spiluðu
til úrshta í deildinni í fyrra og eru
nú í bikarúrslitunum. Það eru ekki
nema góð liö sem ná svona ár-
angri. Leikurinn verður mjög jafn
og úrslitin ráðast ekki fyrr en á
lokasekúndunum. Njarðvíkingar
hafa mikla reynslu en það er ekki
nóg. En það nægir til að hafa örlít-
ið forskot. Breiddin hjá liðinu er
mikií og einstaklingarnir eru
sterkir. Hjá liðinu er valinn maður
í hverri stöðu. Njarðvíkingar þurfa
að leika sterkan vamarleik . og
reyna að stöðva 3ja stiga skyttur
Grindvíkinga en þær eru gífurlega
góðar,” sagði Bogi Þorsteinsson.
LIÐ GRINDAVÍKUR:
Nafn Meðalskor Fráköst Stoðs. Vfti
Guðmundur Bragason 18,0 12,0 2,9 75%
Guðjón Skúlason 17,9 2,3 2,9 80%
Franc Booker 14,6 4,5 5,6 76%
Helgi J.Guðfinnsson 13,5 4,6 3,9 80%
Marel Guðlaugsson 12,5 3,3 1,6 75%
PéturGuðmundsson 10,0 4,7 1,8 78%
Nökkvi Már Jónsson 7,0 3,2 0,5 82%
UnndórSigurðsson 5,2 1,6 1,3 57%
Steinþór Helgason 2,5 0,6 0,3 75%
Bergur Hinriksson 2,0 1,3 0,6 93%
LIÐ NJARÐVÍKUR:
Nafn Meðalskor Fráköst Stoðs. Viti
Rondey Robinson 22,4 11,6 2,7 56%
Valur Ingimundarson 17,2 4,6 2,8 79%
TeiturÖrlygsson 17,0 3.2 3,8 73%
Jóhannes Kristbjörns. 9,8 2,6 3,2 76%
Kristinn Einarsson 8,3 3,1 1,5 87%
Friðrik Ragnarsson 7,9 1,1 3,0 77%
ísakTómasson 7,3 1,2 1,9' 71%
Ástþór Ingason 5,0 1,4 1,1 78%
RúnarÁrnason 4,7 2,3 0,5 50%
Jón JúlíusÁrnason 2,6 0,7 0,5 50%
„Vinnum ef við spilum vel“
- segir Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavikurstúlkna
Ægir Máx Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta eru tvö bestu hð landsins og ég býst við að leikur-
inn verði jafn frá fyrstu til síðustu mínútu. Það eru fimm
16 ára stelpur í hðinu en þær hafa einnig ungar stelpur
innan sinna raða en þetta mun skipta miklu máh. Ég myndi
telja að við værum með sterkari einstaklinga og jafnvel
meiri breidd og ef við náum að spila vel vinnum við leik-
inn. Við höfum ekki náð að vinna KR í vetur og það er
kominn tími á það,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflavíkur.
„Þetta er draumaúrslitaleikur, það er enginn vafi á því.
Þetta verður mjög erfitt en jafnframt mjög skemmtilegt.
Stelpumar eru búnar að bíða lengi eftir þessum tith. Við
vorum í úrslitum fyrir tveimur ámm og töpuðum þá fyrir
Keflavík. Þá höfðum við tapað fyrir þeim í úrslitakeppninni
tvö ár í röð. Ég held að núna séu stelpurnar hungraðar í
titil. Við erum með jafnt lið og mjög sterkt byriunarlið. Það
eru ekki margir veikir hlekkir í Keflavíkurhðinu en við
verðum að stöðva Önnu Maríu og Björgu. Leikurinn verður
jafn og úrslitin munu ekki ráðast fyrr en á lokamínútun-
um,“ sagði Óskar Kristjánsson, þjálfari KR.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 99-16-00.
39,90 kr. mínútan.
