Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1995, Qupperneq 12
12
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1995
Spumingiii
Ert þú í tísku?
Laufey Hill nemi: Já, ég legg mikið
upp úr þvi.
Guðríður Gunnarsdóttir nemi: Já,
frekar er ég það.
Helga Bjarnadóttir: Minni tísku, já.
Mikael Allan Mikaelsson nemi: Já.
Hanna Júlía Kristjánsdóttir húsmóð-
ir: Nei, ég hugsa að ég sé það ekki í
dag.
Sigurður Hróarsson leikhússtjóri: Já,
ég vinn í leikhúsi.
Lesendur______________
Kennarar ganga
oflangt
Birgi finnst kröfur kennara vera óraunhæfar.
Birgir Guðmundsson skrifar:
Sem foreldri þriggja barna á
grunnskólaaidri get ég ekki lengur
orða bundist. Verkfall kennara, sem
staðið hefur yflr undanfama daga,
hefur gert miklu fleira heldur en að
lama allt skólastarf í landinu. Víða á
heimilunum hefur skapast algjört
neyðarástand vegna þess að fólk á í
erfiðleikum með að koma börnum
sínum í pössun.
Sjálfur hef ég gripið til þess ráðs
að taka bömin með mér í vinnuna
og einnig hefur konan mín gert það
sama en það sjá það allir að shk lausn
getur aldrei veriö til frambúðar.
Væri ég eða konan heima við væri
vandamálið ekki til staðar en stað-
reyndin er einfaldlega sú að oftast
eru báðir foreldramir útivinnandi
og því enginn heima til að gæta bam-
anna á meðan skólastarf liggur niðri.
Fæstir em líka svo heppnir að geta
komið krökkunum fyrir hjá ættingj-
um eða vinum. Þá er eftir barnapöss-
un úti í bæ en hún kostar sitt og
ekki allir sem ráða við það.
Þaö er öllum ljóst að þetta ástand
er óviðunandi og mjög brýnt að lausn
finnist sem fyrst. Heimilin í landinu
þola hreinlega ekki að þetta verkfall
dragist á langinn. Fari svo neyðast
foreldrar til að hætta að vinna til aö
vera heima hjá bömunum og hver á
þá að sjá um framfleyta fjölskyld-
unni?
Þess vegna er brýnt að kennarar
slái af óraunhæfum kröfum sínum
og semji við ríkið. Ég segi óraunhæf-
ar kröfur vegna þess að ekkert rétt-
lætir að ein stétt fái meiri kauphækk-
anir heldur en önnur. Kennarar
verða líka að átta sig á að ef semja
ætti við landsmenn á sömu nótum
og þeir vilja færi hér verðbólgan upp
úr öllu valdi, stöðugleikinn hyrfi eins
og dögg fyrir sólu og við væmm aftur
komin á byrjunarreit. Nei, það er
ekki þetta sem ég og aðrir landsmenn
viljum.
Það er sjálfsagt að borga kennurum
fyrir síria vinnu en em þeir búnir
að gleyma þeim forrréttindum sem
stéttin nýtur. Hverjir aðrir hafa t.d.
þriggja mánaða sumarfrí á ári? Og
hverjir aðrir fá sérstakt jóla- og
páskafrí? Fyrir utan þetta eru svo
nokkrir aðrir frídagar á ári sem hinn
almenni launamaður fær ekki. Það
skyldi þó aldrei vera að kennarar
hefðu bara nóg kaup þegar öllu er á
botninn hvolft. Eitt er ömggt og það
er að engin stétt í þessu landi fær
jafn marga frídaga á ári og einmitt
kennarar. Og svo þarf alltaf að vera
að gefa frí í skólunum þegar svokall-
aðir starfsdagar eru.
Nei, ég verð að segja það alveg eins
og er að mér finnst kennarar ganga
heldur of langt í kröfum sínum. Það
em sjálfsagt margir sem hafa það
betra en þeir en það em líka miklu,
miklu fleiri sem hafa það verra en
þeir.
Of beldisf ulH þjóðfélag
Guðný Sigurðardóttir skrifar:
íslenskt þjóðfélag stefnir hraðbyri
í glötun og verði ekkert að gert gæti
það fremur orðið fyrr en seinna. Nú
reka sjálfsagt margir 'upp stór augu
en þeir hinir sömu ættu að hugleiða
atburðina í samfélaginu upp á síð-
kastið.
Nánast upp á hvern einasta dag er
framið rán þar sem ofbeldi er beitt
og fólki er beinlínis stefnt í voða.
Ræningjar svífast einskis og beita
hnífum og hvers kyns bareflum til
að komast yfir peninga. Það er
reyndar óskiljanlegt í þessum ránum
að undanförnu aö enginn skuli hafa
látið lifið. Þetta em vissulega ljótar
staðreyndir og því tímabært að
staidra við og kanna hvemig hægt
er að stemma stigu við þessari
óheillavænlegu þróun.
Mín skoðun, og fleiri þori ég að
fullyrða, er sú að yfirvöld hafi ekki
gripið nógu fljótt inn í. Þá á ég við
að stórauka alla löggæslu jafnframt
því að beita miklu harðari viðurlög-
um en nú er gert. Refsingarnar eiga
að vera það strangar að enginn þori
að taka áhættuna. Hér þurfa að koma
til kjarkmiklir menn sem þora að
segja ofbeldinu stríð á hendur.
Sfjómmálamenn verða aö auka fjár-
veitingar til löggæslu. Án öflugrar
lögreglu verður aldrei hægt að
spyma við þessari þróun. Oft hefur
verið þörf en nú er nauðsynlegt að
taka þessi mál fóstum tökum. Það
má ekki gerast að heiðvirðir borgar-
ar þori ekki að ganga um götur þess
lands af ótta við glæpamenn.
