Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1995, Síða 28
36
Leikmenn hafa týnt brosinu.
Af ómögulegum
dómurum og
slagsmálum
„Dómaramir höfðu einn ásetn-
ing og hann var sá að viö töpuð-
um.“
Viggó Sigurðsson, þjálfarl Stjörnunn-
ar, i DV.
Slagsmál fram undan
„Á föstudag verða geöveik slags-
mál í Garðabænum."
Atli Þór Samúelsson, KA, f DV.
Hörkuslagsmál
„Þetta voru hörkuslagsmál og
fullt af mistökum."
Erlingur Kristjánsson, KA, i DV.
Dómurunum leið illa
„Þeim leiö illa (dómunmum) þeg-
ar við höfðum yfirhöndina og
Ummæli
mitt mat er að þeir eru ekki nægi-
lega vel undirbúnir fyrir svona
verkefni."
Eyjólfur Bragason, þjálfari ÍR, í DV.
Ekki orð um dómarana
„Ég vil ekki segja orð um dómara
leiksins, hreiniega treysti mér
ekki til þess.“
Gunnar Gunnarsson, þjálfari Viklngs,
í DV.
Berja frá sér
„Leikurinn hjá Stjömunni sner-
ist bara um það að berja frá sér.“
Alfreð Gislason, KA, i Morgunblaðinu.
Vantar brosin
„Leikmenn era hættir að brosa."
Sigurður Sveinsson, Vikingi, í Morg-
unblaðinu
Miklar breytingar hafa oröið á
kappakstursbilum frá því fyrsti
kappaksturinn var háður 1894.
Fyrsti bifreiða-
kappaksturinn
Fyrsti bifreiðakappakstur sög-
unnar fór fram í Frakklandi 22.
júlí 1894 og var leiöin París-
Rouen sem er um 126 kílómetra
leið. Sá sem setti hraðamet á leið-
inni, 22 km á klukkustund, var
de Dion greifi sem var á gufuknú-
inni framgerð bifreiðar.
Fyrsti kappaksturinn undir op-
inbera eftirliti fór fram á leiðinni
París-Bordeaux-París, 1178 kíló-
metrar, 11-13. júní 1895. Fyrsta
keppni á kappakstursbraut fór
Blessuð veröldin
fram nálægt Bastogne í Belgíu
árið 1902. Fyrst var keppt í Monte
Carlo kappakstrinum 1911 og árið
1923 var fyrst keppt í 24 stunda
kappakstrinum í Le Mans.
Keila til forna
Fyrsta keiluspilið, sem vitað er
um, er frá því um 5200 f. Kr. í
Egyptalandi hafa fundist níu keil-
ur og trékúla í bamagrafhýsi.
Þrír bogar vora yfir rennibraut-
inni. Átti kúlan að fara undir þá
og minnti leikurinn því nokkuö á
krokkett. Næstu minjar um keilu
era í Þýskalandi á miðöldum og
þar var þetta raunar athöfn með
trúarlegu ívafi. Fiskimenn reistu
tréstaf, Kegel, við endann á hellu-
lögðum stígnum að klaustur-
kirkju þeirra. Síðan vörpuðu þeir
steini að stafnum og sá sem velti
honum fékk fyrirgefningu synd-
anna.
OO
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1995
Norðanáttín áfram
Áfram verður norðanátt á landinu í
dag. Stinningskaldi norðan- og aust-
anlands en hæg norðaustanátt og
bjartviðri sunnan- og suðaustan-
Veðrið í dag
lands. Á Vestfjörðum verða áfram él
fram eftir degi. Síðdegis fer aö
þykkna upp með suðaustan kalda
sunnanlands og í nótt má búast við
suðaustan og austan stormi og snjó-
komu eða slyddu um sunnanvert
landið. í dag verður 3-10 stiga frost,
en fer að hlýna í kvöld. Á höfuðborg-
arsvæðinu þykknar upp með austan
og suðaustan kalda síðdegis. Suð-
austan og austan stormur og snjó-
koma eða slydda í nótt. í kvöld fer
að draga úr frosti.
