Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995 . Menning Jan Davidsson, menningarverðlaunahafi DV í listhönnun: Fólk er sólgið í eitthvað ekta Svíinn Jan Davidsson, sem hlýtur list- hönnunarverðlaun DV fyrir hönnun á útifatnaði Sjóklæðagerðarinnar hf., kveðst hafa fæðst inn í fagið. „Á uppvaxtarárum mínum var Borás og nágrenni, þaðan sem ég er, textíliðn- aðarsvæði. Foreldrar mínir unnu við þetta og ég hef eiginlega kynnst öllum greinum þessa iðnaðar," segir Jan. Hann leggur áherslu á að hann hafi sérstaklega gaman af fatahönnun en vill þó ekki kalla sig hönnuö. Það er þó engu að síður Jan sem er maðurinn á bak við form og Uti í faUegum eðal- kappflíkum 66°N og öðrum vinsælum útiklæðnaði fyrirtækisins. .Jan kom fyrst tU íslands árið 1970 sem ráðgjafi í fataiðnaði en hefur átt lögheimili hér síðan 1981. Hann hefur þó ekki búið hér allan tímann heldur starfað sem ráðgjafi hjá fyrirtækjum í Noregi og Bandaríkjunum og verið klæðskeri í West End í London. Und- anfarin tvö ár hefur hann hannað útifatnað hjá Sjóklæðagerðinni. Sjálfur gengur hann á fjöh og rennir sér á skíðum svo að hann veit hvemig flikumar eiga að vera til að geta þjónað sínum tílgangi. „Það þýðir ekki að sitja við skrifborð og ímynda sér hvemig hlutimir eiga að vera. Ég gæti ekki unnið öðmvísi en ég geri.“ Jan hefur ákveðnar skoðanir á því hvað þurfi að gera til að flíkur verði eftirsóknarverðar fyrir kaupendur. „Menn verða í fyrsta lagi að setja sér ákveðin markmið. Það má ekki vera gjá á núlU þeirra sem skapa og þeirra sem stjóma fyrirtækjunum. Menn verða að skilja hvað þeir eru meö í höndunum. Það er sorglegt að sjá hversu mikUr peningar hafa farið tU spUlis í ullariðnaðinum. Þar vantar yfirsýn. Það er stórt gap miUi sköp- unarinnar og þekkingarinnar á iðn- framleiðslu. Það vantar vöruþróun sem tengist markaðssetningu. Menn verða að vera það sem þeir era og búa til eitthvað sem er sérstakt fyrir ísland. Það var til dæmis rangt að ætla sér að keppa við ítalskar ullar- vörur og fá í því skyni ítalskan hönn- uð. íslendingar geta ekki allt í einu orðið ítalir." Jan leggur áherslu á að Sjóklæða- gerðin hf. sé fyrirtæki sem hafi verið að þróast í langan tíma og það hafi jafnframt verið í tengslum við sjáv- arútveginn. „Hér eru framleidd bestu sjóklæðin í heiminum. Um helmingur framleiðslunnar er flutt- ur út en það er lítið talað um það. Þróun útifatnaðar fyrirtækisins mið- ast við veðurskUyrðin á íslandi.“ Frægð Bjarkar gefur ýmsa möguleika Það er mat Jans að hér séu van- nýttir möguleikar á mörgum sviðum. Hann nefnir sem dæmi frægð Bjark- ar Guðmundsdóttur. „Það mætti tU dæmis gera sér mat úr„avant garde“ Jan Davidsson fatahönnuður fæddist inn í fagið. tísku. Ég sé líka fyrir mér Bjarkar- ilmvötn og margt fleira í þeim dúr. En þá yrðu menn líka að nálgast ■ þann markað á réttan hátt. Það má ekki verða eins og gerist svo oft að margir ætli að græða á því sama sem leiöir svo til þess að þeir eyðileggja bæði fyrir sjálfum sér og öðrum. Svona möguleikum verður að sýna virðingu." Tengsl við söguna era möguleiki sem Jan telur mikilvægan. „Fólk er sólgið í það sem er ekta. Það vill meira en einhver föt sem bara hanga DV-mynd Brynjar Gauti á herðatrjám í verslun. Það væri hægt að byggja upp ullar- og skinna- iðnaðinn með því að notfæra sér leit fólks að rótunum, þaö er með því að nálgast sálina eða ímyndina í sög- unni og útfæra hana. En þetta þarf að gera af mikilli fagmennsku." að fólk væri að lesa bókina og hef fengið talsverð viðbrögð frá lesend- um. Það eru náttúrlega stærstu verð- laun sem hver höfundur fær að ein- hver lesi bókina," segir Sigurjón Sig- urðsson, Sjón, sem hlaut menningar- verðlaun DV í bókmenntun fyrir bók sína Augu þín sáu mig sem út kom fyrir síðustu jól. „Þessi bók er ástarsaga úr seinni heimsstyrjöldinni og segir frá kynn- um ungrar þjónustustúlku á gisti- heimUi í N-Þýskalandi