Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Side 23
M
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
Það verður dýrara að leggja bíl í miðbæ Reykjavíkur og gjaldskyldan mun ná til lengri tíma hvers dags en áður.
L. g
Bílastæðasjóður:
Dýrara að leggja
í miðbænum
Skuldir Bílastæöasjóðs jukust um
44 milljónir króna milli ára 1993 og
1994, úr 786 milljónum í 830 milljón-
ir. Fjárfestingar sjóösins námu 43
milljónum í fyrra og er gert ráö fyrir
aö þær veröi um 29,5 milljónir á
þessu ári. Aöallega er um aö ræöa
framkvæmdir viö frágang á bíla-
stæöum, undirbúning vegna ijar-
gæslu í bílahúsum og íleira sem
stuðlar aö bættri þjónustu og hag-
ræöingu í rekstri. Þetta kemur fram
í íjárhagsáætlun borgarsjóðs fyrir
þetta ár.
í fjárhagsáætlun borgarinnar er
gert ráð fyrir lengingu gjaldskyldu
frá klukkan 17 til 18 í miðri viku og
fjóra til sex klukkutíma á laugardög-
um. Svokallaður þriggja daga afslátt-
ur af aukastöðugjaldi lækkar úr 850
krónum í 500 krónur og hámarkstími
á stöðumælum viö Laugaveg og í
Kvos styttist í 30 mínútur gegn 50
króna greiöslu. Reiknað er meö aö
tímagjald miöastæða á gjaldsvæði 1
hækki úr 60 í 85 og stöðubrotagjald
hækki úr 1.000 í 1.500 krónur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri sagði við fyrstu umræöu um
fjárhagsáætlun nýlega að gert væri
ráð fyrir því aö gjaldsvæði 3 yrði
minnkaö til að fjölga skammtíma-
stæöum í Kvos. Lagt væri til aö stæö-
ið við Geirsgötu yrði á gjaldsvæði 1,
stæðiö á lóðinni við Tryggvagötu
13-15 yrði á gjaldsvæði 2 og að lang-
tímanotendur á gjaldsvæði 3 færðu
sig á Miðbakkastæðið. Bílastæði á
lóðinni Hafnarstræti 23 yröu gjald-
skyld og tilheyrðu gjaldsvæði 1,
tímagjald á Tjarnargötustæði myndi
hækka og verð næturstæða yrði
samræmt og lækkað í 1.250 krónur á
mánuði.
14,5 milljóna króna afgangur varð
á rekstri Bílastæðasjóðs í fyrra en
gert var ráð fyrir 11 milljóna króna
rekstrarafgangi í fjárhagsáætlun.
Merming
Haldið í hönd-
ina á sólinni
- Roger Ackling á Annarri hæð
Segja má að Duchamp hafi gefið tóninn fyrir nútíma-
listina þegar hann á öðrum áratug aldarinnar setti
fundna salernisskál og glasagrind á sýningu sem sín
eigin myndlistarverk. Tilbúni hluturinn, „ready
made“, olli miklu fjaðrafoki á þeim tíma en í dag eru
forsendur aðrar. Hugmyndalist, naumhyggja, geming-
alist, umhverfislist og vistvæn viðhorf hafa meöal
annars mótað afstöðu fólks til hins tilbúna hlutar í
seinni tíð og orðið þess valdandi að hann birtist í öðru
ljósi en í upphafi aldarinnar. Roger Ackling, sem um
þessar mundir sýnir á Annarri hæð að Laugavegi 37,
er einn þeirra listamanna sem fetað hafa í fótspor
Duchamps og hirt hluti upp af götunni til aö hengja
síðan upp í listhúsum. Sá er þó munurinn að Ackling
hirðir einungis spýtur og að auki brýtur hann megin-
reglu hugmyndar Duchamps með því að breyta hinum
fundnu spýtum.
Samþáttun umhverfislistar og náttúruferlis
Ackhng eyðir miklum tíma og fyrirhöfn í að brenna
með aðstoð sólarinnar beinar rákir með millimetra
millibili í spýtumar sem við fyrstu sýn hafa ugglaust
ekki haft mikla fagurfræðilega útgeislun. Listamaður-
inn, sem fæddur er í Bretlandi árið 1947, hefur ástund-
að þessa iðju í meira en tvo áratugi og list hans hefur
ekki tekið miklum breytingum á þeim tíma. í kynn-
ingu á listamanninum, sem liggur frammi á sýning-
unni, víkur John Stathatos þó nokkmm orðum að því
er Ackling tengdi verk sín ákveðnu ferli á áttunda
áratugnum er mun hafa minnt á aðferðir Hamish
Fultons. Um var að ræða samþáttun umhverfishstar,
gemings og naumhuguls hugmyndaverks þar sem
„hstamaðurinn kleif Qall og sólbrenndi fimm línur
með reglulegu millibih og urðu línurnar styttri eftir
því sem geislar sólarinnar urðu veikari." Viðarbútur
með áletrun sólar var síðan festur á spjald og merktur
á tilheyrandi hátt og náttúruferlið orðið að listrænni
afstöðu.
