Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Blaðsíða 18
26
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
Iþróttir unglinga
DV
Alþjóðlegt borðtennismót í Malmö:
Guðmundur sigraði í flokki 13 ára
- Bjöm Jónsson, Víkingi, varð í 2. sæti í unglingaflokki
Landslið Islands í borðtennis tók
þátt í mjög sterku, alþjóðlegu borð-
tennismóti í Malmö í Svíþjóð, Kavl-
inge-leikunum, dagana 16.-24. jan-
úar. Þetta mót er hluti af undirbún-
ingi landsliðsins fyrir Evrópumót
A-landsliða sem haldið verður í
Liechtenstein í byrjun febrúar.
Guðmundur sigraði
Hinn 12 ára gamli íslandsmeistari,
Guðmundur E. Stephensen, Víkingi,
stóð sig frábærlega vel en hann sigr-
aði í flokki drengja, 13 ára og yngri,
þar sem hann lék til úrslita gegn
Fredrik Malmgren og sigraði 2-1
(13-21, 21-17, 21-18).
í flokki drengja, 15 ára og yngri,
varð Guðmundur í 2. sæti eftir
hörkuúrshtaleik gegn Martin Pers-
son sem endaði með oddalotu.
Þessi árangur Guðmundar er sér-
lega glæsilegur þvi mikil pressa var
á honum í mótinu. Hann hafði 3 titla
að verja frá því í fyrra og sigraði nú
í einum flokki og hafnaði í 2. sæti í
flokki 15 ára sem er frábært. Ljóst
var á öllu að Svíarnir lögðu mikið
kapp á að sigra Guðmund - og mikil
stemning var ávallt þegar hann var
að keppa. Guðmundur vann 17 leiki
og tapaði aðeins einum. Ljóst er því
að Guðmundur er ekki auðunninn á
erlendri grund.
Björn með silfurverðlaun
Björn Jónsson, Víkingi, 17 ára, stóð
sig einnig mjög vel en hann varð í
2. sæti í sterkum unglingaflokki þar
sem hann beið lægri hlut fyrir Magn-
us Israelson, 0-2. Björn sigraði í 6
leikjum en tapaði 3 leikjum í mótinu.
Lilja Rós Jóhannesdóttir, Víkingi,
16 ára, varð í 2. sæti þar sem hún
keppti í karlaflokki og lék til úrslita
við Niklas Christensen en tapaði 1-2.
í kvennaflokki, 19 ára og yngri, varð
hún í 5. sæti. Eva Jósteinsdóttir, 17
ára, Víkingi, varð í 3. sæti í sama
flokki.
Jón Ingi Árnason, 17 ára, Víkingi,
og Adam Harðarson, sem leikur með
sænsku liði, höfnuðu báðir í 5. sæti
í sterkum flokki í mótinu.
Ingólfur Ingólfsson, Víkingi, lék í
mjög öflugum flokki þar sem hann
sigraði í 3 leikjum en tapaði tveim.
Kjartan Briem gat ekki tekið þátt í
mótinu vegna meiðsla.
Umsjón
Halldór Halldórsson
Nllsson á réttri leið
Þessi góða frammistaða hjá hinu
unga landsliösfólki íslands í borð-
tennis er svo sannarlega gott vega-
nesti á Evrópukeppnina í febrúar.
Þessi árangur sýnir okkur enn og
aftur að borðtennisíþróttin er í mik-
illi framfór á íslandi og margir efni-
legir spilarar aö koma fram í dags-
ljósið.
Landsliðsþjálfari íslands í borð-
tennis, Peter Nilsson, sem er sænsk-
ur, er örugglega á réttri leið með hö-
ið - og er gaman að fylgjast með hin-
um miklu framfórum sem landsliðið
hefur tekið undir hans stjórn.
Þrír sterkir, frá vinstri: Björn Jónsson, 17 ára, Víkingi, sýndi miklar framfarir
í Svíþjóð og varð í 2. sæti í sterkum unglingaflokki. Við hlið hans er Jón
Ingi Árnason, Víkingi, efnilegur spilari, þá þjálfarinn, Nilsson, og Ingólfur
Ingólfsson, Víkingi, sem einnig hefur tekið miklum f ramförum að undanförnu.
Guðmundur E. Stephensen, Víkingi, 12 ára, heldur áfram að angra Svíana
en hann sigraði í flokki 13 ára og yngri í Malmö.
