Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Side 18
18 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995 , Dagur í lífi Torfa Geirmundssonar hárskera: Verkfall ágætt umræðuefni Torfi er hér með Gunnar Guðjónsson, meistara sinn og samstarfs- mann, undir hnífnum. DV-mynd GVA Það var ekki skemmtilegt að vakna á mánudagsmorguninn. Það er einmitt á mánudögum sem ösku- karlamir koma eldsnemma og það er ekki nokkur leið að sofa við þann hávaða sem þeir framleiða. Því er ég óvenjusnemma á ferðinni á mánudögum og framkvæmi því meira þann dag en aðra. Þessi varð samt mjög sérstakur þó ekki væri það á skipulagi dagsins. Ég byijaöi sem sagt daginn snemma og var mættur með vinnu- buxumar mínar til hreinsunar hjá Úðafossi um leið og þar var opnað. Ég hafði áhyggjur af því að hreins- unin væri það dýr að nær væri að kaupa sér nýjar buxur á útsölu. Mér til mikillar ánægju var miði á hurð hreinsunarinnar þar sem boðinn var 30 prósenta afsláttur í febrúar. Verkfall gott umræðuefni Stundvíslega klukkan 9 opnaði ég síðan hársnyrtistofuna og skömmu seinna var fyrsti við- skiptavinur dagsins sestur í stólinn hjá mér og hófum við að ræða verk- fall kennara. Ég: Jæja, hvemig list þér á verk- fali kennara? Heldur þú að þeir leysi það nokkuð fyrr en í haust? Hann: Það vona ég ekki. Þeir eiga bara að láta þessa kennara finna fyrir því. Þeir em alls ekki með svo slæm laun þegar allt er talið. Ég: En hvað um nemendur? Þetta bitnar á þeim. Hann: Já, það er náttúrlega kenn- urum að kenna og því verða þeir að blæða fyrir það. Þar með var ég mát og spurði hvort ég ætti að stytta bartana eða bara aö þynna þá. Næsti viðskiptavinur var góð- hjörtuð eldri kona í hárlitun og þar kvað við annan tón. Kennarar áttu alla hennar samúð. Ég tók að sjálf- sögðu ekki afstöðu en mikiö er það gott að hafa umræðuefni sem allir em tilbúnir að taka þátt í. Kenn- araverkfallið er góð tilbreyting frá veðrinu sem er oftast umræðuefn- iö. NewYork-ferð undirbúin Þegar ég fékk hlé notaði ég það til að athuga hvort ég fengi flug til New York 11. mars en þar var ég á biðlista. Ég hringdi í hinn frábæra ferðaskrifstofumann Fred sem starfar á Samvinnuferðum. Fred hefur einstakt lag á að frnna fyrir mann það ódýrasta og besta í ferða- lögum frá og til þessa lands. Því miður hafði honum ekki tekist það ómögulega, það var ekki til nema saga class farmiði. Það er því útséð um að ég komist beint til New York en þangað verð ég að komast til að taka við World Masters Award. Komi ég ekki í eigin persónu fæ ég engin verðlaun. Ég setti það því í hans hendur aö koma mér þangað með krókaleiðum um leið og ég bölvaði einokun Flugleiða á öllu flugi frá landinu. Nýrgalli keyptur Það er fátítt að við hársnyrtifólk tökum okkur matarhlé en það varð ég að gera þennan dag. Mig vantaði tilfinnanlega fót til að vera í á sýn- ingunni í New York. Því fékk ég mér göngutúr í verslunina 17 á Laugaveginum (ég versla aldrei í Kringlunni). Þar var dúndurútsala sem var í samræmi við fjárhag minn. Ég hafði aldrei komið í þessa stóru og fallegu verslun fyrr og var því hálffeiminn. Það var alveg aö ástæöulausu því ég fékk þar mjög góða afgreiðslu. Ungur og myndar- legur drengur, ættaður frá Akur- eyri, dansaði í kringum mig og klæddi mig upp í flottan galla á mjög góðu verði. Hann var svo kurteis og vel upp alinn að hann hafði hvorki orð á því að ég væri of gamall fyrir verslun sem heitir 17 né með of mikla ístru til að passa í fötin þar. Að geyma fyrir mig ávísun var líka sjálfsagt því þó ég fengi þetta á góðu verði var ekki þar með sagt að ég ætti fyrir því. Rakstur í beinni útsendingu Það var eins gott að ég keypti þessi fót þvi þegar ég kom í vinn- una aftur þá var Eiríkur, hinn eini og sanni, í símanum og vildi fá mig í viðtal í sinn rómaða þátt á Stöð 2. Ekki vildi hann gera mikið úr þeim verðlaunum sem ég hafði fengiö en viidi endilega fá mig til að raka sjálfan mig í beinni útsend- ingu. Þetta varð til að ég man ekki mikið hvað ég gerði seinni part þessa mánudags annað en að hugsa hvemig ég ætti að verjast spurn- ingum hans. Klukkan 19.40 var ég mættur á förðunardeild stöövarinnar og til- búinn í þessa þolraun að raka sjálf- an mig fyrir framan sjónvarpsvél- arnar og tala um leið viö einn mesta kjaftask landsins. Þetta slapp en það hefði verið auðveldara að hafa hnífinn á kjammanum á Eiríki heldur en á sjálfum mér. Þá hefði hann þagað en ég haft orðið. Þegar þessari martröð var lokið var virkilega þörf á að fara í góða sturtu til aö þvo af sér svitann því það er heitt í sviðsljósinu. Klukkan var að verða 21 þegar ég slapp frá Eiríki en ég þurfti að ljúka nokkr- um verkefnum áður en ég tók á mig náðir. Síðustu klukkustundir dagsins fóru í að ganga frá aðal- fundarboði fyrir Meistarafélag hár- skera og ég rétt náði að skríða í rúmiö fimm mínútur fyrir mið- nætti. Finnur þú fimm breytingar? 298 PIB Copanríagen Og hvað með prentfrelsið, ef ég má spyrja? Nafn: Vinningshafar fyrir tvö hundruð nítugustu og sjöttu getraun reyndust vera: 1. Guðrún Á. Völundard., 2. Bjarni R. Ingvarsson, Fálkakletti 8, Frakkastíg 20, 310 Borgamesi. 101 Reykjavík. Myndiraar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau meö krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- aranna. 1. verðlaun: Zodiac Sigma 300 sími að verðmæti kr. 4.950 frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verð- laun heita: Líki ofaukið og Bláhjálmur úr bókaflokknum Bróðir Cadfael aö verð- mæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefnar út af Ftjálsri fjölmiölun. Vinningarnir verða sendir heim. Merkiö umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 298 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.