Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1995, Page 32
SIMATORG DV 904 1700
FRÉTTASKOTIÐ
BLAÐAAFG REIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
562*2525
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokaö
Mánudaga: 6-20
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í slma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö I DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar
nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563*2700
Þriöjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAUGARDAGS- 0G MÁNUDAGSMORGNA
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995.
Gæsluvarðhald
vegna andláts
Karlmaöur um flmmtugt hefur ver-
úrskurðaður í hálfs mánaðar
gæsluvarðhald aö kröfu Rannsóknar-
lögregunnar á Akureyri. Úrskuröur-
inn var kveðinn upp sl. mánudag eft-
ir aö maöur á svipuöum aldri fannst
látinn á heimih sínu á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum DV vöktu
áverkar á hinum látna efasemdir um
að andlátið hefði orsakast af eðlileg-
um orsökum. Telja má líklegt að
manninum sem er í gæsluvarðhaldi
verði sleppt í dag eða um helgina en
„rannsókn hefur gengið honurn í
hag“, eins og heimildarmaður blaðs-
ins orðaöi það. -pp
Leitaðtilættingja
^ „Öll þjónusta dregst saman en
heimilisfólkið verður í húsinu. Við
lokum mötuneyti starfsmanna en
ætlumst til að heimilisfólk fái að
borða. Viö leitum til ættingja með
einkaþvott og höfum óskaö eftir að-
stoð bréflega. Ættingjar eru farnir
að bjóða sig fram og svo ætlum við
að hringja til þeirra í dag eöa á morg-
un,“ segir Erla Helgadóttir, hjúkrun-
arforstjóri á Sólvangi.
Ófaglærðar konur á heilbrigðis-
stofnunum í Hafnarfirði leggja niður
Ág^innu á miönætti í nótt ef ekki næst
samkomulag við samninganefnd rík-
isins í dag. Guðríður Elíasdóttir,
formaður Framtíðarinnar, telur all-
ar líkur á verkfalli. Framtíðarkonur
eru ekki skyldugar til að veita und-
anþágur. -GHS
Atlantic Princess
íhöfnáný
Togarinn Atlantic Princess, sem
fór.nýlega til veiða eftir langa legu í
Hafnarfjarðarhöfn, kom til hafnar á
ný í morgun. Samkvæmt upplýsing-
um hafnarvarða hafði „flottroll eitt-
hvað klúðrast" þegar skipið var kom-
á veiðisvæði suður á Reykjanes-
hrygg. Stefnt var að því að skipið
færi aftur til veiða innan sólar-
hrings. -Ótt
Hesturfékktuggu
en knapi gistingu
Lögreglan á Selfossi handtók í gær-
kvöld hestamann þar í bæ. Hesta-
maöurinn hafði brugðið sér á öldur-
hús í bænum og fengið sér hestaskál
en skilið hrossið eftir bundið á bíla-
stæöi fyrir utan öldurhúsið. Lög-
reglu þótti meðferðin á hrossinu ótil-
hlýðileg og tók knapa og hross í sína
vörslu. Knapinn góðglaði, sem ekki
-vdldi verða við tilmælum lögreglu,
fékk gistingu í fangageymslu en
hrossiötuggu. -pp
LOKI
Vantar nú stöðumæla bæði
fyrir hross og togara?
Norðmenn veittu „íslensku“ hentifánaskipi aðstoð:
Verðum líklega að
flagga skipinu út
- segir skipstjórinn á Hrafni - getur siglt til íslands, segir norski utanríkisráðherrann
„Norðmenn virðast afgreiða alla
aðra en íslendinga. Það kom ís-
lenskt hentifánaskip inn til Honn-
ingsvág og fékk umsvifalaust af-
greiðslu. Þetta skip átti viö sömu
bilun að stríða og við, bilaða for-
þjöppu. Ætli við verðum ekki að
flagga skipinu út til að þeir fáist tii
að aðstoða okkur," sagði Hilmar
Helgason, skipstjóri á Hrafni
Sveinbjarnarsyni GK, í samtali viö
DV skömmu áður en blaðiö fór i
prentun í morgun. Hann vitnar
þarna til þess að litháski togarinn
Anyksciai, sem er í útgerð is-
lenskra aöila frá Þorlákshöfh, fékk
alla þjónustu í Noregi og sigldi óá-
reittur tii hafnar þar.
