Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1995, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1995, Blaðsíða 26
34 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995 Afmæli Björg Einarsdóttir Björg Einarsdóttir rithöfundur, Lækjargötu 4, Reykjavík, er sjötug ídag. Starfsferiil Björg er fædd í Hafnarfiröi og ólst þar upp til 1929 en þá á Akureyri til 1937 og búsett í Reykjavík frá þeim tima. Hún nam við Kvennaskólann í Reykjavík auk nokkurrar viðbót- armenntunar af ýmsum toga. Björg var við skrifstofustörf, með nokkrum hléum þó, seinast 1976-78 sem fulltrúi skólastjóra Þroska- þjálfaskóla íslands. Eftir það hefur hún starfað sjálfstætt að ritstörfum og útgáfumálum. 1984 stofnaði Björg ásamt fjórum öðrum konum útgáfu- félagið Bókrún hf. og gáfu þær ár- lega út nokkra titla rita er einkum snertu konur og hagi þeirra, auk annars efnis. Björg hefur tekið virkan þátt í fé- lagsstörfum og gegnt fjölmörgum trúnaöarstörfum. M.a starfaði hún í Rauðsokkuhreyfingunni 1971-74, í Kvenréttindafélagi íslands frá 1975 og var varaformaður 1976-80 og í stjóm Alþjóðasamtaka kvenrétt- indafélaga (IWA) 1976-79 og stýrði einni af fastanefndum þeirra 1979-81. Björg var einn flutnings- manna tillögu á kvennaársráð- stefnu i Reykjavík 1975 um kvenna- frí á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október það ár. Björg kom til starfa í Sjálfstæðisflokknum 1946 og var í stjórn Hvatar 1975-82, sem formað- ur 1978-81, og í miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins 1981-87. Hún sat um ára- bil í stjóm Blindrafélags íslands, í stjórn Menningarsjóðs útvarps- stöðva 1991-93 og í stjóm Þjóðhátíð- arsjóðsfrál994. Björg var sæmd hinni íslensku fálkaorðu 1988fyrirstörfaöjafn- réttismálum og ritstörf um málefni kvenna. Fjölskylda Björggiftist 18.8.1950 Harald Guð- mundssyni, f. 11.12.1921, rafverk- taka í Reykjavík. Foreldrar hans: Guömundur Sveinsson, f. 1886, d. Til hamingju með afmælið 25. ágúst 95 ára 75ára 1952, skipstjóri og síðar skipaskoð- unarmaður, og Ingibjörg Björns- dóttir, f. 1886, d. 1973, verslunarmað- ur og síðar húsfreyja í Reykjavík. Börn Bjargar og Haralds: Guð- mundur Ingi, f. 8.8.1951, jarðfræð- ingur og nú starfsmaður Reikni- stofu bankanna í Reykjavík, kvænt- ur Bjarnfríði Guðmundsdóttur, hjúkrunarfræðingi á Landspítalan- um, þau eiga þijú böm, Harald, f. 1978, menntaskólanema, Kristínu, f. 1983, og Björgu, f. 1987; Einar Hrafnkell, f. 26.7.1953, rafmagns- verkfræðingur og starfsmaður Orkustofnunar, kvæntur Amfríði Jónasdóttur, framkvæmdastjóra hjá Kistufelli hf., þau eiga einn son, Arngrím, f. 1981; María, f. 8.4.1957, leikskólakennari, starfsmaðurhjá Fífuborg, gift Ágústi Jóhannssyni, húsgagnasmið og starfsmanni Axis hf., þau eiga þijár dætur, Maríu, f. 1982, Ólaflu, f. 1982, og Önnu, f. 1987. Systkini Bjargar: Amkell Jónas, f. 15.10.1920, d. 1985, vegaeftirlits- maður hjá Vegagerð ríkisins; Askell, f. 3.7.1923, um skeið bæjar- stjóri á Húsavík en lengst af fram- kvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga á Akureyri; Ólafia, f. 28.7.1924, nam fornleifafræði á Eng- landi og síðar sagnfræði í Lundi í Sviþjóö og doktor í þeirri grein það- an, dósent við Kaupmannahafnar- háskóla í miðaldasögu; Hrafnkatla, f. 8.11.1927, d. 1982, fulltrúi í Lands- banka