Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Page 20
20
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995
ist
I
Á toppnum
Topplag íslenska listans er nýtt
að þessu sinni, en það er lagið Son
of a Preacher Man með Dusty
Springfield. Það lag er úr kvik-
myndinni Pulp Fiction og er end-
urgerð lags sem samið var árið
1969 og er því komið nokkuð til
ára sinna.
Hástökkið
Hástökk vikunnar er lag
Sinead O'Connor, Thank You For
Hearing Me. Sinead gaf út lagið
á smáskífu og á þeirri skífú fylgdi
einnig lagið Streets of London.
Svo sérkennilega vill til, að það
lag hefúr verið einar 8 vikur á
listanum, en Thank You for Hear-
ing Me er aðeins búið að vera 2
vikur á listanum.
Nýtt líf
Nirvana-
manna
Dave Grohl, liðsmaður Nir-
vana sálugu, er þessa dagana að
koma nýju hljómsveitinni sinni,
Foo Fighters, á koppinn. Til stóð
að félagi hans úr Nirvana, Kris
Novoselic, yrði liðsmaður hljóm-
sveitarinnar en nú er ljóst að af
því verður ekki. Nýjustu fregnir
af honum eru þær að hann sé sest-
ur við skriftir og ætli að gefa út
bók. Foo Fighters kvað hins veg-
ar vera hundelt af öllum helstu
útgáfufyrirtækjum Bandaríkj-
anna enda talin verða í hópi stór-
fiska.
Athyglis-
verð auka-
búgrein
Önnur ný hljómsveit, sem
menn bíða spenntir eftir að heyra
í, er Mad Season. Hún er aukabú-
grein nokkurra frægra poppara
og fer þar fremstur í flokki Mike
McCready, gítarleikari Pearl
Jam. Auk hans skipa Mad Sea-
son þeir Barrett Martin, trommu-
leikari Screemins.
Reiðir
rokkarar
Það er eins gott fyrir popp-
skríbenta að vara sig á því hvað
þeir skrifa um hverja. Að þessu
komust blaðamenn hins þekkta
þungarokkstímarits Kerrang! en
á dögunum réðust reiðir liðs-
menn rokksveitarinnar The
Wildhearts inn á ritstjóm blaðs-
ins og lögðu þar állt í rúst. Ástæð-
an var umfjöllun blaðsins um
meintan brottrekstur bassaleik-
ara sveitarinnar, sem var hreinn
uppspuni, að sögn hljómsveitar-
manná. Þeirra bíður nú reikning-
ur frá Kerrang! fyrir skemmdir
upp á 200 þúsund krónur.
í 1501)1 COCA-CÖLA Á BYUÍJUAM í DAG IiL. 1G.(M)
If S) / I msm LiSTijVN mi. ios V) HtiJNA 4.2 95 ■ ) ».2 '95
ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKURÁ LISTANUM TÖ1»P 40
Q) 2 16 3 -Á TOPPNUM tTVÆR VIKUR- SON OF A PREACHER MAN DUSTY SPRINGFIELD
2 1 1 8 ODE TO MY FAMILY CRANBERRIES
3 4 9 5 WHATEVER OASIS
9 12 3 CRUSH WITH EYELINER R.E.M.
CD 13 2 — HÁSTÖKK VIKUNNAR — THANK YOU FOR HEARING ME SINEAD O'CONNOR
G) 11 18 3 THE MAN WHO SOLD THE WORLD NIRVANA
G) 8 10 3 FREAK OUT JET BLACK JOE
1 ~nýttAusta~ DANCING BAREFOOT U2
9 3 2 10 ABOUT A GIRL NIRVANA
10 7 4 5 SYMPATHY FOR THE DEVIL GUNS N'ROSES
(áD 19 26 5 HIBERNACULUM MIKE OLDFIELD
12 5 7 5 ÁST! VIÐLÖGUM UNUN
13 6 5 5 BETTERMAN PEARLJAM
14 14 22 7 WE HAVE ALL THE TIME IN THE WORLD LOUIS ARMSTRONG
© 17 23 3 GLORY BOX PORTISHEAD
© 18 21 3 THE REASON IS YOU NINA
© 20 - 2 ÞANNIG ER NÚ ÁSTIN BUBBI
18 15 14 7 TAKE A BOW MADONNA
© 24 - 2 FELL ON BLACK DAYS SOUNDGARDEN
© 28 - 2 SCATMAN SCATMAN JOHN
21 10 3 10 LÖG UNGA FÓLSINS UNUN
© - - 1 THE BALLAD OF PETER PUMKINHEAD CRASH TEST DUMMIES
© - - 1 BASKET CASE GREEN DAY
© - - 1 1 LOVE THE NIGHT LIFE ALICIA BRIDGES
25 12 6 6 BLIKANDI STJÖRNUR MARGRÉT VILHJÁLMSDÓTTIR
© 27 27 5 THINK TWICE CELINE DION
© - - 1 THAT'S JUST WHAT YOU ARE AMIEE MANN
© - - 1 EVERLASTING LOVE GLORIA ESTEFAN
@ 36 - 2 TELL ME WHEN HUMAN LEAGUE
