Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Page 52
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Talsvert frost um allt land
Á sunnudag verður suðvestlæg átt og él sunnan- og vestanlands. Um kvöldið snýst til norðvestlægrar áttar með éljum
um norðanvert landið, 0-5 stiga frost. Á mánudag verður norðanstrekkingur um landið austanvert en snýst í hæga suðlæga átt vestanlands
er líður á daginn, 0-10 stiga frost. É1 verða norðan- og austanlands en skýjað með köflum sunnan- og vestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 61
Hækkun stöðugjalda:
Reiðarsiag fyrir
miðbæinn
- segir Ámi Sigfusson
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
hafa mótmælt hækkun stöðugjalda á
vegum Bílastæðasjóðs sem fyrirhug-
uð er í vor. Ámi Sigfússon, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjóm,
segir að sjálfstæðismenn telji að ekki
sé rétt að láta bílastæðagjöld veröa
sérstaka fjáröflunarleið fyrir borgar-
sjóð heldur eigi að láta borgarsjóð
greiða fjárfestingar sjóðsins niður.
Hækkun stöðugjalda sé shk að
greinilegt sé að gjöldin eigi að verða
tekjuauki fyrir Bílastæðasjóð. Það
hafi aldrei verið hugmyndin.
„Uppbygging bílahúsa í miðborg-
inni er uppbygging til framtíðar.
Gjaldtakan hefur verið notuð til að
stýra umferð og notkun stæða í mið-
bænum og það er aðalatriðið. Við lít-
um á þessi bílastæðahús sem fjárfest-
ingu til lengri tíma og því sé eðlilegt
að sú fjárfesting sé greidd á lengri
tíma. Gjaldhækkunin getur verið
reiðarslag fyrir uppbyggingu í mið-
bænum og við höfum óskaö eftir því
að haft sé samráð við samtök hags-
munaaðila á þessu svæði áður en
endanleg ákvörðun er tekin,“ segir
Árni Sigfússon.
Reykskynjari
bjargar manni
Maður bjargaðist úr íbúð fullri af
reyk á Selfossi eftir að hann gleymdi
potti á eldavélarhellu sem kveikt var
á. Það voru nágrannar mannsins,
sem býr í fjölbýlishúsi, sem urðu
varir við væl í reykskynjara og fóru
inn til mannsins og vöktu hann og
komu honum út undir bert loft.
Slökkvihðið reykræsti íbúðina og
varð manninum ekki meint af reykj-
arsvælunni. -pp
Þeir eru á kunnum slóðum, heiðursmennirnir á þessari mynd sem tekin var í Karphúsinu í gær. Þá komu þar til
fundar með atvinnurekendum samningamenn nokkurra landssamtaka innan ASÍ og Verslunarmannafélags Reykja-
víkur í fyrsta sinn í þessari lotu. Það er formaður VR, Magnús L. Sveinsson, sem er hér á miðri mynd. Með honum i
eru Þórir Einarsson ríkissáttasemjari, Magnús Gunnarsson, formaður VSÍ, og Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri þess. Sjá frétt af samningamálunum á bls. 2. DV-mynd GVA
Lögmaður
Sophiu
til íslands
Hasip Kaplan, lögmaður Sophlu
Hansen, er væntanlegur til íslands á
næstu dögum. Hann hyggst ganga frá
ýmsum lausum endum er varða
málsskjöl í forsjármáli Sophiu.
Ástæða ferðarinnar er sú ákvörðun
héraðsdómara á dögunum að neita
að taka gild þau skjöl frá íslenskum
yfirvöldum er málið varða. Ljóst er
að sú aukavinna sem fer í að afla
frekari gagna, sem líklegt er að tekin
verði gild fyrir héraðsdómi í Istan-
búl, muni verða á kostnað Sophiu.
-Ótt/pp
Háskóli íslands:
Sex djáknar
útskrifast
Fyrstu djáknarnir hér á landi út-
skrifast frá guðfræðideild Háskóla
íslands í dag, 5 konur og 1 karl, en
kennsla hófst í greininni síöastliðið
haust. Gert er ráð fyrir aö djáknar
starfi einkum á sviði líknar- og
fræðsluþjónustu, jafnt innan sem
utan kirkjunnar. Samkvæmt upplýs-
ingum frá guðfræðideild hafa breytt-
ar þjóðfélagsaðstæður og breyttir
starfshættir kirkjunnar hin síðari ár
kallað á djákna til starfa.
Tvenns konar námsmöguleikar
eru fyrir djákna innan guðfræði-
deildar HÍ. Ánnar möguleikinn er 30
eininga nám í guðfræði fyrir fólk sem
hefur hlotið starfsmenntun sem
hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjaf-
ar, kennarar eða fóstrur. Hinn mögu-
leikinn er 90 eininga nám sem lýkur
með BA-prófi í guðfræði. Þeir nemar
sem eru brautskráðir úr deildinni
með djáknanám eiga rétt á að leita
vígslu. -kaa
Höfuðborgarsvæöið:
Hálkan olli
meiðslum
Um hundrað manns fóru á slysa-
deild Borgarspítalans vegna meiðsla
sem fólk varð fyrir í hálku á höfuð-
borgarsvæðinu í gær. Nokkuð var
um beinbrot, einkum um ökkla. -kaa
Mánudagur
LOKI
Aldrei hefði hann Árni minn
látið hvarfla að sér að hækka
stöðumælagjöldin!
I.ANDSSAMBAND
ÍSI. RAhA KRK I AKA
Eldur í vélaverkstæði í Njarðvik:
Milljóna króna
tjon a husi og
vinnuvélum
Ægir Már Káiason, DV, SuÓumesgum;
Milljóna króna tjón varð í Njarð-
vík síödegis í gær þegar eldur kom
upp í vélaverkstæði Sigurjóns
Helgasonar. Á verkstæðinu voru 5
stórvirkar vinnuvélar, dráttarvél-
ar og körfubílar sem skemmdust
verulega. Talið er að 2 dráttarvélar
séu gjörónýtar. Sjálft húsið er mik-
ið skemmt. Rjúfa þurfti hluta þaks-
ins þar sem eldurinn hafði læst sig
í það.
Allt tiltækt slökkvihð Bruna-
varna Suðurnesja var kallað út og
tók slökkvistarfiö á þriðja tíma.
Mikill viðbúnaður var viðhafður
enda starfrækt gistiheimili í öðrum
enda hússins. Eitt fyrsta verk
slökkvfiiðsins var að fiarlægja gas-
kúta af verkstæðinu til að koma í
veg fyrir sprengingu í húsinu.
Eldsupptök eru rakin til þeirrar
vinnuvélar sem brann mest. Rann-
sóknarlögreglan í Keflavík hóf þeg-
ar í gær rannsókn á staðnum og
beindi sjónum sínum einkum að
umræddri vél.
FRETTASKOTIÐ
562*2525
'Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DRElFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 00
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
; icL. 6-s lAUöAáoÁGS- aé mánuoagsmorgua
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR 1995.