Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Side 26
26
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
Meiming
Góðir dúettar
Leifur Þórarinsson átti eitt verk á
tónleikunum sem hann kallar Ser-
ena, en það er alveg spánnýtt, raun-
ar lokið aðeins fyrir nokkrum vikum.
Myrkir músíkdagar halda áfram.
Þær Laufey Sigurðardóttir og Elísa-
bet Waage léku saman á fiðlu og
hörpu á tónleikum í Gerðarsafni sl.
þriðjudag.
Fyrsta verkið sem þær léku var
eftir hollenska tónskáldið Lex van
Delden sem hann kallar einfaldlega
Duetto. Þetta verður seint talin mjög
frumleg tónlist en hún er lipurlega
skrifuð og hljómar ágætlega á hljóð-
Tónlist
Áskell Másson
færin. Þær Laufey og Elísabet léku
og verkið hnökralaust.
Haustlauf eftir Misti Þorkelsdóttur
var samið á síðasta ári og samkvæmt
því sem höfundur segir er verkið
hugleiðing um litadýrð haustsins
o.fl. Margt bar skemmtilega fyrir
eyru í þessu verki. Það er skýrt í
formi og inniheldur m.a. skemmti-
lega fomfálegan dans. Flutningur
þess var einnig mjög góður og jafn í
mótun.
Leifur Þórarinsson átti næsta verk,
sem hann kallar Serena, en það er
alveg spánnýtt, raunar lokið aðeins
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur, sem enn hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu og
tryggingagjaldi til og með 12. tímabili með eindaga 15. janúar 1995 og virðisaukaskatti til og með
48. tímabili með eindaga 5. febrúar 1995 og gjaldföllnum álagningum og ógreiddum hækkunum er
féllu í gjalddaga til og með 15. febrúar sl. á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðis-
aukaskatti í tolli, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungakatts,
þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtana-
skatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningar-
gjöldum, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, aðflutningsgjöldum og útflutnings-
gjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, skipu-
lagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðaafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, en þau eru:
tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald
vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, lífeyristryggingagjald
skv. 20. gr. laga nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurekanda skv. 36. gr., atvinnuleysis-
tryggingagjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af
verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Gjaldendum skal bent á að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttar-
vöxtum og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda, að þeim
tíma liðnum.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnámsgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 10.000 kr. fyrir hverja fjárnámsgerð. Þinglýsingargjald er
1.000 kr. og stimpilgjald er 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur
hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Jafnframt mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, tryggingagjald, vörugjald og
virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara.
Reykjavík, 25. febrúar 1995
Gjaldheimtan í Reykjavík
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi -
Gjaldheimtan á Seltjamamesi
Gjaldheimtan í Garðabæ
Sýslumaðurinn í Hafnarfírði
Gjaldheimtan í Mosfellsbæ
Sýslumaðurinn í Keflavík
Gjaldheimta Suðurnesja
Sýslumaðurinn á
Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn á Ólafsfírði
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Neskaupstað
Sýslumaðurinn á ísafírði Sýslumaðurinn á Eskifírði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðunnn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Sýslumaðurinn á Blönduósi Gjaldheimta Vestfjarða
Sýslumaðurinn á Akureyri Gjaldheimta Austfjarða
Sýslumaðurinn á Húsavík Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum
fyrir nokkrum vikum. Þetta er ákaf-
lega íhugult verk sem býr yfir tær-
leika undir einföldu yfirborði sínu.
Þær Laufey og Elísabet skiluðu verk-
inu vel og héldu þeirri sterku einbeit-
ingu sem það krefst með innlifun.
Bestan leik áttu þær þó í síðustu
Kansónunum tveimur, Due Canzone
di Don Chisciotte eftir Hollendinginn
Jurian Andriessen, frá árinu 1985.
Þetta verk er einkar vel skrifað fyrir
hljóðfærin og þá sérstaklega síðari
kansónan. Hér var samleikur þeirra
stallna með ágætum og var það góður
endir þessara tónleika.
I verkinu ’Tis a Stairway not a Street
eftir Lárus Halldór Grímsson reyndi
mikið á flytjendurna, þá Martial og
Einar.
TVí-
leikar
Þau Einar Kristján Einarsson gít-
arleikari, Geir Rafnsson slagverks-
leikari, Gerður Gunnarsdóttir fiðlu-
leikari og Martial Nardeau flautu-
leikari léku á tónleikum sem haldnir
voru í Gerðarsafni á vegum Myrkra
músíkdaga sl. þriðjudagskvöld.
Gítarinn var í forgrunni á þessum
tónleikum en verkin þrjú, sem flutt
voru, eru öll dúettar með gítarnum
og öðru hljóðfæri.
Fyrst heyrðum við Partítu (Nokt-
úmu) eftir. Áskel Másson, sem er
skrifuð á árinu 1984 fyrir gítar og
Tónlist
Áskell Másson
slagverk. Verkið byggist mikið á mis-
munandi tónmyndun á hljóðfærin
svo og litbrigðum og skiluðu þeir
Geir og Einar því öllu með ágætum.
Verk Þorkels Sigurbjömssonar,
Vapp, var skrifað á árinu 1993 fyrir
gítar og fiðlu. Höfundurinn segir
hreyfingar tóna sinna í þessu verki
hafa minnt sig dálítið á vapp fugla
og má ætla að þannig sé nafngift
þess til komin en fyrir undirrituðum
er hér nokkuð dæmigerð tokkata eða
snertla. Flytjendurnir, þau Gerður
og Einar, léku verkiö átakalaust og
af öryggi og með fallegum tóni.
Síðasta verk tónleikanna var eftir
Lárus Halldór Grímsson og heitir
það ’Tis a Stairway not a Street. Hér
reyndi mikið á flytjendurna, þá
Martial og Einar. í verkinu em lang-
ir moto perpetuo-kaflar og oftsinnis
í samsettum rytmum. Allar þessar
hindranir stóðust flytjendumir með
miklum ágætum og sýndu þeir
sterka samheldni í hvívetna meö
flutningi þessa ágæta verks Lámsar.