Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Síða 35
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995 43 Mikilvægt er aö þekkja raunveruleg einkenni kulnunar svo að hægt sé aö koma í veg fyrir hana og rugla henni ekki saman viö þunglyndi eða hyskni. Kulnun eða starfsþreyta, hvað er nú það? „Helduröu að ég sé útbrunn- inn?“ sagöi maðurinn viö Nökkva lækni. „Yfirmaður segir að ég brenni upp eins og hvert annað kerti ef ég vinn áfram eins og ég geri!“ Nökkvi þekkti manninn að góðu einu. Hann var bæði hug- myndaríkur og duglegur og ógnaði greinilega gömiu stjórnunarkerfi á vinnustað sínum. Eitt vinsælasta tískuorð liðinna ára er kulnun eða bum-out. Margir yfirmenn og starfsmenn sveifla þessum orðum í kringum sig eins og sverð og skildi; sækja fram og verja sig. Orðið réttlætir alls kyns leti og ómennsku og margir ágætir starfsmenn eru barðir niður með hrakspám um yfirvofandi kulnun. Nökkvi læknir þolir ákaflega iila þegar þetta orð er notað gagnrýnis- laust en hann gerir sér glögga grein fyrir því að starfsþreyta er vel þekkt fyrirbæri hjá fjölmörgum stéttum. Mikilvægt er að þekkja raunveruleg einkenni kuinunar svo að hægt sé að koma í veg fyrir hana og rugla henni ekki saman við þunglyndi eða hyskni. Ástæður starfsþreytu geta verið fjölmargar. Margir byija á nýjum vinnustað fullir eldmóði. Smám saman dofnar eldmóðurinn og menn uppgötva að vinnan býður ekki upp á þau tækifæri sem lofað var í upphafi. Léleg samvinna á vinnustað, kulnun, baknag og deil- ur stuðla að versnandi liðan starfs- fólks og grefur undan vinnugleði ogeðlilegujákvæðu sjáifsmati. Lít- il uppörvun og afskiptaleysi frá hendi yfirmanna verkar neikvætt á flesta. Einhæf eða ruglingskennd vinnubrögð leiða til vanmeta- kenndar og efasemda. Eigin vanda- mál starfsmannsins auka líkur á kulnun; tilfinningaleg viðkvæmni Álækravaktiniú og vanhæfni að setja öðrum mörk. Óeðlilegt vinnuálag veldur starfs- þreytu. Kulnun eða starfsþreyta lýsir sér einkum á þijá vegu: 1. Tilfinningaleg þreyta eða ör- mögnun. Starfsmanninumfinnst að hann hafi ekkert að gefa lengur. Hann kvíðir því að fara í vinnu og ýtir á undan sér verkefnum. 2. Menn verða óhkir sjálfum sér. Sá sem áður var jákvæður og fullur af eldmóði verður áhugalaus og neikvæður gagnvart samstarfs- fólki og verkefnum. 3. Starfsmaðurinn finnur fyrir eigin vanhæfni; afköstin minnka og hann telur sig ekki ráða við starfið og fyllist vanmetakennd. Sjálfsöryggi hverfur eins og dagg- ardropar á vordegi Þetta getur leitt til aukinnar áfengisneyslu og svefnleysis og margs konar líkamlegra einkenna eins og höfuðverkja, magaverkja, hjartsláttartruflana og vöðva- verkja. Slíkir spennukvillar geta orðið til þess að mætingar verða slæmar og aíköst í starfi lítil sem síðan eykur enn þá tilfinningalegu örmögnun sem er aðaleinkenni kulnunar. Starfsþreyta minnir um margt á þunglyndi enda eru mörg einkenni hin sömu. Sjúklingurinn getur þó oft rakið vanhðan sína til vinnunn- ar og þeirra vonbrigða sem hann finnur fyrir á vinnustað. Úrræði: Best er að leysa vandann með þvi að tala um erfiðleika við samstarfs- menn og fá þannig góð ráð og upp- örvun. Yfirmenn verða að gæta þess