Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Síða 34
42
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
Á toppnum
Topplag íslenska listans aöra
vikuna í röð er lagið Seifesteem
með bandarísku rokkhljómsveit-
inni Offspring. Offspring er ein
vinsælasta rokksveit Bandaríkj-
anna og lagið Selfesteem er af
breiðskífu sveitarinnar, Smash,
sem setið hefur heilar 47 vikur á
bandaríska breiðskifuiistanum.
Nýtt
Hæsta nýja lagið kemur geysi-
sterkt inn á íslenska listann,
kemst alia leið í 11. sætið á sinni
fyrstu viku. Lagið er flutt af
hljómsveitinni Shut up and
Dance og heitir Save It ‘Til Mom-
ing After. Með sama hraða upp
listann verður það að teljast lík-
legt til að ná toppsætinu á næstu
vikum.
Hástökkið
Hástökk vikunnar á kanadíski
rokkarinn Bryan Adams með
kvikmyndalagið sitt, Have You
ever Really Loved a Woman. Það
lag hefur undanfamar vikur ver-
ið í efstu sætum breska vinsælda-
listans. Svo sérkennilega vili tO
að hann átti einnig hástökk síð-
ustu viku er lag hans stökk úr 36.
sæti í það 16. en það fer nú upp í
4. sætið
Ný steinrós
Við sögðum frá því í síðusti
viku að Reni, trommuleikari The
Stone Roses, væri hættur í hljóm-
sveitinni. Eftirmaður hans hefur
þegar haflð störf bak við settið og
er þar á ferðinni gamaU kunningi
steinrósanna, Robbie Maddix að
nafhi, sem hefur starfað sem stúd-
íótrommari og meðal annars
unnið með Terence Trent
D’Arby, Ruby Turner og The
Rebel MC.
Listfengur
trommari
Tico Torres, trommuleikara
Bon Jovi, er margt til lista lagt.
Hann er ekki bara lipur með kjuð-
ana bak við trommusettiö heldur
leika málarapenslarnir líka í
höndunum á honum. Hingað til
hefur hann mest málað fyr ir sj álf-
an sig en ætlar nú að opinbera
list sína fyrir almenningi með því
að opna einkasýningu í Ambassa-
dor Galleries í New York.
Clayton
kominn í
stúku
Adam Clayton, bassaleikari
U2, hefur látið þau boð út ganga
að hann sé búinn að leggja flösk-
una endanlega á hilluna. Honum
hefúr þótt gott að fá sér í staup-
inu eins og mörgum popparanum
en hann viðurkennir nú að sukk-
iö hafi verið komið langt út yfir
öll velsæmismörk. Dropinn sem
fyllti staupið hjá honum var sú
bitra staðreynd að kærastan
1 f I 3 _ J i 'l ■'WC ]Æ. f '2 U 1 li 1 w w J'i'i IW 7 ■ V iiiii i j 1 J i y % 116
VI MIJNA 6.5. '95 - 12.5. j 95
Ss SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKURÁ LISTANUM 1 roi »P 4f 1
1 1 10 4 SELF ESTEEM -2. VtKANR. 1— OFFSPRING
G> 5 6 4 THE BOMB (THESE SOUNDS FALL IN TO MY HEAD) BUCKETHEADS
3 3 2 5 1. YOU. WE JET BLACK JOE
••• HÁSTÖKK VIKUNNAR... 1
o> 16 36 3 Ihave YOU EVER really loved a woman BRYAN ADAMS
<3 7 9 5 TURN ON, TUNE IN, COP OUT FREAK POWER
3 10 24 4 DON'T GIVE ME YOUR LOVE ALEX PARTY
7 6 4 7 OVER MY SHOULDER MIKE & THE MECHANICS
8 2 1 8 BELIEVE ELTON JOHN
9 5 5 6 BACK FOR GOOD TAKETHAT
(Í0> —13— 21 5 LOOK WHALLOVE.HAS. DONE . .PATTY SMYTH . 1
' NÝTTÁ USTA •• 1
3 1 SAVE IT 'TIL MOURNING AFTER SHUT UP AND DANCE
12 4 3 6 HAKUNA MATATA JIMMY CLIFF
3 15 19 3 FOR WHAT IT'S WORTH HEIÐRÚN ANNA
14 9 7 6 STRANGE CURRENCIES REM
15 11 14 5 WAKEUP BOO BOO RADLEYS
16 12 18 4 WHITER SHADE OF PALE ANNIE LENNOX
3 28 - 2 PLEASE ELTON JOHN
18 14 8 6 JULIA SAYS WET WET WET
3 24 34 3 GIMME LITTLE SIGN DANIELLE BRISEBOIS
20 21 27 4 VULNERABLE ROXETTE
21 17 12 4 D'YER MAK'ER SHERYL CROW
m NÝTT 1 LICK IT 20 FINGERS
3 30 32 3 TRIBUTE IN BLOOM
