Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Síða 50
-58
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
Afmæli
Jón Isfeld Karlsson
Jón ísfeld Karlsson framkvæmda-
stjóri, Heiðarlundi 1, Garðabæ,
verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Jón fæddist í Neskaupstað og ólst
þar upp. Hann gekk í Barnaskóla
Neskaupstaðar, síðan í Gagnfræða-
skóla Neskaupstaðar, tók landspróf
frá Eiðum 1952 og verslunarpróf frá
VÍ1955.
Jónstundaðiverslunarstörfhjá .
föður sínum frá 1955, réðst til Einars
Sigurðssonar sem framkvæmda-
stjóri Hraðfrystistöðvar Keflavíkur
en flutti til Neskaupstaðar við lát
föður síns 1961 og tók þá við verslun-
arrekstri hans ásamt umboði fyrir
Skeljung. Sama ár varð Jón fram-
kvæmdastjóri Drífu hf., síldarstöðv-
arinnar er norðfirskir útgerðar-
menn stofnuðu það ár. Hann stofn-
aði Söltunarstöðina Mána hf., ásamt
þremur félögum sínum úr Keflavík,
1962, og starfrækti hana til 1968. Þá
byggði hann, ásamt fleirum, Síldar-
verksmiðjuna Rauðubjörg í Nes-
kaupstað 1967-68.
Jón stofnaði Brynjólf hf., útgerð-
ar- og fiskvinnslufélag, ásamt félaga
sínum, Halldóri Brynjólfssyni 1963.
Þeir létu byggja 200 lesta stálbát
sama ár en 1964 byggði félagið salt-
fiskverkunarhús í Ytri-Njarðvík.
Félagið keypti síðan Hraðfrystihús-
ið í Innri-Njarðvík 1971, keypti mb.
Skírni AK1972, helming í mb. Þresti
KE 511983 og helming í mb. Far-
sæli GK sama ár. Þá keypti Jón,
ásamt Gunnari Bergmann Eyvind
KE 371992. Hann stofnaði Kvóta-
bankann 1992 og hefur rekið hann
síðan. Jón flutti til Reykjavíkur 1969
en byggð sér hús í Garðabænum
1971 og hefur búið þar síðan.
Jón var danskur konsúll í Nes-
kaupstað 1961-69, gerðist Rotaryfé-
lagi í Neskaupstað 1965 og félagi í
Rotaryklúbbnum Görðum 1971.
Hann sat í stjórn Fiskifélags ís-
lands, í stjórn framleiðenda Sjávar-
afurðardeildar Sambandsins, for-
maður Norðfirðingafélagsins, form-
aður Dansklúbbs Heiðars Ástvalds-
sonar og í stjórn dansklúbbsins Kátt
fólk. Hann hefur skrifaö greinar í
Fiskiféttir.
Fjölskylda
Jón kvæntist 1967 Eileen Ehsa-
beth, f. 20.2.1937, kennara frá Devon
á Englandi. Hún er dóttir Francis
Down bónda og Amy Down húsmóð-
ur.
Sonur Jóns frá því fyrir hjóna-
band er Karl, f. 19.2.1965, rafvirki í
Keflavík, en dóttir hans er Katla
Hrund, f. 28.8.1990.
Böm Jóns og Eileenar eru Pétur
ísfeld, f. 3.5.1968, hótelrekstrarfræð-
ingur, en kona hans er Magnea Þór-
ey Hjálmarsdóttir hótelrekstrar-
fræðingur; Stefán ísfeld, f. 18.10.
1969, markaðsfræðingur; Markús
ísfeld, f. 1.5.1971, viðskipta- og
tæknifræðingur; Katrín ísfeld, f.
13.5.1975, háskólanemi.
Systir Jóns er Steinunn ísfeld, f.
13.1.1941, skrifstofumaður, gift
Áma Ferdinandssyni og eru böm
Jón ísfeld Karlsson.
hennar Svala Ólafsdóttir og Klara
Árnadóttir.
Foreldrar Jóns: Karl Vilberg
Karlsson, f. 6.8.1907, d. 5.8.1961,
kaupmaður í Neskaupstað, og Klara
Ólafsdóttir, f. 13.11.1913, húsmóðir
frá Þórshöfn á Langanesi.
Staða borgarritara
StáBa borgarritara í Reykjavík er laus til umsóknar.
Ráðiö verður í stöðuna frá 1. maí nk. eða eftir nán-
ara samkomulagi. Umsóknum ber að skila til borgar-
stjóra fyrir 17. mars nk.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Verkakvennafélagið Framsókn
heldur félagsfund mánudaginn 27. febr. kl. 20.30 í
Hreyfilshúsinu v/Grensásveg.
Fundarefni:
1. Nýgerður kjarasamningur
Félagsmenn, fjölmennið og sýnið skírteini við inn-
ganginn.
Stjórnin
Atvinnu- og
ferðamálastofa
Staða framkvæmdastjóra atvinnu- og ferðamálastofu
Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar. Ráðið verður
í stöðuna eigi síðar en frá 1. apríl nk„ til 2ja ára.
Umsóknum ber að skila til borgarstjóra fyrir 17.
mars nk.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
ísbúðin Laugalæk
Allir þekkja ísinn.
Ein stærsta og þekktasta ísbúðin í Reykjavík
í áraraðir er til sölu, núna þegar ísvertíðin
er að byrja. Upplýsingar í síma 91-34555.
ATHl TH greina kemur að selja
reksturinn og leigja húsnæðið.
