Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 Dagur í lífl Margrétar Pálmadóttur kórstjóra: Á tónleikum með Diddú Margrét Pálmadóttir kórstjóri hefur endalaus verkefni og nú undirbýr hún sig á fullu fyrir sautjánda júní. DV-mynd Brynjar Gauti Ég var í ljúfum draumi einhvers staðar í ijarska þegar ég heyrði barnsgrát. Þaö tók mig dálitla stund að átta mig á því að hann tilheyrði mér. Ég teygði mig eftir litlu dótturinni, Matthildi, og skellti henni á brjóstið. Hafði reyndar ætlað mér að lúra svolítið lengur en þá kom sú fimm ára, Sig- ríður Sofila, og spurði hvort það væri ekki kominn dagur. Klukkan var orðin hálfátta og kominn tími fyrir morgunverkin. Ég skipti á þeirri litlu, greiddi, tannburstaði og klæddi. Eftir morgunmatinn, sem samanstóð af kornfleksi, ristuðu brauöi og kafíi, lögðum viö af stað niður í Kvenna- kórshús en þar biðu margvísleg verkefni. Til dæmis þurfti að und- irbúa dagskrána fyrir saufjánda júní og Landsmót íslenskra kvennakóra. Það voru tónleikar á dagskránni þetta kvöld. Bamakór Grensás- kirkju, sem ég hef stjórnað, ætlaði að halda upp á fimm ára afmæhð með sérstökum tónleikum í Sel- tjarnarneskirkju. Grensáskirkja hljómar ekki nógu vel og nýja kirkjan er ekki tilbúin og þess vegna fengum við Seltjarnarnes- kirkju lánaða. Ég átti enn eftir að finna nokkrar stelpur til að syngja með mér í beinni útsendingu Dæg- urmálaútvarpsins. Það tókst. Eg fór síðan með stelpumar mínar í pössun. Sú eldri, Sigga, var á leið í Listasmiðjuna en Matthildur, sem er fimm mánaða, fór til pabba síns. NæstmeðBjörk Fyrsta spurning Þorsteins hjá rás tvö til okkar var: „í fyrra sunguð þiö með Kristjáni á Ítalíu, nú syng- ið þið með Diddú í kvöld. Með hveijum ætlið þið næst að syngja?" Þær svöruðu því: „Með Björk“. Þetta eru ákveðnar stelpur. Ég var orðin mjög stressuð enda klukkan orðin korter í fimm og ég átti eftir að ljúka við gerð efnis- skrárinnar. Það er ekki mín sterk- asta hlið að pikka á tölvu. Ég sett- ist þó við fínu tölvuna okkar í Kvennakórshúsinu við Ægisgötu og formaður foreldrafélagsins hjálpaði mér síðan að ljósrita. Allt var á síðustu stundu en klukkan sex var þetta orðið klárt. Ég dreif mig heim, sem er nánast yfir götuna, skellti mér í bað, fór í kórskokkinn og flýtti mér út í kirkju. Eiginmaðurinn, Hafliði Arngrímsson, sá um að gefa böm- unum kvöldmat. Ég hafði engan tíma til að borða. Kórbörnin biðu eftir mér í ný- straujuðum kórbúningunum með glampa í augum sem ég fæ bara að sjá á slíkum hátíðarstundum. Það er uppskemhátíð. Síðan kom Diddú og bömin tíndu fram eitt og annað sem þau báðu hana um eig- inhandaráritun sína á. Hún er stjarna í þeirra augum. Hvergi í heiminum er hún eins elskuð og hjá íslenskum börnum. Kirkjan fylltist af fólki og söngurinn ómaði í tvo klukkutíma, Sofnaði í blómahafi Ég er viss um aö foreldrarnir fá trú á íslenskri æsku og börnin þakka guöi fyrir að hafa drifiö sig á æfingar alla laugardagsmorgna. Á eftir var boðið til veislu íhliðar- sal. Foreldrar höfðu bakað og út- búiö þetta líka fína veisluborð. Þegar ég kom heim var ég bæði þreytt og sæl. Ég var umvafin gjöf- um og sofnaði í heilu blómahafi upp úr miðnætti. Einhvers staðar í fjarska heyrist grátur... Ó, boy!!! Finnur þú fimm breytingar? 314 56J4 /VWl O O o o /WW /W-Wf O p p Mér sýnist þetta líka vera vitlaust en það tekur 38 menn fjögur ár aö fara yfir þetta. Nafn: Heimili:. Vinningshafar fyrir þrjú hundmðustu og tólftu get- raun reyndust vera: 1. Eirikur Nielsen 2. Halla Gunnlaugsdóttir Melgerði 11 Ekrusíðu 9 • 200 Kópavogi 603 Akureyri Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- aranna. 1. verðlaun: Zodiac Sigma 300 sími, aö verðmæti kr. 4.950, frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem era í verð- laun heita: Líki ofaukið og Blálijálmur, úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, aö verð- mæti kr. 1.790. Bækurnar era gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Vinningarnir verða sendir heim. Merkiö umslagið með iausninni: Finnur þú íimm breytingar? 314 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.