Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
Smakkað á
gömlum vímim
Dagur í lífi Einars Thoroddsens læknis:
Einar Thoroddsen læknir tók á móti mörgum sjúklingum þennan dag. DV-mynd ÞÖK
Ég vaknaði með harmkvælum og
slóst við bömin, Katrínu 5 ára og
Sölva 4ra ára, til að koma þeim á
fætur. Maður komst ekki hjá því að
hlusta á fréttimar en þá heyrðist mér
að banna ætti alla notkun á lyfjum
öðmm en sjóræningjalyfjum innan
skamms til að halda áfram þessum
þvingunarspamaði sem verið hefur.
Ég fékk mér ekkert í morgunmat
frekar en venjulega enda í megmn.
En krakkarnir fengu Cheerios og
brauð með lifrarkæfu. Síðan keyrði
ég þau á leikskólann Staðarborg.
Ég var mættur á Borgarspítalann
upp úr átta og vonaðist til að hafa
tíma til að taka til á skrifborðinu en
það hefur ekki gerst í áraraðir. Þetta
átti að vera einn svoleiðis dagurinn
en hann reyndist síðan annar. Þaö
var talsvert at. Margir sjúklingar
komu og ég þurfti auk þess að hringja
til Danmerkur því einn sjúkhngur
minn þarf að komast þangaö í að-
gerð. Eg talaði dönsku og þurfti að
nota heilann svohtla stund því að ég
er venjulega sænskumælandi og erf-
itt að kúpla yfir í dönskuna. Þá frétti
ég að hjúkrunarkonur væm í verk-
falli í Danmörku og sá sem ég talaði
við lofaði að láta vita um leið og kapí-
talistamir stoppuðu það.
Sódavatn
var aðalfæðan
Síðan bættust við nýjar áhyggjur
vegna þess að DV ætlaði að senda á
mig ljósmyndara og ég var ahur í
drasli. En ég þurfti hvort eð er að
fara heim og redda barnapíu fyrir
kvöldið. Það gekk alveg furðuvel að
fá pössun svo ég dreif í að stiha
myndbandið fyrir leikina í HM.
Matartíminn fór í að drekka sóda-
vatn til að fyha út í fitufrumurnar
sem eru galtómar eftir megrunina.
Þetta var hádegis- og kvöldmatur,
býst ég við. Síðan þurfti ég að und-
irbúa vínsmakk fyrir kvöldið. Mér
var reyndar boöið í annað vínsmakk
en varð að afþakka það. Á leiðinni í
vinnuna aftur tók ég stóran sveig
fram hjá nammibúðinni. Einnig
þurfti ég að kíkja á tvíbreiða svefn-
sófa svo að hægt sé að taka á móti
gestum en von er á þeim í sumar.
Læknað af
fullum krafti
Það var svo læknað grimmt síðdeg-
is. Ég var á læknastofunni minni í
Glæsibæ og tók á móti tuttugu sjúkl-
ingum og drakk sódavatn þess á
milli. Ég ílentist náttúrlega á stof-
unni og kom síðan heim í panik þvi
Ingrid, konan mín, ætlaði í tennis.
Ég þurfti líka að umhella vínunum
fyrir vínsmakkið og beið þess að
barnapían mætti til aö losa mig und-
an þjáningunum sem fólust í því að
halda uppi aga á heimilinu og horfa
um leið á handboltann. Vínin sem
ég var með voru þrettán og upp í
tuttugu og fimm ára gömul og þar
sem sest grugg í þau þarf að heha
yfir í karöflu svo vínin séu tær en
ekki gruggug.
Þess utan bjó ég til eggjaköku með
brytjuðum pylsum en börnin voru
nú ekkert allt of hrifin. Þau eru aldr-
ei ánægð með mat nema þegar farið
er á hamborgarastað með bíómynd
en þá geta þau horft á myndina og
sleppt því að borða hamborgarann.
Vínsmakkið átti að hefjast klukkan
níu heima hjá félaga mínum, Berki.
Við erum ellefu vinirnir saman í
klúbbi sem við köllum ítalska vín-
smökkunarklúbbinn vegna þess að
einn stofnandi klúbbsins hvarf til
Ítalíu stuttu eftir að hann var stofn-
aður. Við hittumst ahtaf einu sinni í
mánuði og þetta eru aht háþróaðir
gaurar. Sumir komu aðeins of seint
í smakkið því leikur íslendinga og
Rússa var í gangi. Þeir komu þó ekk-
ert aht of seint því þegar tíu mínútur
voru liðnar af síðari hálfleik sáu
menn nú hvað verða vildi. Þeir fóru
því af leiknum og komu í smakkið
sem reyndist svo gott að ef þeir hafa
verið leiðir yfir landsleiknum gerði
það miklu meira en að hugga þá.
Ég kom síðan heim um ehefuleytið
og náði að horfa á yfirlit heimsmeist-
arakeppninnar þannig að ég gat sph-
að yfir allt það sem ég hafði tekið upp
fyrr um daginn. Þetta var nokkuð
týpískur dagur hjá mér nema ég
kaupi kannski ekki svefnsófa á
hverjum degi.
Finnur þú fimm breytingar? 310
Ég hjúkraði honum þar til vængurinn var orðinn heill og svo
sleppti ég honum ...
Nafn:......................................................
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruðustu og áttundu
getraun reyndust vera:
1. Jórunn Isleifsdóttir 2. Hrönn Kristinsdóttir
Fjölnisvegi 15 Nónvöröu 12
101 Reykjavík 230 Keflavik
Myndimar tvaer virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er aö gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 simi, aö verðmæti kr.
4.950, frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Örvalsbækur. Bækumar, sem era í verð-
laun, heita: Iiki ofaukiö og Bláhjálmur,
úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, að verð-
mæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefhar út
af Frjálsrí fjölmiðlun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með iausninni;
Finnur þú fimm breytingar? 310
c/o DV, póstliólf 5380
125 Reykjavík