Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 45 Iþróttir Keflavík-IBV (1-0) 1-0 Islandsmótið 1. deild: Keflvíkingar skárri og unnu - gegn slökum Eyjamönnum 1-0 Marko Tanasic (27.) skoraði glæsi- legt mark með vinstri fæti af stuttu færi eftir fasta sendingu frá Kjartani Einars- syni úr aukaspymu. Lið Keflavikur: Ólafur Gottskálksson - Karl Finnbogason, Kristinn Guð- brandsson, Helgi Björgvinsson V, - Marko Tanasic, Hjálmar Hallgrimsson ;•■, Eysteinn Hauksson Ragnar Mar- geirsson (Unnar Sigurðsson 86.), Róbert Sigurðsson - Kjartan Einarsson (Sverrir Þór Sverrisson 72.), Óli Þór Magnússon (Guðmundur Oddsson 89.). Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson - Her- mann Hreiðarsson, Jón Bragi Amars- son Dragan Manolovic Friðrik Sæbjömsson - Rútur Snorrason, ívar Bjarklind (Bjamólfur Lárusson 46.), Ingi Sigurðsson, Steingrímur Jóhannesson (Kristján Georgsson 86.) - Tryggvi Guð- mundsson (Þórir Ólafsson 70.), Leifur Geir Hafsteinsson. Kcilavik: 7 markskot, 2 horn. IBV: 4 markskot, 5 horn. Gul spjöld: Róbert (Keflavík), Ragnar (Keflavík), Jón Bragi (ÍBV). Rautt spjald: Enginn Dómari: Sæmundur Víglundsson, ágætur. Áhorfendur: 604. Skilyrði: Mjög gott veður, nánast blankalogn, völlurinn sæmilegur. Maður leiksins: Helgi Björgvinsson, Keflavik. Var eins og klettur í vörninni og batt hana vel saman. Las leikinn vel, stöðvaði sóknir Eyjamanna með útsjónarsemi og fljótur aó koma bolt- anum í spil. Fram - Breiðablik (0-0) 1-0 1-0 Ríkharður Daðason (68.) Dæmd var aukaspyrna á Blika á miðjum vellin- um, um 25 m frá markinu. Ríkharður skaut fostu skoti framhjá vamarveggn- um, beint á Cardaklija, sem hélt ekki boltanum. Lið Fram: Birkir Kristinsson- Pét- ur Marteinsson (Nökkvi Sveinsson 46.), Kristján Jónsson, Gauti Laxdal, - Ágúst ólafsson, Atli Helgason, Valur F. Gísla- son, Steinar Guðgeirsson (Hólmsteinn Jónasson 78.), Ríkharður Daðason - Þorbjöm Sveinsson Atli Einarsson (Haukur Pálmason 90.) Lið Breiðabliks: Hajrudin Cardaklija - Kjartan Antonsson Gústaf Ómars- son, Ásgeir Halldórsson, - Úlfar Óttars- son (Amaldur Loftsson 78.), Willum Þór Þórsson, Amar Grétarsson, Gunnlaugur Einarsson (Guðmundur Guðmundsson 70.), Jón Stefánsson (Þórhallur Hinriks- son 74.), - Rastislav Lazorik, Anthony Karl Gregory Fram: 12 markskot, 5 hom. Breiðabliic: 12 markskot, 4 hom. Gul spjöld: Valur, Ágúst (Fram). Kjartan, Willum, Ásgeir (Breiðabliki). Rautt spjald: Enginn. Dómari: Gísli Guðmundsson. Var með betri mönnum á vellinum. Áhorfendur: Um 700. Skilyrði: Nokkuö svalt og Laugardals- völlurinn eins og eyðimörk. Maður leiksins: Ríkbarður Daðason Fram. Skoraði sigurmarkið i fyrsta sigri Fram í deildinni í sumar. Var ákveðinn og fylginn sér allan leikinn. Akranes ...4 4 0 0 8-1 12 KR ...4 3 0 1 1-4 9 Keflavík ...4 2 1 1 3-2 7 FH ...4 2 0 2 6-6 6 Breiðablik... ...4 2 0 2 5-6 6 ÍBV ...4 1 1 2 10-5 4 Fram ...4 1 1 2 2-7 4 Valur ...4 1 1 2 5-12 4 Leiftur ...4 1 0 3 7-7 