Sólarlag i Reykjavík: 18.51
Sólarupprás á morgun: 8.26
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.55
Árdegisflóð á morgun: 8.12
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjókoma -5
Akumes hálfskýjað -5
Bergsstaðir alskýjað -6
Bolungarvík snjóél -5
Keíla víkurflugvöllur léttskýjað -4
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað -5
Raufarhöfn skafrenn- ingur -6
Reykjavík heiðskírt -8
Stórhöfði skýjað 0
Bergen léttskýjað -1
Helsinki snjóélásíð. klst. 1
Kaupmarmahöfn þokumóða 1
Stokkhólmur snjókoma 1
Þórshöfn skýjað -1
Amsterdam rigning 4
Berlín skýjað 2
Feneyjar þokumóða 4
Frankfurt rigning 6
Glasgow þokiunóða -4
Hamborg slyddaásíð. klst. V
London léttskýjað 1
Lúxemborg skýjað 3
Mallorca léttskýjað 4
Montreal heiðskirt -17
Oddaleikur
Stjömunnar og
KA
Nú er aðeins einn leikur eftir í
átta liða úrslitakeppninni í hand-
bolta og nú er þaö spurning hvort
það verður Stjaman eöa KA sem
heldur áfram. Liðin hafa unnið
sinn leikinn hvort og það á
heimavelli og nú nýtur Stjarnan
þess að hafa verið ofar í deildinni
og fáer því að leika á heimavelli
og er fyrir fram talið sigurstrang-
legra, en KA mun örugglega
koma til leiks með það fyrir aug-
um aö sigra. Það má því búast
við hörkuleik.; Úrslitakeppnin í
handbolta kvenna er einnig hafin
og era fyrirhugaöir tveir leikir í
átta liða keppninni í kvöld. í
Reykjavík leika Ármann og
Stjaman og í Vestmannaeyjum
ÍBV og KR.
Skák
Þjóðverjinn Hobuss hefur trúlega talið
sig vera að vinna eftir aðeins sjö leiki
gegn enska stórmeistaranum Hodgson á
opna mótinu í Bem á dögunum. Hann
hafði hvitt og átti leik í meðfylgjandi
stöðu, sem fram kom eftir leikina 1. Rf3
d5 2. g3 Bg4 3. Bg2 Rd7 4. C4 C6 5. CXd5
cxd5 6. Db3 Rc5:
ÁgústKarlsson, formaður íslenska skautasambandsins:
„Tilgangur skautasambandsins
er að efla skautaíþróttina í heild
sinni. titi í heimi er skautaíþrótt-
inni skipt niður í nokkrar greinar,
en algengastar eru listhlaup, hrað-
hlaup og íshokkí. Hér á landi á
hraðhlaupið erfitt uppdráttar
vegna aðstöðuleysis svo við ein-
beitum okkur að tisthlaupi og ís-
hokkíi. Einhvern veginn er það svo
aö þótt það hafi verið keppt um
árabil á Tjörninni í hraðhlaupi þá
er það illframkvæmanlegt i dag að
útbúa braut. Það era þrjú félög sem
iðka skautaíþróttina sem aðalmáL
Skautafélag Reykjavíkur, SkauCf
félag Akureyrar og Björninn, segir
Ágúst Karlsson, konrektor Iðn-
skólans í Reykjavík, sem fyrr í vik-
unni var kosinn formaður íslenska
skautasambandsins, sem hefur
skammstöfunina ÍSS.