íslands; Þorkell, f. 30.9.1929, prófessor í lyijafræði lækna við Háskóla íslands, en kjörforeldrar hans eru Bergþóra Júlíusdóttir og Jóhannes Jónsspn, er var gjaldkeri Eimskipafélags íslands. Hálfsystk- ini Bjargar: Ragnheiður Þorkatla, f. 1904; Hrafnkell, f. 1905, d. 1927, hag- fræöinemi við háskólana í Kiel og Vínarborg; Þórheiöur; Súsanna. Uppeldisbróðir Bjargar: Guðjón ÞórirTómasson, f.8.12.1923, versl- unarmaöur og lengst af starfandi hjáíSAL. Foreldrar Bjargar: Einar Þorkels- son, f. 11.6.1867, d. 27.6.1945, skrif- stofustjóri Alþingis, og Ólafía Guð- Björg Einarsdóttir. mundsdóttir, f. 18.5.1889, d. 9.10. 1929, við umsjónarstörf í þinghús- inu og síðar húsfreyja þar og í Hafn- arfirði. Við lát móður sinnar fór Björg í fóstur til hjónanna Sigurjóns Oddssonar, f. 1888, d. 1937, fram- kvæmdastjóra viö Dráttarbraut Ak- ureyrar hf., og Maríu Elísabetar Jónsdóttur, f. 1887, d. 1971. Björg dvelur með fjölskyldu sinni á afmælisdaginn á bernskuslóðum sínum á Akureyri. Rúnar Óskarsson Friðbjörg Jónsdóttir, Framnesvegi 27, Reykjavík. 90 ára Björg E. Jónsdóttir húsmóðir, Álflamýri 16, Reykjavík. Húntekurá móti gestum iaugardaginn 26. ágúst í Fé- lagsheimili Kópavogs, Fannborg2, frá kl. 17-22. 85 ára Jón Hall Magnússon, Tjarnarbraut25, Hafnarfirði. 80 ára Ólafia Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrv. bóndi í Firði í Múlasveit, Austurvegi 5, Grindavík. Maöurhennar var Óskar Þórðarson, lát- inn, hrepp- stjóri. Kristíntekurá móti gestum í Átthagasall-Iót- el Sögu frá kl. Kerstin Tryggvason, Nökkvavogi26, Reykjavik. Gissur Guðmundsson, Háaleitisbraut 155, Reykjavík. Guðfinnur Ottósson, Brekkuholti, Stokkseyrarhreppi. Sveinbjörn Snæbjörnsson, Kirkjuvegí 66, Vestmannaeyjum. Bjargey Lilja Sigvaldadóttir, Fornhaga 19, Reykjavík. 60ára_______________ Kristján Óli Andrésson, Tungubakka 30, Reykjavík. Hjalti Páll Þorvarðarson, Nesbala 74, Seltjarnarnesi. Gísli Viglundsson, Æsufelli 6, Reykjavík. 50 ára Magnús Eiríksson, Logalandi 28, Reykjavík. Brynja Gestsdóttir, Holti, Eyja- og Miklaholtshreppi. 40 ára Ragnar Emil Sigurjónsson, Sæbólsbraut 24, Kópavogi. Hannes Valgarður Ólafsson, Leifsgötu 22, Reykjavik. Helgi ómar Þorsteinsson, Ósi 3, Skilmannahreppi. Guðbjörn Grétar Kristjánsson, Reynigrund ll.Kópavogi. Deborah Anne Ólafsson, Aðalgötu 20, Súgandafirði. Gullbrúðkaup Hjónin Baldur Halldórsson og Jóhanna Lárusdóttir, til heimilis að Hliðar- enda við Akureyri, eiga gullbrúðkaup í dag, föstudaginn 25. ágúst. Guðmundur Rúnar Óskarsson, hús- vörður i Grunnskólanum á Stokks- eyri, Eyrarbraut 7 (Sætún), Stokks- eyri, er fimmtugur í dag. Starfsferill Rúnar er fæddur í Reykjavík en ólst upp á Seltjarnarnesi. Hann gekk í Mýrarhúsaskóla, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og var einn vetur í Vélskóla Islands, 1962, og fékk rétt- indi sem vélstjóri, 1. stig. Rúnar lauk stúdentsprófi af viðskiptabraut Fjölbrautaskóla Suðurlands á Sel- fossi 1989. Hann tók reiki-heilun 1 1991 og var vígður reiki-meistari ári síðar. Rúnar útskrifaðist frá nudd- skóla Þórunnar 1992. Rúnar starfaði í eitt ár hjá Vestur- bæjar Radíói og annað hjá vara- hlutalager radíóverkstæðis Land- sima íslands. Hann stundaði sjó- mennsku, verkamannavinnu og vörubifreiöaakstur hjá Hraðfrysti- húsi Stokkseyrar hf. til 1980. Rúnar var vélgæslumaður 