3 Grindavík.... ...4 1 0 3 5-8 3 Markahæstir: Tryggvi Guðmundsson, ÍBV......4 Jón Þór Andrésson, Leiftri....3 Mihajlo Bibercic, KR..........3 Anthony K. Gregory, Breiðabl..2 ívar Bjarklind, IBV...........2 Ólafur Þórðarson, ÍA..........2 Páll Guðmundsson, Leiftri.....2 Rastislav Lazorik, Breiðabl...2 Sumarliði Ámason, ÍBV.........2 Milansaumaður Milan Jankovic, varnarmaður Grindvíkinga, var saumaður 7 sporum í ennið í fyrrakvöld. Jankovic meiddist illa í leik gegn KR-ingum í fyrrakvöld og var borinn blóðugur af leikvelli. Jankovic verður ekki með Grind- víkingum í bikarleiknum gegn Magna á sunnudag en ætti að verða orðinn góður fyrir næsta 1. deildar leik. Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Við lékum vel í fyrri hálileik en byrjuðum illa í þeim síöari og náðum ekki tökum á leiknum. Þetta voru sanngjörn úrslit en við áttum hættu- legri færi en þeir. Ég vona að þetta sé að koma hjá okkur en viö erum ekki nógu beittir í sóknarleiknum," sagði Ragnar Margeirsson, leikmað- ur Keflvíkinga, eftir að þeir höfðu sigrað Eyjamenn, 1-0, í gærkvöldi. Þar með skutust Keflvíkingar upp í 3. sæti deildarinnar. í heildina var leikurinn ekki mikið fyrir augað. Varnarleikur beggja liða var sterkur enda áttu sóknarmenn liðanna í miklum vandræðum að skapa sér marktækifæri. Markverð- irnir áttu flesta bolta sem komu inn í vítateiga liðanna. Keflvíkingar voru sterkari aðilinn í leiknum en Eyja- Völsungur og BI gerðu 1-1 jafntefli í 3. deild á Húsavík í gærkvöldi. Jó- hann Ásgeir Baldurssson skoraði fyrir Húsvíkinga úr vítaspyrnu snemma leiks en Rúnar Guðmunds- son jafnaði fyrir BÍ skömmu fyrir leikslok. Fjórir leikir fara fram í 3. deild í kvöld. Léttir vinnur enn í 4. deild vann Léttir lið Golfklúbbs Grindavíkur, 3-4, á útivelli. Guð- mundur Þórðarson gerði 2 mörk fyr- ir Létti og bræðurnir Pétur og Einar Georgssynir sitt markið hvor. Fyrir GG skoraði Bergur Hinriksson 2 mörk og Grétar Smith eitt. Grótta sigraði ÍH, 4-2. Kristinn Kjærnested og Guðjón Kristinsson skoruðu 2 mörk hvor fyrir Gróttu en mörk ÍH gerðu Arnfinnur Jónsson og Björgvin Jónsson. Víkverji og Framherjar gerðu 1-1 jaf'ntefli. Sævar Gunnleifsson gerði mark Víkverja en Sigmar Helgascn mark Framherja. Reynir vann Njarðvík, 3-2, í ná- grannaslagnum á Suðurnesjum. Jónas Jónasson, Arnar Óskarsson og sjálfur þjálfarinn, Guðmundur Hilmarsson, skoruðu mörk Reynis en fyrir Njarðvík skoruðu Sigurjón menn náðu ekki að skapa sér nein hættuleg færi. Höfuðverkur Keflvíkinga er sókn- arleikurinn en þegar Marko Tanasic var færður inn á miðjuna undir lokin kom meiri ógnun í leik liðsins. Hann er tvímælalaust sá maður sem á að stjórna spilinu hjá liðinu. Eyjahðið var mjög dapurt í leiknum og hin þekkta barátta þeirra var ekki til staðar. „Þetta var lélegt hjá okkur og gott fyrir Keflavík að leika illa og vinna. Það var alger doði yfir þessu hjá okkur. Við vorum seinir í öll návígi en þeir voru ekkert að gera