Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Page 8
8 LAUGARDAGUR 11. MARS 1995’ -f Vísnaþáttur__________ Glettur Glosa Guðmundur Þorláksson fæddist á sumardaginn fyrsta 22. apríl 1852 að Ystu-Grund i Blönduhlíð í Skagafirði. Bjuggu þar foreldrar hans, þau Þorlákur Jónsson og Sig- ríður Hannesdóttir, skálds á Ríp. Létust þau bæði þá Guðmundur var enn barn að aldri. Sigríður móðir hans lést 1862 en Þorlákur faðir hans 1864. Snemma hneigðist Guðmundur að bókinni og varð það úr að hann gekk menntaveginn. Sóttist honum námið vel og lauk stúdentsprófi vorið 1874, þá 22 ára að aldri. Var hann dux scholae, efstur í efsta bekk við röðun í des- ember 1873 en annar í stúdents- prófi um vorið. Guðmundur hóf nám við háskólann í Kaupmanna- höfn haustið 1874. Hóf hann nám í málvisindum en breytti að nokkr- um tíma liönum um námsefni. Hvarf hann að því að lesa norræn og íslensk fræði og lauk meistara- prófi í júní 1881 frá Kaupmanna- hafnarháskóla. Sinnti hann rit- störfum og fræðimennsku á næstu árum í Höfn. Vann hann m.a. að útgáfu á Skírnisárganginum 1876 og bjó til prentunar fyrir Bók- menntafélagið íslenskar fomsögur, 1. b„ er út komu í Höfn 1880 og einn- ig Gyöingasögu, Kh. 1881. Guð- mundur kom til landsins aftur 1896 pg vann fyrst um sinn á skrifstofu ísafoldar og síðan á árunum 1899- 1906 vann hann að uppskrift hand- rita í Landsbókasafni. í ársbyijun 1906 fluttist meistari Guðmundur til bróðursonar síns, Magnúsar Gíslasonar á Frostastöðum, og dvaldi hann hjá honum til æviloka, en hann lést þann 2. apríl 1910. Sigurður Þórðarson, kaupfélags- stjóri og alþingismaður, og Ari Arason frá Víðimýri fengu senda kveðju í vísnaformi frá Glosa, en það var viðurnefni meistara Guð- mundar. Vísu þessa kvað hann til Ara: Einlæg sú mín óskin sé; aldráha iifðu þrenna, vanti þig hvorki vit né fé, veri þér létt til kvenna. Til Sigurðar kvað hann að skiln- aði: Vertu kvaddur, vinur minn, viö þér gæfan brosi, fagur verði ferill þinn fram, þess óskar Glosi. Benedikt S. Þórarinsson, kaup- maður og bókabéus, verslaöi á Laugavegi 7 og var ákafur safnari bóka. Var hann vísnafróöur mjög og þyrsti hann er þjóðleg fræði og fornar menntir voru annars vegar. Var vinskapur meö þeim Glosa og Benedikt. Hafa fleiri höfðingjar átt vinskap við Benedikt og sótt hann heim. Mikinn dikt yrkir Þorsteinn Erhngsson Bensa fimmtugum og nefnir Þorsteinn þar einnig Jón Ólafsson, Valdimar Ásmundarson og líkast til hefur Guömundur skólaskáld verið í þessari akadem- íu. í kvæði Þorsteins eru höfðingj- amir nefndir Þórsskáldin fjögur. Tekur Þorsteinn og til þess hversu liðlegur hann hafi verið við skáldin sín. Þennan vitnisburð ritar Bene- dikt efdr Glosa eitthvert sinn: Brennivínssalanum Ben. S Þór brugðið verður ei um gjöfli. Ófleginn drekkur enginn bjór inni hjá þeim djöfli. Þessi vísa er einnig til Benedikts send frá Glosa. Vertu góður, vinur minn, við þá menn, sem hrasa, því að hinsti hjúpur þinn hefur öngva vasa. Eitthvert sinn kom Glosi snemma að morgni til Benedikts. Þá stóð svo á að maður einn var að greiða kaupmanninum skuld svo að Glosi varð að bíða, en var sárþyrstur bæði í bjór og brennivín. Þá kvað Glosi: Heyrt hef ég marga menn milli sín það ræða: Best er að hafa biðlund enn, Benedikt er að græða. Næsta vísa er kveðin í ísafold: Kölski lá og las í skrá lygasyndir manna, sagt er frá hann fyndi þá flestar ritstjóranna. Þessa vísu kvað Glosi vera 13. vísu úr 15. rímu af för Þórs til Út- garða-Loka en ekki voru þá fleiri ortar: Vísnaþáttur Valdimar Tómasson Aftur á móti ansar Þór, óttalega hnur: „Áttu ekki fyrir einum bjór, elskulegi vinur?