Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
Stuttar fréttir
Utlönd
Dehaene, for-
sætisráðherra
Belgíu,sérenga
ástaeðu til af-
sagnarutanrík-
isráðherra sins
vegna mútu-
málsins sem
framkvæmda-
sfjóri NATO tengist lika.
Zhírínovskítiliraks
Öfgamaðurinn Zhírínovskí er á
leiöinni í tveggja daga heimsókn
til Iraks þar sem hann ætlar m.a.
aö hitta Saddam Hussein.
A-Þjóðverjar dæmdir
Tveir fyrrum A-þýskir öryggis-
verðir fengu árs dóm í gær fyrír
að skjóta mann sem reyndi að
flýja yflr múrinn árið 1965.
Risaeðliffóstiir f undið
Kínverskii- vísindamenn segj-
ast hafa fundið risaeðlufóstur í
steinrunnu fomsögulegu eggi
sem þeir hafa unnið með.
70 þúsund í verkfall
Yfir 70 þusund fmnskar hjúkr-
unarkonur fóru í verkfall í gær.
VitlausiDiömi
Giscard
d’Estaing, fyrr-
um forseti
Frakklands,
sem er mikill
kvennamaður,
er vitlaus í Di-
önu prinsessu
afWales. Hann
segir hana miklu fallegri en ljós-
myndír sýni.
Jeeves á Irfi
Breski leikarinn Stephen Fry,
sem hvarf sl. laugardag eftir að
hafa fengið á sig slæman leikdóm,
lét loks í sér heyra í gær.
Rússar misst marga
Rússar segjast hafa misst 1146
hermenn í bardögunum í Tsjetse-
níu og 5000 hafa særst.
30létust
Þijátíu brúökaupsgestir á
heimleiö létust á Indlandi þegar
rúta þeirra steyptist í á.
Norðmenn gæti ESB
Norðmenn haía boðist til að
gæta ytri landamæra ESB gegn
því að þeir þurfi ekki að sýna
vegabréf viö komu til ríkja ESB.
Berlusconireiður
Silvio Berlusconi réðst harka-
lega á Scalfaro, forseta ítaliu, í
gær og sakaöi hann um að fótum-
troða þjóðarhagsmuni Ítalíu með
því að boða ekki til kosninga.
Reuter
Dow Jones í Wall Street:
4000 stiga
múrinn rof inn
Dow Jones hlutabréfavísitalan í
kauphöllinni við Wall Street í New
York sló enn eitt sögulega metið þeg-
ar 4000 stiga múrinn var rofinn á
fimmtudag. Ástæða hækkunarinnar
er einkum rakin til þess aö banda-
ríski seðlabankinn muni ekki hækka
vexti á næstunni. AUs hefur bankinn
hækkað vextina sjö sinnum á einu
ári til aö halda aftur af verðbólgu.
Áhrifa frá Wall Street gætti í flest-
um stærstu kauphöllum heims á
fimmtudag nema í Asíu. í London
dró einnig úr ótta við aukna verð-
bólgu og FT-SE100 hlutabréfavísital-
an fór í 3049 stig.
Verð á olíu og hrávörum hefur þok-
ast upp á við síðustu daga. Mest hefur
98 okt. bensín hækkað.
Reuter - Fin.Times
Danir salta banka-
málið í Færeyjum
Danska stjómin ákvað í gær að
salta máiið um Færeyjabanka en
þeir voru búnir að bjóða Færeying-
um að þeir mættu velja í sérfræð-
inganefnd sem myndi skoða aðdrag-
anda og framkvæmd þess þegar Den
Danske Bank seldi hlutabréf sín í
Færeyjabanka og skildi bankann eft-
ir með gífurlegar skuldir sem leiddi
tii þrots. Færeyingar hafa fram að
þessu ekki viljað sjá sérfræðinga-
nefnd heldur viija þeir að dómarar
rannsaki máiið og vilja þannig draga
Hæstarétt Danmerkur inn í málið en
það vill danska ríkisstjórnin ekki
heyra á minnst. Máhð stendur því
þannig nú að Danir hafa dregið til
baka tilboð sitt um að sérfræðingar
skoði máhö og því mun engin rann-
sókn fara fram. Stjómin telur ekki
ástæðu til þess að máhð verði skoðað
sérstaklega ef Færeyingar vilja ekki
taka þátt sjálfir.
Ákvörðun dönsku stjómarinnar
kom lögmanni Færeyja, Edmund
Joensen, ekki á óvart. Hann sagðist
ahan tímann hafa reiknað með þess-
ari niðurstöðu. Hann túlkar yfirlýs-
ingu Poul Nyrup Rasmussens, for-
sætisráöherra Dana, þannig að hann
útiloki ekki að hægt verði að taka
málið upp aftur.
Uffe Eheman Jensen, formaður
Venstre, stærsta stjómarandstöðu-
flokksins í Danmörku, segir að Poul
Nymp geti ekki snúið sig út úr mál-
inu á þennan hátt. Nyrup muni neyð-
ast til að taka máhð upp aftur.
„Það verður að fást niðurstaða í
þetta mál því annars mun það verða
til aö skapa mikla og óþarfa spennu
í sambandi Færeyja og Danmerkur.