neina hluti. Eini munurinn var að þeir hirtu boltana upp sem hrukku af okkar mönnum," sagði Friðrik Frið- riksson, markvörður og fyrirliði Eyjamanna, eftir leikinn. Sveinsson og Svanur Þorsteinsson. Reynismenn fengu 3 vítaspyrnur en misnotuðu tvær þeirra, Jón Eðvalds- son, markvörður Njarðvíkur, varði þá í bæði skiptin. Njarðvíkingar fengu einnig vítaspyrnu og nýttu hana. Hvöt vann Neista frá Hofsósi, 6-0. Mörkin skoruðu Hörður Guðbjörns- son 3, Helgi Arason, Gísli Gunnars- son og eitt var sjálfsmark. KS vann Magna, 2-4, á Grenivík. Hazedan Mitcha gerði mörk fyrir KS og Hafþór Kolbeinsson og Steingrím- ur Eiríksson eitt mark hvor en Stefán Gunnarsson og Þórarinn Guðnason skoruðu fyrir Magna. SM malaði Þrym, 9-0. Mörkin gerðu Donald Kelly 3, Arnar Krist- insson 2, Magnús Skarphéðinsson, Sævar Þorsteinsson, Eiríkur Odds- son og Sveinn Stefánsson. KBS vann Neista frá Djúpavogi, 5-2. Þorgeir Sigurðsson gerði 2 mörk fyrir KBS og þeir Sabudin Dervic og Bergþór Friðriksson sitt markið hvor en eitt markið var sjálfsmark. Mörk Neista skoruöu Ástþór Jóns- son og Andrés Skúlason. Leik Smástundar og Ökkla var frestað. -ÆMK/HK/MJ Norðmenn og Þjóðverjar mætast í úrslitum HM Það verða Norðmenn og Þjóðverjar sem mætast í úrslitum heimsmeist- arakeppni kvenna í Svíþjóö um helgina. í gær fóru fram undanúrslitaleik- irnir. Norðmenn sigruðu heimsmeistara Bandaríkjanna, 14), í mjög spennandi leik. Ann Kristin Aarones skoraöi sigurmark Norðmanna strax á 11. mínútu leiksins. Þjóðverjar unnu síðan Kínverja, 1-0, í gærkvöldi og gerði Bettina Wieg- mann sigurmark þýsku stúlknanna 11 mínútum fyrir leikslok. DRAUMAUÐIÐ - NAFN ÞÁTTTAKANDA FÉLAGASKIPTI NAFN LIÐS NÚMER LIÐS KAUPI LEIKMANN: NÚMFR NAFN VFRF) SEL LEIKMANN: NÚMER NAFN VERÐ SENT TIL: DV - ÍÞRÓTTADEILD/DRAUMALIÐ, ÞVERHuLTI 11 105 REYKJAVÍK íslandsmótið 3. og 4. deild: Jafnt á Húsavík Framararnir Valur Gíslason og Ríkharður Daðason gnæfa yfir Blikann Willum Þór Þórsson f baráttunni á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Framarar höfðu betur og sigruðu 1-0. Þetta var fyrsti sigur Framara í 1. deildinni í sumar. DV-mynd BG „Heppni - en inn fór hann“ - sagði Rikharður Daðason sem tryggði Fram sinn fyrsta sigur í sumar Bjöm Leósson skrifar: Draumalið DV Umfjöllun um stööuna í draumal- iðsleiknum eftir 4. umferð ís- landsmótsins í knattspyrnu verð- ur í næsta miðvikudagsblaði, 21. júní. Tvær umferðir saman „Ég reyndi að hafa aukaspyrnuna eins fasta og ég gat, því það er aldrei að vita hvar boltinn lendir ef maður hittir á markið. Ég hitti boltann vel og það má kannski segja að það hafi verið heppni aö hann fór inn en inn fór hann,“ sagði Ríkharöur Daðason sem tryggði Fram sinn fyrsta sigur í 1. deild- inni í knattspyrnu í gærkvöld, gegn lánlausum Blikum. Markið reyndist það eina í tilþrifalitl- um leik. „Þetta var langþráður sigur, það hlaut að koma að þessu hjá okkur því það hefur verið stígandi í leik