“ Hjá því fór ekki að Glosa yrði sitt valta veraldargengi að angri. Svo kveður hann: Drynja élin mörg á mót, mínum kosti er þröngva, hrynja þétt um hausamót, en hreystina ber ég öngva. Eitthvað hefur meistarinn ekki verið sáttur við gönguna er hann kveöur svo: Ógæfa borgar öll sín gjöld, alhr þótt við sporni. En auðnan mætir ekki um kvöld, ef út er vísað að morgni. Eins og fyrr var getið fæddist Glosi á sumardaginn fyrsta 1852 og þessa vísu yrkir hann um sjálfan sig eitthvert sinn: Helst til langa hefur hann töf haft á þessu landi. „Sú var lagleg sumargjöf!" segja þeir hábölvandi. Vísu þessa sendi Glosi fyrrnefnd- un Benedikt kaupmanni og má sjá á henni að skáldið hefur fengið umbun fyrir kveðskapinn: Brá sér hingað brennivínshít Bensa th að finna, óð hann djúpan aur og skít eitt staup til að vinna. LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA VALDA ÞÉR SKAÐA! A Matgæðingur vikunnar_ Teistuveisla Esra Jóhannes Esrason. Gratineraðar hvítlaukskartöflur Esra Jóhannes Esrason, verkstjóri hjá Frosta hf. í Súðavík, kveðst hafa gaman af aö elda allan mat. Hann hefur verið kokkur í afleysingum á Bessa og hefur eldað og bakað mikið í gegnum tíðina. Hann býður lesendum DV upp á teistur með hrís- gijónarétti og hvítlauksgratineruðum kartöflum. Upp- skriftin er fyrir sex. Teistur 15 teistur mjólk salt og pipar vhlibráðarkrydd Fuglarnir eru látnir hggja í mjólk í sólarhring. Eftir að mesti vökvinn hefur verið þerraður af eru fuglam- ir kryddaðir og snöggsteiktir á pönnu. Síðan eru þeir settir í steikingarpott með loki. Hálfur lítri af vatni er settur á pönnuna og það látið sjóða upp. Vatninu er síðan hellt yfir fuglana í pottinum. Þeir eru svo steiktir í ofninum við 200 gráður í 45 mínútur. Sósa 5 dl síað teistusoð 2 msk. appelsínumarmelaði 2 msk. rifsbeijahlaup 1/2 msk. sósuhtur Allt látið í pott og suðan látin koma upp. Takið pott- inn af hellunni og þykkið soðið með hveitijafningi. Látið sjóða við vægan hita í 5 til 7 mínútur. Saltið og piprið eftir smekk. Gott er að bragðbæta sósuna með dálitlum ijóma. Hrísgrjónaréttur 11/2 til 2 bohar hrísgijón 1 stór laukur 1 Util græn paprika 1 lítil rauð paprika 1/2 dós ananasbitar 1/2 dós sneiddir sveppir soyasósa Hrísgrjónin eru soðin í vökvanum af sveppunum og ananasnum. Svolitlu vatni og hálfri teskeið smjörlíki bætt í á meðan á suðu stendur. Skeriö niður laukinn og paprikuna. Laukur, sveppir og ananas steikt á pönnu þar til það linast. Papriku og hrísgrjónum bætt út í og öllu blandað vel saman. Kryddað með soyasósu. 