að hrósa þeim sem vel gerir; uppörva fólk, umbuna og koma fram við starfsfólk sitt af fullri virðingu. Leysa verður úr deilum í starfsmannahópnum og tala út um hlutina. Glögg skifverða að vera á mihi vinnustaðar og heimil- is svo að menn fari ekki með vinn- una með sér heim eða í frí. Gott er að gera eitthvað til að koma í veg fyrir það að þreyta frá vinnustað festist (gönguferöir, sund, hlaup, tómstundagaman). Það er slæmt að vera mikið einn bæði á vinnu- stað og heima fyrir. Ef vinnuálagið er mikið má reyna að brjóta upp einhæfnina, sldpuleggja vinnuna öðruvísi svo að fólki finnist það hafa eitthvaö að segja um gang mála á vinnustaðnum. Gott er að skipta um starfsvettvang ef ein- hæfnin verður fullmikil. Ef um raunverulegt þunglyndi er að ræöa þarf stundum að grípa til þung- lyndislyfja. Úrslitaleikur í Reykjavfkurmóti innanhúss Meistaraflokkur karla VALUR-FYLKIR að Hlíðarenda sunnudaginn 26. febrúar, kl. 17.15 Aðgangur kr. 500. Ókeypis fyrir börn. Knattspyrnuráð Reykjavíkur Uppboð Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp að Melabraut 18, Hafnarfirði, laugar- daginn 25. febrúar 1995, kl. 13.30: HT-688, Volvo 244 '86, BP-688, Volvo FB88 74, IX-495, Volvo 345 '88, GS-808, Volvo 345 '82, IK-186, Nissan double cab '87, TF-843, Lada station '91, JI-729, Toyota Lite-Ace '88. DT-127, MAN 16.240 72, EH-775, Mercedes Benz 309D '76, IM-907, Dodge Aries '85, ÞA-033, Suzuki LT.185 '84, ÞA-034, Suzuki LT. 230 EH '87, HD-869, Mazda 929 '84, FÞ-322, Chevrolet Citation '80, HJ-774, Fiat Regata '85, HU-560, Ford Escort '86, GN-169, Toyota Carina '82, JR-535, Peugeot 205 '88, HL-812, Mitsubishi L300 Minibus '85, II-683, Porsche 924 '82, RU-914, Toyota Hilux '91, IY-317, Ford Sierra '88, GH-887, BMW 318 '82, UD- 618, Ford E350 Econoline '87, KS-259, Daihatsu Charade '89, LA-656, Mitsubishi Lancer '83, HL-823, Ford Escort '85, LD-687, Mitsubishi Lanc- er '86. Einnig er fyrirhugað að selja muni úr þrotabúi Málmverks hf. Greiðsla við hamarshögg 0, , , . . ,, , Syslumaðurinn i Hafnarfirði Þú kemur með bílinn,og við ökum þér heim. Blllinn veröurtilbúinn eftir 4 tíma VIÐ ERUM FLUTTIR AÐ FOSSHÁLS113-15 EFTIR 14 ÁR í DUGGUVOGI BILRUÐUR- ISETNINGAR FRAMRUÐAN FOSSHÁLSI 13-15 SÍMI 587 0022 r Sparidagar á Hótel Örk Holl hreyfmg og útivera, skemmtun, glens og gaman alla daga. Ókeypis aukanótt Sparidagarnir lengjast um einn dag ykkur að kostnaðarlausu og hefjast nú með kynningarfundi og kvöldverði á sunnu- dagskvöld svo að dagskráin geti byrjað af fullum krafti strax á mánudagsmorgun. Innifalið: Gisting, morg- unverður af hlaðborði, þri- ; réttaður kvöld- verðurogeld- fjörugt félagslíf undir stjóm Sigurðar Guð- mundssonar alla daga og kvöld. Sparidagar verða: 5., 12., 19. og 26. mars, 2. apríl Verð kr. 15.800 fyrir manninn í 5 daga í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli kr. 1.500 á nótt. Atthagafélög í Reykjavik athugið! Nú er vinsœlt aó hilta gamla vini 0£ kunningja á sparidög- um á Hótel Örk. Kynnið ykkur h venter sveitungar ykkar verða á sparidögum og bókió sömu daga. \ & ^HÓTaÖCK HVERAGERÐI, sími 98-34700. Fax 98-34775

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.