okk- ar. Við vorum betra liðið alveg fram aö markinu en bökkuðum fullmikið eftir það. Nú er bara að byggja á þessum leik, það var loksins góö barátta og nú stefnum við upp á við,“ sagði Ríkharð- ur. Þaö var ekki mikið um dauðafæri í leiknum en þokkalegar rispur af og til héldu áhorfendum við efnið. Breiða- bliksmenn voru ósáttir við rangstöðu- dóm rétt fyrir leikhlé en þá skoraði Anthony Karl Gregory eftir slæm mis- tök Kristjáns Jónssonar, varnarmanns Fram. Blikar fengu nokkur færi til að gera löglegt mark en heilladísirnar voru ekki á þeirra bandi. Þá var mark- iö afar klaufalegt og skrifast algjörlega á reikning Cardaklija markvarðar. Anthoy Karl og Kjartan í vörninni voru bestu menn liðsins. Aðrir voru í meðal- mennskunni. Birkir Kristinsson, markvörður Fram, þurfti nokkrum sinnum að bjarga með úthlaupum og átti góðan leik. Þá var Ríkharður traustur. Þor- björn Sveinsson átti góðar rispur og gerði þá jafnan usla. Aðrir stóðu fyrir sínu en Kristján Jónsson virkaði þó óöruggur í vörninni. Framarar voru heppnir að ná í öll stigin þrjú, jafnteíli hefði verið sann- gjörn niðurstaða. Vegna þess hve stutt er á milli 5. og 6. umferðar 1. deildarinnar verða þær teknar í einni heild í draumaliðsleiknum. Félagaskipti fyrir þessar umferðir verða að berast fyrir miðvikudag, 21. júní, annars taka þau ekki gildi fyrr en að 6. umferöinni lokinni, 26. júní. Sama gildir um símaþjón- ustuna, 904-1500, niðurstöðutölur úr 5. og 6. umferð verða lesnar inn í heild að þeim loknum. Fyrstu verðlaunin Að 6. umferð lokinni er komið að fyrstu verðlaunaveitingunni í draumaleiknum. Þá verður „þjálfari mánaðarins" heiðraður, sá sem verður þá með flest stig, og hann hlýtur vöruúttekt frá Spörtu að verðmæti 15 þúsund krónur. Skýrt verður frá niður- stöðunum í máli og myndum í helgarblaði DV þann 1. júlí. Atvinnudeild í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn hafa loksins komið hington, Los Angeles, San Jose, Tampa Þá eru 15 bandarískir landsliðsmenn á fót atvinnudeild í knattspymu og nú og Columbus. Ellefta félagið, Chicago, búnir að semja við félög í MLS-deild- er hálfur tíundi mánuður þar til flautað fékk ekki inngöngu en verður með frá inni (Major League Soccer). Hvert félag verður til leiks en fyrsta umferðin verð- og með 1997. má hafa fimm erlenda leikmenn. ur leikin þann 31. mars á næsta ári. Ljóst er að sum félaganna hafa þegar Liðunum tíu verður skipt í tvo riðla Þetta er reyndar önnur tilraunin í yfir miklu íjármagni aö ráða. John og leikið á svipaðan hátt og í NBA- þessa átt, shk deild var til í nokkur ár Kluge, annar ríkasti maður Bandaríkj- deildinni i körfuknattleik, alls 32 leikir á áttunda áratugnum og gekk vel til aö anna, stendur á bak viö lið New York á lið. Tvö efstu liðin úr hvorum riðli byrja með en í ljós kom að hún stóð á og Denver, Columbus og Kansas City fara síðan í úrslitakeppni um meistara- brauðfótum og lognaðist út