Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
39
DV
Skák
Rætist draumur
Kamsky-feðga?
Aðatfundur
1995
Nú eru fimm ár síðan Gata Kamsky
og Rustam faðir hans tóku þá afdrifa-
ríku ákvörðun að afloknu opna mót-
inu í New York að yfirgefa rússneska
ættjörð sína fyrir fullt og allt. Gata
var þá aðeins 15 ára gamall en hafði
þegar getið sér gott orð við skákborð-
ið - varð m.a. unglingameistari Sov-
étríkjanna 12 ára gamall.
Kamsky-feðgar lýstu þvi opinber-
lega yfir að Gata fengi ekki næg tæki-
færi í heimalandinu til að þroska
hæfileikana og því hefðu þeir ekki
átt annan kost en að flýja land. Gata
ætlaði sér að verða heimsmeistari.
Flestir tóku þessu fálega, enda var
ekki að merkja að piltur hefði neitt
sérstakt yndi af skák, þrátt fyrir ótví-
ræða hæfileikana. Hann virtist eins
og barinn til hlýðni af föður sínum
og ýmsir gerðu því skóna að sá gamli
hefði þarna fundið snjalla leiö sér til
lífsviðurværis í vesturheimi.
Síðan hefur Gata tekið framförum
jafnt og þétt, þótt á stundum hafi
árangur hans fallið í skuggann af
uppátækjum föðurins. Rustam er
fyrrverandi hnefaleikakappi og á það
til að vera afar viðskotaillur. Rimm-
ur hans við bandaríska skákmenn
eru vel þekktar en trúlega eru Kam-
sky-feðgar þó frægastir fyrir að hafa
ásakað Kasparov um að hafa laumað
slævandi lyíjum í svaladrykk Gata á
stórmótinu í Linares.
Eftir stórsigur Gata Kamsky gegn
Valery Salov í áskorendaeinvígi
þeirra í Sanghi Nagar á Indlandi
aukast líkurnar á því aö draumur
þeirra feðga um heimsmeistaratign
rætist. Sigur Gata var svo öruggur
að telja verður nokkuð tvísýnt um
úrslit í væntanlegu einvígi hans við
Karpov sem bar sigurorð af Gelfand.
Sigurvegarinn í einvígi Karpovs og
Kamskys ætti með réttu að teljast
heimsmeistari FIDE en þríeykið Ka-
sparov, Campomanes og Makarov
hafa hins vegar ákveðið að eiginlegt
heimsmeistaraeinvígi verði milli sig-
urvegarans og PCA-meistarans. Þar
á Kamsky raunar enn möguleika því
að áskorendaeinvígi hans við Visw-
anathan Anand um réttinn til þess
að skora á Kasparov hefst 9. mars í
Las Palmas.
Umsjón
Jón L. Arnason
Varla verður sagt að Gata Kamsky
sé sérlega spennandi skákmaður.
Hann hefur fremur „þurran" skákst-
íl - er afar vel lesinn í skákfræðum
og tekur sjaldnast mikla áhættu.
Gott dæmi um þetta er 3. skákin gegn
Salov sem er áhugaverð frá fræðileg-
um sjónarhóli en ekki léku meistar-
arnir marga leiki frá eigin brjósti.
Hvítt: Gata Kamsky
Svart: Valery Salov
Drottningarbragð.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4. Rf3 Rf6
5. Bg5 h6 6. Bh4 Rbd7 7. e3 0-0 8. Hcl
c6 9. Bd3 dxc4 10. Bxc4 b5 11. Bd3 a6
12. a4 bxa413. Rxa4 Da5 + 14. Rd2 Bb4
15. Rc3 c5 16. Rb3 Dd8 17. 0-0 cxd4 18.
Rxd4 Bb7 19. Be4! Db8
Um þessa leiki þarf ekki að fjöl-
yrða. Staðan sem fram er komin er
vel þekkt, m.a. úr 12. einvígisskák
Fischers og Spasskís í Laugardals-
höllinni 1972. Fischer lék nú 20.
Bg3(?) en eftir 20. - Da7 21. Rc6 Bxc6
22. Bxc6 Hac8 náði Spasskí að rétta
úr kútnum og mátti minnstu muna
að honum tækist að vinna skákina.
