Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Blaðsíða 34
42
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
Litaðu myndina og sendu til KrakkakJúbbs DV, merkt
Skógardýrið, Þverholti 14, 105 Reykjavík
fyrir fimmtudaginn 2. mars nk.
BÍÓMIÐAR, SPRELU KARLAR
OC BARMMERKI i
VERÐLAUN FYRIR HEPPNA
KRAKKAKLÚBBSMEÐLIMI!
50 krakkar fá tvo bíómiða á myndina Skógardýrið Húgó sunnudaginn 5. mars kl. 15.00
í Háskólabíói og Húgó barmmerki. Nægilegt er að sýna Krakkaklúbbsskírteinið
við innganginn. 30 heppnir krakkar fá að auki Húgó sprellikarla!
Nöfn heppinna vinningshafa verða birt í DV næstkomandi laugardag!
Barmmerkin og sprellikarlarnir verða send í pósti.
Heimilisfang:
Póstnúmer: _______■
Krakkaklúbbsnúmer
Fréttir
Smáauglýsingar DV eru mjög gagnlegar:
Les smáauglýs-
ingar f rekar en að
rápa milli búða
- segir Stellu Guömundsdóttur
„Eg keypti einu sinni ágæta eld-
húsinnréttingu á fínu verði sem ég
gaf syni mínum og síðan keypti ég
frystikistu fyrir sjálfa mig, einnig
eftir smáauglýsingu í DV. Ég les
miklu frekar smáauglýsingarnar í
DV en að rápa milli búða þegar mig
vanhagar um eitthvað. Og ég hef
ekki séð eftir því,“ sagði Stella Guð-
mundsdóttir við DV.
Stella auglýsir reglulega í smáaug-
lýsingum DV. Hún hefur bæði óskað
eftir hlutum til kaups og þurft að
selja hiuti. Eitt af áhugamálum Stellu
er kattarækt. Hún ræktar bæöi pers-
neska ketti og norska skógarketti.
„Síminn stoppar ekki þegar ég aug-
lýsi ketthnga í dýrahaldsdálknum,"
segir hún.
Þá hefur Stella auglýst nokkrum
sinnum í „gefins“ dálkinum á mið-
vikudögum.
„Það er alveg makalust hvað margt
fólk hringir þegar ég hef auglýst eitt-
hvað gefins. Ég hef reynt að auglýsa
slíkt í öðrum blöðum en þá hafa við-
brögðin verið afskaplega lítil. Fyrir
jóhn sat ég til að mynda uppi með tvo
tréhesta fyrir börn. Ég þurfti að losna
við þá og ákvað að gefa þá. Nú, ég
auglýsti í smáauglýsingum DV á
miðvikudegi og hélt að síminn ætlaði
aldrei að hætta að hringja. Þetta end-
aði vel en ég gaf tveimur einstæðum
mæðrum hestana th jólagjafa."
Stella Guðmundsdóttir ræktar ketti og auglýsir kettlinga til sölu í smáauglýs-
ingum DV. „Síminn stoppar ekki þegar ég auglýsi kettlinga," segir hún.
DV-mynd Brynjar Gauti
Húsnæðismál íslenskra sjávarafuröa:
Ákvörðun á næsta stjórnarf undi
Forráðamenn íslenskra sjávaraf-
urða, ÍS, hafa enn ekki tekið ákvörð-
un um framtíðarhúsnæði undir aðal-
stöðvamar. Unnið er að tihögum um
staösetningu og verða þær lagðar
fram á stjómarfundi eftir tvær vik-
ur. Þar verður væntanlega tekin
ákvörðun en ÍS þarf að yfirgefa Sam-
bandshúsið við Kirkjusand fyrir 1.
ágúst í sumar.
Eins og komið hefur fram í DV er
ÍS að leita að hentugu húsnæði á
höfuðborgarsvæðinu. Þrjá kosti er
verið að skoða. í fyrsta lagi að leigja
húsnæði, í öðru lagi aö kaupa notað
en nýlegt húsnæði og í þriðja lagi að
byggja frá gmnni. ÍS miðar við 1.400
fermetra húsnæði.
Á NÆSTA
síður á aðeins 485 kr.
ennþá sninna í áskrift
t