af. eruöllmeðgífurlegasterkabakhjarla. titilinn. Heimsmeistarakeppnin 1994 í Banda- ríkjunum kveikti áhugann á ný og nú Campos með samning Þrjár nýjar reglur hafa veriö stofnuö 10 félög sem byijuö við Los Angeies Þrjár nýjar leikreglur verða í gildi í eru að búa sig undir átökin á næsta Fyrsti erlendi leikmaðurinn hefur gert deildinni. Innspörk verða tekin i stað ári. Reyndar hafa engir þjálfarar verið samning við lið í deildinni. Jorge Cam- innkasta, varnarveggur verður 15 ráðnir enn en félögin eru byrjuð að pos, hinn litríki markvöröur frá Mex- metra frá boltanum í aukaspyrnum í þreifa fyrir sér um leikmenn. ikó, er kominn á þriggja ára samning stað 9 metra og leiktíminn verður 60 Liðin tíu verða frá Dallas, Denver, við Los Angeles en veröur í láni h)á mínútur í stað 90 en klukkan hins veg- Kansas City, New York, Boston, Was- mexíkósku félagi þar til deildin hefst. arstöðvuðþegarboltinnerekkiíleik. ísland lá íLamego - 2-1 tap gegn Portúgal í 25 stiga hita Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar: íslenska kvennalandshðið lék vin- áttuleik gegn Portúgal í gærkvöldi. Stúlkurnar okkar máttu sætta sig við tap, 2-1, í 25 gráða hita sem var í Lamego. Staðan í hálfleik var 2-0. Portúgalska hðið byijaði leikinn betur. Það var eins og íslenska liðið væri ekki tilbúið í leikinn og fékk það á sig tvö mörk í fyrri hálfleik. Allt annað var að sjá til liðsins í síð- ari hálfleik. Þá réð það lögum og lof- um á vehinum og átti m.a. skot í stöng, einnig björguðu portúgölsku stúlkurnar á marklínu. Guörún Sæ- mundsdóttir skoraði eina mark ís- lands á 63. mínútu með skoti beint úr aukaspyrnu. Guðlaug Jónsdóttir, Guðrún Sæ- mundsdóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir og Helga Ósk Hannesdóttir léku best í íslenska liðinu. „Við höfðum ekki séð þetta lið fyrr og fengum á okkur tvö klaufaleg mörk í fyrri hálfleiknum. Liðið var seint í gang og byijaði í raun ekki að spila fyrr en í seinni hálfleik. Stelpurnar voru ekki sjálfum sér lík- ar. Viö erum ekki í nægilega góðri spilaæfingu enda er tímabihö ný- byrjað. Það eru alhr staðráðnir í að gera betur í leiknum á laugardag og sá leikur leggst vel í mig,“ sagði Kristinn Björnsson þjálfari. Lentum í hitasjokki „Ég er ekki að afsaka neitt en við lentum í hitasjokki í fyrri hálfleik. Það var orðið mikið kaldara í seinni hálfleik og þá fórum við hka að spila betur. T.d. kom Sigga markmaður (Sigríður F. Pálsdóttir) aðeins þrisv- ar eða fjórum sinnum við boltann í hálfleiknum. En við ætlum að vinna á laugardaginn," sagöi Vanda Sigur- geirsdóttir fyrirliði og því til staðfest- ingar spurði hún íslenska liðið, sem ekki var langt undan, „hverjir vinna leikinn?" og „ísland" hljómaöi hátt og skýrt í símann. íslenska liðið var þannig skipað: Sigfríður Sophusdóttir (Sigríður Páls- dóttir 50. mín), Guörún Sæmundsdótt- ir, Vanda Sigurgeirsdóttir (Hjördís Símonardóttir 85.), Guðlaug Jónsdótt- ir, Auður Skúladóttir (Jónína Víg- lundsdóttir 