Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Side 24
24
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1995
Fordstúlkan 1995:
Sj álfstæð og
hugmynd ar í k
- segir Guðný Bjamadóttir, móðir Þórunnar Þorleifsdóttur
„Hún hefur alltaf verið falleg, því
er ekki að neita. Þegar hún var á
aldrinum þriggja til fimm ára var
hún ávallt í prinsessuleik og klæddi
sig aldrei í annað er síð pils og lét á
sig teiknaða kórónu. Þórunn hefur
alltaf skorið sig úr og ég var smeyk
um að hún myndi vinna þetta,“ sagði
Guðný Bjarnadóttir, læknir og móðir
Fordstúlkunnar 1995, Þórunnar Þor-
leifsdóttur, þegar DV ræddi við hana
eftir að úrslit voru ljós. Guðný sagði
að Þórunn væri mjög greind og hún
vonaöist til að sigurinn kæmi ekki í
veg fyrir áframhaldandi nám. Þór-
unn er einu ári á undan jafnöldrum
sínum i skóla. Faðir Þórunnar, Þor-
leifur Hauksson málfræöingur, var
fjarri góðu gamni þar sem hann er
staddur á ráðstefnu í Danmörku.
Guðný sagðist ætla að hringja til
hans síðar um kvöldiö og segja frá
sigri dótturinnar.
„Þetta leggst ágætlega í mig en við
foreldrarnir höfum alltaf viljað að
hún legði aðaláherslu á námið. Þór-
unn hefur haft áhuga á fyrirsætu-
störfum og rætt það viö mig. Hún
hefur þó aðeins lítillega komiö ná-
lægt þeim enn sem komið er. Hún
er mikið fyrir að lesa bækur og sér-
staklega ljóð. Hún hefur sjálf skrifað
mjög góð ljóð en enn þá hefur ekkert
birst eftir hana. Hún hefur farið sín-
ar eigin leiöir og verið mjög sjálf-
stæð, t.d. í fatavali. Hún hefur alltaf
haft ótrúlegt hugmyndaflug," sagði
Guðný enn fremur.
Ánægð með sigurinn
Fordstúlkan 1995, Þórunn Þorleifsdóttir, ásamt móður sinni, Guðnýju Bjarnadóttur, og ellefu ára systur, Alfdísi,
sem stefnir i fyrirsætuhæð eins og stóra systir.
Þórunn var að vonum ánægð með
sigurinn og sagðist líða mjög vel þeg-
ar DV ræddi viö hana aö lokinni
krýningu. Hamingjuóskunum rigndi
yfir hana úr öllum áttum. Það var
Birna Willardsdóttir, Fordstúlkan
1993, sem krýndi Þórunni en Elísabet
Davíösdóttir, Fordstúlkan 1994, var
fjarri góöu gamni. Hún er stödd á
lúxuseyjunni Bora Bora ásamt fræg-
ustu módelum í Milanó við auglýs-
ingatökur. Elísabet hefur feröast
mjög víða á einu ári og vegnar ákaf-
lega vel sem fyrirsæta.
„Mér líst mjög vel á þetta,“ sagði
Þórunn eftir sigurinn enda hafði hún
þá unnið fjöldi verðlauna, þar á með-
al ferð til Parísar á vordögum. í Par-
ís verður tekið á móti Þórunni hjá
Ford Models og mun hún fá að kynn-
Því miður fyrir herrana
henni. Hann heitir Egill Tómasson.
ast starfi fyrirsætunnar í nokkra
daga og vinna með frægum tískuljós-
myndurum. Þær myndir sem þar
verða teknar verða síðan sendar til
Ford Models í New York þar sem
ákveðið verður hvort Þórunn tekur
þátt í keppninni Supermodel of the
World í sumar.
Þátttaka Þórunnar í Fordkeppn-
inni bar óvænt aö. Systir vinkonu
hennar, sem býr í Kanada, sendi
myndir af henni til Ford Models í
New York og þeim myndum var síð-
Verðlaun
Ford-
stúlkunnar
Fordstúlkan 1995 fékk mikið af
góðum gjöfum í verðlaun. Fyrir
utan tvær utanlandsferðir fékk
hún: Cavalette ferðatösku frá
Tösku- og hanskabúðinni, skóút-
tekt frá versluninni Skæði í
Kringlunni, Nike íþróttaskó,
kvöldverð fyrir tvo i Café Óperu,
ljósakort frá Toppsól, þriggja
mánaða æfingakort frá World
Class, Russeil Atliletic íþrótta-
galla frá Hreysti, handsnyrtingu
frá Mandý, Trucco snyrtivörur
og Sebastian hársnyrtivörur frá
Halldóri Jónssyni og Hudson
sokkabuxur.
an blandað saman við hinar hundrað
myndirnar sem bárust frá íslandi.
Það er greinilegt að systir vinkonu
hennar hefur séð módel í Þórunni.
Próflestur fram
undan
„Þetta leggst mjög vel í mig og ég
hlakka til að fást viö fyrirsætustörf.
Ég hef haft áhuga á þeim um nokk-
urn tíma,“ sagði Þórunn. Hún sagði
að námið gangi þó fyrir öllu og þessa
dagana er próflestur stundaður af
miklu kappi. „Mig langar aö prófa
fyrirsætustörfm í einhvern tíma. Ég
hef starfað lítillega hjá Módel 79 og
hef haft gaman af. Ég hef mikla
ánægju af að ferðast og veit að það á
vel við mig,“ sagði hún.
Þórunn sagðist hafa orðiö fyrir
vægu áfalli þegar nafn hennar var
nefnt. „Ég var svo stressuð að ég titr-
aði,“ sagði hún. „Þetta var mjög
skemmtilegt.“
Það sem Þórunni langar mest í
framtíöinni er að læra að fljúga. Hún
segist vera spennt þessa dagana
vegna próflesturs þar sem kennara-
verkfallið hafi farið illa með vetur-
inn. Hún vildi ekki meina að Ford-
keppnin setti nokkurt strik í reikn-
inginn þar.
Þórunn telur sig ekki vera of unga
til að fara út í hinn stóra heim. „Það
er mjög misjafnt hvernig stúlkur eru
á þessum aldri, þetta fer eftir þroska.
Ég held að ég treysti mér vel til þess,
ég er sjálfstæð."
Þórunn segist hafa áhuga á stjórn-
málum og þjóðmálum yfirleitt og
fylgist með stjórnarmyndunarvið-
ræðum þessa dagana og íslenska er
uppáhaldsfagið í skólanum.
Bjó í Svíþjóð
Þórunn bjó með fjölskyldu sinni í
átta ár í Uppsölum í Svíþjóð þar sem
móðir hennar var við nám. Þar gekk
hún í sænskan skóla og segir að þar
hafi ríkt mun meiri agi en í íslensk-
um skólum og meira samband milli
kennara og nemenda. Þegar hún kom
heim, tólf ára gömul, fór hún' einum
bekk ofar en jafnaldrar hennar þar
sem hún var komin lengra í náminu.
Hún segist eiga marga góða vini í
Sviþjóð og einnig í Englandi þar
sem hún var í sumarskóla. Hún á því
fjölmarga pennavini.
Þórunn á þrjú systkin og er hún
næstelst þeirra. Hún er 179 sm á hæö
og hefur stundað ballettnám um sex
ára skeið.
á Þórunn kærasta sem var ákaflega stoltur af