12 meðalstórar kartöflur 1 súputeningur 1/2 lítri af ijóma hvítlaukssalt eða pressaður hvítlaukur aromat rifinn ostur Kartöflurnar eru afhýddar hráar og skornar niður í þunnar sneiðar. Eldfast mót smurt og hvítlauknum stráð innan í mótið áður en kartöflurnar eru settar í þaö. Súputeningurinn er leystur upp í rjómanum sem síðan er heht yfir kartöflurnar. Kryddið með aromati og hvítlaukssalti. Bakist í ofni í 45 til 60 mínútur við 200 stiga hita. Þegar kartöflurnar eru bakaðar í gegn er rifnum osti stráð yfir og bakað við háan hita þar th osturinn er gullinbrúnn. Kartöflumar og teisturnar eru haföar samtímis í ofninum. Að mati Esra er rifsberjahlaup ómissandi með teist- unum auk hrásalats. Sykurbrúnaðar kartöflur era th- valdar ef einhver borðar ekki hvítlaukskartöflur. Esra segir nauðsynlegt að taka slatta af þohnmæði meö sér í teistuveisluna því hann taki fuglakjötið ekki af bein- unum heldur láti hann gestina hafa fyrir því. „Þetta skapar góða stemningu, sérstaklega þegar nýja gesti ber að garði.“ Hann skorar á Oddnýju Bergsdóttur, húsmóður í Súðavík, aö vera næsti matgæðingur. Eftir helgi má fá uppskriftina í Símatorgi DV. Hinhliðin Langar mest til að hitta O. J. Simpson - segir Sigrún Hreióarsdóttir, sterkasta kona íslands Iþróttir eiga allan hug Sigrúnar Hreiðarsdóttur, sterkustu konu ís- lands. Hún hefur æft þær af kappi í 13 ár, fyrst sund í 7 ár og svo frjáls- ar íþróttir í 6 ár. Hún stefnir að því að kenna íþróttir og lýkur í vor námi í íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni. Fullt nafn: Sigrún Hreiðarsdóttir. Fæðingardagur og ár: 7. nóvember 1970. Maki: Enginn. Börn: Engin. Bifreið: Engin. Starf:Nemi í íþróttakennaraskól- anum á Laugarvatni og þjálfari í fijálsum íþróttum þjá Ungmenna- félaginu Samhygð. Laun: Misjöfn. Áhugamál: Fyrst og fremst íþróttir en einnig útivera og samvera með góðum vinum. Hefur Jjú unnið í happdrætti eða lottó? Eg hef fengið þrjá rétta í lottó. Hvað flnnst þér skemmtilegast að gera? Að æfa, þar fær maður útrás. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að taka til. Uppáhaldsmatur: Bakaöur fiskur í ofni að hætti mömmu. Uppáhaldsdrykkur: Kók. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Magnús Scheving. Uppáhaldstímarit: Iþróttablaðiö. Sigrún Hreiðarsdóttir. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð? Ég ætla bara að hafa það fyrir mig. Ertu hlynnt eða andvig rikisstjórn- inni? Hlutlaus. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? O.J. Simpson. Það er ýmislegt sem mig langar að spyija hann um. Uppáhaldsleikari: Eddie Murphy. Uppáhaldsleikkona: Jodie Foster. Uppáhaldssöngvari: Kurt Cobain í Nirvana. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Steingrímur Hermannsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Snoopy. Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég horfi lítið á sjónvarp. Þaö eru helst íþróttir sem ég horfi á. Úppáhaldsmatsölustaður: H M Café á Selfossi. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Bibhuna. Ég hef aldrei lagt í meira en fyrstu síðu. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Bylgjan. Uppáhaldsútvarpsmaður: Enginn sérstakur. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ómar , Ragnarsson. * Uppáhaldsskemmtistaður: H M Café. Uppáhaldsfélag í íþróttum: UMF Selfoss. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Aö bæta mig sem per- sónu. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Ég stefni að því að vinna í garðyrkjudeild Selfossbæjar eins og í fyrrasumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.