Ágúst er fæddur og uppalinn á
Akureyri og hefur sjálfur veríð á
Agúst Karlsson.
skautum frá barnsaldri. „Þar sem
ég bjó á Akureyri sem bam þurfti
ég nánast aöeins að fara yfir götuna
til að komast á skauta og á þessum
árum var mikill áhugi á skauta-
íþróttinni og reglulega keppt. Ég
var bæði í íshokkíi og hraðhlaupi,
Þegar ég fiutti til Reykjavíkur til
náms hélt ég áfram að aefa skauta-
hlaup og tók meðal annars þátt í
síðasta íslandsmótinu í hraðhlaupi
á skautum sem haldið var á Tjörn-
inni árið 1961. Skautaíþróttin lá síð-
an niöri um langt skeið og það er
ekki fyrr en með tilkomu hinna
tveggja vélfrystu svella á Akureyri
og 1 Reykjavík að áhuginn fer að
og fijótlega eftir komu
þeirra var fariö að keppa í íshokkíi
á ný.“
Ágúst var spuröur um listhlaup
hér á landi: „Það er geysimikill
áhugi hjá ungu fólki á þessari
íþrótt, enda glæsileg og tilkomu-
mikil íþróttagrein, og er4>að eitt
af kappsmálum okkar að byggja
þessa íþróttagrein upp, en þaö sem
háir okkur einna mest er að það
era aðeins tvö vélfryst svell á land-
inu og ekki fórum við aö taka æf-
ingatíma frá almenningi því það er
einmitt eitt af markmiðum skauta-
sambandsins að efla áhugann hjá
almenningi á skautaíþróttinni, en
það er sérlega skemmtilegt að fylgj-
ast með imgu krökkunum hvað
þeir hafa gaman af aö renna sér á
skautum.
7. Db5+ og nú er 7. - Rd7 auðvitað svar-
að með 8. Dxd5 og svartur hefur misst
dýrmætt miðborðspeð. Hodgson lumaði
hins vegar á 7. - Bd7! og eftir 8. Dxc5?
Hc8 var ekki um annað að ræða fyrir
hvítan en gefa drottninguna, því annars
blasir við mát í borðinu. Eftir 28 leiki
gafst hvitur upp.
í stað þess að þiggja riddarann var
hvítur til neyddur að leika 8. Db4 en 8. -
e5 með hótuninni 9. - Rd3 + gefur svört-
um þá sterka stöðu. jón L. Árnason
Bridge
NS spila eðlilegt kerfi (standard) og leiðin
liggur í hálfslemmu í tígh. Sagnir ganga
þannig, vestur gjafari og AV á hættu:
♦ ÁK74
V ÁG86
♦ D
+ ÁG84
♦ 1063
V 432
♦ G764
+ 953
♦ D982
y D75
♦ 82
+ D1072
♦ G5
V K109
♦ ÁK10953
+ K6
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1+ Pass 1*
Pass 2» Pass 3*
Pass 3 G Pass 4♦
Pass 64 P/h
Í sæti suöurs sat argentinski spUarinn
Carlos Cabanne og hann sýndi mikla
fæmi í úrspilinu. Með tveimur hjörtum
lýsir norður sterkri hendi (Reverse) og
fjórir tíglar eru slemmuboð og lýsa góð-
um tíguUit. Slemman er ágæt en fer að
þyngjast nokkuð ef tigulgosinn lætur
ekki sjá sig. Útspil vesturs var spaðasexa
og sagnhafi á slaginn á kóng. Harm tekur
tíguldrottninguna, spUar laufi á kóng og
leggur niður ás og kóng í tígU. Þegar gos-
inn birtist ekki virðist sem sagnhafi þurfi
að hitta í hjartaUtinn fil þess að koma |
heim samningnum. En Cabanne var ekki
á því að fara í hjartað. Hann spUaði næst
laufi á ás og trompaði lauf (drottnmgin
birtist ekki) og spUaði síðan spaöa á ás I
og trompaði spaða. Síðan var hjarta spU-
að á ás og síðasta laufið trompað með
síðasta trompinu heima. Vestur gat yfir-
trompaö en varð þá að spila frá hjarta- '
Utnum upp í gaffalinn. Engu máU skiptir
hvort vestur eða austur á drottninguna
ef hjörtun Uggja 4-3 á annað borð. Ef
vestur trompar ekki eru 12 slagir mættir
og tveir slagir vamarinnar faUa saman í
enin (tígulgosi og hjartadrottning).
ísak Örn Sigurðsson