Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
Fréttir____________________________________________________
Karlmaður bjargaði fimm ára dreng sem fallið haíði 1 vök:
Braust gegnum
klaka og leðiu
„Ég var aö gera við bílinn minn
fyrir utan húsið þegar krakkar komu
hlaupandi til mín og sögðu mér að
það væri strákur að drukkna í tjörn
sem er hér rétt hjá. Ég hljóp af stað
og þegar ég kom á staðinn sá ég hvar
strákurinn var í vökinni. Þetta stóð
mjög tæpt því þegar ég stökk ofan í
var hann kominn með vatn ofan í sig
og var mjög þrekaöur," segir Guðni
Theodórsson, í Vogum á Vatnsleysu-
strönd.
Hann bjargaði 5 ára dreng, Svan
Inga, sem verið hafði í heimsókn hjá
honum, frá drukknun - en drengur-
inn hafði fallið í vök nálægt heimili
Guðna.
Vatnið í tjörninni náði Guðna upp
í hringu en litla drengnum haföi tek-
ist að halda sér á floti þar til Guðni
kom. Giskar Guðni á að drengurinn
hafi verið í um 5 mínútur í vökinni
og var aðframkominn.
„Þetta var ekki langt frá landi,
nokkra metra, en ísinn brast undan
mér um leið og ég kom að vökinni,"
segir Guðni. „Ég þurfti að bijóta ís-
inn á undan okkur þegar ég óð í land.
Það var erfitt að ganga í tjörninni
því það var þykk leðja á botninum
sem erfitt var að fóta sig í. Svo kom
þarna fólk að og hjálpaði okkur upp
úr. Þegar upp úr var komið greip ég
utan um Svan og þrýsti vatninu upp
úr honum. Það mátti htlu muna að
illa færi. Hefði ég til dæmis veriö
inni þá hefði ég líklega ekki náð út í
tíma,“ segir Guðni.
Svanur Ingi var fljótur að jafna sig
á eftir, fékk heitt kakó og bakkelsi
með. Hann var samt ekki sá eini í
fjölskyldunni sem vöknaði þennan
daginn því aö bróðir hans féll í sjóinn
af flotbryggju í Vogum. Einnig tókst
að bjarga honum á þurrt áður en illa
fór.
-PP
Stuttarfréttir
Sumarieikskólar
Skólamálaráð Reykjavíkur hef-
ur ákveöið aö liafa nokkra leik-
skóla í borginni opna i allt sum-
ar, eða 2 mánuðum lengur en
tíðkast hefur.
Græntljósábjórinn
Lögreglustjórar í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfiröi hafa gef-
iö grænt ljós á bjórsölu á leikjum
HM. í Laugardaishöll verður
bjórsalan á jarðhæð en ekki á 2.
hæö eins og ráð var fyrir gert.
Daviðmeóávarp
Davíð Oddsson forsætísráö-
herra flytur ávarp viö upphaf
minnlngarathafnar um lok seinni
heimsstyrjaldarinnar 1 Dóm-
kirkjunni á morgun.
Auklnn gjaldeyrisforði
Gjaldeyrisforði Seðlabankans í
apríl jókst í 21,5 mihjarða úr 18,7
milljörðum í mars. Þetta kemur
fram í Gjaldeyrismálum.
Annirírikisstjóm
Óvenju annasamur fundur var
í ríkisstjóminni i gærmorgun.
Þar kynntu sjö af tíu ráöherrum
ails 12 mál auk þess sem forsætis-
ráðherra kynnti þingmál á vor-
þingi.
FramsóknifjáriÖgin
Stjómarflokkarnir náðu saman
í gær um að Framsóknarflokkur-
inn fengi formennsku í fjárlaga-
nefhd og Sjálfstæðisflokkur í ut-
anríkisnefnd Alþingis. Jón
Krisfjánsson veröur að öhum lík-
índum formaður fjárlaganefndar
og Lára Margrét Ragnarsdóttir
hefur verið orðuð sem formaður
utanríkisnefhdar.
Davtð gagnrýnir sjómenn
Davíð Oddsson gagnrýndi for-
ystu sjómannasamtaka harölega
á aðalfundi SH í gær og lýsti yfir
þungum áhyggjum vegna boöaös
sjómannaverkfalls.
Atta ára drengur slapp ótrúlega litió meiddur þegar hann hrapaði átta metra niður þverhnipta kletta og skall í
grýtta fjöru I Gufunesi. Drengurinn var fluttur i sjúkrahús. Hann var talinn óbrotinn en marinn og skrámaður. Hann
var að leik með félaga sínum þegar slysið varð og er talið víst að honum hafi skrikað fótur með fyrrgreindum
afleiðíngum. Á myndinni má sjá hversu hátt fallið var - frá staurunum uppi á bakkanum og alla leið þangað sem
maðurinn stendur. DV-mynd Sveinn
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 99-16-00.
39,90 kr. mínútan.