Þaö eru ahs kyns sögur á sveimi um
þetta mál og þær verður að kveða
niður,“ segir Uffe Eheman. Rítzau
Franski knattspyrnusnillingurinn og vandræðabarnið Eric Cantona var i gær dæmdur í sjö mánaða bann frá keppni
f ensku knattspyrnunni. Honum var auk þess gert að greiða jafnvirði rúmrar milljónar í sekt. Hann mun áfram verða
í herbúðum Manchester United. Á myndinni sjást Cantona og Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester, mæta
i yfirheyrslur í gær. Símamynd Reuter
Franski knattspymimiaðurínn Eric Cantona:
Sjö mánaða bann og milljón króna sekt
Enska knattspyrnusambandið
dæmdi franska knattspymumann-
inn Eric Cantona í gær i sjö mánaða
kepnisbann og einnar miíijónar
króna sekt vegna árásar á áhorfanda
á leik Crystai Palace og Manchester
United í ensku knattspyrnunni fyrr
í vetur.
Graham Kelly hjá enska knatt-
spymusambandinu sagði í gær að
sér fyndist þessi dómur ekki of væg-
ur. Maurice Watkins, lögfræðingur
Man. Utd, sagði eftir dóminn aö sér
fyndist hann harður og forráðamenn
Man. Utd sögðu í gær að niðurstaðan
kæmi þeim á óvart. Man. Utd sektaði
Cantona á dögunum og setti hann í
keppnisbann út tímabihð. Lögfræð-
ingur Man. Utd sagði enn fremur í
gær að Cantona yrði áfram á launum
hjá Man. Utd en fengi engar auka-
greiðslur^ess má geta að vikulaun
Erics Camona hjá Man. Utd era um
ein milijón króna. Hvorki Man. Utd
né Cantona ætla að áfrýja dómi enska
knattspymusambandsins frá í gær.
Ljóst er eftir þennan dóm í gær að
Eric Cantona mun leika áfram með
Manchester United á næsta keppnis-
tímabili. Rætt hefur verið um hugs-
anlega sölu hans eða lán til ítalska
hðsins Inter Milan en nú má ijóst
vera að ekkert verður af því aö þessi
snjalli knattspyrnumaöur yfirgefi
ensku meistarana Manchester
United og stuðningsmenn United
fagna eflaust þessum málalokum.
dtskoðuð
Gísli Kristjánsson, DV, Óstó:
Norska utan-
ríkisráöuneytið
lét ritskoða
sjónvarpsviðtal
við Sonju Nor-
egsdrottningu i
haust vegna
vinsamlegra
ummæla henn-
ar um Evrópusambandiö, ESB.
Orð drottningar í viðtahnu mátti
skilja sem svo að hún styddi aðild
að ESB.
Drottning komst svo að orði að
Norðmenn væru hluti af hinni
evrópsku fjölskyldu og hlytu aö
verða þaö framvegis.
Norsk blöð hafa komist yfir
frumgerð viötalsins og birt um-
mæh drottmngar. Hefð er fyrir
því að konungsfjölskyldan blandi
sér ekki í stjórnmál og því voru
„mistök“ drottningarinnar khppt
út. Utanríkisráðuneytið vill ekk-
ert segja um málið.
Prinsessanfær
enginverkefni
Gísli Kristjánsson, DV, Óstó:
„Við verðum
að taka tilht til
þess að prins-
essan er upp-
tekin viö nám
sitt,“ segirHans
Tholen, Norð-
urlandafulltrm
Flóttamanna-
hjálpar Sameínuðu þjóðanna, um
ástæðu þess að Marta Lovísa
Noregsprinsessa fær ekkert að
gera fyrir stofnunina þótt hún
hafi á Qórða ár verið þar vináttu-
sendiherra. Marta heimsótti síð-
ast flóttamenn á Fílabeinsströnd-
inni fyrir þremur árum.
Norömenn undrast þetta tóm-
læti í garð Mörtu og grunar að
meira búi að baki en ströng skóla-
sókn. Hún hafi undanfarið verið
mjög laus viö nám og eytt miklum
tíma við reiðmennsku og annað
„útstáelsi" í Englandi.
íslendingarnota
Internetððmest
Gisli Kristjánsson, DV, Óstó:
íslendingar eru Evrópumeist-
arar í notkun á Intemetinu. Mið-
að viö fólksflölda hafa fleiri land-
ar vorir tryggt sér samband við
netið en þekkist í öðrum löndum
Evrópu. Raunar er þaö svo aö
Norðurlandabúar eru hrifnari af
þessum samskiptamáta en þjóð-
irnar sunnar i álfunni.
Það er AP-fréttastofan sem lét
kanna máliö eftir að Helmut
Kohl, kanslari Þýskalands, opin-
beraði óvart fUllkomna fáfræði
sína um máhð. Hann var í sjón-
varpsviðtah spurður hvað hon-
um sýndist um' hinn nýja
„infobahn" Intemet Kohl hélt aö
spyrjandinn hefði sagt
„autobahn" og lét þess getið að
sér þætti hundleiðinlegt að lenda
í umferðarhnútum þar.
Frekari rannsókn málsins
leiddi í ljós að margir helstu leið-
togar Evrópuríkja voru síst betur
að sér um máhð en Kohl. Þannig
notar Fehpe Gonzales, forsætis-
ráöherra Spánar, alls ekki tölvu
við störf sín. Sömu sögu er að
segja af forsætisráöherrum Ítalíu
og Hollands. Hollenski forsætis-
ráðherrann segir til dæmis að
hann hafi óbeit á tölvum.
Evrópumeistari þjóöarleiðtoga á
þessu sviði er Martti Ahtisaari
Finnlandsforseti. Hann er t.d. í
stööugu sambandi við Marko son
sinn í New York um Intemet.
AP-fréttastofan gerðiDávið Odds-
syni, fuhtrúa Evrópumeistar-
anna, ekki þann heiður að kanna
hvoxt hann notaði Intemet.