Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1995, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995
5
pv________________________________Fréttir
Setusaksóknari vegna kæru Sævars Ciesielskis:
Bið verður á
niðurstöðu
Ekki er aö vænta niöurstöðu Ragn-
ars H. Hall, sérstaks saksóknara í
Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, í
þessum mánuöi.
Eins og fram kom í DV í nóvember
skilaði Sævar Ciesielski,. aðalsak-
borningurinn í málinu, greinargerð
til dómsmálaráðuneytisins og óskaði
eftir því að mál sitt yrði tekið upp
aftur í ljósi þess að ný gögn hefðu
komið fram í málinu sem sönnuðu
sakleysi hans. Dómsmálaráðherra
vísaði málinu til saksóknara sem vék
sæti í málinu. Ráðherra skipaöi því
Ragnar H. Hall sérstakan setusak-
sóknara í málinu.
Samkvæmt upplýsingum DV var
það niðurstaða Ragnars að frekari
gagna væri þörf til stuðnings kröfu
um endurupptöku málsins og var
Sævari gefinn frestur til seinustu
mánaðamóta að skila þeim inn.
Tíminn reyndist Sævari ekki nægur
og óskaði hann eftir að fá frekari
frest til gagnaöflunnar og var honum
veittur hann. -pp
Góö þorskveiði í netin:
Þetta er eins og
hálft kennarastarf
- segir Stefán á Aöalbjörgu RE
„Þetta er svona eins og að vera í
hálfu kennarastarfi. Kvótinn setur
okkur slíkar skorður að það má ekk-
ert gera. Ef spáin gerir ráð fyrir
kalda þá drögum við upp netin og
höldum í landi,“ segir Stefán Einars-
son, skipstjóri á Aðalbjörgu RE 5,
sem stundar netaveiðar á Faxaflóa.
Ágæt þorskveiði hefur verið og eru
dæmi um að menn hafi fengið allt
að 5 tonnum í trossu. Stefán segir að
meira veröi vart viö hefðbundinn
vertíðarþorsk, 7-10 kíló, nú en áður.
„Það lítur vel út með þorskveiðina
en vandinn felst fyrst og fremst í
kvótaleysi," segir Stefán. -rt
SUZUKI SWIFT
Verulega góður kostur
Suzuki Swift er bíll, sem hefur reynst einstaklega vel við íslenskar aðstæður, eins og mikill fjöldi
ánægðra eigenda getur vitnað um.
Rekstrarkostnaður er sérstaklega lágur vegna lítillar bilanatíðni og sparneytni er í algjörum
sérflokki, frá 4.0 lítrum á hundraðið. Endursöluverð á Suzuki Swift er einnig óvenju hátt.
Nú getum við boðið Suzuki Swift á ákaflega hagstæðu verði:
Verð: Suzuki Swift, beinskiptur, frá kr. 939.000
Sjálfskiptur frá kr. 1.029.000
$SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFAN 17, SÍMI 568 5100
BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Bílastœði fyrir alla
Það er þægilegra að nota miðastæði og bílahús en þig grunar
Mikilvægar
spurningar
sem eigendur spariskírteina ríkissjóðs gætu hagnast á að svara!
Viltu • bestu ávöxtun á sparifé þitt? œm. ,
• geta gripið til sparifjár þíns hvenær sem er?
• dreifa sparifé þínu á mismunandi form?
• hafa yfirsýn yfir úrvalið á einum stað?
• nýta þér þjónustu viðurkenndra sérfræðinga Landsbankans og Landsbréfa sem leita
bestu ávöxtunar fyrir þig og vaka yfir nýjum möguleikum og enn betri kjörum þér til handa?
Festu ekki fé þitt að óathuguðu máli!
Komdu eða hafðu samband í næsta útibú okkar og við leitum bestu leiða til
ávöxtunar fyrir sparifé þitt og innleysum spariskírteini þér að kostnaðarlausu.
Landsbanki
íslands I
Banki allra landsmanna f