Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Page 31
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
39
Erum við kannski farnir að skjóta yfir markið? Erum við kannski orðnir meðferðarfíklar.
„Mér leiðist
þetta heilsu-
ræktarbull"
Síminn hringdi um nótt hjá
Nökkva lækni. Svefndrukkinn
svaraði hann hringingunni og ur-
raöi ókvæðisorð í tólið. „Ert þú
þessi Nökkvi læknir," spurði glað-
hlakkaleg rödd. „Já,“ sagöi Nökkvi
hvasst. “Hvað viltþú?" Maðurinn
svaraði að bragði: „Hvernig stend-
ur á því að þú ert svona fúll? Þú
sem sífellt predikar einhver lífs-
sannindi og vísar okkur leið til ei-
lífrar hreysti og lífsgleði. Svo ertu
manna fúlastur í síma.“ Nökkvi
neri augun, leit á klukku og spurði
aftur hvað maðurinn vildi. „Mig
langaði til að ræða við þig dr.
Hress,“ sagði maðurinn. „Éger
orðinn svo leiður á þessum grein-
um þínum; þessu sjálfumglaða
bulli sem sett er fram eins og algild
sannindi. Annars ert þú ekki einn
um þetta. Guðspjall dagsins fjallar
um mataræði, líkamsrækt, heilsuf-
ar, vítamín, megrunarkúra og
reykingar. Öll vikurit og glans-
tímarit skrifa um lækningar og
heilsurækt. Ég las í gær grein sem
hét: „Læknaðu kvefið með hnet-
um“ og aðra sem kallaðist „Helltu
sírópi í hárið til að koma í veg fyr-
ir skalla." Þar eru gefin holl ráð
hvernig lækna skuh rauða hunda,
afbrýðisemi, glóðaraugu, vampíru-
bit, skotgrafahita, kólumbíska
lungnapest, gin- og klaufaveiki og
ýmislegt fleira sem enginn hefur
heyrt talað um. Allt er hægt að
lækna með því að vera jákvæður,
horfa á Hemma Gunn og éta ein-
hver vítamín."
Aðmaðurtali
nú ekki um matar-
kjaftæðið
Hann hélt áfram: „Svo er ég orð-
inn hundleiður á öllu þessu matar-
kjaftæði. AUt á t.d. að læknast með
trefjum. Þeim sem éta trefjar er
lofað langlífi, hamingju og eilífri
æsku. Læknar segja að trefjaríkt
fæði komi í veg fyrir hægðatregðu,
hjartasjúkdóma, andremmu, ástar-
sorg og höfuðverk. Það er eins og
allir trúi á þetta rugl. Auk þess á
maður að éta alls konar snefilefni;
málma, selen, ginseng, gjarðajárn,
stál, kopar, vítamín og gróðurmold.
AUs konar jólasveinar koma fram
í fjölmiðlum til að vitna um þessi
undraefni.
„Ég var náttúrulaus og heyrnar-
laus með fótasveppi en eftir tveggja
vikna kúr með vítavínblöndu dr.
Knollbauers hurfu allir sveppir, líf
færðist í þreyttan lim og ég fór að
heyra allt sem mér var ekki ætl-
að.“ Já, ég orðinn leiður á þessu
kjaftæði. Svo eiga alUr að fara út
að hlaupa. Það er bæði boðskapur
þinn og skóverslana og skófram-
leiðanda. Enginn getur hlaupið
nema á skóm með fjaðurmögnuð-
um ofursóla með loftpúðum og
Álaeknavaktiniú
Óttar
Guðmundsson
læknir
miðsólastyrkingu sem kosta a.m.k.
12000 kr. og íþróttagalla sem kostar
annað eins. Annars virðist ekkert
ýkja skemmtilegt að hlaupa. Aldrei
hef ég séð brosandi skokkara. Það
eru allir með skeifuna niður á axUr
í litríku göUunum sínum á flottu
skónum. Þetta er ömurlegt lið sem
óprýðirborgina."
