Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1995, Page 9
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995
9
Utlönd
Óflug bflsprengja
sprakk í Helsinki
- særði einn lögreglumann og olli verulegum skemmdum
Mjög öflug sprengja sprakk í mið-
borg Helsinki í Finnlandi laust eftir
miðnætti í nótt. Særði hún einn lög-
reglumann á hendi og olli verulegum
skemmdum á nálægum byggingum.
Lögregla telur víst að um bílsprengju
hafi verið að ræða þar sem mikið af
brotum úr bíl fannst í brakinu eftir
sprenginguna.
Sprengjan sprakk í bæjarhlutanum
Pasila þar sem margar stjórnsýslu-
stofnanir eru til húsa. Þykir mildi
að mjög fáir voru þá á ferli. Sprengj-
an virðist hafa verið í bíl sem skilinn
var eftir um 20 metra frá lögreglustöð
hverfisins. Hún skildi eftir sig all-
stóran gíg og verulegar skemmdir á
lögreglustöðinni. Kom gat kom á
vegg hennar auk þess sem töluverðar
skemmdir urðu nálægu dómshúsi.
Þá lá glersalli um allt nágrennið en
þrýstingurinn frá sprengingunni
braut rúður í fjölda húsa. Vitni segj-
ast hafa séð eldsúlu stíga til himins
og síðan mikinn reykjarmökk.
Enginn hefur lýst ábyrgð á tilræð-
inu á hendur sér. Tilræði sem þessi
eru afar sjaldgæf í Finnlandi. Síðast-
liðin ár hafa orðið fáein tilfelli þar
sem lögreglustöðvar úti á landi hafa
Sjómenn frá Cook-eyjum í Kyrrahafi dansa þjóðdansa og syngja við kom-
una til hafnarinnar i Papeete í gær. Skip þeirra verður eitt margra sem
halda til Mururoa-eyja á næstunni til að mótmæla fyrirhuguðum kjarnorku-
tilraunum Frakka þar. Símamynd Reuter
Harry Wu kominn heim:
Kínverjar reyna
að halda haus
Andófsmað-
urinn Harry
Wu, sem
hnepptur var í
fangelsi í Kína
19. júní . og
dæmdur var í
15 ára fangelsi
fyrir njósnir og
til brottvísunar úr landi í fyrradag,
kom heim til Bandaríkjanna í nótt.
Er álitið að Kínverjar hafi valiö að
visa Wu strax úr landi til að bjárga
andlitinu gagnvart umheiminum
fyrir kvennaráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, sem hefst í Bejing í næsta
mánuði, og til að ryðja hindrunum
úr vegi í viðræðum við Bandaríkja-
menn um bætt samband ríkjanna.
Diplpmatar segja að þó Kínverjar
hafi vísaö manninum, sem barist
hefur gegn illri meðferð þeirra á and-
ófsmönnum, úr landi þýði það engan
veginn að stjórnvöld í Bejing lini tök-
in á andófsmönnum. Hins vegar er
búist við að lausn Wus muni bæta
andrúmsloft viðræðnanna við
Bandaríkjamenn og að Hillary Clin-.
ton forsetafrú ákveði loks að sækja
kvennaráðstefnuna. Hafði hún ætlað
að hunsa hana vegna handtöku Wus.
Reuter
orðið fyrir minni háttar árásum ein-
staklinga þar sem sprengiefni hefur
meðal annars verið notað. En þetta
er í fyrsta skipti sem sprengjutilræði
á sér stað í höfuðborginni. Reuter
Skoríð niður í dönsku jöárlögunum:
Margrét Þórhildur
fær launahækkun
Danska ríkis-
stjórnin hefur
ákveðið aö
skera fjárlaga-
frumvarpiðfyr-
ir næsta ár nið-
ur um 40 millj-
arða íslenskra
króna. Tilgang-
urinn er að tryggja aukinn hagvöxt
án þess aö þenja flsibelginn of mik-
ið. Margrét Þórhildur drottning
fær þó launahækkun upp á 8 millj-
ónir króna. Á fjárlögunum er búist
við að laun hennar verði 423 millj-
ónir islenskar krónur í stað 415
milljóna í ár. í þeirri upphæð eru
einnig laun Henriks prins sem
nema 42 milljónum króna.
Aðrir meðlimir konungsfjöl-
skyldunnar munu síðan skipta með
sér 157 milljónum. Ritzau
SALA AÐGANGSKORTA
HEFST í DAG
KL. 13.00
Fimm sýningar á aðeins
7.200
Kr.
QTS1 Tvískinnmigsóperaii
Gamanleikrit með söngvum eftir Ágúst Guðmundsson.
íslenska maiían
eftir Kjartan Ragnarsson og Einar Kárason.
Hið Ijósa man
Ný leikgerð Bríetar Héðinsdóttur, unnin upp úr Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness.
Kvásarvalsinn
Nýtt leikrit eftir Jónas Árnason.
Kortagestir fá einnig afslátt á allar aðrar sýningar Leikfélagsins
og á sýningar íslenska dansflokksins í Borgarleikhúsinu.
Miðasalan er opin frá kl. 13:00-20:00 alla daga meðan á kortasölu stendur. Einnig
er tekið á móti pöntunum í síma 568 8000 frá kl. 10:00-12:00 alla virka daga.
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
Borgarleikhús - Listabraut 3
Sími: 568 8000 - bréfasími: 568 0383