Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Page 24
32
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
Sviðsljós
Leikarinn Paul Newman varð sjötugur í gær. Heldur var hann nú tregur til að halda upp á afmælið og sagðist ætla
að vera í felum. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir hlutverk í nýjustu mynd sinni sem heitir Nobodys Fool en þessi
mynd var tekin af honum við töku þeirrar myndar. Símamyndir Reuter
Eili kerling er heldur farin að setja
mark sitt á Paul Newman. Hann er
þó enn eftirsóttur í Hollywood og
svona lítur hann út í nýjustu mynd
sinni.
Paul Newman sjötugur:
Var í felum
á afmælinu
Leikarinn ástsæli Paul Newman
varð sjötugur í gær. Engin varð þó
stórveislan hjá kappanum enda
hafði hann lýst því yíir að hann
myndi verða í felum á afmælinu.
Clea dóttir hans sagði hins vegar í
fyrradag að fjölskyldan ætlaði að
halda honum litla og látlausa veislu.
Hún var þó ekkert viss um hvort
pabbi gamli myndi mæta.
„Við viljúm ekki velta honum
upp úr því hversu gamall hann er
orðinn," sagði Clea.
Paul hefur í það minnsta fengið
eina afmælisgjöf í þessari viku.
Hann fékk nefnilega verðlaun kvik-
myndagagnrýnenda í New York
fyrir bestan leik í aðalhlutverki
fyrir nýjustu mynd sína sem heitir
Nobodys Fool.
Newman hefur dregið nokkuð úr
kvikmyndaleiknum síðustu árin en
þykir þó hafa staðið sig vel í þeim
myndum sem hann hefur leikið í.
Meðal mynda sem hann hefur leikið
í síðustu árin eru Hudsucker Proxy
og Blaze.
Tískuhönnuðir eru greinilega sannfærðir um að Claudia Schiffer yrði
glæsileg brúður enda er hún undantekningarlaust látin sýna brúðarkjól ■ lok
hverrar tískusýningar. Ekkert hefur þó frést af því hvort Claudia og
sambýlismaður hennar, látbragðsleikarinn David Copperfield, séu í
giftingarhugleiðingum. Simamynd Reuter
Súperfyrirsætan Elle Macpherson stillti sér nýlega upp fyrir Ijósmyndara
fyrir utan Lansborough hótelið í London. „Kroppurinn" eins og hún er
jafnan kölluð í tískuheiminum, var á ferð f stórborginni til að kynna nýtt
líkamsræktarmyndband sitt sem nefnist einfaldlega „The Body“.
Símamynd Reuter
liza íhugar
húsakaup
Söngkonan Liza Minnelli er öll
að hressast eftir að læknar settu
gervimjaðmaliö i hana fyrir
skömmu. Hún er þegar húin að
skipuleggja fyrsta söng sinn opin-
berlega, þann 7. febrúar í stór-
veislu til heiðurs Anthony Hopk-
ins stórleikara. Það sem meira er,
hún íhugar meira að segja að
kaupa sér hús og flytja aftur til
Los Angeles.
Ben og félag-
ar eru þulir
Ben Kmgsley og Whoopi Gold-
berg eru meðal þeirra sem verða
þulir í heimildarmyndinm Liber-
ation, eða Frelsun, sem verður
sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Berlín innan skamms. Það er
stofhun Simons Wiesenthals sem
stendur fyrir gerð myndarinnar
sem fjallar um frelsun útrýming-
arbúða nasista í Auschwitz fyrir
50 árum.
Melanie
Griffith eftir-
sótt
Melanie Griffith er einhver eft-
irsóttasta leikkonan í Hollywood
þessa dagana og rekur hver
myndin aðra hjá henni. Nýjustu
tíðindin eru þau að hún verður í
fyrstu mynd Fernandos Truebas,
höfundar Glæstra tíma, í Amer-
íku. Sú heitir Too Much og með-
leikendur Melanie eru þau An-
tonio Banderas, sá frægi Span-
jóli, og Daryl Hannah. Melanie
leikur konu sem verður ástfangin
af Banderas sem verður ástfang-
inn af Daryl,
Heidi Fleiss í
sjónvarpi
Heidi Fleiss, konan sem hefur
verið kölluð hórumamman úr
Hollywood, hefur öðlast meira en
þessa fimmtán mínútna frægð
sem Andy Warhol talaöi um á
sínum tíma. Nú er verið að gera
um hana heimildarmynd sem
verður sýnd á kapalstöðinni
HBO. Það er sá víðfrægi heimild-
armyndasmiður Nick Broomfield
sem sfjórnar en hann hefur m.a.
gert mynd .um raömorðkvendið
Aileen Woumos.