Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Qupperneq 32
44
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995
íþróttir
Alberto Tomba hefur verið ósigrandi í vetnr:
„Nú er hann orð-
inn að manni"
- verður væntanlega annar sigursælasti skíðamaður sögunnar innan skamms
Alberto Tomba er á góðri leið með
að verða einhver mesti skíðamaður
sögunnar. Að vísu eru ekki horfur á
að honum takist að hnekkja meti
Svíans snjalla, Ingemars Stenmarks,
sem vann 86 heimsbikarmót á sínum
tíma, en ítalinn vinsæli er með 42
sigra að baki og þarf aðeins einn til
viðbótar til að ná Marc Girardelli frá
Lúxemborg sem er í öðru sætinu frá
upphafi.
Alberto Tomba hefur unnið öll
svigmót vetrarins, níu að tölu, og er
efstur í stigakeppni heimsbikarsins
þó hann keppi aðeins í tveimur
greinum, svigi og stórsvigi. Engum
nema Stenmark hefur til þessa tekist
að verða heimsbikarmeistari án þess
að keppa í fleiri en tveimur greinum
og í dag eru keppnisgreinamar þó
fleiri en þegar Stenmark var kóngur-
inn.
ímynd glaum-
gosans horfin
Tomba er 28 ára gamall og hefur
gengið í gegnum margt súrt og sætt
á ferlinum. Hann hefur lengi vel bor-
iö ímynd glaumgosans - eftir ólymp-
íuleikana í Calgary 1988 var helsta
áhyggjuefni hans hvort faðir hans
myndi kaupa handa honum Ferrari-
sportbíl og á leikunum í Albertville,
fjórum árum síðar, sagðist hann ætla
að breyta æfingaáætlun sinni á þann
veg að skemmta sér með fimm stúlk-
um til klukkan þrjú um nóttina í stað
þess að skemmta sér með þremur
stúlkum til klukkan fimm! Einhveiju
sinni sagði Tomba að fyrir sér væri
draumurinn að fá sér vínglas í rás-
markinu og sígarettu á miðri leið og
koma síðan fyrstur í mark.
En þetta hefur breyst og Tomba
virðist hafa tekið út mikinn þroska
undanfarna mánuði. Fyrir skömmu
gaf hann sigurlaun sín í einu heims-
bikarmótinu til fómarlamba stríðs-
ins í Bosníu og nú er aðeins ein kona
í lífi hans, Martina Colombari, sem
er fyrrum fegurðardrottning Ítalíu.
Núerhann
orðinn að manni
Þeir sem best hafa fylgst með Tomba
eru á einu máli um að hann hafi full-
orðnast mikið að undanförnu. „Al-
berto er aUtaf Alberto. Hann er lífleg-
ur strákur. En hann hefur þroskast
mlkið upp á síðkastið og Martina á
sinn þátt í því. Nú tekur hann meiri
ábyrgð. Heimurinn kynntist honum
sem strák - nú er hann orðinn að
manni,“ segir Paolo ComeUini sem
hefur verið framkvæmdastjóri hjá
Tomba undanfarin sjö ár.
„Tomba er þannig að hann væri
vís til að segja að hann spUaði aldrei
golf en sýndi síðan í fyrsta höggi að
hann hefði æft það mánuðum saman.
Hann leggur hart að sér við æfingar.
Tomba er ekki hefðbundinn ítalskur
skíðamaður vegna þess hve hljóðlega
hann rennir sér. Gustavo Thoeni og
fleiri snjalhr ítahr voru mjög snöggir
en mjög taugaóstyrkir og voru á sí-
felldu iði. Tomba rennir sér á árang-
ursríkan hátt og eyðir engri óþarfa
orku,“ segir Tomas Karlsson, þjálfari
karlalandsUðs BandarUcjanna.
Alberto Tomba hefur sýnt ótrúlegt öryggi í skíðabrekkunum i vetur og allt bendir til þess að hann verði heimsbikarmeistari án þess að taka þátt í tveim-
ur keppnisgreinum af fjórum.
Breytti æfinga-
áætlun sinni
Tomba breytti æfingaáætlun sinni
fyrir þetta keppnistímabU. Síðasta
sumar hóf hann æfmgar 25 dögum
seinna en venjulega og sleppti því að
fara til Argentínu og Chile á þeim
tíma. í staðinn tvöfaldaði hann þrek-
þjálfunina og mætti sterkari til leiks
en nokkru sinni fyrr.
Hann hóf tímabiUð á því að enda í
fjórða sæti í stórsvigskeppni í Tignes
í Frakklandi. Eftir fyrri ferðina var
Tomba í 21. sæti en keyrði frábær-
lega í þeirri síðari, fékk þá besta tím-
ann og var hársbreidd frá verðlauna-
sæti. Hann var himinlifandi með
þennan árangur. „Það sem skiptir
mestu máU er að hafa tröllatrú á
sjálfum sér og sínum sigurmöguleik-
um. Það var stór stund hjá mér að
vera bestur í síðari ferðinni. Það gaf
mér mikið sjálfstraust fyrir fram-
haldið," segir Tomba.
Hlekktist á en
sigraði samt
Hann sýndi snilU sína í svigkeppni á
Ítalíu rétt fyrir jólin. Honum hlekkt-
ist á í miðri braut, varð að stoppa en
gat haldið áfram og sigraði. Hann
fagnaði sigrinum með heljarstökki,
sendi aðdáendum sínum fingurkossa
og knúsaði hundinn sinn, Yukon.
„Hann er orðinn nánast óstöðvandi
og ég sé engan sem getur ógnað hon-
um í heimsbikarnum," segir Marc
GirardeUi.
Mamma bannaði
keppni í bruni
Eina spumingin sem ósvarað er á
þessu keppnistímabili er hvort
Tomba haldi út og verði heimsbikar-
meistari án þess að keppa í risasvigi
eða bruni. Hann á eftir að gera end-
anlega upp hug sinn varðandi risa-
svigið vegna þess að sigur í heims-
bikarkeppninni er honum ákaflega
mikilvægur og þar með gæti hann
þurft aö brjóta odd af oflæti sínu.
Tomba hefur ekki keppt í risasvigi
síðan hann viðbeinsbrotnaði í slíkri
keppni árið 1989 en segist ekki vera
smeykur við greinina. Brunið er hins
vegar ekki inni í myndinni. Þegar
Tomba var strákur bannaði María,
móðir hans, honum að keppa í bruni
og hann hefur ekki áhuga á að
óhlýðnast henni.