Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1995, Page 9
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995
9
Utlönd
Díana gerlr dómsátt og hættir við að mæta fyrir rétt:
Gluggagægir
græðir á henni
- talið vera mikill ósigur fyrir hana
Öþekktur milljónamæringur
hjálpaði Díönu prinsessu við að ná
dómsátt í málinu sem hún höfðaði
út af myndunum frægu sem teknar
voru af henni á laun þegar hún var
að æfa líkamsrækt og birtust í blað-
inu Daily Mirror í nóvember 1993.
Dómsátt þessi kostaði mikinn pen-
ing, eða um 50 milljónir íslenskra
króna, og það borgaði þessi óþekkti
milljónamæringur. Enginn græðir
þó meir á dómsáttinni en Bryce Tayl-
or, eigandi líkamsræktarstöðvarinn-
ar sem tók myndimar og seldi blöð-
unum. Hann mun fá um 10 milljónir
sjálfur vegna dómsáttarinnar og má
síðan búast við háum upphæðum
fyrir viðtöl og annað slíkt á næst-
unni. Ekki má svo gleyma summun-
um sem hann fékk þegar hann seldi
myndirnar sjálfar á sínum tíma.
Dómsáttin var gerð vegna þess að
konungsfjölskyldan gat ekki hugsað
sér að Díana yrði fyrsti meðlimur
fjölskyldunnar til'að vitna fyrir rétti.
Díana sagði hins vegar alltaf að hún
væri tilbúin til þess. Taylor var bú-
inn að ráða fjöldann allan af dýrum
Fjögurra daga heimsókn Díönu prinsessu til Japans lauk i gær. Prinsessan
hitti meðal annarra keisarahjónin í gær þegar þau buðu henni í te.
Færeyingar og Bretar:
Vilja násamningum
í olíudeilu ríkjanna
Færeyingar og Bretar gera sér
vonir um að samningar takist í deilu
þeirra um hafsvæði milli Færeyja og
Hjaltlands þar sem Bretar hafa fund-
ið olíu sín megin miðlínunnar og
Færeyingar vonast eftir hinu sama.
„Við lögðum áherslu á þann vilja
okkar að komast að samkomulagi,"
sagði Douglas Hurd, utanríkisráð-
herra Bretlands, í Kaupmannahöfn í
gær eftir viðræðufund með Edmundi
Joensen, lögmanni Færeyja.
Samningamenn þjóðanna hittast
síðar í þessum mánuði og frekari
fundir eru áformaðir í vor.
Viðræður um hafsvæðiö umdeilda
hófust árið 1991. Ekki verður hægt
að úthluta olíufélögum leyfi til
vinnslu á hafsbotninum fyrr en sam-
komulag hefur tekist um skiptingu
svæðisins.
Þess hafa sést merki að þohnmæði
deiluaðila sé á þrotum en enginn
hefur þó áhuga á að máhð fari fyrir
Alþjóðadómstóhnn í Haag þar sem
það gæti dregist á langinn.
Tahð er að Færeyingar krefjist þess
að miðlínan verði látin ráða, rétt eins
og gert er þegar fiskveiðilögsaga er
ákvörðuð. Breskir embættismenn
munu hins vegar vera lítt hrifnir af
þeim hugmyndum. Reuter
lögfræðingum sem ætluðu sér að láta
Díönu sitja löngtun stundum í vitna-
stúkunni. Breskir fjölmiðlar réðu sér
vart af kæti yfir þeim tíðindum. Rétt-
arhöld áttu að hefjast eftir fimm daga
en nú verður ekkert af þeim.
Dómsátt þessi þykir vera mikih
ósigur fyrir Díönu. Hún fær þó fram
afsökunarbeiðni frá myndasmiðnum
og ritstjórum Daily Mirror og trygg-
ingu fyrir þvi að myndirnar verði
aldrei notaðar aftur. Hún sleppur
fyrir að mæta fyrir rétt en hinir brot-
legustórgræðaáhenni. Reuter
GísJi Kristjánsaon, DV, Ósló:
Einn helsti mannréttindafröm-
uður S-Afríku, presturinn Allan
Boesak, er grun-
aður nm aö hafa
tekið í eigin þarf-
ir um 30 milljónir
íslenskra króna
af fé sem hjálpar-
stofnaifir kirkn-
anna á Norður-
löndum afhentu Allan Boesak.
„Friðar- og réttlætisstofnuninni“,
sem hann var í forsvari fyrir, á síð-
ustu árum til að bæta kjör s vartra.
Frumrannsókn málsins hefur
leitt í Ijós að milljónirnar eru
horfhar úr vörslu Boesak án þess
að séð verði að þær hafi verið not-
aðar fil lfiálparstarfs, hins vegar
hefur hann sjálfur eignast glæsi-
vhlu sem metin er á 30 milljónir.
Boesak bað í gærkvöldi Nelson
Mandela, forseta Suður-Afriku, að
skipa lögfróðan mann til að rann-
saka máhð. Boesak segist alsaklaus
þótt hann geti ekki svarið fyrir að
féð hafi tapast í vörslu hans.
Umrætt söfnunarfé var sent frá
bjálparstofnunum fyrir milhgöngu
alkirifiuráðsins. Boesak hefur um
langt skeið notið stuðnings hjálpar-
stofnunar kirkjunnar i Noregi og
lýstu yfirmenn hennar í gærkveldi
yfir sárum vonbrigðum.
28" LITASJONVARP
PL____________
# Hágceða Surround
Nicam-Stereo!
• Nicam Stereo
Surround-hljómgæði
• íslenskt
textavarp
• Super Planar
myndlampi
• og margt fleira...
ALLT ÞETTA
FYRIR AÐEINS
7
STGR.
SlÓNVnRPSMIÐSTÖÐIN
SIÐUMULA 2 • SIMI 68 90 90
Ætlarðu að missa af þessum
einstöku möguleikum?
Við drögum á morgun.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings