Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1995, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1995, Side 24
32 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995 Sviðsljós___________________ dv Leikstjórinn Quentin Tarantino nýtur frægðarljómans en er umdeildur: Líkar ofbeldi í bíó Quentin Tarantino hefur skotiö upp á stjörnuhimininn með meiri látum og hraöa en dæmi eru um. Einungis einn leikstjóri er tahnn hafa fengið jafnmikið út úr jafnfáum myndum, Orson heitinn Welles. Tarantino er aðeins rúmlega þrítugur og hefur þegar getið sér gott orð fyrir myndir eins og Reservoir Dogs og Pulp Ficti- on. Ofbeldi er snar þáttur í öllu sem Tarantino tekur sér fyrir hendur og hefur komið honum á stall sem átrúnaðargoð ungra bíógesta. Um ofbeldið segir Tarantino: „Ofbeldi er ein hræðilegasta hliöin á Bandaríkj- unum í dag. En í kvikmyndum er ofbeldi svalt. Mér likar það.“ Tarantino var beinlínis fæddur inn í kvikmyndir. Ungur sat hann sem límdur við sjónvarpið og hfði á ham- borgurum og pulsum. Hann sá brátt að eina leiðin til að læra kvikmyndun var að horfa á nógu margar myndir. Glápið jókst því mjög þegar hann keyptir sér myndbandstæki og enn meir þegar hann hóf að starfa á myndbandaleigu. Sjö ára fór hann með móður sinni á umdeildar mynd- ir eins og „Camal Knowledge" og „Deliverence". Tarantino hefur verið sakaður um að stela óspart frá öðrum leikstjór- um. Hann kippir sér ekki upp við slíka gagnrýni, segir það frekar heið- ur fyrir hina leikstjórana. Þeir sem þekkja hann segja að þegar Tarant- ino vísi í raunveruleikann í kvik- myndum sé það ekki sá raunveru- leiki sem flestir þekkja heldur raun- veraleiki kvikmyndanna. Þær séu hans raunveruleiki og því þurfi eng- an að undra þó aðrir leikstjórar móðgist af og til. Krzysztof Kieslowski. Kieslowski fékk hjartaáfall Hinn frægi pólski leikstjóri Krzysztof Kieslowski fékk nýlega hjartaáfah og var lagður inn á sjúkrahús í bænum Szczytno í Pólandi. Kiesiowski, sem meðal annars leikstýrði myndunum Blár, Hvít- ur og Rauður, sem nutu mikhla vinsælda á íslandi, er núna úr ahri lífshættu. Það er stutt síðan Kieslowski lýsti því yfir að hann væri hættur kvikmyndagerð en þess má geta að Rauður, seinasta mynd hans, var thnefhd til óskarsverðlauna á þessu ári ári en vann ekkl Myndir Kieslowskis fengu hins vegar margar fjölda verölauna í Evrópu. Til dæmis fékk myndin Blár Guhna ljónið í Feneyjum og Hvítur fékk verölaun í Berlin. Quentin Tarantino, t.h., leikur í nýrri mynd, Desperado, sem frumsýnd var vestra í vikunni. Hér er hann með meðleikurum sinum, Antonio Banderas og Sölmu Hayek. Simamynd Reuter ÍSLENSKILISTINN ERBIRTUR Í DV Á HVERJUM LAUCARDEGIOC Á SUNNUDÖCUM KL 14 ER USTINN FRUMFLUTTUR Á BYLCJUNNI. BYLCJAN ENDURFLYTUR LIST- ANN A MÁNUDAGSKVÖLDUM MILU KL 20 OG 23. Kynnir: Jón Axel Ólafsson ISLENSKI LISTINN ER SAMVINNUVERKEFNI BYLGJUNNAR. OV OG COCA-COLA A ISLANOI. LISTINN ER NIOURSTADA SKOOANAKÖNNUNAR SEM ER FRAMKVÆMD AF MARKADSDEILD DV I HVERRI VIKU. FJOLDI SVARENOA ER A BILINU 300 -400 A ALORINUM 14-35 ARA AF OLLU LANOINU. JAFN- FRAMT ER TEKID MIO AF SPILIUN REIRRA A ISLENSKUM UTVARPSSTODVUM. ISLENSKI LISTINN BIRTIST A HVERJUM LAUGARDEGI I DV OG ER FRUMFLUTTUR A BYLGJUNNI KL. 14 A SUNNUOOGUM I SUMAR. LISTINN ER BIRTUR AD HLUTA I TEXTAVARPI MTV SJONVARPSSTODVARINNAR. ISLENSKI LISTINN TEKUR PATT I VALI ..WORLO CART’ SEM FRAMLEIDOUR ER AF RAOIO EXPRESS I LOS ANGELES. EINNIG HEFUR HANN AHRIF A EVROPULISTANN SEM BIRTUR ER I TONLISTARBLAOINU MUSIC A MEDIA SEM ER REKIÐ AF BANDARISKA TONLISTARBLADINU BILLBOARD. Eiizabeth Berkley, sem leikur i kvikmyndinni Showgirls, sem fjallar um dansmeyjar i spilaborginni Las Vegas og væntanleg er á næstunni, kemur hér til frumsýningar hryllingsmyndarinnar Lord of lllusions sem fram fór i Hollywood á miðvikudagskvöld. Símamynd Reuter i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.