Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Síða 47
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995
59
Afmæli
Ingibjörg Steinunn Svemsdóttir
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir
bókasafnsfræöingur, Grjótaseli 13,
Reykjavík, verður fertug þann 13.2.
nk.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk stúdents-
prófi frá MT1975, BA-prófi í bóka-
safnsfræði og bókmenntasögu frá
HÍ1978, stundaöi nám í sagnfræði
við Háskólann í Lundi 1989-90 og
stundar nú MA-nám í bókasafns- og
upplýsingafræði við HÍ frá 1994.
Ingibjörg Steinunn var stunda-
kennari við Árbæjarskóla í Reykja-
vík 1975-77, bókasafnsfræðingur við
Árbæjarskóla 1977-80, stundakenn-
ari við HÍ í félagsvísindadeild
1980-86 og bókasafnsfræðingur við
FB1980-94.
Ingibjörg Steinunn hefur gegnt
ýmsum nefnda- og trúnaðarstörfum
fyrir Félag bókasafnsfræðinga og
Bókavarðafélag íslands. Hún hefur
ritað greinar um málefni bókasafna
og bókavarða í fagtímarit og dag-
blöð.
Fjölskylda
Ingibjörg Steinunn giftist 28.9.1974
Hrólfi Jónssyni, f. 24.1.1955,
slökkviliðsstjóra í Reykjavík. Hann
er sonur Jóns Jóhanns Magnússon-
ar húsgagnasmiðs og Sigrúnar Sig-
uijónsdóttur húsmóður.
Börn Ingibjargar Steinunnar og
Hrólfs eru Sigrún Inga, f. 2.5.1973,
nemi við Myndlista- og handíðaskól-
ann, en sambýlismaður hennar er
Þorgeir Guðmundsson kvikmynda-
gerðarmaður; Steinunn Björg, f. 8.1.
1986; Ragnar Jón, f. 14.7.1988.
Systkini Ingibjargar Steinunnar:
Bjarni, f. 3.4.1950, tollvörður í
Reykjavík, kvæntur Hönnu Maríu
Oddsteinsdóttur; Árni, f. 15.5.1953,
doktor í félagsfræði og lektor við
Háskólann í Lundi; Gunnar, f. 21.5.
1964, vélstjóri í Reykjavík, kvæntur
Karen Bergsdóttur.
Foreldrar Ingibjargar eru Sverrir
Ragnar Bjamason, f. 20.1.1927,
verktaki í Reykjavík, og k.h., Stein-
unn Ámadóttir, f. 2.9.1927, skólarit-
ari.
Ætt
Sverrir er bróðir Sigríöar, móður
Jóns, héraðsdýralæknis á Selfossi,
og Loga, framkvæmdastjóra Landa-
kotsspítala, Guðbrandssona. Sverr-
ir er sonur Bjarna, b. í Skaftártungu
og síðar steinsmiðs í Reykjavík,
bróður Þorláks, fóður Óskars dóm-
prófasts. Bjarni var sonur Sverris,
b. í Klauf í Meðallandi, Magnússon-
ar, b. á Kársstöðum í Landbroti,
Jónssonar. Móðir Bjarna var Sigríð-
ur Jónsdóttir, b. á Eystra-Hrauni,
Arasonar Jónssonar, prests á
Skinnastað, Einarssonar. Móðir
Sigríðar var Ingveldur Gísladóttir,
b. í Hörgsdal, Jónssonar, og Sigríðar
Lýðsdóttur, sýslumanns í Vík, Guð-
mundssonar.
Móðir Sverris var Ingibjörg Stein-
unn, hálfsystir, sammæðra, Sveins
Egilssonar forstjóra. Ingibjörg var
dóttir Brynjólfs, vinnumanns í
Þórólfiir Friðgeirsson
Hleiöargaröi í Eyjafirði, Olafssonar,
og Rannveigar Kristjönu, vinnu-
konu í Reykjavík, Þorkelsdóttur,
vinnumanns í Sauöagerði í Reykja-
vík, Magnússonar, b. á Ketilsstöð-
um á Kjalarnesi, Runólfssonar, b. á
Ketilsstöðum, bróður Magnúsar,
langafa Áma Eiríkssonar leikara,
afa Styrmis Gunnarssonar ritstjóra.
Runólfur var sonur Magnúsar, b. á
Bakka á Kjalarnesi, Hallgrímsson-
ar, b. á Bakka, Þorleifssonar. Móðir
Hallgríms var Guðrún Eyjólfsdóttir,
b. á Ferstiklu, Hallgrímssonar,
prests og skálds í Saurbæ, Péturs-
sonar.
Steinunn er dóttir Árna, verka-
manns í Stykkishólmi, Jónssonar,
Þórðarsonar, frá Borgarholti, bróð-
ur Þorsteins, langafa Hjálmars, föö-
ur Jóhanns skálds. Systir Þórðar
var Þóra, langamma Guðbjarts, föö-
ur Gunnars, fyrrv. framkvæmda-
stjóra Framleiðsluráðs, og Stefáns,
föður Alexanders, fyrrv. ráðherra.
