Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1995, Qupperneq 24
32
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1994
Sviðsljos
Grammy tónlistarverðlaunin voru afhent í gær:
<0
Nýliðinn og öldungurinn
hirtu bestu verðlaunin
Æðstu verðlaun bandariska tón- fimmtudags. Það sem vakti mesta
listariðnaðarins, Grammy-verðlaun- athygli að þessu sinni var að nýlið-
in, voru afhent aðfaranótt sl. inn Sheryl Crow hirti verðlaunin
9 9 - 1 7 5 0
Verð kr. 39,90 mín.
BK-LEIKURINN er skemmtilegur leikur þar sem
þátttakendur eiga þess kost á að vinna Ijúffenga
vinninga frá Boston kjúklingi, Grensávegi 5. Það eina
sem þú þarft að gera er að hringja í síma 99-1750 og
svara fimm laufléttum spurningum. Svörin við
spurningunum er að finna í blaðaukanum DV-helgin
sem fylgir DV á föstudögum.
Fjölskylduveisla handa fjórum
þátttakendum i viku hverri!!!
Hljómsveitirnar Salt-n-Pepa og Boys II Men voru sigursælar á Grammy-hátíðinni.
Símamyndir Reuter
Fimmtudagana 9., 16., 23. og 30. mars verða fjórir
heppnir þátttakendur dregnir úr pottinum og hreppa
þeir fjölskylduveislu fyrir sex frá Boston kjúklingi,
Grensávegi 5.
Allir sem svara öllum fimm spurningunum rétt komast í
pottinn í hverri viku!
Nöfn vinningshafa verða birt í DV-helginni föstudaginn
eftir útdrátt.
fyrir besta lag ársins og ekki síður
að gamli jálkurinn Tony Bennett
náði sér í verðlaunin fyrir bestu
plötu ársins.
Bennett, sem orðinn er 67 ára
gamall, hóf feril sinn sem syngjandi
þjónn á veitingahúsi fyrir háifri öld.
Platan var gerð fyrir MTV-sjón-
varpsstöðina, tekin upp í einum af
MTV-Unplugged þáttunum svoköll-
uðu og var sérstaklega ætluð fyrir
ungt fólk. Afrek Bennetts þykir sér-
staklega glæsilegt þegar litið er til
þess að hann var að keppa við plöt-
ur eins og „The 3 Tenors in Concert
1994“ með þeim Domingo, Carreras
og Pavarotti og „From the Cradle“
með Eric Clapton.
„Þetta er stærsta stundin á tón-
listarferli mínum og besta stund lífs
míns,“ sagði poppöldungurinn með
tárin í augunum og komu þessi við-
brögð hans fjarri því á óvart á bros-
og tárasamkomu sem þessari. Benn-
ett vann Grammy-verðlaun fyrst
árið 1962.
Sheryl Crow kom hins vegar fyrst
Fimm nöfn dregin út daglega
Hringdu núna
- síminn er 563-2700
Opið: Virka daga kl. 9 - 22, laugardaga kl. 9 - 14,
sunnudaga kl. 16 - 22. Athugið! Smáauglýsingar í
helgarblað DV verða að berast fyrir kl. 17 á föstudögum
Poppöldungurinn Tony Bennett
náöi sér í Grammy-verðlaun fyrir
bestu plötu ársins. Hann byrjaði í
bransanum fyrir hálfri öld.
Al Green fékk verðlaun fyrir sam-
söng með kántrígæjanum Lyle
Lovett.
fram á sjónarsviðið á síðasta ári
þannig að hún er heldur reynslu-
minni en Bennett. Hún sló heldur
betur í gegn og átti nokkur lög á vin-
sældalistum. Lag hennar, „All I
Wanna Do“, skilaði henni þremur
Grammy-verðlaunum. Það var valið
besta popplag ársins og hún var val-
in besti nýliðinn og besta poppsöng-
konan.
„Guð minn góður. Guð minn góð-
ur,“ var það eina sem stúlkukindin
gat sagt þegar tilkynnt var um verð-
launin.
Bruce ^Springsteen fékk fern
Grammy-verðlaun fyrir lag sitt
„Streets of Philadelphia". Kvenkyns
tríóið Salt-n-Pepa fékk verðlaunin
fyrir besta rapplagið, Mary Chapin
Carpenter fékk verðlaun fyrir bestu
kántríplötuna og var hún einnig tal-
in besta söngkoncm á því sviði tón-
listar.
Aðrir verðlaunahafar voru hljóm-
sveitin Boyz II Men, A1 Green og
Lyle Lovett, Melissa Etheridge, Roll-
ing Stones, Bonnie Raitt, Pink
Floyd, Aerosmith og Elton John.
Reuter
Lag Bruce Springsteens, „Streets of Philadelphia", skilaði honum fjórum
Grammy-verðlaunum en lagið var sérstaklega samið fyrir kvikmyndina
Philadelphia þar sem Tom Hanks fór með aðalhlutverkið. Annie Lennox
sést hér afhenda honum ein verðlaunin.