@ 34 2 STRONG ENOUGH SHERYL CROW
31 32 38 5 DON'T DON'T TELL ME NO SOPHIE B. HAWKINS
© - - 1 BETTER DAYS AHEAD TYRELL CORPORATION
© - 1 THIS COWBOY SONG STING
34 16 8 10 TOMORROW SPOON
35 29 32 5 SWEETEST DAY VANESSA WILLIAMS
© 40 - 2 IN THE HOUSE OF STONE AND LIGHT MARTIN PAGE
37 21 11 8 STREETS OF LONDON SINEAD O'CONNOR
© - - 1 HOW DID 1 GET BY WITHOUT YOU JOHN WAITE
© - - 1 OH BABY 1... ETERNAL
40 25 20 5 LITTLE BITTY PRETTY ONE HUEY LEWIS 8< THE NEWS
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DVi hverri viku.
FJöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 18 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af gengi laga á erlendum vinsældalistum og spilun
þeirra á íslenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist á hverjum laugardegi I DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 16.00 sama dag. Listinn er birtur, að hluta, i
textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur þátt I vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á
Evrópulistann sem birtur er I tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór
Backmann og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
DV
Skandall
eftir
skandal
Hljómleikaferð hljómsveitar-
innar Hole um Ástralíu hefur
verið ein samfelld syrpa af
skandölmn og skömmum. Eins
og fyrri daginn er það söngkon-
an Courtney Love sem leikur að-
alhlutverkið og virðist konugrey-
ið hafa hrokkiö algjörlega af hjör-
unum við fráfall eiginmannsins
Kurts Cobains. Hún var handtek-
in á dögunum, eins og kimnugt
er af fréttum, fyrir ósæmilega
hegðun um borð í flugvél en til
viðbótar því hefur gengið á ýmsu
á tónleikum sveitarinnar. Love
hefur meðal annars slegist við
áheyrendur, fleygt í þá skóm og
öðru lauslegu, klæmst og bölvað
eins og naut í flagi á sviðinu auk
þess sem hún hefúr flaggað ýms-
um líkamspörtum framan í
áhorfendur. Það þarf vart að taka
fram að uppselt hefúr verið á alla
tónleika Hole.
Plötu-
fréttir
Ný plata frá Bruce Springsteen
er væntanleg í verslanir í lok
febrúar. Þar er Greatest Hits
plata á ferðinni en auk gamal-
lumnra laga fljóta tvö ný með,
Secret Garden og This Hard
Land ... Wayne Kramer, sem var
liðsmaður MC5 sálugu, er kom-
inn á kreik á ný og sendir frá sér
fýrstu sólóplötu sína nú á næst-
unni... The Orb gefa út nýja plötu
um miðjan mars og þeir sem
kaupa fá talsvert af tónlist fyrir
sinn snúð því eftiið á plöftmni
mun alls ná 70 mínútum að
lengd ... P.J. Harvey hefúr lokið
upptökmn á nýrri plötu sem kem-
ur út í lok febrúar ... Um svipað
leyti kemur út langþráð Unplug-
ged plata með Bob Dylan ...
Living
Color öll
Tölvupopparinn góðkunni,
Marc Almond, hefúr skýrt frá því
að hann hafi verið hætt kominn
vegna eiturlyfjaneyslu áður en
honum tókst að koma böndum á
fíknina. Eitt sinn hafi hann ver-
ið í mikilli vímuveislu ásamt
öðru fólki og lent í útistööum við
aðra kexruglaða dópista sem
gengu svo hraustlega í skrokk á
honmn að hann sá hvorki daginn
né veginn. Og það mátti víst ekki
tæpara standa að lögreglan kom
á staðinn í þann mimd sem skríl-
mennin voru að bisa við að henda
Almond út mn gluggann á sjöttu
hæð.
Nýtt
Hæsta nýja lagið er Dancing
Barefoot sem flutt er af írsku
hljómsveitinni U2. Lagið var upp-
haflega samið af Patty Smith árið
1979, en kemur fyrir í kvikmynd-
inni Threesome með hljómsveit-
inni U2.
-SþS-