DV-myndir Hson
Körfuboltamót Hauka 1 yngri flokkum:
IR-ingar meistarar í 7. og 9. flokki
- en Valsstrákarnir voru með talsverða yfirburði 18. flokki
útunum.
Að venju völdu þjálfarar hðanna
sitt stjörnulið, besta sóknarleik-
manninn og besta vamarleik-
manninn í hverjum aldursflokki,
svo og besta dómara mótsins sem
að þessu sinni var Eiríkur Ólafs-
son. Sigurvegarar fengu síðan veg-
leg verðlaun að mótinu loknu.
Lið ÍR sigraði bæði í 7. og 9. flokki,
eftir harða keppni við Haukamenn,
en í 8. flokki höfðu Valsmenn
nokkra yfirburði. Það mátti greini-
lega sjá hversu körfuboltinn er í
mikilli sókn því tilþrif leikmanna
voru oft mjög skemmtileg. Körfu-
boltadeild Hauka vill koma á fram-
færi sérstökum þökkum til Lands-
bankans sem unnið hefur frábært
starf í uppbyggingu og eflingu
unglingaíþrótta. - Úrslit í flokkun-
um urðu annars þessi.
9. fiokkur
Haukar-ÍR..................34-44
Valur-Leiknir...............33-9
ÍR-Valur...................38-36
Haukar-Leiknir.............30-29
Leiknir-ÍR.................33-26
Meistarar: ÍR, 2. Haukar, 3. Valur,
4. Leiknir.
Stigahæstu leikmenn: Þorgeir,
ÍR, 37 stig. Helgi (Val) 36 stig. Lúð-
vík (Haukar) 30. Hahur (IR) 23.
Stefán H. (Haukum) 23 stig.
Stjörnulið: Þorgeir (ÍR). Lúðvík
(Haukar), besti varnarmaðurinn.
Helgi (Val), besti leikmaðurinn.
Ásgeir (ÍR). Stefán H. (Haukar).
8. flokkur
Haukar-Leiknir.............41-32
Valur-ÍR...................45-21
ÍR-Leiknir.................45-61
Valur-Haukar...............62-14
Hið árlega Landsbankamót
Hauka í körfubolta fór fram um
ármótin. Að þessu sinni var Val, ÍR
og Leikni boðin þátttaka. Keppt var
í 7., 8. og 9. flokki og fóru leikir fram
bæði í íþróttahúsi Hauka og
íþróttahúsinu við Strandgötu.
Keppnin var bæði hörð og
skemmtileg þar sem úrslit réðust
oft og tíðum ekki fyrr en á lokamín-
Sigurlið ÍR í 9. flokki ásamt þjálfara sínum, Herbert Arnarsyni.
Stjörnuliðið í 7. flokki, frá vinstri: Sveinbjörn Guðbjarnarson, útibús-
stjóri, Þórður, Hreggviður, Vignir, Smári og Gylfi.
Leiknir-Valur.............21-52
Haukar-ÍR................21-33
Meistarar: Valur, 2. Leiknir, 3.
Haukar, 4. ÍR.
Stigahæstu leikmenn: Bjarni
(Val) 54 stig. Einar Þór (Leikni) 35.
Arnar (ÍR) 29. Guðjón (Val) 27. Ólaf-
ur (Leikni) 23 stig.
Stjömuhð: Guðjón (Val) besti
varnarmaður. Bjarni (Val) besti
leikmaður. Ólafur (Leikni). Arnar
(ÍR). Hilmar (Haukar).
7. flokkur
Haukar-Leiknir.............61-6
IR-Valur................ 35-20
Leiknir-ÍR................19-38
Haukar-Valur..............45-28
Valur-Leiknir.............42-11
Haukar-ÍR.................20-28
Meistarar: ÍR. 2. Haukar. 3. Valur.
4. Leiknir.
Stigahæstu leikmenn: Smári
(Haukar) 31. Ari (Haukar) 22. Þórð-
ur (Haukar) 19. Gylfi (ÍR) 18. Hregg-
viður (ÍR) 16. Valtýr (Val) 16 stig.
Stjörnuhð: Smári (Haukar).
Vignir (Valur). Hreggviöur (ÍR)
besti leikmaður. Þórður (Haukar).
Gylfi (ÍR) besti varnarmaður.
Sigvaldi Ingimundarson, þjálfari sigurliðs Vals, ásamt Guðjóni, besta
varnarieikmanni, og Bjarna, besta leikmanni 8. flokks.