Sigríður Karólína Jónsdóttir
Sigríður Karólína Jónsdóttir, hús-
móðir og starfsstúlka, Brekkubyggð
51, Garðabæ, er sjötug í dag.
Starfsferill
Sigríður fæddist að Miðgrund
undir Eyjafjöllum og ólst þar upp.
Hún byrjaði búskap í Kópavoginum,
átti síðan heima í Reykjavík til 1953
er hún og fiölskylda hennar fluttu
austur að Miðgrund þar sem þau
áttu heima til 1975. Sigríður á nú
heimaíGarðabæ.
Sigríður starfaði við virkjanirnar
að Sigöldu og að Hrauneyjum á ár-
unum 1974-84. Hún hefur síðan ver-
ið starfsstúlka á Vífilsstöðum.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar er Guð-
mundur Jón Árnason, f. 8.10.1924,
bóndi. Hann er sonur Árna Berg-
mann Guðlaugssonar, trésmiðs í
Hnífsdal og á Isafirði, og Kristínar
Jónsdóttur húsmóður.
Börn Sigríðar og Guðmundar Jóns
eru Þorgerður Jóna Guðmundsdótt-
ir, f. 30.1.1946, tónlistarkennari,
búsett að Ásólfsskála undir Eyja-
fiöllum, gift Viðari Bjarnasyni, b.
þar, og eiga þau fiögur böm og sex
barnabörn; Kristín Áslaug Guð-
mundsdóttir, f. 7.3.1950, sjúkraliði í
Kópavogi, gift Diðriki ísleifssyni bíl-
asprautumeistara og eiga þau þrjú
böm og fiögur barnabörn; Bára
Guðmundsdóttir, f. 29.9.1951, hús-
freyja að Miðgrund undir Eyjafiöll-
um, gift Lárusi E. Hjaltested, b. þar,
og eiga þau fiögur böm og eitt
barnabam; Róbert Bragi Guð-
mundsson, f. 9.8.1956, verktaki í
Reykjavík, kvæntur Hólmfríði
Helgu Ólafsdóttur húsmóður og eiga
þau þijú börn; Jóhann Bergmann
Guðmundsson, f. 9.8.1956, búsettur
í Kópavogi, kvæntur Láru Grettis-
dóttur húsmóður og eiga þau tvö
böm; Guðbjörg Guðmundsdóttir, f.
10.5.1959, húsmóðir í Kópavogi, gift
Alexander Kristjánssyni verktaka
og eiga þau þrjú börn.
Hálfbróðir Sigríðar, sammæðra,
er Jón Guðmann Bjamason, f. 30.3.
Sigríður Karólína Jónsdóttir.
1910, bifvélavirki í Reykjavík.
Alsystkini Sigríðar; Jóhanna
Bjamey Jónsdóttir, f. 10.10.1920, nú
látin, húsmóðir í Vestmannaeyjum;
Hróbjartur Jónsson, f. 29.3.1922,
fórst í bílslysi 24.9.1947.
Foreldrar Sigríðar voru Jón Eyj-
ólfsson, f. 14.4.1886, d. 1969, b. í Mið-
húsum undir Eyjafiöllum, og Þor-
gerður Hróbjartsdóttir, f. 17.1.1880,
d. 9.11.1957, húsmóðir.
Sigurður Kristinn Bárðarson
Sigurður Kristinn Bárðarson bygg-
ingameistari, Sundlaugavegi 22,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Sigurður Kristinn fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp á Skóla-
vörðuholtinu. Hann lauk meistara-
prófi byggingamanna 1981.
Siguröur Kristinn hefur lengst af
starfað sem verktaki á höfuðborgar-
svæðinu, einkum við innréttingar
ýmiss konar fyrir opinberar bygg-
ingar, auk þess sem hann hefur
stundaði byggingaframkvæmdir
fyrireinstakhnga.
Sigurður Kristinn er fram-
kvæmdastjóri bókaútgáfunnar
Andakt. Hann stundaði þjálfun í
ráðgjöf fyrir alkóhólista í Parkside
í Flórída í Bandaríkjunum í ársbyrj-
un 1992. Hann þýddi og gaf út bókina
Heimkoma, eftir John Bradshaw,
1994.
Fjölskylda
Systkini Sigurðar Kristins eru
Guðrún Katla Bárðardóttir, Gyða
Bárðardóttir, Auður Bárðardóttir
en hálíbróöir Sigurðar Kristins,
samfeðra, er Bárður Örn Bárðar-
son.
Foreldrar Sigurðar Kristins: Bárð-
ur Friðgeir Sigurðsson, löggiltur
endurskoðandi í Reykjavík, og Ema
Sigurður Kristinn Bárðarson.
Fanney Þorsteinsdóttir sem lést
1956.
Sviðsljós
Lionessur í Hörpu að ganga frá kössunum.
DV-mynd Arnheiður Ólafsdóttir, Stykkishólmi
Gjafirtil rúss-
neskrabama
Lionsmenn á Norðurlöndum hafa
undanfarin ár staðið sameiginlega
að ýmsum stórum verkefnum og
löndin 5 skiptast á að velja og
greiða kostnað. í ár er komið að
Islandi og barnaheimihð Friazino
við Moskvu í Rússlandi varð fyrir
valinu.
Á bamaheimihnu em 120 fiölfötl-
uð börn, flest munaðarlaus, á aldr-
inum 0-7 ára. Lionsklúbburinn
Harpa í Stykkishólmi stóð fyrir
söfnun á fötum handa rússnesku
börnunum. Bæjarbúar brugðust
mjög vel við og safnaðist í 30 kassa
- föt og leikföng sem send verða
innan tíðar.