Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1995, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1995, Blaðsíða 27
•ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1995 31 jMyl't Zjúsjuiííg j Sjunúíúiusn ík merj**smo Landnotkun Hafnarsvæði til þróunar Olíustöð Vörugeymslur, þjónusta, iðnaður Fréttir Sundin í Reykjavík: Skarf aklettur að komast á þurrt - í fyrsta sinn hægt að ganga þangað á þurru í fyrsta sinn í sögunni er hægt að ganga á þurru út í Skarfaklett. Það verður þó aðeins gert, enn sem kom- iö er, á stórstraumsfjöru. Kletturinn stendur upp úr sjó fram undan olíu- tönkunum í Laugarnesi. Nokkur hundruð metrar eru frá strandlengj- unni út að klettinum. Ástæða þess að nú er hægt að ganga út að klettinum er sú að hafnar eru framkvæmdir við uppfyllingu út í sjó á svæðinu fyrir neðan tankana í Laugarnesi en þar er fyrirhuguð við- bótar hafnaraðstaða. Rætt hefur ver- ið um að Irving-olíufélagið fái þarna aðstöðu. Þegar framkvæmdum er lokið á uppfyllingin að ná út fyrir klettinn en ekki verður þó fyllt alveg upp að honum heldur myndað lítið vatn í kringum klettinn. Nýja hafn- arsvæðið ber heitið Klettasvæði. Skipulag svæðisins var samþykkt árið 1990 og má sjá teikningar af því á öðrum stað hér á síðunni. Örlygur Hálfdánarson bókaútgef- andi hefur gengið nokkrum sinnum út að klettinum á stórstraumsfjörum að undanfórnu. Hann segist ekki vita til að nokkur hafi gengið á þurru að klettinum fyrr, þó svo hann þori ekki að sverja fyrir það. -Ari Hugsanleg hafnaraðstaða Irving-olíufyrirtækisins. verður vestan við Skarfaklett. Hér má sjá í vesturátt til Skarfa- skers og Engeyjar. Örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi hefur oft siglt milli Skarfakletts og lands. Ekki hefur áður verið hægt að ganga á þurru út að klettinum og Örlygur er ef til vill fyrstur til að gera slikt ásamt konu sinni, Þóru Þorgeirs- dóttur. Séð úr lofti yfir Laugarnes. sundin og eyjarnar til Esjunnar. Skarfaklettur stendur upp úr sjó fram undan olíutönkun- um í Laugarnesi. Ákveðið hefur verið að fylla upp að honum og gera hafnaraðstöðu. DV-myndir Örlygur Hálfdánarson Hja fagmonnum ýrir þig og þinn bíl nausf ÞJONUSTA GÆÐI GOTT VERÐ Borgartúni 26, Reykjavík. S.91-622262 Bæjarhrauni 6, Hafnarfirði. S.91-655510 Háberg, Skeifunni 5, R. S.91-814788 muA /ELLA muA VLSAM WELLA BALSAIV Normalt hár Torrt/tert eiler behandlat hár weua .WEIXA SHAMP00 Normalt har

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.