Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
21
Skemmtir kviddómend-
um í Simpsonmálinu
Anna Mjöll Ólafsdóttir:
Anna Mjöll Ólafsdóttir býr i Los Angeles þar sem allt er á öörum endan- Simpson í réttarsal ásamt verjanda sínum, Robert Shapiro.
um vegna réttarhaldanna yfir O.J. Simpson.
Anna Mjöll Ólafsdóttir, sem er
við nám í tónlistarskóla í Los Ange-
les, mun í dag standa á fjölunum
fyrir framan kviðdómendur í mál-
inu gegn O.J. Simpson.
„Dómarinn, Lance Ito, ákvað að
stytta kviðdómendum stundimar
og bauð þeim þess vegna á sýningu
á ímyndunarveikinni eftir Moliere.
Ástæða þess að ég tek þátt í sýning-
unni er sú að ein leikkonan forfall-
aðist og leikstjórinn, sem er vin-
kona mín, bað mig um að hlaupa í
skarðið. Ég á að leika fjögurra ára
stelpu sem gerir allt vitlaust.
Reyndar sagði leikstjórinn að ég
væri sú einá sem kæmi til greina
í hlutverkið, hvort sem það var nú
hrós eða ekki. Þetta verður aö
minnsta kosti mjög spennandi og
ekki síst vegna þess hveijir áhorf-
endurnir eru,“ segir Anna Mjöll.
„Kviðdómendur eru annars lok-
aðir inni á hóteh og verða það
kannski fram á sumar ef réttar-
höldin standa lengi. Þeir fá bara
að hitta fjölskyldur sínar um helg-
ar og stundum á kvöldin. Þeir fá
að horfa á sjónvarp eftir að búið
er að ritskoða efnið. Og þóknunin
sem þeir fá er bara 5 dollarar á
dag.“ Anna Mjöll bætir því við að
í varúðarskyni verði kviðdómend-
um ekið í leikhúsið í rútu með
skyggðu gleri.
Anna Mjöll segir marga Los
Angelesbúa og aöra Bandaríkja-
menn gera sér ferð að morðstaðn-
um, það er heimili Nicole, fyrrver-
andi eiginkonu Simpsons. Fólk
flykkist einnig á veitingastaöinn
þar sem Nicole var morðkvöldið
og einnig að heimili Simpsons
sjálfs.
Að sögn Önnu Mjallar eru margir
Bandaríkjamenn farnir að þreytast
á réttarhöldunum sem sjónvarpað
er beint á mörgum sjónvarpsrásum
í margar klukkustundir á dag. „Það
er þó rætt um málið hvar sem
maður kemur og svo virðist sem
allir viti allt um það. Og allir hafa
skoðanir á málinu. Það hefur verið
Qöldi skoðanakannana í gangi all-
an tímann. Einn maður, sem sjón-
varpsmenn spurðu, kvaðst ekki
halda að Simpson væri sekur held-
ur maðurinn sem öll sönnunar-
gögnin beindust að! Ég veit ekki
hvort Simpson er sekur eða sak-
laus en ef maður er sekur og getur
borgað fyrir að sleppa þá er náttúr-
lega eitthvað að kerfinu. Og það er
það sem fólk er að velta fyrir sér
núna. Níutíu prósent þeirra sem
ég tala við eru þeirrar skoðunar
að Simpson sé sekur. En lögfræð-
ingaliðið sem Simpson er með er
stjarnfræðilega gott og þaö gæti
alveg látiö hann sleppa."
Anna Mjöll hefur haft í nógu að
snúast að undanfórnu þvi hún lýk-
ur námi í tónlistarskólanum í mars
og er núna að undirbúa geislaplötu.
Hún segir alveg óráðið hvað taki
við eftir námið. „Það fer bara eftir
því hvar ég fæ eitthvað að gera.“
LAGUNA—gullfallegur og glcesilegur
\
LAGUNA er nýr bíll - nýtt sköpunarverk frá
franska bílaframleiðandanum Renault.
Ný kynslóð Renault bíla hefur verið að skila sér
á markaðinn á síðustu árum og hvarvetna vakið verð-
skuldaða athyglifyrir glœsilega en jafnframt fmmlega
hönnun ogframúrskarandi aksturseiginleika.
Renault 19, Clio, Twingo og Safrane - allt bílar sem
notið hafa hylli almennings og lof gagnrýnenda.
Renault Laguna er stór, kröftugur og rennilegur
fjölskýldubíll Spameytinn að hœtti Renault en snarpur
Einstök ytri hönnun hefur skilað sér í loftmótstöðu,
san er með því lœgsta sem gerist. Laguna er rúmgóður
í alla staði. Sœtin og þcegindi farþega hafa alltaf verið
einkenni á Renault en í Laguna er gaigið skrefi lengra
og reynt að gera enn betur.
Þegar sest er upp í Laguna kemur strax í Ijós
hversu vandaður, þœgilegur og ömggur þessi bíll er.
Allurfrágangur, allt yfirbragð,
sérhvert smáattiði ber vott um
mikinn metnað og virðingu
fyrir vcentanlegum eiganda.
Á bak viðfagurt útlit em
sterkar öryggiskröfur í hönnun
ogframleiðslu Laguna. Virkt
öryggi felst í frábcemm aksturseiginleikum, ömggum
hanlum, góðrí ýfirsýn og góðu vinnuumhverfi ökwnanns.
Það leynir sér ekki að þessum bíl er unun að aka
- ekki síst sem stoltur eigandi.
Komdu og reynsluaktu honum um helgina.
að hætti RENAULT!
Bifreiðar & landbúnaðarxélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14 • SÍMI 568 1200 • ÁRMÚLA 13 ■ SÍMI 553 1236