20. Rc6!
„Endurbót" Kamskys á taflmennsku
Fischers er vel þekkt. í einvígisbók-
Aðalfundur Skeljungs hf. verður
haldinn þriðjudaginn 14. mars
1995 í Ársal Hótel Sögu,
Reykjavík, og hefst fundurinn
kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.
16. grein samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum
félagsins til samræmis við
breytingar á lögum nr. 32/1978
um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og
reikningar félagsins munu liggja
frammi á aðalskrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn
verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins Suðurlandsbraut 4,
6. hæð, frá og með hádegi
7. mars til hádegis á fundardag,
en eftir það á fundarstað.
Skeljungur hf.
Shell einkaumboð
Eftir áskorendaeinvígi Gata Kamsky við Valery Salov í Sanghi Nagar á Ind-
landi aukast likurnar á því að draumur Kamsky-feðga um heimsmeistara-
tign rætist.
inni eftir Friðrik Ólafsson og Frey-
,stein Jóhannsson segir Friðrik um
20. leik Fischers: „Hér var tvímæla-
laust sterkara að leika 20. Rd4-c6, því
að svarta drottningin er í rauninni
betur sett á a7 en b8. Eftir 20. ..Bb7xc6
21. Be4xc6 Ha8-a7 22. Bh4-g3 njóta
hvítu biskuparnir sín óhemjuvel, eru
eiginlega aUsráðandi á borðinu.“
20. - Bxc6 21. Bxc6 Ha7 22. Bg3 Re5
Friðrik bendir á 22. - Db6? 23. Ra4
Da5 24. Dd4 og vinnur.
23. Dd4 Bd6 24. Re4 Rxc6
Salov vill losna við hvíta biskupa-
parið, jafnvel þótt það kosti slæma
meðferð á kóngsstöðunni. Skárra er
trúlega 24. - Rxe4 25. Bxe4 Hd8.
25. Rxffi + gxfb 26 Hxc6 Be5 27. Dg4+
Með þessum leik mun Kamsky loks
víkja frá troðnum slóðum. Svo langt
nær „teórían" nú á dögum.
27. - Kh7 28. De4+ Kg7 29. f4! Bc7
Ef 29. - Bxb2 er 30. f5 sterkt.
i
I A á #
á a áá á
& ÉL
& A A
S'ý
ABCDEFGH
30. Bel!
Lykilleikurinn. Biskupinn verður
gríðarlega sterkur á c3 og þar að
auki opnast sóknarfæri fyrir hrók-
inn á kóngsvængnum. Nú er „eitraða
peðið" banvænt. Ef 30. - Dxb2? 31.
Bc3 Db5 32. Hbl og tjaldið fellur, t.d.
32. - Dd5 33. Bxf6+ Kg8 34. Dxd5
exd5 35. Bd4 o.s.frv. •
30. - Db5 31. Hf3 Hd8 32. Hg3+ Kh8
33. h3! ^
Lítill leikur sem treystir stöðuna.
Vandi svarts er óleysanlegur.
33. - Dd5 34. Dc2 Bd6
Afbrigðið 34. - Bb8 35. Bc3 Be5 36.
Bxe5 Ddl + 37. Kh2 fxe5 38. Df5!! er
fallegt.
35. e4!
Og þótt þessi sjálfsagða framrás
kóngspeðsins sé nokkuð seint á ferð-
inni er hún nú sterkari en nokkru
sinni fyrr. Svartur gafst upp. Ef t.d.
35. - Db5 36. Hxd6 Hxd6 37. Dc8+ og
mátar.
AKAI
FULLKOMIN
SURROUND-HUÓMTÆKI
MX-92
ALVÖRU HUÓMUR!
TÆKNILEGAR IIPPLÝSINGAR:
• Digital FM/MW/LW útvarp
með 19 minnum
•100 watta magnari
• Forstilltur tónjafnari
með 5 stillingum
• Geislaspilari
Tvöfalt Dolby segulband
Innstunga fyrir heyrnartól
og hljóðnema
Fullkomin fjarstýring
• Surround-hljóðkerfi
• 10Ow hátalarar
ifÓNVARPSMIÐSTÖÐIN
SIÐUMULA 2 • SIMI 68 90 90