Já _lj
Ató_2j
r ö d d
mr ■ W W
FOLKSINS
99-16-00
Er rétt að heimila líkuppgrefti til
sönnunar í barnfaðernismálum?
Allir I stafræna kerflnu me6 tónvalsslma geta nýtt sér þessa þjónustu.
í öndunarvél eftir slys
- lenti fyrir flutningabíl
Tæplega þrítugur karlmaður
liggur á gjörgæsludeild Borgarspít-
ala í öndunarvél eftir að hann hjól-
aði í veg fyrir flutningabíl á viniíu-
svæöi Eimskipafélagsins við
Sundahöfn á þriöjudag.
í fyrstu var ekki tahð að meiðsl
mannsins, sem var við vinnu sína
þegar slysið átti sér stað, hefðu
verið alvarleg en við skoöun á
slysadeild kom í ljós að hann hafði
hlotið verulega höfuðáverka. Að
sögn lækria á gjörgæsludeild er
hann „með stöðugum lífsmörkum"
en hefur verið haldið í öndunarvél
frá því slysið átti sér stað. Næstu
dagar munu hins vegar leiða í ljós
hvernighonumreiðiraf. -pp
Bæjarstjóm Akureyrar:
Aukafundw i
um bjórinn
Gylfi Kristjánason, DV, Akuxeyri:
Bæjarstjóm Akureyrar mun
koma saman til aukafundar ísíð-
asta lagi kl. 9 á mánudagsmorgun
og afgreiða þar umsókn HM-
nefndarinnar um að fá leyfi til
að seþa bjór á leikjum keppninn-
ar á Akureyri.
Fjórir bæjarfulltrúar, Þórarinn
B. Jónsson, Bjöm Jósef Arnvið-
arson, Guðmundur Stefánsson og
Valgerður Jónsdóttir, óskuöu eft-
ir fundinum í gærmorgun. Þeir
styðja allir umsóknina. Það gera
einníg bæjarráðsmennirnir tveir
sem greiddu umsókninni atkvæði
í bæjarráði og að líkindum einn
eða tveir bæjarfulltrúar til við-
bótar. Allt bendir því til að 7 eða |
jafhvel 8 bæjarfulltrúar af 11 1
mæli meö íeyfisveitingunni.
Ríkisútvarpið: |
Pétur stað-
gengill Heimis
„Ég fagna því aö Pétur Guðf-
innsson hafi verið skipaður stað-
gengill minn og býð hann vel-
kominn í þetta sæti," segir Heim-
ir Steinsson útvarpsstjórl
Björn Bjarnason menntamála-
ráöherra skipaði í vikunni Pétur
Guðfinnsson, framkvæmdasljóra
Sjónvarpsins sem staðgengil út-
varpsstjóra. Pétur tekur við sem
staðgengill af Elfu-Björk Gunnars-
dóttur, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Útvarpsins, en því embætti
gegnir nú Markús Öm Antonsson,
fyrrumútvarpsstj -kaa
Dýrarabensín: ’
Sama hækk- t
un hjá öllum
-tæpar2krónur '
Oliufélögin tilkynntu i gær
hækkun á bensínverði til neytenda.
Bensinlítrinn hækkaði um það
sama hjá öllum félögunum eða um
l,90krónur.Ástæðuhækkunarinn- -
ar segja forráðamenn félaganna
verahækkandi heimsmarkaðsverð
að undanfomu.
Eftir hækkunina kostar lítri af
92 oktana bensíni 67,70 krónur
hjá Oliufélaginu, 67,80 hjá Olís og
67,60 þjá Skeljungi.
95 oktana blýlaust bensín er
dýrast hjá Oh's eftir hækkunina
eöa 70,70 krónur htrinn. Næst er
Skeljungur með 70,60 krónur og ,
Olíufélagið með 70,50 krónur. )
Ohs og Skeljungur eru með
sama verð á 98 oktana bensíni,
eða 74,10 krónur htrinn, en OIíu- |
félagið er núna með 74,20 krónur.
Ohufélagiö og Skeþungur eru
áfram með ódýrara bensín á þeiin \
bensínstöövum þar sem boöið er
upp áað dæla sjálfur, Olíufélagið
með lítrann 1 krónu ódýrari og
Skeljungur 1,20.
barmi gjaldþrots
Beiðni um gjaldþrotaskipti á
hlutafélaginu Bimingi var nýlega
lögö fram i Héraðsdómi Reykja-
vikur að kröfu Lífeyrissjóðs
verslunarmanna. Bimingur gaf
út Pressuna sálugu áður en hún
var sameinuð Eintaki og síðar
Morgunpóstinum. Aðaleigandi >
Bimings er Friörik Friðriksson,
framkvæmdastjóri Almenna
bókafélagsins. Úrskurður um l
gjaldþrotaskipti liggur ekki fyrir.
Upplýsingar um kröfur Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna fengust ekki
upp gefnar en samkvæmt heimild-
um DV nema þær svipaðri upphæö
og kröfur Lífeyrissjóös blaða-
manna á hendur Bimingi, eða í
kringum 1« mihjón króna.