Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 5 » i i > I > ► Fréttir Hugmynd Olafs G. um að þingmenn hætti þingmennsku verði þeir ráðherrar: Þingmenn ósammála Hugmynd sú sem Ólafur G. Einars- son, nýkjörinn forseti Alþingis, setti fram í ræöu eftir forsetakjöriö um að alþingismaður, sem verður ráð- herra, fái frí frá þingstörfum og vara- maður hans taki við á þingi fær held- ur góðar viðtökur meðal alþingis- manna. Þó er ljóst að um hana er ekki einhugur. „Ég er algerlega sammála Ólafi G. Einarssyni. Mér þykir óeðlilegt að blanda saman löggjafarvaldinu og framkvæmdavaldinu með þeim hætti sem hér er gert og tel það raun- ar afar óæskilegt," sagði Kristín Ást- geirsdóttir, formaður þingflokks Kvennalistans. Hún sagði að það fyrirkomulag sem hér er að ráðherrar séu jafnframt þing- menn leiði til þess að löggjafarvaldið sé ósjálfstæðara hér en það ætti að vera. Hún sagði þá hugsun búa að baki þrískiptingu valdsins að valdsviðin hefðu eftirlit hvert með öðru. Ólafur Ragnar Grímsson, formað- ur Álþýöubandalagsins, sagði að þetta væri til í ýmsum öðrum lönd- um. Sér þætti þetta þó ekki falla vel að hinu litla þjóðþingi okkar og því lýðræðiskerfi sem við værum með. „Ég óttast að ef þetta kerfi yrði tek- ið upp hér myndu ráðherrar slitna úr tengslum við kjósendur sína. Kjósendur hefðu þá engan aðgang að þeim sem fulltrúum sínum á þjóð- þinginu allt kjörtímabilið ef þeir yrðu ráðherrar. Þá held ég og að þeir myndu síður hljóta lýðræðislegt aöhald frá þinginu ef þeir hafa ekki þá skyldu að sitja þingfundi," sagði Ólafur Ragnar. „Ég er að mörgu leyti sammála Ólafi G. Einarssyni í þessu máh og hef verið það um skeið,“ sagði Guð- mundur Ámi Stefánsson, þingmaður og varaformaður Alþýðuflokksins. Hann sagðist telja það eðlilegt að þingmenn hættu þingmennsku yrðu þeir ráðherrar. Það myndi skerpa skil á milli löggjafarvalds og fram- kvæmdavalds. Það yrði meðal ann- ars gert með þessu móti. „Þetta er gömul hugmynd og ég hef aidrei verið henni fylgjandi. Ég sé satt að segja ekki hver ávinningur- inn yrði en hins vegar myndi fylgja þessu aukinn kostnaður," sagði Hall- dór Blöndal samgönguráðherra. Hann benti á að annars staðar á Sérstæð sýning: Kort send út og beðið um f ax til baka í Nýlistasafninu við Vatnsstíg í Reykjavík stendur yfír sérstæð sýn- ing hstakonunnar Ónnu Eyjólfsdótt- ur sem nefnist Hringrás. Segja má að eitt verka hennar dreiflst víða um land því hún sendir út þátttökukort til valinkunnra aðila þar sem þeir eru beðnir að senda fax til baka með hugmyndum um hvemig koma megi í veg fyrir eyðingu á yfirborði jarðar. í staðinn fá þátttakendur senda birkiplöntu. Verkið nefnist „Ferð 11“ og er hluti af stærra verki. Um er að ræða birkiplöntur jafnmargar árunum sem liðin eru því að ísland byggðist, eða vel yfir 1.100 plöntur. Hverri plöntu fylgir merkispjald með nafni verksins og era þátttakendur beðnir að velja stað til gróðursetningar. Út- búinn verður sérstakur reitur fyrir erlenda þátttakendur. Þátttakendur eru beðnir að senda faxið á Nýhsta- safnið sem hefur númerið 614350. Þetta er önnur einkasýning Önnu en hún hefur tekið þátt í 7 samsýn- ingum frá árinu 1992. Hún útskrifað- ist frá Myndhsta- og handíðaskóla íslands 1991 og frá Kunstakademie Dússeldorf árið 1993. Norðurlöndum nema í Noregi sætu þingmenn áfram þótt þeir yrðu ráð- herrar. „Og þótt sá háttur sé hafður á í Noregi að þingmenn, sem verða ráð- herrar, láti af þingmennsku hef ég nú ekki getað séð að Norðmenn séu okkur ahs staðar til fyrirmyndar," sagði Halldór Blöndal. „Ég get tekið undir þessa skoðun Ólafs G. Einarssonar vegna þess að þrískipting valdsins er ekki í réttum farvegi hér á landi. Ráðherrar fara hér með framkvæmdavaldið og hafa oft á tíðum verið ósparir á að keyra mál í gegnum þingið á flokksholl- ustu,“ sagði Guðni Ágústsson, þing- maður af Suðurlandl. Hann sagði að það að þingmaður láti af þingmennsku verði hann ráð- herra sé eitt af nokkrum atriðum sem þurfi að laga til að þrískipting valdsins verði eins og hún á að vera hér á landi. HEKLUGOS A f SERFRÆÐINGAR ERU FULLVISSIR UM AÐ GOSINU Á BÍLAÞINGSSVÆÐINU LJÚKI í DAG, 20. MAÍ. NOTAÐIR BÍLAR MEÐ ALLT AÐ 250.000.- KR. AFSLÆTTI OG Á GREIÐSLUKJÖRUM TIL ALLT AÐ 48 MÁNAÐA FLÆÐA ENN UM ALLT SVÆÐIÐ. BILL A KR0NU! LÁGMARKSTILBOÐ í BÍL DAGSINS ER 1 KRÓNA. TILB0ÐUM SKAL SKILAÐ Á SÉRSTÖKU EYÐUBLAÐI FYRIR L0KUN í DAG HJÁ BÍLAÞINGI. DREGID VERÐUR ÚR TILB0ÐUM Á BYLGJUNNI Á MÁNUDAGSIVIORGUNN. ÞAÐ SKELFUR ALLTOG NÖTRAR. DRÍFÐU ÞIG OG GERDU GÓD KAUP. BANG! KINVERSKIR LISTAMENN SÝNA DREKADANS 0G KUNG FU KL. 13.30 í DAG. BÍLAÞINQHEKLU NOTAÐIR BÍLAR Bílaþing Heklu • Laugavegi 174 • Símasambandslaust er viö svæðiö vegna mikils álags • Betra er að koma 0PIÐ í DAG, LAUGARDAG KL. 10.00-17.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.