Bækur og greinar um
selvfölgeligheder
Maðurinn tók sér málhvíld.
Nökkvi reyndi að malda í móinn
en maðurinn hélt áfram: „En leið-
astur er ég þó á bókum og greinum
eins og þínum þar sem sífellt er
verið að kenna 65 leiðir til að byggja
upp sjálfstraustið, 134 aðferðir til
aö bjarga hjónabandinu, 76 æfingar
til að þjálfa magavöðvana og vinna
bug á streitu og 101 leið til að efla
jákvæða hugsun. Þaö verður ekki
þverfótað fyrir bókum um alkóhól-
ista, fjölskyldur alkóhólista, týnda
barnið í sjálfum þér, aldurhnigna
hunda alkóhólista, fullorðinbörn
og barnabörn alkóhólista og sorg
og sorgarviðbrögð og hvað þetta
allt saman heitir. Svo eru allir með
í einhverjum sértrúarsöfnuði sem
kemur saman til að tala saman um
258 aðferðir til að a) lifa með barn-
æskunni, b) eyða barnæskunni, c)
gleyma barnæskunni eða d) ganga
í barndóm.
Allir í meðferð
Svo eiga allir aö fara í meðferð
við einhverju. Einn vinnufélagi
minn er í zon-terapíu, annar í nál-
arstungu, þriðji í dáleiðslu, fjórði í
irismeðferð, fimmti gengur með
segularmband, sjötti stundar inn-
hverfa íhugun, sjöundi er í jóga,
áttundi er alltaf á AA-fundum og
talar í frösum, níundi étur hvít-
lauk, tíundi er í hópi með spilafíkl-
um, ellefti er búinn að vera í krón-
ískri megrun í 25 ár. Ég er sá eini
sem drekk, reyki, borða nammi,
fróa mér reglulega, fer aldrei í sund
og hef ekki farið i neins konar
meðferð. Þaö líta ailir á mig eins
og viðundur. Það er eitthvað að í
þjóðfélagi þar sem helmingur þjóð-
arinnar er með hinn helminginn í
einhvers konar meðferð." Hann
þagnaði og sagðist svo skyndilega
ekki ætla að hafa þetta lengra að
sinni. „Mig langaði bara til að segja
þér þetta og fyrirgefðu! Góða nótt.
Þú ættir ekki að eiga erfitt með að
sofna. Eflaust kanntu 78 aðferðir
til að festa svefn án lyfja!" Hann
hló hæðnislega og lagði tólið á. Eft-
ir sat Nökkvi læknir glaðvakandi,
starði ofan í svart símtólið og hugs-
aði með sér: „Getur það verið að
þessi maður hafi á réttu að standa.
Erum við kannski farnir að skjóta
yfir markið? Erum við kannski
orðnir meðferðarfíklar."
4P& Ulpur, jakkar, 0í !
Iijjfcfl/ kápur. Vlk >
■b'jgjjl Tilbobsverb á —i ~ m
r\ ■, i öllutn vörum tll
l.1 1S. maí vegna vlk'W
flutnlngs. r /í^'r
1 \o^hM5IÐ I rimmfMm K ®i9©§ S ;lttEir
Laugavegi 21 Sími 552 5580
Með
sakleysið
eitt
að vörn
Bubbi
............... -
' ' i,,, 5
'
Tónleikar í
Borgarleikhúsinu
Forsala í
Borgarleikhúsinu
miðaverð
kr. 1.200
Samtök h
SÓLSKÁLAR
Sýaing am helgina!
Opið frá kl. 13-17
Sólstofur Svalahýsi Rennihurðir
Rennigluggar Fellihurðir Útihurðir o. m. fl.
Ekkert viðhald
íslensk framleiðsla
Gluggar og Garöhús «
Dalvegi 2A, Kópavogi, Sími 44300