1980-88, sá um varahlutalager Rafha hf. í Hafnar- firði í eitt ár og líka eitt ár um vélar Alpan hf. á Eyrarbakka. Hann sá um varahlutalager KÁ á Selfossi í eitt ár og starfaði jafnlengi á bú- vöruvarahlutalager Jötuns. Rúnar hefur verið húsvörður Grunnskól- ans á Stokkseyri frá 1992. Rúnar bjó á Sunnuhvoli á Sel- tjarnarnesi 1945-61, í Reykjavík til 1969 og hefur verið búsettur á Stokkseyri frá þeim tíma. Fjölskylda Rúnar kvæntist 29.5.1970 Sigríði Guðmundsdóttur, f. 8.10.1950, versl- unarmanni. Foreldrar hennar: Guð- mundur Valdimarsson trésmiður og Sigríður Gísladóttir húsmóðir, Sæ- túni, Stokkseyri. Börn Rúnars og Sigríðar: Guð- mundur Guðmundsson, f. 14.1.1970, sjómaður; Hulda Ósk Guðmunds- dóttir, f. 10.4.1973, nemi. Systkini Rúnars: Sigrún Óskars- dóttir, f. 9.6.1931, búsett í Reykjavík; Sigurður Óskarsson, f. 19.7.1933, búsettur í Garðabæ; Herdís Óskars- dóttir, f. 18.6.1937, búsett á Seltjarn- arnesi, Sunnuhvoli 1; Eyþór Óskars- Guömundur Rúnar Óskarsson. son, f. 21.1.1949, búsettur í Reykja- vík. Foreldrar Rúnars: Eyþór Óskar Sigurðsson, f. 11.9.1906, d. 13.11. 1967, bakarameistari og Hulda Skúladóttir, f. 12.7.1907, d. 15.11. 1962, húsmóðir, þau bjuggu í Sunnu- hvoli á Seltjarnarnesi. Rúnar er staddur í Algarve í Portúgal. Aðalheiður D. Ólafsdóttir Aðalheiður Dagmar Ólafsdóttir húsfrú, Reynimel 58, Reykjavík, er áttræðídag. Fjölskylda Aðalheiður er fædd á Þverá, Núpsdal í Miðfiröi, Vestur-Húna- vatnssýslu, og ólst þar upp og síðar á Aðalbóli, sem er í sömu sveit. Hún var í Alþýðuskólanum í Reykholti 1932-34. Maður Aðalheiðar var Jónmund- ur Guðmundsson, f. 2.9.1915, d. 29.1. 1988, vélstjóri. Foreldrar hans: Guö- mundur Guðmundsson, sjómaður á Akranesi, og Kristín Jónsdóttir hús- freyja. Böm Aðalheiðar og Jónmundar: Jóhanna Kristín Jónmundsdóttir Ploder, f. 31.7.1937, skrifstofustjóri; Guðmundur Kristinn Jónmunds- son, f. 24.7.1939, læknir og sérfræð- ingur í bamalækningum og krabba- meinslækningum við Landspítal- ann; Fanný Jónmundsdóttir, f. 21.4. 1945, leiðbeinandi; Þórey Rut Jón- mundsdóttir, f. 22.12.1953, flug- freyja. Systkini Aöalheiðar: Gunnar Ól- afsson, f. 21.6.1911, fyrrverandi skólastjóri, kvæntur Ingibjörgu Magnúsdóttur, f. 6.6.1918; Halldóra Ólafsdóttir, f. 8.9.1912, húsmóðir og ekkja eftir Hannes Árnason, f. 27.4. 1907, d. 12.3.1990; Hrafnhildur Ólafs- dóttir, f. 23.8.1917, húsmóðir og ekkja eftir Guðjón V. Árnason, f. 10.5.1912, d. 25.6.1989; HerborgÓl- afsdóttir Haugen, f. 10.1.1919, hús- móðir, gift Nils Haugen, f. 21.2.1914; Björgvin Ólafsson, f. 16.6.1921, arki- tekt, kvæntur Halldóru Siguijóns- dóttur.f. 19.10.1922. Foreldrar Aðalheiðar voru Ólafur Halldórsson, f. 5.11.1882, d. 3.10. 1970, bóndi að Fremri-Þverá í Mið- firði 1912-21 en síðar verkamaður í Reykjavík, og kona hans, Jóhanna Margrét Halldprsdóttir, f. 21.11. 1882, d. 15.7.1921, húsfreyja. Ætt Halldór, faðir Ólafs, var lengst af Aðaiheiður Dagmar Ólafsdóttir. búsettur á Hvammstanga en Jó- hanna Margrét var dóttir Halldórs Einarssonar, b. á Kárastöðum í Þingvallasveit, og konu hans, Jó- hönnu Magnúsdóttur. Aöalheiður verður með heitt á könnunni í Skipholti 50a frá kl. 15-18 laugardaginn 26. ágúst. LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA VALDA ÞÉR SKAÐA!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.