Þórður var sonur Þórðar, b. í Borg-
arholti, Þórðarsonar, og Oddfríðar
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir.
Halldórsdóttur, Árnasonar, Þor-
varðarsonar, bróður Ragnhildar,
langömmu Guðnýjar.ömmu Hall-
dórs Laxness. Móðir Árna var Krist-
ín, dóttir Hannesar, b. í Gerðubergi,
Erlendssonar, og Þóru Jónsdóttur,
b. í Akurholti, Finnssonar, sýslu-
manns á Sveinsstöðum, Jónssonar.
Móðir Steinunnar var Guðbjörg
Guðmundsdóttir.
Þórólfur Friðgeirsson kennari,
Holtagerði 16, Kópavogi, er sextugur
ídag.
Starfsferill
Þórólfur fæddist á Stöðvarfirði og
ólst þar upp. Hann lauk landsprófi
frá Eiðaskóla 1952, stundaði nám viö
Norræna lýðháskólann í Kungálv
1953, lauk kennaraprófi frá KI1958,
stundaði sérnám í stærðfræði við
KHÍ og í dönsku og stærðfræði við
Kennaraháskólann í Kaupmanna-
höfn 1974-75, auk þess sem hann
hefur sóttfjölda starfsnámskeiða
frá 1959.
Þórólfur var kennari viö Grunn-
skóla Vopnafjarðar 1S58-59, skóla-
stjóri við Grunnskólann á Eiðum
1959-63, skólastjóri við Búðaskóla á
Fáskrúðsfirði 1963-75, kennari við
Víghólaskóla í Kópavogi 1976-79,
yfirkennari við Kópavogsskóla
1979-86 og kennari við Breiðholts-
skólafrál986.
Þórólfur starfaði í mörg ár að
málum kennara, bæði á Austur-
landi og í Kópavogi. Hann sat í
stjóm Ungmennasambands Austur-
lands um tíma, er stofnfélagi Lions-
klúbba á Fáskrúðsfirði og Stöðvar-
firði og hefur tekið mikinn þátt í
leikstarfsemi og ýmsum öðrum fé-
lagsmálum.
Fjölskylda
Þórólfur kvæntist 24.12.1958
Kristínu Lilju Halldórsdóttur, f.
19.8.1933, gjaldkera hjá Myllunni-
Brauði hf. Hún er dóttir Halldórs
Þorvaldssonar, og k.h., Ágústu Páls-
dóttur sem bæði eru látin en þau
bjuggu á Kroppstöðum í Önundar-
firði og síðar í Reykjavík.
Dætur Þórólfs og Kristínar Lilju
em Ágústa Þórólfsdóttir, f. 28.8.
1959, tónlistarkennari í Hnífsdal,
gift Sveini K. Guðjónssyni og eru
börn þeirra Þórólfur Sveinn Sveins-
son og Halldór Sveinsson; Elsa
Björg Þórólfsdóttir, f. 10.6.1962,
skrifstofumaður í Reykjavík, gift
Jóni Erni Guðbjartssyni, markaös-
stjóra hjá Streng hf. og eru dætur
þeirra Kristín Lilja Jónsdóttir og
Hildur Ýr Jónsdóttir.
Bróöir Þórólfs var Guðjón Frið-
geirsson, f. 13.6.1929, d. 13.9.1986,
kaupfélagsstjóri, var kvæntur Ás-
dísi Magnúsdóttur; Örn, f. 24.4.1931,
skipstjóri í Þorlákshöfn, kvæntur
Hallberu ísleifsdóttur verkakonu;
Sveinn Víðir, f. 13.7.1932, skipstjóri
í Garði, kvæntur Nönnu Ingólfsdótt-
ur húsmóður; Guðríður, f. 10.6.1937,
Þórólfur Friðgeirsson.
verkakona á Stöðvarfirði, gift Bimi
Pálssyni vélgæslumanni; Björn
Reynir, f. 18.4.1951, sknfstofumaður
í Reykjavík, kvæntur Ástu Gunn-
arsdótturkennara.
Foreldrar Þórólfs: Friðgeir Þor-
steinsson, f. 15.2.1910, fyrrv. oddviti
á Stöðvarfirði, nú vistmaður á
Hrafnistu í Hafnarfirði, og k.h., Elsa
Jóna Sveinsdóttir, f. 7.8.1912, d.
20.12.1978, húsmóðir.
Þórólfur og Kristín Lilja munu
taka á móti gestum í golfskálanum
í Grafarholti milli kl. 18.00 og 20.30,
í kvöld, laugardaginn 4.2.
Jakob V. Ólsen Kárason
Jakob V. Ólsen Kárason vélstjóri,
Litluhlíð 6 F, Akureyri, er fimmtug-
urídag.
Starfsferill
Jakob fæddist á Akureyri og ólst
þar upp í Brekkunni og á Oddeyr-
inni. Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar 1962,
lauk 4. stigi vélskólanáms frá Vél-
skóla íslands 1971 og sveinsprófi frá
Shpphf. 1974.