Hrafn Sveinbjarnarson beið þá
átekta um 9 sjómílur norður af
Nord Kap með bilaða forþjöppu.
Norsk stjómvöld neita að heimila
aðstoð við skipið sem er nánast
vélarvana.
„Við teljum okkur ekki þurfa að
lýsa yfir neinu neyðarástandi til
að fá að fara þarna inn. Norsk
stjórnvöld eru með þessu að bijóta
á okkur alþjóðalög. Versni hér veö-
ur þannig að skipið verði stjórn-
laust þá lýsi ég yfir neyöarástandi
og kaUa varðskipið Óðin til aðstoð-
ar,“ segir Hilmar.
Björn Tore Godal utanríkisráð-
herra Noregs, sagði í samtali við
DV í morgun að ekki væri um að
ræða neyð hjá togaranum og því
ekki ástæða tíl að veita honum að-
stoð.
„Samkvæmt minum upplýsing-
úm er engin neyð um borð i skipinu
og skipstjórinn hefur heldur ekki
beðið um að leita neyðarhafnar.
Það virðist líka vera svo að skipið
geti siglt á meiri ferð en skipstjór-
inn gaf upp 1 fyrstu. í það mínnsta
tók ferðin úr Smugunni til Noregs
ekki langan tíma. Togarinn getur
því augljóslega siglt heim fyrir eig-
in vélarafli." sagöi Bjöm Tore
Godal.
Hann sagðist taka mótmælum frá
íslandi með jafnaðargeði, likt og
þegar Másmálið stóð yfir. Reglum-
ar um að aðstoða ekki skip sem
veiddu i Smugunni væra skýrar
og þeim yrði fyigt.
„Norsk stjórnvöld hafa svarað
því skýrt og skorinort að skipið fái
ekki að ieita hafnar nema um
neyðarástand sé að ræða og það er
á vaidi skipstjórans að meta það.
Það er engin stefnubreyting hjá
Norðmönnum í þessum málum og
málin fóra í mikla hörku varðandi
togarann Má á sínum tíma og við
ákváðum að leita réttar okkar fyrir
EFTA-dómstólnum og það mál er í
undirbúningi," segir Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra.
-rt/GK
Steypubíll valt á hliðina i Grafarvogi í gærmorgun. Verið var að bakka bilnum við húsgrunn þegar bakki grunnsins
iét undan. Engan mann sakaði en steypan flæddi upp úr bílnum og tók tíma að koma honum á réttan kjöl.
DV-mynd Sveinn
Sjómenn hóta aðgeröum:
sem aðstoða
togarann
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Þeir munu sjá eftir sínum verkum
sem aðstoða íslenska togarann. Viö
erum hér að berjast fyrir sjálfri lífs-
björg okkar og munum beita öllum-
ráðum tíl að refsa þeim sem beint eða
óbeint hjálpa íslendingum við veiði-
þjófnaðinn í Smugunni," sagöi Kaare
Johannsen, formaður sjómannasam-
takanna í Hammerfest, í samtali við
DV í morgun.
Sjómenn í Hammerfest hafa ákveð-
iö að hundsa öll fyrirtæki sem koma
nærri viðgerðum á vél togarans
Hrafns Sveinbjarnarsonar fái skipið
heimild stjórnvalda til að leita hafnar
í bænum. í morgun var togarinn
kominn að norsku 12 mílna mörkun-
um og biðu skipverjar átekta.
„Ef stjórnvöld gefast upp í þessu
máh eins og í máli togarans Más er-
um við neyddir til að grípa til að-
gerða sjálfir," sagði Kaare.
Veðrið á morgun:
Skúrir eða
rigning
Á morgun er gert ráð fyrir
breytilegri átt, golu eða kalda.
Allra vestast verður nærri sam-
felld rigning en smáskúrir ann-
ars staöar, einkum síðdegis. Hití
veröur á bilinu 7 til 12 stíg.
Veðrið 1 dag er á bls. 36
XWREVFffi/
4 - 8 farþega og hj
588 5522
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
4