50.), Ragna Lóa Stefáns- dóttir, Margrét Ólafsdóttir, Helga Ósk Hannesdóttir (Katrín Jónsdóttir 60.), Ásthildur Helgadóttir, Sigrún Óttars- dóttir og Olga Færseth (Ásgerður H. Ingibergsdóttir 70.). Dulic í Fram Júgóslavinn Josip Dulic gerði í gær tveggja ára samning við 1. deild- arlið Fram í knattspyrnu. Duhc hefur verið við æfingar hjá Fram í vikunni og eftir að hafa skoðað hann vel ákváöu forráðamenn Fram að semja við leikmanninn. Dulic mun fara til Júgóslavíu um helgina og ganga frá málum sínum við Spartak Subotia en þar hefur hann leikið undanfarin ár og verið fyrirliði liðsins. Dulic er miðjuleikmaður og að sögn kunnugra mjög öflugur og ætti að styrkja Framara í bar- áttu 1. deildar. Agúst Ólafsson og Steinar Guðgeirsson, leikmenn Fram, stöðva sókn Breiðabliksmanna í gærkvöldi. DV-mynd BG Bikarleikur á Eskifjarðarvelli KVA - ÍBV sunnudaginn 18. júní kl. 20 íþróttir EMkvenna: Heimaleikirn- iríhaust Nú er ljóst að heimaleikir ís- lands í Evrópukeppni kvenna- landsliða i knattspyrnu fara allir fram í haust en útileikirnir verða síðan alhr á næsta ári, Rússar koma hingað 17. sept- ember, Frakkar 30. september og loks Hollendingar þann 7. októb- er. íslenska Uðið leikur síöan í Frakklandi og Hollandi í júní- byrjun 1996 og lýkur ríðlakeppn- inni í Rússlandi í ágúst. Skemmtilegt verkefni „Það er best ef hægt er að raöa leikdögum þannig að ekki sé byij- að á heimaleikjum. En við erum að byrja okkar undirbúning og höfum góðan tíma fram á haust- iö. Ef við náum upp góöri stemn- ingu verður verkefnið skemmti- legt í hausL“ sagði Kristinn Björnsson, landsliösþjálfari kvenna. Þurfum aövinna „Það skiptir ekki svo miklu máli hvort við leikum heima eða heim- an fyrst. Það sem skiptir máli er að vinna ef við ætlum okkur áfram í keppninni," sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrirhði ís- lenska landshðsins. Fall er fararheill Þegar íslenska kvennalandsliöið var aö ganga til leikvallarins í Portúgal þá missteig Sigríöur Pálsdóttir sig svo að hún þurfti aðhlynningu á leiðinni. Kristinn Björnsson, þjálfari liðsins, sagði í samtali við DV að stúlkurnar hefðu tekið þetta sem svo að fall væri fararheill. Tveir í 2. deiid kvenna Tveir leikir voru í 2. deild kvenna á miðvikudag. KBS vann KVA, 3-2, og Höttur vann Neista, D, 5-0. Draumalið DV Allt sem þú þarft að vita um Draumalið DV í síma 904-1500 39.90 Mínútan '• Upplýsingar um stöðu þms Draumaliðs • Staða 30 efstu liðanna • Upplýsingar urn verð leinstakra leikmanna • Staðfesting á félagaskiptum Glæsileg verðlaun eru í boði fyrir bestu "Pjálfaranna" Stigahæsti "þjálfari" hvers mánaðar fær 15.000 kr. vöruúttekt frá sportvöruversliminni Sportu, Laugavegi 49. Stiga hæsti "þjálfari" sumarsins fær að launum utanlandsferö fyrir tvo með Samvinnuferðum-Landsýn á leik erlendis að verðmæti kr. 90.000 og vöruúttekt að verðmæti kr. 15.000 frá Útilífi, Glæsibæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.