Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Page 12
12
LAUGARDAGUR 11. MARS 1995
Erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáídsögur:
1. Frederick Forsyth:
The Fist of God.
2. Anne Rice:
Interview with the Vampire.
3. Peter IHoey:
Miss Smilla's Feeling for
Snow.
4. Mary Wesley:
An Imaginative Experience.
6. Elizabeth George:
Playing for the Ashes.
6. Sebastian Faulks:
Birdsong.
7. Anne Rice:
The Wampire Lestat.
8. Edith Wharton:
The Buccaneers.
9. Michael Crichton:
Disclosure.
10. Katie Fforde:
Living Dangerously.
Rit almenns eðlis:
1. Jung Chang:
Wild Swans.
2. R. Bauval & A. Gilbert:
The Orion Mystery.
3. Jean P. Sasson:
Daughters of Arabía.
4. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
5. N.E. Thing Enterprises:
Magic Eye.
6. Konrad Spíndler:
The Man in the lce.
7. R. Phillips 8. L. Land:
The 3.000 Mile Garden.
8. Quentin Tarantino:
Pulp Fiction.
9. Lyndall Gordon:
Charlotte Bronté.
10. W.H. Auden:
Tell Me the Truth about Love.
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Michaei Crichton:
Afsloringen.
2. Jorn Riel:
En arktísk safari og andre
skroner.
3. Jostein Gaarder:
Sofies verden.
4. Peter Hoeg:
Froken Smillas
fornemmelse for sne.
5. Jette Kjærboe:
Rejsen til kærlighedens o.
6. Jung Chang:
Vilde svaner.
7. Anne Rice:
En vampyrs bekendelser.
(Byggt á Politiken Sondag)
Sagan í sviðs-
ljósið að nýju
Franska skáldkonan Francoise
Sagan er enn á ný í sviðsljósinu. Að
þessu sinni fyrir að neyta kókaíns.
Hún var dæmd á dögunum í ríflega
hálfrar milljónar króna sekt fyrir
neyslu þessa fíkniefnis og hlaut að
auki eins árs skilorðsbundið fangelsi.
Þetta er reyndar í annað sinn sem
Sagan er dæmd fyrir slíkt brot. Fyrir
sjö árum fékk hún þunga sekt og
hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyr-
ir sömu sakir.
Það er einkennandi fyrir afstöðu
Sagan til hlutanna að hún tjáði rann-
sóknardómara þá skoðun sína að það
væri algjörlega hennar mál hvað hún
gerði við líf sitt. „Ég tel mig hafa
rétt til að eyðileggja sjálfa mig ef ég
skaða ekki áðra í leiðinni. Ef mig
langar til að drekka glas af vítissóda
þá er það mitt mál.“
Heimsfræg 18 ára
Francoise Sagan varð heimsfræg
fyrir fyrstu skáldsögu sína, einungis
18 ára að aldri. Það tók hana sex vik-
ur að skrifa „Bonjour Tristesse!" sem
kom út árið 1954 og seldist í einni
milljón eintaka í Frakklandi einu.
Sagan var þýdd á fjölda tungumála
og naut gífurlegra vinsælda.
Einhver orðaði það svo að efni
þessarar sögu væri persónulegur
harmleikur í lúxusklæðum. Sagan
íjallaði þannig um ást, afbrýðisemi
og frjálslyndi í ástamálum aö bæði
almenningur og gagnrýnendur báru
iof á hana. Það vakti einnig athygli
að þessi unga stúlka sem fjallaöi svo
opinskátt um ástina var tiltölulega
Francoise Sagan.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
nýkomin úr klausturskóla.
Metsöluhöfundurinn Sagan lifði
strax lífi hinna ungu ríku. Hún
keypti sér Ferrari og brunaði til St-
Tropez þar sem hún naut hins ljúfa
lífs. Jafnframt hélt hún áfram að
skrifa skáldsögur í svipuðum dúr:
„Un certain Sourie“ (1956), „Dans un
Mois, dans un An?“ (1958), „Aimez-
vous Brahms?" (1959) og „Les mer-
veilleux Nuages" (1961).
