Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1995, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1995, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 Fréttir Endurbætur á þjónustuhúsinu á Bessastöðum: Vínkjallari með harð- viðarinnréttingu - ekki allt af einföldustu gerð - segir formaður Bessastaðanefndar „Það er rétt, þetta er ekki allt af einíoldustu gerð. Það verður hins vegar hver að dæma fyrir sig um hvað er íburður og hvað vandaður frágangur," segir Helgi Bergs, fyrr- verandi bankastjóri og nú formaður Bessastaðanefndar, í samtali við DV. Bessastaöanefnd annast allar framkvæmdir við forsetasetrið á Bessastöðum en eins og komið hefur Bannað að mynda vín- kjallara á Bessastöðum „Mér fnmst það ósmekklegt að draga umræöur um vín inn í málefni forseta íslands. Þess vegna er ekki leyft að mynda vin- kiallarann á Bessastöðum,“ segir Sveinn Björnsson forsetaritari í samtali við DV. í heimsókn DV til Bessastaða ' var heimilað að mynda endur- bætur á húsum þar að undan- teknum nýjum vínkjallara í þjón- ustuhúsinu. Vinkjallarinn er ekki stór en búinn harðviðarinn- réttingum og allur hinn glæsileg- asti. „Þaö er ástæðulaust að smjatta á víni í þessu sambandi," sagöi Sveinn. -GK Fæðingarheimiliö: Borgarráð hót- arendurskoðun leigusamnings Borgarráð heiur samþykkt ályktun. þar sem harmað er að stjórn Ríkisspítalanna skuli hafa lokaö Fæöingarheimili Reykja- víkur en rekstur þess hefur legiö niöri um nokkurt skeið. Skorar ráðið á heilbrigðisráöherra og þingmenn Reykjavíkur að tryggja fé til reksturs Fæðingarheimilis- ins á næsta ári. Verði það ekki gert hftótí leigusamningur um af- not Rikisspítaianna af húsnæði Fæðingarheimilis Reykiavikur að koma til endurskoöunar. í ályktun borgarráðs er minnt á að undirritaöur hafi verið ieigu- samningur milli borgarstjórans í Reykjavik og stjórnarnefndar Rikisspitalanna vorið 1994 um rekstur fæðingarheimilis í fast- eignum borgarinnar aö Þorfinns- götu 14 og 16 og Eiríksgötu 37 í tíu ár. Leiga sé ekki greidd en í samningnum séu fortakslaus ákvæði um að leigutaki, þaö er stjórnarnefnd Ríkisspítalanna, reki Fæöingarheimiliö þann tíma sem samningurinn gildir. -GHS Annafjár* reiðustjóri Borgarráö hefur samþykkt samhljóöa að ráða Önnu Skúla- dóttur viðskiptafræðing í stöðu fjárreiðustjóra Reykjavíkurborg- ar og tekur hún til starfa innan tíðar. Fjórtán sóttu um stöðu fjár- reiðustjóra. -GHS fram í DV er kostnaður við endur- bætur og nýbyggingar þar áætlaður um einn milljarður króna þegar að verklokum kemur árið 1998. Þegar er búið að framkvæma fyrir ríflega 700 milljónir króna frá árinu 1989. Þjónustuhúsið við forsetasetriö hefur nú verið endurbyggt frá grunni og hvergi til sparað. DV fékk aö skoða húsakynnin í gær. Gert hefur „Ég hugsa að um þrjú þúsund manns hafi sótt dagskrá Bókmennta- hátíðarinnar og við erum mjög ánægð með hvernig til tókst,“ sagði Sigþrúður Gunnarsdóttir, starfs- maður Bókmenntahátíðarinnar 1995, en henni lauk um hðna helgi. Sigþrúður segir upplestrarkvöldin „Sveitarstjórnin tekur á miðviku- dagskvöld fyrir erindi Orions, hluta- félagsins sem sótt hefur um leyfi til efnistöku í landi Næfurholts við bakka Rangár. Málið er til umsagnar hjá náttúruverndamefnd Rangár- 'Vallasýslu og nefndin, ásamt ábúend- um í Næfurholti og forsvarsmönnum Orions, er í vettvangsskoðun í dag. Ég vonast eftir umsögn nefndarinnar fyrir fundinn þar sem ákvörðun um umsóknina verður tekin,“ sagði Guð- mundur Ingi Gunnlaugsson, sveitar- stjóri Rangárvallahrepps, í samtali við DV í gær. Hlutafélagið Orion hefur komist að samkomulagi við bóndann í Næfur- veriö fullkomið veislueldhús ásamt aðstöðu fyrir þjónustufólk, geymsl- um og forláta vínkjallara með harð- viðarinnréttingum. Sjálft húsið hefur verið endurbyggt frá grunni, auk þess sem verið er að byggjanýjan bústað fyrir forsetann. „Eg er þeirrar skoðunar að búa eigi veglega að forsetanum en það geta aðrir haft aðra skoðun á því,“ standa upp úr þvi Þjóðleikhúskjall- arinn hafi verið troðfullur öll skiptin. Aðsóknin hafi þó verið jöfn allan tím- ann og sumir dagskrárhðir hafi al- gerlega sprengt utan af sér það hús- næði sem þeim hafi verið ætlað. Sem dæmi um það nefndi Sigþrúður fyrir- lestur Tashmu Nasrin sem hefði ver- holti um vikurtöku úr landinu en máhð er í skoðun hjá sveitarstjórn. Samkvæmt heimildum DV er Ori- on gamalt hlutafélag, eitt