Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 11. MARS 1995
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÖLFSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjórar: JÖNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)563 2700
FAX: Auglýsingar: (91)563 2727 - aðrar deildir: (91)563 2999
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAOAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 1 50 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk.
Gegn fólki og framtíð
Stjómmálin á Alþingi og í ríkisstjórn í vetur hafa sýnt,
aö þaö er fleira, sem sameinar íslenzku stjómmálaflokk-
ana en sundrar þeim. Oft hefur komið í ljós víötæk sam-
staöa um mál, sem sýna, aö stjórnmálaflokkarnir eru
ekki einu sinni hræddir viö almenning á kosningavetri.
Alhr þingmenn þjóðarinnar, frá framsóknarflokkun-
um stóm yfir í Jóhönnu Siguröardóttur, vildu, að ráð-
herra heföi frjálsar hendur um aö setja mörg hundruð
prósent tolla á innflutt matvæh og aö þessi ráðherra
skyldi einmitt vera hagsmunaráðherra landbúnaöarins.
Þessar hömlur gera matvæh á íslandi nokkmm mihj-
öröum króna dýrari en þau þyrftu aö vera, sennilega
rúmlega tíu mihjöröum dýrari. Samt telur ekki einn ein-
asti þingmaður koma th greina aö taka hið minnsta tihit
th almannahagsmuna gegn sérhagsmunum í landbúnaði.
Alþingi lauk störfum í vetur án þess að gera bragarbót
í jöfnun atkvæðisréttar. Þegar á reynir, em stjómmála-
flokkamir hjartanlega sammála um, að núverandi mis-
rétti eftir búsetu sé hæfilegt, jafnvel þótt sumir þykist
hafa aöra skoðun. Verkin tala og ekki síöur verkleysan.
Stjórnmálaflokkarnir höföu aht kjörtímabilið th að
koma sér saman um jöfnun atkvæöisréttar eða mark-
tæka minnkun á misrétti kjósenda. Þeir gerðu ekkert í
málinu fyrr en undir jól, er þeir komu saman th mála-
mynda í kosningalaganefnd, sem starfaði lítið og iha.
Alþingi lauk störfum í vetur án þess að skera úr um,
að þjóðin sjálf ætti auðlindir hafsins. Á sama tíma er að
myndast hefð fyrir eignarhaldi sægreifa. Þeir geta meira
að segja arfleitt aðra að auðhndunum og farið í skaða-
bótamál, ef ríkið reynir að skerða eignarhald þeirra.
Stjórnmálamenn fuhyrða margir hverjir, að þeir séu
hlynntir eignarhaldi þjóðarinnar á fiskimiðunum. Þegar
þeir komast á Alþingi, svo ekki sé talað um ríkisstjóm,
sýna verk þeirra samt, að þröngir sérhagsmunir sæ-
greifa standa þeim nær hjarta en almannahagsmunir.
Ár eftir ár og ríkisstjóm eftir ríkisstjóm standa stjóm-
málamenn landsins að aukinni álagningu á skattgreið-
endur landsins th að styðja við bakið á sérhagsmunum
af ýmsu tagi. Landbúnaðurinn einn fær á hverju ári
marga mihjarða króna úr vösum skattgreiðenda.
Stjórnmálamenn flokkanna segjast flestir horfa th
framtíðar. í rauninni eru þeir svo fastir í verndun fortíð-
arinnar, að þeir draga úr útgjöldum til menntamála,
svelta háskóla þjóðarinnar og lyfta ekki htla fingri th
eflingar stafrænna hátekju-atvinnuvega framtíðarinnar.
Ár efdr ár og ríkisstjóm eftir ríkisstjóm auka stjóm-
málamenn skuldabyrði afkomenda okkar. Grunntónn
flárlaga og lánsQárlaga er, að afkomendur okkar skuh
borga brúsann af sukki líðandi stundar og að þeim verði
jafnframt ekki sköpuð aðstaða th þess að geta það.
Mál af þessu tagi sýna póhtíska sátt á Alþingi og í ríkis-
stjóm um að taka sérhagsmuni fram yfir almannahags-
muni, frysta fortíðina th að hindra framtíðina, efla ójöfn-
uð og minnka jöfnuð. Þessi þverpólitíska sátt er studd
skipulögðum og fjáðum þrýstihópum sérhagsmunaaðila.