Nýskáldsaga
Frægð Sagan sem rithöfundar hvíl-
ir á þessum fyrstu skáldsögum henn-
ar en hún hefur engu að síður haldið
áfram að skrifa. Þannig sendi hún frá
sér nýja skáldsögu í fyrra. Sú heitir
„Un chagrin de passage“ og er um
margt öðruvísi en fyrstu verk skáld-
konunnar.
Nýja sagan fjallar um dauðann og
viðbrögð manna við honum. Sögu-
hetjan, arkitektinn Matthieu, fær á
fyrstu blaðsíðu þau tíðindi frá lækni
sínum að hann sé meö lungnakrabba
á háu stigi og eigi einungis sex mán-
uði eftir ólifaða.
Sagan segir svo frá einum sólar-
hring í lífi Matthieu eftir að hann fær
þessi óvæntu tíöindi. Hann gengur
stefnulaust um götur Parísarborgar.
Sterkar tilfinningar takast á í hjarta
hans: vonleysi, reiði og allt þar á
milli. En svo fer hann að átta sig á
raunverulegri stöðu sinni í samfélag-
inu og meöal vina og vandamanna
sem taka fréttum hans með ólíkum
hætti - en flestir þannig að hann
finnur í fyrsta sinn til raunverulegr-
ar einsemdar mannsins.
Um efni sögunnar segir Sagan í
nýlegu viötali: „Viö lifum einsömul,
við deyjum einsömul - en allt lífið
reynum við að sannfæra sjálf okkur
um að því sé öðruvísi farið.“
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. T. Clancy & S. Pieczenik:
Tom Clancy's Op-Center.
2. Danielle Steel:
Accident
3. Allan Folsom:
The Day after tomorrow.
4. Clive Cussler:
Inca Gold
5. LaVyrie Spencer:
Famíly Blessings.
6. Dean Koontz:
lcebound.
7. John Sandford:
Night Prey.
8. Roger M. Allen:
Ambush at Corellia.
9. Phillip Margolin:
Heartstone.
10. Lilian Jackson Braun:
The Cat Who Came to
Breakfast.
11. Robin Cook:
Fatal Cure.
12. E. Annie Proulx:
The Shipping News.
13. Margaret Atwood:
The Robber Bride.
14. Sandra Brown:
The Thrill of Victory.
15. Julie Garwood:
Prince Charming.
Rit aimenns eðlis:
1. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Light.
2. Thomas Moore:
Care of the Soul.
3. Jerry Seinfeld:
Seinlanguage.
4. Delany, Delany & Hearth:
Having Our Say.
5. Thomas Moore:
Soul Mates.
6. Sherwin B. Nuland:
How We Die.
7. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
8. Nathan McCall:
Makes Me Wanna Holler.
9. Newt Gingrich, D. Armey o.fl:
Contract with America.
10. M. Hammer og J. Champy:
Reengineering the Corporation.
11. Karen Armstrong:
A History of God.
12. Elizabeth M. Thomas:
The Hidden Life of Dogs.
13. Maya Angelou:
Wouldn't Take Nothing for
My Journey now.
14. Maya Angelou:
I Know Why the Caged Bird Sings.
15. M. Scott Peck:
Further Along the Road Less
Traveled.
(Byggt á New York Times Book Review)
Vísindi
Strandlengjan
hopar
Aralvatnið skreppur saman
Aralvatnið var eitt sinn fjórða stærsta fersk-
Túrkmenistan: vatnsstöðuvatn í heimi en nú er það eitthvert
Eyðimerkurland sem er
algerlega háð vatni úr
Amú Darja-ánni. Túrk-
menar hafa ráðist í
nýja áveitu
til að rækta 1,6
milljón hekt-
ara lands.
versta umhverfisslys jarðarinnar
Si]r Darja og Amú Darja-árnar:
Rúmlega 50 milljónir
manna eru háðar vatni
úr þesum tveimur stórám.
Aralvatn:
Leifar af þurru salti og efnum úr landbúnaði,
sem verða eftir þegar vatnið hörfar, eitra allt
umhverfið. Barnadauði hefur aukist og
fjöldi kvenna sem látast
af barnsförum hefur ,
þrefaldast frá árinu
1984 til ársins 1989.