þeirra sem leituðu eftir vatnsréttindum í Þjórsá á árum áður, og eigendur þess eru þeir sömu og eiga Steypustöðina hf. Þeir munu hafa endurvakið félagið til þess að standa að vikumáminu við Rangá. Byggja þarf brú til bráða- birgða yfir ána og hyggjast Orion- menn byggja hana úr brotajámi og nota til þess ker frá ísal sem undir- stöður. „Hreppsnefndin er eingöngu að fjalla um tilraunina sem shka og til þess aö hún sé framkvæmanleg skilst sagði Helgi, aöspurður hvort ekki væri of mikið að gert. Hann sagði þó að kostnaður hefði farið nokkuð úr böndunum vegna þess að húsin hefðu verið verr farin en haldið var í fyrstu og að kostnað- ur við fornleifarannsóknir hefði einnig reynst meiri en áætlað var. -GK ið geysilega vel sóttur. „Þetta er í fjórða skiptið sem hátíð- in er haldin og af aðsókninni að merkja er óhætt að segja að bókin haldi velli. Við miðuðum við að fá hinn almenna borgara til þess að taka þátt að þessu sinni og það tókst," sagði Sigþrúður. mér að reisa þurfi brú. Náman er á sömu slóðum og menn hafa verið að taka vikur og þótt eflaust megi halda því fram að hún sé á nokkuð áber- andi staö við ána sé ég ekki að hún hafi neitt slíkt jarðrask í för með sér aö hætta sá á að land spilhst vem- lega. Þama er bara vikur og sandur og enginn gróður," sagði Guðmund- ur Ingi. Hann sagði að ef af tilrauninni yrði myndi umhverfismat verða gert að reynslutímanum loknum. Sveinn Valfells, forstjóri Steypu- stöðvarinnar, vildi ekkert um máhð segja þegar haft var samband við hannígær. -sv William Styron og Ólafur Jóhann Ólafsson komu fram saman á Bókmenntahátíöinni sem lauk um liöna helgi. DV-mynd TJ Bókmenntahátíðin 1995 gekk vel: Þrjú þúsund sóttu hátíðina Vikurtaka 1 landi Næfurholts við Rangá: Einungis rætt um bráðabirgðaleyfi Stuttarfréttir Skiptum í þrotabúi Sölusam- taka íslenskra matjurtaframleið- enda er lokið. Aö sögn Viðskipta- blaðsins nema kröfumar 98millj- ónum króna en upp I þær greíð- ast einungis 8,5 mihjónir. Hagstofan hefur gert tölvufyr- irtækinu Streng hf. aö breyta uppsetningu upplýsingafoiTits á Intemetinu, m.a. vegna þess að þar hafi verið samkeyrðar tölvu- skrár roeð persóulegum upplýs- ingum án heimildar. Stöð tvö greindi frá þessu. Deila á viðkvæmu stigi Hjúkrunarfræðingar á skurö- og svæfingadeildum stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík hóta að ganga út 1. okt. veröi vakta- kerfi þeirra breytt. RÚV segir deiluna nú á viðkvæmu stigi. Reykjavíkurborg hefur ákveðiö að byggja 50 metra langa inni- sundlaug Aö sögn RÚV stendur vahð á milh þess að byggja nýja laug i Grafarvogi eða bygga viö Laugardalslaugina. Fleiri sjaldþrot Gjaldþrotaúrskurðir einstakl- inga í Héraðsdómi Reykjavíkur hafa meira en íjórfaldast á 2 árum. Samkvæmt upplýsingum Timans urðu yfir þúsund Reyk- víkingar gjaldþrota árin 1994 til 1995. RiðuveikiíVatnsda! Riðuveiki hefur í annað sinn á 7 árum greinst á bænum Ási í Vatnsdal í A-Húnavatnssýslu. Féinu verður slátrað en á bænum eru 623 kindur og á 11. hundrað lömb. Mbl. greindi frá þessu. SOþúsundiiðgjöld Hver íslendingur greiðir um 50 þúsund krónur i iðgjöld til trygg- ingafélaganna á ári. Viðskipta- blaðið greindi frá þessu. Milljarður í útienda skó íslendingar fluttu skó inn í landiö fyrir um milljarð króna. Viðskiptablaðiö segir þetta jafn- gilda því að hver iandsmaður hafi eignast um 3 kg af útlendum skóm á 3.800 krónur. Hafbeitarstöðin Kleifar krefur Vátryggingafélagið Skandía um hundrað milljónir króna vegna tjóns sem fyrirtækið varð fyrir í óveðri árið 1992. Skv. upplýsing- um Stöðvar tvö er deilt um trygg- ingar stöðvarinnar. Fækkun á VestfJðrðum Nær 200 manns hafa flust bú- ferlum frá norðanverðum Vest- ftörðum umfram aðfluttaþað sem af er þessu ári. Mbl. greindi frá þessu. Útflutningur grasköggla hefur skipt sköpum fyrir Fóðuriðjuna í Saurbæ í Dölum. Að sögn Stöðvar tvö var þriðjungur ársframleiðsl- unnar nýlega sendur með skipi til Grænlands. Smalamennska á íslandi er miklu skemmtílegri heldur en rekstur kúa í Bandaríkjunum. Sjónvarpið haföi þetta eftir bandarískum indíána. Kínversk viðskiptanefnd Von er á viðskiptasendinefnd irá Kina dagana 25. til 27. sept. næstkomandi. Alls koma 23 aðil- ar frá 13 fyrirtækjum í Kína sem hafa í hyggju aö kynna sér ís- lenska markaöinn með tilliti til innflutnings og útflutnings. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.