Jakob hefur að námi loknu lengst
af stundað sjómennsku. Hann var
fyrsti vélstjóri og síðan yfh-vélstjóri
á Kaldbak EA1974-87, starfaði við
viðgerðir hjá Niöursuðuverksmiðju
K. Jónssonar og Co. í tvö ár, var
vélstjóri í eitt ár á Stakfehinu frá
Þórshöfn og hefur verið yfirvélstjóri
á Súlnafehi EA frá Hrísey á fimmta
ár.
Jakob sat í stjórn Fannanna- og
fiskimannasambands íslands í eitt
ár og situr í uppstillinganefnd Vél-
stjórafélags íslands.
Jakob er mikill áhugamaður um
ferðalög innanlands. Hann ferðast
og starfar mikið með Ferðafélagi
Akureyrar, situr í tveimur skála-
nefndum og gönguleiðanefnd og hef-
ur stundað vélsleðaferðir á vetrum
frá 1973.
Fjölskylda
Jakob kvæntist 23.5.1983 Her-
borgu Herbjörnsdóttur, f. 17.6.1942,
húsmóður. Hún er dóttir Herbjörns
Guðmundssonar og Elísabetar
Magnúsdóttur, bænda að Ásgarði í
Breiðdal.
Synir Herborgar af fyrra hjóna-
bandi eru Jónas Viðar Sveinsson,
f. 2.2.1962, listmálari, kvæntur Sól-
veigu Baldursdóttur myndhöggvara
og eiga þau tvær dætur, Eddu
Hrund, f. 21.2.1982, ogKarlottu
Dögg, f. 28.10.1991; Björn Halldór
Sveinsson, f. 10.1.1963, skipasmiður,
kvæntur Kristínu Hrönn Hafþórs-
dóttur og eiga þau eina dóttur, Silju
Björk, f. 11.3.1992; Birgir Öm
Sveinsson, f. 11.5.1964, flugvirki,
kvæntur Vilborgu B. Torfadóttur
og eiga þau einn son, Torfa Biming,
f.7.6.1991.
Systkini Jakobs em Guðrún Jóna,
f. 2.6.1948, og Jóhannes, f. 15.1.1956,
kvæntur Sólveigu B. Guðmunds-
dóttur.
Jakob V. Ólsen Kárason.
Fósturfaðir Jakobs var Kári Jó-
hannesson, f. 14.9.1924, d. 2.4.1975,
sjómaöur á Akureyri. Móðir Jakobs
er Ásta Ólsen, f. 10.9.1922, húsmóðir
áAkureyri.
Kári var sonur Jóhannesar B.
Gíslasonar, pósts á Patreksfirði, og
k.h., Svanfríðar Guöfreðsdóttur.
Ásta er dóttir Jakobs Ólsen mál-
arameistara og Guðrúnar Sigurðar-
dóttur.
80 ára 50ára
LárusSigfússon,
Flétturima 8, Reykjavík.
Láms verður ekkiheima.
Kristinn Pálsson,
Ásvahagötu 49, Reykjavík.
Ingibjörg Sæmundsdóttir,
Sæviðarsundi 78, Reykjavík.
Ágúst Karl Sigmundsson,
Hraukum, Djúpárhreppi.
Þórður Vigfússon
Bergstaðarstræti 8, Reykjavík.
Pétur Einarsson,
Heiðargerði 4, Vogum.
Margrét Sölvadóttir,
Réttarholtsvegi 67, Reykjavík.
Gunnar P. Jensson,
Furugrund 24, Kópavogi.
40ára
_________________ Heigi Sigiu-bjartsson,
Frostafold 56, Reykjavík.
Kristj án Heimir Lárusson Ásgerður Garðarsdóttir,
framkvæmdastjórí, Trönuhóluml2,Reykjavík.
Kársnesbraut 92, Kópavogi. Birna Garðarsdóttir,
Konahanser hbhm Hhöarbyggð 3, Garðabæ.
SÍguriaugE. Jóhanna María Gunnarsdóttir,
Björgvinsdóttir Wf >laW Hlíöarbyggð3,Garðabæ.
hjúkrunar- B iMH Róbert Albert Darling,
fræðingur. |f Setbergi 8, Villingaholtshreppi.
Þau hjónin taka R jgipjf Linda Hrönn Ágústsdóttir,
á móti gestum í H *-# |jfill§ Fjarðarási 5, Reykjavík.
Oddfehowhús- MargrétGunnarsdóttir,
inu, sunnudag- Brekkubraut 31,Akranesi.
inn 5.2. frákl. 16.00-18.00.
Meisturum fagnað
Griðarleg stemning var í Grindavik þegar bikarmeistararnir í körfubolta
komu til fagnaðar í félagsheimllinu Festi á laugardagskvöld. 700 manns
voru þar og góður fögnuður vegna fyrsta bikarsigurs Grindvíkinga.
Áður höfðu leikmennirnir verið í matarboði í veitingahúsi Bláa lónsins.
DV-mynd Ægir Már Kárason, Suðurnesjum