Með aðhd verkalýðsrekenda og atvinnurekenda verð-
ur úr þessu ein ahsherjar þjóðarsátt um, að ekki skuh
hætta að brenna peningum almennings og að magna
skuh lífskjaramuninn í þjóðfélaginu. Slíkar þjóðarsættir
um fátækt hafa verið næsta árvissar um nokkurt skeið.
í ljósi stjómmála vetrarins er raunar merkhegt, að
rúmlega helmingur kjósenda skuh þegar hafa gert upp
hug sinn og vahð mihi keimlíkra stjómmálaflokka.
Jónas Kristjánsson
Tölvuflæðið
ræður á millj -
arðamörkuðum
Sviptingarnar á peningamarkaöi
og í verðbréfaviðskiptum hafa ver-
iö stórbrotnar upp á síökastið. Á
rúmum tveimur mánuöum hefur
mexíkanski pesoinn fallið í verði
um 40 af hundraði. Til að gera
Mexíkó fært að standa við fjárhags-
skuldbindingar rak Bandaríkja-
stjórn með offorsi saman 47 millj-
arða dollara alþjóðlegan viðlaga-
sjóð henni til handa og lagði sjálf í
púkkið 20 milljarða af eigin gengis-
varasjóði. Við það tók Bandaríkja-
dollar að síga niður á við.
Fyrir rúmri viku kom svo í ljós
að einn verðbréfamiðlari í útibúi í
Singapore hafði sett elsta íjárfest-
ingarbanka Bretlands á hausinn;
valdið honum tapi sem nemur um
milljarði sterhngspunda.
Stórfréttirnar af því máh viku þó
brátt af forsíöum heimsblaðanna
fyrir mesta hrapi Bandaríkjadoh-
ars á síðari árum. Hefur verðgildi
hans rýrnað frá áramótum gagn-
vart þýsku marki og japönsku jeni
sem nam á annan tug prósenta
þegar verst lét.
Orsakasamhengi er ekki milli
gjaldþrots Barings-banka og svipt-
inganna í gengisskráningu sem á
eftir fóru en sömu aðstæður gera
bæði fyrirbærin möguleg. Tölvu-
vædd viðskipti um hnöttinn allan
sólarhringinn út í gegn eru komin
á það stig i hraða og umfangi að
ógerlegt er fyrir aðila sem ábyrgð
bera eða eftirlit eiga að hafa að
fylgjast með því sem fram fer og
grípa í tauma áður en meiriháttar
skaði er skeður.
Nicholas Leeson, tuttugu og sjö
ára gamall verðbréfamiðlari, velti
233 ára gömlum máttarstólpa í fjár-
málaheimi City í London án þess
nokkur fengi að gert, af því að
gömlu mennirnir í bankastjóminni
báru ekki nægilegt skynbragð á
tölvuvædd viðskipti með afleiðslu-
bréfin nýstarlegu til að gera sér
grein fyrir því sem var að gerast.
Á sama hátt komu tilraunir
seðlabanka allra helstu iðnríkja,
með þann bandaríska og þann jap-
anska í fararbroddi, til að hefta fall
dollarans fyrir ekkert, af því að
gjaldeyriskaupmenn og sjóðir í
gjaldeyrisviðskiptum velta marg-
fóldum upphæðum á við þær sem
seðlabankarnir hafa yfir að ráða
og geta meö örskotshröðum tölvu-
viðskiptum hirt gróða í hvert skipti
sem bankastjórnirnar þrýtur
örendið í dýfingunum.
Afleiðslubréf eru tiltölulega nýr
flokkur verðbréfa sem eiga verð-
mæti sitt undir verðþróun annarra
bréfa. Barings fór flatt á því að
Leeson hafði veðjað á hækkun Nik-
kei- verðbréfavísitölunnar í Tokyo,
en' hún féll í staðinn hraðar en áður
eftir jarðskjálftann í Kobe. Fyrir
Erlend tídindi
Magnús Torfi Ólafsson
hhðstæð mistök varð eitt auðug-
asta hérað Bandaríkjanna, Or-
ange-sýsla í Kaliforníu, gjaldþrota
í fyrra. Þar hafði Robert Citron
gjaldkeri varið sjóðum sýslunnar í
kaup á afleiddum bréfum, sem áttu
gildi sitt undir því að vextir færu
lækkandi, en reyndin varð aö þeir
hækkuðu.