3 34 - 2 CAN'T STOP MY HEART FROM LOVING YOU AARON NEVILLE
25 19 11 6 LUCY'S EYES PAPERMOON
26 18 16 5 HIGH AND DRY RADIOHEAD
3 38 - 2 NÚNA BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
28 23 25 5 HERE AND NOW DELAMITRI
29 29 40 3 CHAINS TINA ARENA
30 25 28 3 THE FIRST. THE LAST ETERNITY SNAP
3 NÝTT 1 NOT OVER YET GRACE
32 20 13 8 1 CAN'T BE WITH YOU CRANBERRIES
33 22 20 4 EVERYTIME YOU TOUCH ME MOBY
34 33 AL 4 ALL COME TOGETHER DIESEL
3 NÝTT 1 ARMYOF ME BJÖRK
36 26 15 11 WHEN 1 COME AROUND GREEN DAY
37 32 38 4 HYPNOTISED SIMPLE MINDS
m NÝTT 1 SECRET GARDEN BRUCE SPRINGSTEEN
39 39 - 2 BABY BABY ' CORONA
40 27 17 7 GETREADY THE PROCLAIMERS
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmd af markaðsdeild DV i hverri viku.
Fjöldisvarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára aföllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi í DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 16.00 sama dag. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur
þátti vali “World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem
er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóharyi Garðar ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel ólafsson
hans, fyrirsætan Naomi Camp-
beH, yfirgaf hann vegna drykkj-
unnar.
E Street
Band-ið
endurreist?
Miklar sögusagnir eru á kreiki
um að Bruce Springsteen ætli að
endurreisa gamla E Street Band-
ið sitt og halda í víking rnn heim-
inn nú í sumar. Allflestir myndu
fagna þessum tíðindum nema ef
vera skyldi gamli Bítlatrommar-
inn Ringo Starr. Hann er nefni-
lega að undirbúa tónleikaferð
með nýja All Starr Band-inu sínu
en meðal fyrirhugaðra liðs-
manna þar eru þeir Nils Lofgren
og Clarence Clemons sem voru
einmitt fastráðnir í E Street
Band-inu á sínum tíma.
Plötufréttir
Danska rokktröllið Kim
Larsen, sem selt hefur vel á aðra
milljón plötur gegnum tíðina, er
nú að ganga frá fyrstu Best Of
plötu sinni og kominn tími til
myndu margir segja. Platan á að
heita, Guld og gmne skover“ eða
gull og grænir skógar og kemur
út 15 maí . . . Hin gamalkunna
blúsrokksveit The Fabulous
Thunderbirds er að vakna til lífs
á ný eftir fimm ára dvala. Þeir
Kim Wilson og Jimmy Vaughan
hafa tekið upp samstarf á ný og
stefna að því að gefa út nýja Fabu-
lous Thunderbirdsplötu í júlí...
Sledge reyn-
ir aftur
Gamla brýnið Percy Sledge,
sem sló í gegn á sínum tíma 1964
með lagið When a Man Loves a
Woman, ætlar enn að reyna að
bæta um betur. Nafn hans hefur
alla tíð verið rígbundið við þetta
eina lag og allt annað sem hann
gerði, eftir það naut hann aldrei
sannmælis. Hann gafst því upp
um miðjan áttunda áratuginn og
hætti öllu tónlistarbrölti, enda
nóg að bíta og brenna af þessu
eina lagi. Nú þegar hann er að
nálgast sextugt er hann orðinn
leiður á þófinu og ætlar að reyna
einu sinni enn og má búast við
nýrri plötu frá honum innan
skamms.
Fann Bítlana
á háaloftinu
Peter nokkur Hodgson, verka-
maður í Liverpool, datt heldur
betur í lukkupottinn um daginn
þegar hann fann gamlar segul-
bandsspólur afa síns í rusli uppi
á háalofti. Á einni spólunni voru
nefiiilega upptökur með tónlist
ungra Liverpool-drengja sem
höfðu fengið segulbandið lánað
árið 1959. Þeir urðu síðar frægir
sem The Beatles og hefur Paul
McCartney staðfest að upptök-
umar séu ekta. Hodgeson hefúr
ekki ákveðið hvað hann ætlar að
gera við upptökurnar en víst er
að þær eru milljónavirði.
-SþS-