Grindavík jJ
Njarövík _2j
r o d d
jr • ” M
FOLKSINS
99-16-00
Hvernig fer úrslitaleikurinn í
bikarkeppni karla í körfu á milli
Grindavíkinga og Njarðvíkinga
Alllr í stafrœna kerflnu mci tónvalsslma geta nýtt str þessa þjónustu.
Úrslitaleikirnir í bíkarkeppni
karla óg kvenna í körfuknattleik
fara fram í Laugardalshöll á
morgun. KR og Keflavík leika í
kvennaflokki og hefst leikurinn
klukkan 13.30 ogklukkan 16 hefst
karlaleikurinn þar sem Grinda-
vík og Njarövík mætast.
KR meistari 1986
Úrslitaleikurinn í kvennaflokki
er númer 21 í röðinni. KR hefur
8 sinnum leikið til úrslita og hef-
ur 5 sinnum hampað bikarnum,
síðast árið 1986. Keflavík hefur 7
sinnum leikið til úrslita og hefur
sigrað 6 sinnum og liöíð er núver-
andi hikarmeistari.
lO.leikurNjardvíkur
Úrslitaleikurinn í karlaflokki
er númer 26 í röðinni. Njarðvík
hefur 9 sinnum leikið til úrslita
og hefur unniö 5 sinnum, síðast
árið 1992, en Grindavík er að leika
til úrslita í bikarkeppninni í
fyrsta sinn.
Sáfyrstiíúrslitum
Grindvíkingar eru að leika sinn
fyrsta bikarúrslitaleik. Hins veg-
ar hefur þjálfari þeirra, Friðrik
Rúnarsson, unniö bikarinn bæði
sem þjálfari og leikmaður. Hann
hefur unnið alla bikartitla sem
Njarðvík hefur unnið, var þjálfari
árið 1992, leikmaður í hín skiptin.
Bikarinn í afmælisgjöf ?
Ungmennafélag Grindavíkur
verður 60 ára 3. febrúar næst-
komandi. Besta aftnælisgjöfin
sem leikmenn Grindavíkurliðs-
ins geta gefið félagi sínu er að
vinna bikarinn á morgun.
Met hjá Njarðvík?
Vinni Njarðvíkingar leikinn á
morgun verður það 18. sigurleik-
ur líðsins í röð á þessu keppnis-
timabili. Þaö er félagsmet en ekki
hefur fengið staðfest hjá KKÍ
hvort annað lið hafi leikið þetta
eftir.
Dómarar leikjanna
Helgi Bragason og Jón Bender
dæma kvehnaleikinn og eftirlits-
maður verður Pétur Hrafn Sig-
urðsson. Krlstinn Albertsson og
Kristinn Óskarsson dæma karla-
leikinn og eftirlitsmaöur verður
Jón Otti Ólafsson.
NBA-stíllákynningu
Kynningin á leikmönnum úr-
slitaleiksins í bikarkeppni karla
verður sérlega glæsileg og verður
hún í sérstökum NBA-stíl. Ljósin
i Höllmni verða slökkt og mikið
verður um að vera.
Leikur áratugarins?
Úrslitaleikur Grindvíkinga og
Njarðvíkinga á morgun er af
mörgum talinn emn mesti körfu-
boltaleikur sem farið hefur fram
í háa herrans tíð hér á landi.
Nokkrir körfuboltasérfræðingar
hafa sagt að hér verði um leik
áratugarins að ræða.
1
íÁsfralíu
Andre Agassi mætir Pete
Sampras í úrslitaleik karla á
opna ástralska meistaramótinu í
tennis. Agassi vann Aaron Krick-
stein í nótt, 6-4 og 6-4, en Krick-
stein hætti vegna meiðsla í þriðja
setti jiegar staöan var 3-0 fyrir
Agassi.
Fylkir komst í 3. sæti 2. deildar
karla í liandknattleik í gærkvöldi
með J>vi að sigra Fjölni, 17-22.
• IS vann Leikni i 1. deild karla
í körfuknattleik í gærkvöldi,
89-68.