Vaxtahækkunin var verk stjórn-
ar Federal Reserve, bandaríska
seðlabankans. Ein ástæðan sem
færð er fyrir fahi dollarans undan-
farið er að menn úr seðlabanka-
stjórninni höfðu gefið í skyn að
frekari vaxtahækkana væri ekki
að vænta, og einn meira að segja
hagað þannig orðum sínum að
skilja mátti sem menn þar á bæ
létu sér gengislækkunina i léttu
rúmi hggja. Auk þess er bent á að
japönsk fyrirtæki geri nú mikið að
því aö breyta dollaraeignum í jen
vegna þess aö ársuppgjör þeirra
miðast við marslok.
Alvarlegustu afleiðingar gengis-
umrótsins til þessa eru þó gengis-
lækkanir gjaldmiðla Spánar og
Portúgals. Af þeim hefur síðan
hlotist þrýstingur á gengi belgíska
frankans, sænsku krónunnar, ít-
ölsku lírunnar og meira að segja
franska frankans.
Styrkur þýska marksins er þann-
ig háskalegur fyrir gengisstöðug-
leika hjá öðrum ríkjum í Evrópu-
sambandinu. Þetta veldur ekki að-
eins vandkvæðum í svipinn, sem
ríkin sem í hlut eiga hafa brugðist
við með því að hækka vexti. Meiru
skiptir að ósamræmið í gengisþró-
un ríkja ESB gerir torveldara að
stefna á samruna gjaldmiðla aðild-
arríkja, sem uppfylla sett skilyrði,
í einn áriö 1999, svo ekki sé tálaö
um 1997 eins og átti að koma til
greina.
En jafnframt sýnir gengisókyrrð-
in að sameiginlegur gjaldmiðhl er
óhjákvæmilegur ef kjölfesta á að
vera í ESB til langframa. Að sama
skapi fækkaöi tækifærum fyrir
spákaupmenn að græða á því að
raska gengi nátengdra en formlega
sjálfstæðra gjaldmiðla einstakra
ríkja.
Jacques Santer, forseti framkvæmdastjórnar ESB, lýsir yfir við „fjármála-
morgunverð" í Kauphöll Brussel að áform um sameiginlegan gjaldmið-
il aðildarrikja standi óhögguð þrátt fyrir umrótið á gjaldeyrismarkaði.
Skoðaiúr annarra
Stöðvum geimferðimar
„Stjórnmálamenn í Washington fínkemba fiárlögin
í leit að liöum th að skera niður og það má því heita
furðulegt að enginn skuli leggja th að hætt verði við
mannaðar geimferðir. Geimvísindastofnunin eyðir
rúmlega fimm milljörðum dollara á ári til að fljúga
geimskutlum sínum og til að byggja geimstöð sem
ekki þjónar neinum thgangi."
Úr forustugrein New York Times 7. mars.
Sælir em hófsamir
„Þegar laun æðstu stjórnenda hækka mhh ára um
það sem aðrir verða aö gera sér að góðu í árslaun,
verður óhjákvæmilega erfiðara að ná þeim hófsömu
launasamningum sem við erum stöðugt háð, þegar
th lengri tíma er htið, í viöleitni okkar til að skapa
betra og tryggara efnahagslíf. Formaður alþýðusam-
bandsins hefur vakið athygh á því að vinnuveitendur
verða að vera jafn hófsamir þegar þeir ákveða laun
yfirmanna og þeir ætlast til að launþegasamtökin
séu í launakröfum sínum.“
Úr forustugrein Aftenposten 9. mars.
Á réttri leið
„Þeir aðstoðarmenn í Hvita húsinu sem vilja slaka
aðeins á stefnunni gagnvart Kúbu eru á réttri leið.
Að leyfa kúbverskum útlögum aftur að senda ætt-
ingjum sínum heima á Kúbu peninga mundi draga
úr þjáningum þeirra. Að gera Bandaríkjamönnum
auðveldara að ferðast th Kúbu er einungis staðfest-
ing á grundvallarrétti þeirra. Clinton forseti hafði
enga góöa ástæðu til að koma þessum takmörkunum
á í ágúst. Það eru ærnar ástæður til að afnema þær
nú.“
Úr forustugrein Washington Post 9. mars.