Þjónustusími bankanna:
Arangurslausar hringingar
Ásdís skrifar: vegna þjónustusíma bankanna. Með
Ég get ekki lengur orða bundist tilkomu debet-kortanna áttum við,
Bréfritari segir þjónustusíma bankanna nánast óvirka og hann verði að
snúa sér t.d. að hraðbönkum til að fá upplýsingar um stöðu á reikningi.
Myndin er tekin við hraðbanka í Reykjavík.
sem notum kortin, að geta nýtt okkur
þessa þjónustu og létta þannig álagi
á starfsfólki bankanna og minnka
kostnað notenda en það er nú aldeil-
is ekki.
Það er alger tilvdljun ef ég næ í
gegn. Þ.e.a.s. ég stimpla inn banka-
og reikningsnúmer, alls 10 stafi, og
ýti á stjömu eins og um er talað en
oftast er svarið: „Því miður, þetta er
ekki rétt. Reyndu aftur.“ En ég veit
að ég fer 100% rétt að. Ég reyni svona
á nokkurra klukkutíma fresti yfir
daginn ef ég er að bíða, t.d. eftir inn-
leggi, en fæ yfirleitt sama svarið. Á
endanum verð ég að hringja í bank-
ann og fá að vdta stöðuna eða fara í
hraðbankann.
Ég er orðin dauðleið á þessari þjón-
ustu eða öllu heldur þjónustuleysi
og er búin að margkvarta yfir þessu
vdð minn viðskiptabanka en allt er
vdð það sama.
Ég veit um fjölda manns sem er
sama sinnis. Ég tek það fram að ég
hef hringt í bankann til að fá það
staðfest að ég sé að gera rétt og starfs-
fólkið hefur talað um að þessar
kvartanir séu algengar.
Gangurlvfsins
Sigríður skrifar:
Eg vdl þakka forráðamönnum
Sjónvarpsins kærlega fyrír að
vera aftur byrjaöir að sýna þátta-
röðina Gangur lífsins. Þar segir
frá hinum heillandi Corky og fjöl-
skyldu hans en þetta eru einstak-
ir þættir fyrir fólk á öllum aldri.
Nokkur gagnrýni hefur reyndar
komið fram á þessa þætti en mér
þykir hún heldur ómerkileg og
það er furðulegt ef ekkert gott
má sýna í Sjónvarpinu okkar.
í þessum þáttum er ekkert kyn-
líf eða ofbeldi en ætla mætti að
þeir sem eftir slíku sækjast hefðu
úr nógu að velja. Að minnsta
kosti finnst mér nóg um ofbeldis-
fullar kvikmyndir á báðum sjón-
varpsstöövunum. Ég tel að Sjón-
varpið mætti gera meira að þvd
að sýna hugljúfa þætti, þeim yrði
örugglega vel tekið af flestum.
Öfgaráöskudag
Þórður Jónsson hringdi:
Mikið óskaplega leiðist mér allt
þetta tilstand á öskudaginn. Það
er búið að koma því inn í höfuðið
á bömunum að þau geti ekki
lengur faríð í bæinn þennan dag
án þess að vera með stríðsmáln-
ingu í framan og í einhverjum
furðulegum búningum. Mætti ég
þá heldur biðja um þann gamla
og góða sið að hengja öskupoka
aftan í fólk. Hvemig væri nú að
foreldrar drægju úr því að mála
börnin meö stríðsmálningu og
létu þau hafa öskupoka í staðinn.
Svo ættu nú .flestir að vita að allt
þetta sælgætisát á öskudaginn er
ekki af hinu góða.
Hátthundagjald
O.G. hringdi:
Ég er mjög óhress meö þetta
hundagjald sem gildir hér í
Reykjavík. Það er um 9.000 krón-
ur á ári en á að vísu að lækka
um 12% og verður þá um 8.500
krónur. Það er engu að síður tölu-
verður kostnaður og ekki síst
vegna þess maöur fær ekkert fyr-
ir peningana.
Eg óska eftir því að fá einhver
svör við því hvað hundaeigendur
fá fyrir þessa peninga. Svo vil ég
bæta því við að mér fmnst frá-
leitt að rukka hundaeigendur um
7.000 krónur fyrir það eitt að
hundurinn sleppur frá þeim.
Vonttilvísana-
kerfi
Lára skrifar:
Égvdllýsayfir mótmælum mí n-
um vdð hið svokallað tilvisana-
kerfi. Það er vont kerfi og það er
alveg út í hött aö koma því á. Ég
vil t.d. geta talað beint við minn
kvensjúkdómalækni án þess að
þurfa að fara fyrst i gegnura
heimilislækninn. Fyrir fólk þýðir
þetta bara aukin útgjöld.
Ég skora á fólk að láta meira í
sér heyra og mótmæla þessu kerfi
sem er hreint út sagt fáránlegt.
Ég hef aldrei myndað mér neina
sérstaka skoðun á heilbrigðisráð-
herranum okkar, honum Sig-
hvati Björgvinssyni, en með
þessu kerfi get ég ekki sagt að
hann sé efstur á vinsældalistan-
um híá mér.
DV og þjónusta
við lesendur
Nýlega var lesendum DV gefinn
kostur á að hríngja í símanúmer-
ið 99 15 00 til aö koma skoðunum
sínum eða ábendingum á fram-
færi. Gjaldið er kr. 39,90 mínútan.
Blaðið hvetur lesendur til að nýta
sér þessa þjónustu en hægt er að
bringja í þetta numer allan sólar-
hringinn. Munið eftir að gefa upp
nafn og heimilisfang. Eftir sem
áður verður hægt aö hringja án
sérstaks gjalds i siina 563 2700 frá
kl. 14-16 alla virka daga.