Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1995, Blaðsíða 10
10 > Lítill og nettur Creda þurrkari 19.900#" Tekur 3 kg. af þvotti Upphengisett kr. 850,00 Umboðsmenn um Innd allt RflFTffKJflUERZLUN ÍSLflNDS If Skútuvogi 1 b, 104 Reykjavík. Sími 568 8660 Verkamannafélagið Dagsbrún Orlofshús 1995 Umsóknareyðublöð um dvöl í orlofshúsum félagsins í sumar verða afhent á skrifstofu félagsins að Lindargötu 9 frá og með þriðjudeginum 18. apríl nk. Umsóknum skal skilað aftur á sama stað eigi síðar en 3. maí. Húsin eru: 2 hús í Svignaskarði, Borgarfirði 1 hús í Flókalundi, Vatnsfirði 3 íbúðir á Akureyri 2 hús á Illugastöðum, Fnjóskadal 2 hús á Einarsstöðum á Héraði 5 hús í Ölfusborgum 1 hús í Úthlíð í Biskupstungum 1 hús í Hvammi í Skorradal Þeir sem ekki hafa fengið sumarhús sl. fimm ár hafa for- gang með úthlutun. Vikuleigan er kr. 7.000 nema í Hvammi, kr. 10.000. Verkamannafélagið Dagsbrún HÚS & GARÐAR fÆÆÆÆSsssssjrsjsjsssfssjrjffSfjrjrÆ. Aukablað HÚS OG GARÐAR Miðvikudaginn 26. apríl nk. mun aukablað um hús og garða fylgja DV. Meðal efnis: • Klippingar • Gróðursetning • Áburðargjöf • Geitungar • Matjurtagarðurinn • Umhirða og skipting fjölærra plantna Þeir auglýsendur sem hafa hug á að auglýsa í þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Fríðu Sjöfn Lúðvíksdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 632721. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur aug- lýsinga er föstudagurinn 21. apríl. ATH.I Bréfasími okkar er 632727. Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1995 Ferja í erfiðleikum á Ermarsundi: 300 björguðust úr sjávarháska „Fólkið var mjög skynsamt, það héít ró sinni og fylgdi fyrirmælum," sagði einn þeirra 307 farþega sem þjargað var frá borði ferjunnar Saint Malo í gær. Ferjan lenti í erfiðleikum um stundarfjórðungi eftir að hafa lagt úr höfn á Ermarsundseyjunni Jersey. Skipstjórinn sendi þá út neyðarkall og skipaði öllum að fara frá borði. Nærhggjandi skip voru fljót til aðstoðar og tókst björgunin giftusamlega. Alhr komust lífs af en sautján eru slasaðir. Ekki er vitað hvað olh því að gat kom á Saint Malo en við það hallað- ist ferjan á vinstri hliðina. Þrátt fyrir úfinn sjó gekk björgunarstarfið vel eins og fyrr segir. Önnur ferja, sem kom til aðstoðar, gat siglt upp að hhð Saint Malo en þar klifruðu farþeg- arnir yfir borðstokkinn til að komast í öruggt skjól. Björgunin tók um klukkustund og Paul Mimmack, talsmaður hafnaryf- irvalda í Jersey, gerði ekki mikið úr henni. Hann sagði að hún hefði verið skipuleg og að margir farþeganna hefðu ekki einu sinni blotnað í fæt- urna. Flestir farþeganna um borð voru Þjóðverjar, eða 185. Hinir slös- uðu voru fluttir til St Helier á Jersey en sex þeirra höfðu beinbrotnað. Eftir óhappið í gær var Saint Malo dregin aftur til Jersey. Ferjan, sem er í eigu franskra aðila, siglir á milli eyja í Ermarsundi og hafnar í Frakk- landi sem heitir einnig Saint Malo. Reuter . .... Björgunarmenn vinna að þvi að koma taug í frönsku ferjuna Saint Malo i gær en að því búnu var hún dregin aftur til Jersey. Meira en 300 manns voru í ferjunni þegar hún lenti í erfiðleikum en allir komust lífs af. Þrír fórust í gas- sprengingu „Vitað er að þrír hafa látist og ell- efu eru á sjúkrahúsi, þar af nokkrir mjög alvarlega slasaðir," sagði lög- reglumaður í pólsku borginni Gdansk eftir mjög öfluga gasspreng- ingu þar í gær. „En það gætu fleiri verið í húsarústunum," bætti hann við. Sprengingin varð í tíu hæða blokk en íbúar þar höfðu fundið gaslykt og látið viðeigandi yfirvöld vita. Von var á sveit manna til að kanna málið en hún kom ekki fyrr en of seint. Við sprenginguna eyðilögðust þrjár neðstu hæðirnar en að sögn björgun- armanna mátti allt eins búast viö því að byggingin hryndi til grunna. í blokkinni voru 78 íbúðir og gekk þokkalega að rýma þær en von var á sérstökum búnaði, sem á að koma í veg fyrir hrun hússins, með hraði frá Varsjá. Að sögn björgunarmanna var nauðsynlegt að búnaðurinn kæmi fljótlega því að byggingin hall- aöist um einn millímetra á hverjum fimm mínútum. Reuter Poppstjarnan- stendur enn í máiaferlum við Sony. GeorgeMichael söngáný Nýjasta smáskífan frá poppgoð- inu George Michael hljómaði á öldum ljósvakans um helgina. Það var útvarpsstöðin Capital FM í London sem lék lagið en það heitir Jesus for a Child. Þessi uppákoma útvarpsstöðv- arinnar vakti mikla athygli en George Michael hefur staðið í löngum málaferlum við Sony sem hann er samningsbundinn. Af þeim sökum hefur tónhstarmað- urinn haft frekar hljótt um sig á tónlistarsviðinu og aðdáendur hans hafa oröið að sýna mikla þolinmæði. Ekki er þó við því að búast að hið sex mínúfna langa lag hljómi aftur í bráð því að George Micha- el gaf bara leyfi fyrir því að Jesus for a Child yrði spilað einu sinni. Ástæðan fyrir leyfmu var sú að hér var á ferö íjársöfnun fyrir bágstödd börn. Uppákoman færði fyrrnefndri söfnun um 7 milijónir islenskra króna en af þeirri upphæð lagði hinn 31 árs gamli tónlistarmaður til þrjár milljónir. Reuter Sviptingar í Suður-Afríku: Winnie Mandela sagðiafsér Winnie Mandela sagði af sér ráð- herraembætti í gær, degi áður en uppsögn hennar átti að koma til framkvæmda. Winnie, sem hefur haft með menningarmálin að gera, fékk reisupassann formlega á fóstudag- inn langa þótt ákvörðunin ætti ekki að taka gÚdi fyrr en í dag. Þetta er í annað sinn sem þessi fyrrverandi eiginkona Nelsons Mandela forseta er rekin úr sama starfinu en í fyrra skiptið var hætt við brottreksturinn. Nú mun Nel- son hafa fulla heimild fyrir upp- sögninni og mun hún því standa. Ekki er vitað nákvæmlega hvað býr að baki ákvörðun forsetans en í tilkynningu frá Winnie í gær sagð- ist hún nú ætla að snúa sér að enn mikilvægari málum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.