Sterk náttúrukennd
Eins og sjá má á sýningunni á Annarri hæö hefur
Ackling nú hætt að leggja áherslu á slíkt náttúruferli
og umhverfistengsl heldur hengir hann sólbrunnin
verkin einfaldlega upp í sýningarsal. En þótt ferlið og
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
hið staöbundna vanti inn í myndina skha hinir
brenndu kubbar sterkri náttúrukennd. Viö fyrstu sýn
er líkt og um einhvers konar smágeröan textíl sé að
ræða en við nánari skoðun er það sem líktist ullar-
bandi brennd hna. Það er ekki fyrr en nærri verkunum
er komið að augu gestsins ljúkast upp fyrir þeim mikla
aga og þeirri djúpu einbeitingu sem liggur aö baki
hverju verki. Slík einbeiting og agi tengist oft trúar-
legri hugleiðslu en öhu sennilegra er að meinlætaleg
afstaða til samfélags og umhverfis skapi þá lífsspeki
sem birtist í verkum Acklings. Hér birtast verk manns
sem segir af hógværö en festu að aðgát skuli hafa í
nærveru sálar jarðar og sólar. Sýningin stendur út
febrúar.
31
Fréttir
Reykjavíkurhöfn:
Hækkun á gjald-
skrá fyrirhuguð
fá 105 milljómr í lóðagjöld frá Irving Oil
Rekstrartekjur Reykjavíkur-
hafnar eru áætlaðar um 680 millj-
ónir króna og er það um 3,7 pró-
senta lækkun frá síðasta ári þrátt
fyrir 3,5 prósenta hækkun á gjald-
skrá fyrir skipa- og vörugjöld. Tii-
laga um þessa hækkun hggur hjá
Hahdóri Blöndal samgönguráð-
herra og er beðið staðfestingar á
henni. Rekstrargjöld hafnarinnar
fyrir þetta ár eru hins vegar áætluð
457 milljónir króna og er það 3,7
prósenta hækkun frá fyrra ári.
Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun
borgarsjóðs fyrir þetta ár.
Gert er ráð fyrir aö almennir
vöruflutningar um Reykjavíkur-
höfn aukist um 2,4 prósent og að
olíuinnflutningur haldist svipaður
í tekjuáætlun fyrir árið 1995.
Reiknað er með að skipaumferð um
höfnina haldist óbreytt á þessu ári
og að svipuöum afla verði landað á
þessu ári og í fyrra.
Áætlað er að verja 287 milljónum
til framkvæmda á vegum Reykja-
víkurhafnar á þessu ári. Mestu fé
verður varið í framkvæmdir við
olíu- og iðnaðarhöfn í Örfirisey og
á Klettasvæði, eða 142 milljónum
króna. Samtals 115 milljónir fara í
landgerð í Vesturhöfn, landgerð og
frágang Vogabakka, aukningu raf-
dreifikerfis og kaup á dráttarbát.
Búast má við að kostnaður
Reykjavíkurhafnar vegna 35.000
fermetra lóöar Irving Oh við
Klettagarða verði um 70-100 millj-
ónir króna en á móti koma 105
mhljóna króna lóðagjöld sem fyrir-
tækið þarf að greiða og verður sam-
ið sérstaklega um greiðsluhraðann.
LVI I Wr
Vinningstölur ,-------------
miðvikudaginn:! 25. janúar ‘95
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
H 6 af 6 1 115.410.000
n 5 af 6 L33+bónus 1 3.343.730
fél 5 af 6 3 114.590
ES 4af6 269 2.030
3 af 6 Rfl+bónus 1.089 210
mUHIuinningur fór til Noregs
Aðaltölur:
Heildarupphaed þessa viku:
119.872.260
l á isi.: 4.462^2601
UPPLÝSINGAR, SlMSVARI ðí- $0 15 11
LUKKUUNA M 10 00 - TEXTAVARP 451
BJRT UEO rVRIHVARA UM PRENTVILLUR
99» 17*50
Verð kr. 39,90 mín.
McDonald's leikurinn er skemmtilegur leikur þar sem
þátttakendur eiga þess kost að vinna stjörnumáltíð fyrir
tvo á McDonald's. Það eina sem þú þarft að gera er að
hringja í síma 99-1750 og svara fímm laufléttum
spurningum um veitingahús, skemmtistaði og viðburði
helgarinnar. Svörin við spurningunum er að fínna í
blaðaukanum
DV-helgin sem fylgir DV á fóstudögum.
DREGIÐ DAGLEGA ÚR P0TTINUM!
Daglega frá fóstudegi til fimmtudags verða fimm heppnir
þátttakendur dregnir úr pottinum og hreppa þeir hinir
sömu stjömumáltíð fyrir tvo á McDonald's. Allir sem
svara öllum fimm spurningunum rétt komast í pottinn.
Munið að svörin við spurningunum er að finna í
blaðaukanum DV-helgin. Nöfn vinningshafa
verða birt í DV-helgin í vikunni á eftir.
Suöurlandsbraut 56. Sími 581-1414
Opið daglega frá 10-23.00
irix^a