Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Síða 46
58 LAUGARDAGUR 4. FKBRÚAR 1995 Afmæli Hrólfur Jónsson Hrólfur Jónsson, slökkviliðsstjóri í Reykjavík, Grjótaseli 13, Reykjavík, varð fertugur þann 24.1. sl. Starfsferill Hrólfur fæddist í Reykjavík. Hann lauk námi í húsasmíði 1973, námi í byggingatæknifræði frá TÍ1979, stundaði nám við Stadens Brand- skole í Kaupmannahöfn 1981, við Fire Service College í Moreton-in- Marsh á Englandi 1986 og fram- haldsnám í brunavarnaverkfræði við háskólann í Lundi 1989-90. Hrólfur var stærðfræðikennari við Tækniskólann 1979-80 tækni- fræðingur hjá Verkfræðistofu Braga og Eyvindar 1980, tæknifræðingur Slökkviliðsins í Reykjavík 1980, varaslökkviliðsstjóri 1982 og er slökkviliðsstjóri í Reykjavik frá 1991. Hrólfur var landsliðsþjálfari í bad- minton 1980-86, sat í stjórn Tækni- fræðingafélags íslands 1983-87, í stjóm knattspyrnufélagsins Vals 1983-89 og situr í badmintonráði Reykjavíkur frá 1984. Hann hlaut heiðurslaun Brunabótafélags ís- lands 1986. Fjölskylda Hrólfur kvæntist 28.9.1974 Ingi- björgu Steinunni Sverrisdóttur, f. 13.2.1955, bókasafnsfræðingi. For- eldrar hennar eru Sverrir Bjarna- son, verktaki í Reykjavík, og k. h., Steinunn Ámadóttir skólaritari. Böm Hrólfs og Ingibjargar eru Sigrún Inga, f. 2.5.1973, nemi við Myndlista- og handíðaskólann en sambýlismaður hennar er Þorgeir Guömundsson kvikmyndagerðar- maður; Steinunn Björg, f. 8.1.1986; Ragnar Jón, f. 14.7.1988. Bróðir Hrólfs er Þorkell, f. 8.7. 1947, byggingatæknifræðingur í Reykjavík, kvæntur Kristínu Guð- mundsdóttur bókaverði. Foreldrar Hrólfs eru Jón Magnús- son, f. 16.11.1912, húsgagnasmiður í Reykjavík, og k.h., Sigrún Sigur- jónsdóttir, f. 10.10.1916, húsmóðir. Ætt Jón er sonur Magnúsar, smiðs á Hólmavík, Halldórssonar, b. á Hrófá í Steingrímsfirði, Jónssonar, b. á Hafnarhólmi, Eyjólfssonar, b. í Mið- dalsgröf, Guðmundssonar, bróður Bjargar, langömmu Óskars, afa Óskars Magnússonar, forstjóra Hagkaups. Móðir Magnúsar smiðs var Ingibjörg, systir Sigríðar, langömmu Guðlaugs Tryggva Karlssonar hagfræðings. Ingibjörg var dóttir Magnúsar, b. á Hrófá, Sig- urðssonar, bróður Ingibjargar, langömmu Gunnlaugs, afa Gunn- laugs M. Sigmundssonar hjá Þróun- arfélaginu. Móðir Jóns Magnússonar var Ingibjörg, dóttir Finns, b. í Fagra- dal, Jónssonar, af Ennisætt, og Sól- veigar Jónsdóttur, b. á Víðidalsá, bróður Sigurðar, langafa Geirs Hall- grímssonar. Jón var sonur Jóns, b. í Hvítadal, Sigurðssonar og k.h., Guðrúnar Aradóttur, systur Sigríð- ar, ömmu Matthíasar Jochumsson- ar. Sigrún er dóttir Sigurjóns, kaupfé- lagsstjóri á Hólmavík, bróður Stef- áns frá Hvítadal. Systir Sigurjóns var Guðbjörg, amma Nínu Bjarkar Árnadóttur skáldkonu. Bróðir Sig- urjóns, sammæðra, var Tryggvi Magnússon listmálari. Sigurjón var sonur Sigurðar, kirkjusmiðs á Hólmavík, bróður Gísla, afa Jakobs Thorarensen skálds. Sigurður var sonur Sigurðar, b. á Felli í Kolla- firði, Sigurðssonar, bróður Magnús- ar á Hrófá. Móðir Sigurðar kirkju- smiðs var Guðbjörg Magnúsdóttir, systir Magnúsar, langafa Maríu, ömmu Friðriks Sophussonar. Móðir Sigurjóns var Guðrún, systir Sigríð- ar, langömmu Símonar Jóhanns Ágústssonar prófessors og Sveins- Valgarð Briem hæstaréttarlögmaður hélt upp á 70 ára afmæli sitt í Oddfellowhúsinu síðastliðinn þriðjudag. Valgarð hefur rekiö eigin lög- fræðistofu frá 1961 og tekið virkan þátt í félagsmálum. Hann var vara- borgarfulltrúi í Reykjavik 1974 til 1986 en sennilega muna flestir eftir honum sem framkvæmdastjóra umferðarnefndar þegar skipt var yfir í hægri umferð 1968. Með honum á myndinni er eiginkona hans Benta Margrét Jónsdóttir Briem. DV-myndir S Björgvin Schram, KR-ingur og fyrrverandi stórkaupmaður, var meðal fjölmargra gesta sem tóku þátt í afmælisfagnaðinum. Með honum á myndinni er Auður Stefánsdóttir. Heiðursmennirnir