og hrakins manns á flótta. Hún er látin annast flóttamanninn þegar hann er hýstur þar í nokkra daga í lok styrjaldarinn- ar. Inn í þetta flétta ég ýmsum sögum og leik mér með gamalt minni úr gyðingabókmenntum sem er leir- maðurinn." Tilvitnun í Davíóssálma Nafnið á bókinni, Augu þín sáu mig er tilvitnun í Davíðssálma. „Þetta er úr þeim stað í Davíðssálm- um þar sem hebreska orðið Gólem kemur fyrir en það er einmitt nafn leirmannsins. Nafnið er úthugsað og var ákveðið fyrir tveimur árum,“ segir Sjón sem byrjaði að vinna við þessa bók árið 1990. „Ég byrjaði á að setja saman sögu sem ég ætlaði mér auðvitað að klára einhvern tíma en svo fór með þá sögu að þessi tók hana yfir. Þessi saga sem úr varð átti því aldrei að verða til heldur fæddist við vinnslu á annarri sögu. Það var mikU undirbúnings- vinna fyrir þessa bók og ég þurfti aö lesa ógrynni af bókum til að fræðast. Ég ætlaði alltaf að skrifa um leir- manninn en þetta er í raun saga móður hans.“ Sjón segir að margt fólk hafi gefið sig á tal við hann og rætt um þessa sögu. „Þetta er fólk á öUum aldri sem virðist hafa haft gaman af henni. Ég er mjög ánægður með þessi viðbrögð þar sem ég lét renna saman ein- hveija tilraunamennsku og skemmti fólki um leið.“ Fyrstabindi afþremur Augu þín sáu mig er fyrsta bindi af þremur og Sjón segist vera að leggja grunn að annarri bókinni. í þeirri bók færist sagan til íslands og er á vissan hátt um föður leirmanns- ins. Fyrsta bókin endaði í lok síðari heimsstyrjaldarinnar og þessi nýja mun taka við þar sem frá var horfið. Hún mun lýsa lífinu í Reykjavík á þeim tíma og fram til ársins 1962. Sagan gerist einnig í London og ein af aðalpersónunum er maður sem bjó þar þannig að ég hef aðeins verið að kynna mér þær kringumstæður sem hann bjó í,“ segir Sjón. Vinnur fyrir Björk Hann er nú búsettur í London ásamt eiginkonu sinni, Ásgerði Jún- íusdóttur, og 2ja ára dóttur, Júníu. Ásgerður er í söngnámi í borginni. Sjón starfar fyrir Björk Guðmunds- dóttur í London. „Ég sé um tölvu- banka hennar á alþjóðlegu tölvuneti og einnig ritstýri ég tímariti sem gef- ið verður út af upplýsingamiðstöð Bjarkar. Það verður gefið út um allan heim. Þetta er mjög skemmtilegt Sigurjón Sigurðsson, Sjón, er menningarverðlaunahafi DV í bókmenntum. DV-mynd GVA „Ég átti alls ekki von á að fá verðlaun undanförnum áram, sem hefur vakið fyrir þessa bók. Hins vegar er þetta mesta athygli og fólk virðist hafa tek- sú bók, af þeim sem ég hef skrifað á ið eftir. Ég hef mikið orðið var við starf og rnikil vinna,“ segir Sjón sem er ekki alveg ókunnur blaðamennsk- unni. „Ég hef gaman af blaða- mennsku ef ég fæ að ráða mér svolít- ið sjálfur. Annars er mjög gott að fá þessi verðlaun núna því þau minna mann á ritstörfin og halda mér við efnið.“ Björk Guðmundsdóttir og Sjón eru vinir til margra ára og því kemur honum fátt á óvart í hennar lífi. „Hún er í hörkuvinnu aö ganga frá nýrri plötu.“ Augu þín sáu mig er þriðja skáld- saga Sjóns en áður hafa komið út skáldsögumar Stálnótt, 1987, og Eng; ill, pípuhattur og jarðarber, 1989. Á síðasta ári sendi hann frá sér langt ljóð um Dag Sigurðarson og einnig átti hann erótíska sögu í smásagna- safninu Tundur dufl. Sjón segist kunna vel við sig í Lon- don enda sé þar menningarlíf í mikl- um blóma. „Það er mikið líf hér og margt að gerast í listum og bók- menntum." Verðlaunahafar á bókmenntahátíð Annað kvöld ætla þeir Einar Már Guðmundsson, menningarverð- launahafi DV í fyrra, og Sjón að lesa úr verkum sínum á norrænni bók- menntahátíö í Swansea á Englandi. Þar stendur yfir mikil bókmenntahá- tíö, UK Year of Literature, en það mun vera einn mesti bókmenntavið- burður í Englandi á árinu. Sjón segir að það sem hggi helst fyrir hjá sér á næstunni sé að passa upp á að enginn gleymi Björk og að dóttirin eigi nóg brauð handa íkomunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.