Tapað
vatns-
magn
Araivatn, sem
eitt sinnþakti
65.000 ferkm.,
hefur minnkað að
magni til um tvo
þriðju hluta á siðustu
þremur áratugum.
Karakúm-skurðurinn:
1.270 km langur skurður
vargerður árið 1954 til að
veita vatni á bómull, hrís-
grjón og melónur í eyði-
mörkinni miklu
REUTER
Heimild: National Geographic
Dánarvottorðið undirritað
Býflugum-
atr telja
Tilraunir tveggja þýskra vis-
indamanna við Frjálsa háskól-
aim i Berlín benda til þess að
býflugur geti talið og að þær noti
ýmis kennileiti til að rata eftir.
Þjóðverjarnir létu flugurnar
fljúga milli fæðustöðvar og bús
síns. Þeir settu upp alls kyns
kennileiti, svo sem tjöld, á leið-
inni og færðu svo fæðustööina til
að kanna hvort ilugumar notuðu
kennileitin til að rata. Þá færðu
þeir kennileitin einnig til og frá
og fjölguðu þeim.
Ný
sprengi-
stjarna
Kanadiskir áhugamenn um
stjörnufræði skýrðu frá því fyrir
skömmu að þeir heíðu fundiö
nýja sprengistjömu. Er það sjötta
slíka stjarnan sem finnst á árinu.
Sprengistjaman. sem hér um
ræðir, sprakk fyrir 76 milljónum
ára í fiarlægu stjörnukerfi.
Kanadamennimir voru búnir að
skoða himininn í 55 klukku-
stundir með stjörnusjónauka
þegar þeir uppgötvuöu sprengi-
stjömuna. Stjarnan hefur lilotið
nafniö 1995-F. Óalgengt er að
áhugaraenn geri svona uppgötv-
anir.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Umhverfisverndarsinnar undirrit-
uðu nýlega dánarvottorð Aralvatns
í Miö-Asíu og hættu öllum tilraunum
til aö bjarga því. Aralvatn var eitt
sinn það fjórða stærsta í heimi en
hefur minnkaö um tvo þriðju á tutt-
ugu árum. Það var þó ekki fyrr en á
miðjum síðasta áratug að menn viö-
urkenndu að algjört ófremdarástand
ríkti í vistkerfi þess.
Þar sem áður var vatn eru nú lög
af salti og skordýraeitri sem vindar
bera hundruð kílómetra, meö til-
heyrandi slæmum áhrifum á heilsu
íbúanna.
Mígreni og
heila-
blóðfall
Fólki sem þjáist af mígrenihöf-
uðverkjum er hættara við að fá
heilablóðfall en öörum. Frekari
rannsóknir em hins vegar nauö-
synlegar til að komast að því
hvernig tengslunum þarna á milli
er háttaö.
Vísindamenn í Chicago notuðu
gögn um heilsufar 22 þúsund
lækna af karlkyni og leiddi könn-
un þeirra í ljós aö þeir sem áttu
vanda til að fá mígreni voru í 80
prósent meiri hættu á að fá heiia-
blóðfall.
Tæplega 1500 læknar sögðu frá
mígreniköstum og af þeim fengu
1,3 prósent heilablóðfall.
Dýrasvif
minnkar
Dýrasvif í sjónum undan Kali-
fomíuströndum hefur minnkað
umtalsvert og er getum leitt að
því að gróðurhúsaáhrifunum
svokölluðu sé um að kenna.
Dýrasvifið er mjög mikilvægur
hlekkur neðst í fæðukeðjunni.
Yfirborðshiti sjávar undan
ströndum Suður-Kalifomíu hef-
ur hækkað um eina gráðu á sels-
íus á undanfömura 42 árum og
er það talíð eiga sinn þátt í þróun-
inni. Ekki er hins vegar vitað
hvort sjórinn lxefur hlýnað af
völdum mannanna verka eða
hvort hækkunin er hluti eölilegra
sveiflna í náttúrunni.