Karl Theodór Sæmundsson og Guðmundur Jónsson voru einnig meðal gesta Valgarðs. Hrólfur Jónsson. ínu, móður Skúla Alexanderssonar alþm. Sigríður var einnig langamma Bjarna, langafa Bjarna P. hrepp- stjóra og Sigríðar EOu óperusöng- konu Magnúsbarna og Gunnars Þórðarsonar hljómlistarmanns. Móðir Sigrúnar var Sigurbjörg Benediktsdóttir, b. á Bassastöðum, Jónatanssonar, og Magndísar Jóns- I dóttur, b. á Fitjum í Vatnsdal, Hann- essonar. Móðir Magndísar var Kristín Jónsdóttir, b. á Ósi, bróður i Jóns, langafa Þorvalds, afa Kristín- ar Ólafsdóttur, fyrrv. borgarfull- trúa. ^ Svidsljós Helgi Sigurbjartsson Helgi Sigurbjartsson húsasmíða- meistari, Frostafold 56, Reykjavík, verður fertugur á morgun. Starfsferill Helgi er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1978 og sveinsprófi hjá Húna sf. í Reykjavík sama ár. Helgi fékk meistararéttindi 1983. Helgi hefur starfað sjálfstætt frá 1985. Helgi gekk til liðs við Junior Chamber-hreyfinguna 1983 og hefur gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hann er landsstjómarmaður þar þettaárið. Fjölskylda Helgi kvæntist 3.12.1977 Kristínu K. Bjarnadóttur, f. 22.5.1955, sölu- manni. Foreldrar hennar: Bjarni Guðbrandsson pípulagningarmað- ur og Guðrún Ingvarsdóttir sauma- hönnuður. Þau em búsett í Reykja- vík. Börn Helga og Kristínar: Berglind Helgadóttir, f. 9.7.1975, Sigurbjartur Ingvar Helgason, f. 25.5.1979, og Guðlaug Helga Helgadóttir, f. 22.12. 1984. Systkini Helga: Sigríður Sigur- bjartsdóttir, f. 16.5.1958, sambýlis- maður hennar er Þráinn Hafsteins- son, starfsmaður í ísal, þau eru bú- sett í Reykjavík og eiga eitt barn, Sigríður á eitt bam af fyrra hjóna- bandi; Jón Ásgeir Sigurbjartsson, f. 29.9.1961, sendibifreiðastjóri, sam- býliskona hans er Guðrún Jóhann- esdóttir, þau eru búsett í Reykjavík, Guðrún á tvö börn; Arnar Sigur- bjartsson, f. 16.8.1965, húsamálari, kvæntur Maríu Dís Ciliu, þau eru búsett í Svíþjóð og eiga eitt barn. Foreldrar Helga: Sigurbjartur H. Helgason, f. 17.9.1935, vélvirki og starfsmaöur hjá Olís, og Guðrún Á. Jónsdóttir, f. 12.8.1936, gjaldkeri hjá Helgi Sigurbjartsson. Vélum og verkfærum. Þau em bú- settíReykjavík. Helgieraðheiman. 50ára Sigrútt Guðbj ör nsdóttir, Hrafnistu við Kleppsveg, Reykj a- vlk. Jón Brynjólfsson, Blönduhlíð 16, Reykjavík. 70 ára Sigríður Guðmundsdóttir, Kirkjubraut 16, Akranesi. Hún dvelur nú á heimíli sonar síns og tengdadóttur að Staöarbakka 4 í Reykjavlk. Rósa Þorleifsdóttir, Ásbúð 87, Garðabæ, 80ára Sigurður Gunnsteinsson, Hlíöarvegi 18, Kópavogi. Karl Halldórsson, fyrrv. b. í Ey í Landeyjum, Njálsgerði 10, Hvolsvelli. Eiginkona hans er Guðflnna Helga- dóttlrhúsfreyja. Þau taka á móti gestum á Hótel Hvolsvelli millí kl. 16 og 19 í dag. Óskar Kjartansson, Karlagötu 18, Reykjavík. Vigdís Pálsdóttir frá Borgarnesi, Avenue de Broqueville 8,1150 Brussel. Jakob Valdimar Kárason, Litluhliö 6f, Akureyri. Þorbjörg Ásgrímsdóttir, Heíðargerði 57, Reykjavík. Sigurður Ingóifsson, Háaleitisbraut 26, Reykjavík. Gunnhildur Gunnarsdóttir, Helgamagrastræti 34, Akureyri. 40 ára Sveinbjörg Jóhannsdóttir, Hrafnistu viö Kleppsveg, Reykjavík. Einar Jóhannsson, Eyjaholti lOa, Garði. Þorbjörg Sigfmnsdóttir, Rauðumýri 13, Akureyri. 60 ára Kristinn Guðjónsson, Hlíðartúni 9, Hornafjarðarbæ. Fríða Hjálmarsdóttir, Karfavogi 28, ReyKjavík. Þórólfur Friðgeirsson, Holtagerði 16, Kópavogi. Karl J. Kristjánsson, Ásvegi 22, Akureyri. Guðbjörg Hringsdóttir, Sæbóli 18, Grundarörði, Jón Oddur Jónsson, Brekku 6, Djúpavogshreppi. Jóna Ólafsdóttir, Digranesvegi 60, Kópavogi. ÁgústaGuðríður Hermannsdóttir, Vesturbraut 16, Grindavík. Sigurður Einarsson, Hæðagarði 19, Homafjarðarhreppi. MargrétSigrún Jónsdóttir, Vörðustíg 3, Haínarfirði. Hólmfríður Magnúsdóttir, Hólabraut 4b, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.