Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Qupperneq 20
I
20
LAUGARDAGUR 25. FEERÚAR 1995
Ingvi Guðmundsson hnýtir flugur í félagalitunum:
Manchester United
fær eina afhenta
\ f
*
U: \ (í i
ff. i
L i -J f f
. f \ 11 [. v M í M
lAj} fíi : ?l
Ingvi Guömundsson húsvörður meö flugurnar sínar sem hann hnýtir í litum
fótboltaliðanna. DV-mynd GVA
„Ég er að hnýta flugur og skreyti þær
með litum félagsliðanna í Reykjavík.
Ég er núna komin með öll Reykjavík-
uriiöin og þó víðar væri leitað," segir
Ingvi Guðmundsson, húsvörður á
gervigrasvellinum í Laugardal, en
veiðiflugur hans hafa vakið mikla at-
hygh íþróttamanna sem leið eiga um
völlinn og hafa margir sóst eftir þeim.
„Ég byrjaði á þessu í nóvember.
Þaö var vegna þess að sá sem hefur
hnýtt fyrir mig í mörg ár, góður
veiðifélagi minn, sagði aö best væri
að ég gerði þetta bara sjálfur og setti
mig við öngulhaldarann. Mér fannst
bara gaman að þessu og þetta gekk
vel,“ segir Ingvi sem ekki er óvanur
því að vinna með höndunum því
hann er lærður trésmiður.
„Þar sem ég vinn við fótboltann og
hér ganga liðin um í sínum skraut-
legu búningum fékk ég þá hugdettu
að hnýta í búningalitum félaganna.
Þar sem ég er gamall veiðimaður
verður að raða litunum saman eftir
hugsanlegum möguleikum til að
veiða á þær. Stundum sótti ég því
út fyrir búningana, t.d. í merki félag-
anna eða varabúninga, til að fá litina
til að passa saman," segir Ingvi.
„Ég hef verið mikill aðdáandi
Manchester United frá árinu 1958 en
er þó ekki í klúbbnum. Hins vegar
bjó ég til flugu, Red Devil, sem nú á
aö afhendast liðinu. Ég hnýtti hana
á bindisnælu og hef rammað hana
inn meö tilheyrandi upplýsingum og
einn klúbbfélaginn ætlar að vera svo
vinsamlegur aö taka hana með sér
til þeirra hjá Manchester United. Ég
hlakka síðan mjög til aö heyra við-
brögðin," segir hann.
Ingvi hefur búið til nokkrar slíkar
bindisnælur en margir hafa viljað
eignast þær. „Þá eru flugumar að-
eins stærri og sýna vel gerö þeirra."
Ingvi, sem er 63 ára, hefur notað
allar sínar frístundir til að hnýta en
að öðru leyti á fótboltinn hug hans
allan. Hann var einn af stofnendum
Breiðabliks og síðan formaöur
Stjömunnar í Garðabæ. Ingvi hefur
starfað í tíu ár á gervigrasvellinum
og er því orðinn mörgum kunnugur.
r1
I i
~JT' \
SMAAUGL YSMNGA
Föstudagur
24. februar
Guðbergur Sigursteins., Smáratúni, Vatnslstr., 190 Vogar
(Armbandsúr)
Kristín Stefánsdóttir, Hlíðarvegi 17, 200 Kópav.
(PHILIPS gufustraujárn)
Oliver Edvardsson, Bíldshöfða 16,112 R.
(YOKO ferðaútvarpstæki með segulbandi)
Auður Pétursdóttir, Bústaðavegi 95,108 R.
(Fataúttekt í Blu di Blu)
. Snæbjörn Pétursson, Spóavegi 14, 801 Selfoss
(FUJI myndavél)
Vinningar verda
sendir til vinningshafa
rnm
- skila árangri!
Renault Laguna ^
— undurblíða, nýja villidýrið frá Renault.
Frumsýndur um helgina!