Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1995, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995
37
I>V
Gunnar Gunnarsson er einn
þeirra sem segja sögu í kvöld.
Sögukvöld-
í Kaffiieik-
húsinu
í kvöld verður í Kaffileikhús-
inu I Hlaðvarpanum sögukvöld
en dagskrá þessi er samstarfs-
verkefni Rithöfundasambands
íslands og Kaffileikhússins og er
tilgangurinn að fá fólk úr öllum
áttum til þess að koma saman,
Atburðir
hlýða á góðar sögur og rækta
um leið þá sagnahefð sem býr
með þjóðinni. Sögukvöld verða
annan hvern miðvikudag í vet-
ur.
Sögumenn kvöldsins eru
Gunnar Gunnarsson rithöfund-
ur, Halldóra Geirharðsdóttir
leikkona, Hildur Finnsdóttir
prófarkalesari og Sigurður Val-
geirsson ritstjóri.
Fram-
kvæmd
Gatt-
samnings
ins
Ungir jafn-
aðarmenn
boða til fund-
ar umfram-
kvæmd Gatt-
samningsins í
Ingólfscafé í
kvöld kl.
20.30. Frum-
mælend ur
eru Jón Baldvin Hannibalsson
og Árni M. Mathiesen.
Kynningarfundur
Málfreyja
Málfreyjur á íslandi halda
kynningarfund í Iðnskólanum i
kvöld kl. 20.00. Gengið inn um
aðaldyr.
ITC deildin Björkin
Fundur verður í kvöld kl.
20.30 að Sigtúni 9. Gestur fundar
er Unnur Arngrímsdóttir.
ITC Fífa
ITC Fífa í Kópavogi heldur
kynningarfund að Digranesvegi
12 í kvöld kl. 20.15. Fundurinn
öllum opinn.
Samkomur
ITC Korpa
ITC Korpa í Mosfellsbæ held-
ur fund í kvöld kl. 20.00 í safn-
aðarheimili Lágafellssóknar,
Þverholti.
Afmælisganga Hafnar-
gönguhópsins
í tiíefni þriggja ára afmælis
hópsins verður slegiö á léttari
strengi hjá Hafnargönguhópn-
um. Mæting er við Miðbakka-
tjaldið kl. 20.00. Eftir göngu
verður boðið upp á afmæliskaffi
í Miðbakkatjaldinu.
Gaukur á Stöng:
Hress tónlist frá Sól Dögg
Gaukur á Stöng býður
upp á lifandi tónlist í kvöld
eins og önnur kvöld og nú
er komið að hljómsveitinni
Sól Dögg sem leikur í kvöld
og annað kvöld. Sól Dögg
leikur hressa tónlist og má
þar nefna disco, funk, rokk
og aðra tónlist sem er
dansvæn. Sól Dökk gerði
víðreist um landið í sumar
og lék við mikla hrifhingu í
Skemmtanir
mörgum samkomhúsum.
Meðlimir hljómsveitar-
innar eru: Bergsveinn Arel-
íusson, söngur, Ásgeir Ás-
geirsson, gítar, Baldwin
A.B. Aalen, trommur, Eið-
ur Alfreðsson, bassi, og
Stefán H. Henrýsson,
hljómborð.
Sól Dögg leikur dansvæna tónlist á Gauknum í kvöid.
Vegir í góðu
ásigkomulagi
Þjóðvegir landsins eru í góðu
ásigkomulagi en þar sem ný klæðn-
ing er á vegum getur verið
steinkast. Nýbúið er að setja lag á
hluta af leiðinni Reykjavík-Hval-
Færð á vegum
fjörður. Þá er einnig enn verið að
lagfæra nokkrar leiðir og er það
merkt sérstaklega.
Enn er sumarfærð á hálendisveg-
um vegna góðrar tíðar. Flestir vegir
eru sem fyrr aðeins fyrir fjallabíla
en hægt að komast einstaka leiðir á
venjulegum bílum. Má þar nefna
Kjalveg sunnan og norðan, veginn í
Landmannalaugar, um Kaldadal,
Uxahryggi og Djúpavatnsleið.
Ástand vega
O Hálka og snjór H Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
Q} LokaðrSt°ÖU ® Þungfært 0 Fært fjallabílum
Bróðir
Steingríms
Myndarlegi drengurinn á mynd- Hann reyndist vera 4350 grömm að
inni fæddist á fæðingardeild Land- þyngd og 55 sentímetra langur. For-
spítalans 9. september kl. 4.10. eldrar hans eru Hlíf Steingríms-
dóttir og Eyjólfur Kristjánsson.
Hann á einn bróður, Steingrím,
sem er 4 ára.
Barn dagsins
Virginia Ledoyen leikur Christine
í L’Eau Froide.
Kalt vatn
í tilefni 100 ára afmæli kvik-
myndarinnar munu Háskólabíó
og Hreyfimyndafélagið standa
fyrir 100 kvikmyndasýningum á
nýjum og gömlum kvikmyndum
og var fyrsta kvikmyndin L’Eau
Froide (Kalt vatn) sýnd í fyrsta
skipti í gærkvöld. í dag verða
síðan tvær sýningar. L’Eau
Froide (Kalt vatn) er eftir Olivi-
er Assayas og var valin í aðal-
keppnina á kvikmyndahátíðinni
í Cannes 1994.
Myndin segir frá tveimur tán-
ingum í París sem verða ást-
fangnir. Gilles er að kafna yfir
ráðríki föður síns þar sem faðir-
inn neitar að viðurkenna þá
staðreynd að barnið hans er að
verða fullorðið. Líf Christine er
Kvikmyndir
ekki betra. Hún er skilnaðar-
barn og eru fósturfaðir hennar
og móðir hennar í endalausu
stríði við föður hennar um for-
ræði yfir henni. Leið og pirruð á
yfirgangi fullorðna fólksins leita
táningarnir á önnur mið: stela
úr búðum, skemma eigur ann-
arra og gefa skít i skólann.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Casper
Laugarásbíó: Dredd dómari
Saga-bíó: Bad Boys
Bióhöllin: Ógnir í undirdjúpun-
um
Bíóborgin: Umsátrið 2
Regnboginn: Braveheart
Stjörnubíó: Tár úr steini
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 223.
20. september 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 66,160 66,500 65,920
Pund 102,340 102,860 102,230
Kan. dollar 48,590 48,900 49,070
Dönsk kr. 11.5200 11,5810 11.5690 <-
Norsk kr. 10,2030 10,2600 10,2540
Sænsk kr. 9,3070 9,3590 9,0210
Fi. mark 14,9690 15,0580 15,0930
Fra. franki 12,9730 13,0470 13,0010
Belg. franki 2,1683 2,1813 2,1824
Sviss. franki 55,1400 55,4400 54,4900
Holl. gyllini 39,8100 40,0400 40,0800
Þýskt mark 44,6100 44,8300 44,8800
It. líra 0,04102 0,04128 0,04066
Aust. sch. 6,3390 6,3790 6,3830
Port. escudo 0.4281 0,4307 0,4323
Spá. peseti 0,5212 0,5244 0,5246
Jap. yen 0,63820 0.64200 0,68350
irskt pund 104,530 105,180 104,620
SDR 97,00000 97,58000 98,52000
ECU 83,5900 84,0900 84,0400
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270.
Krossgátan
Lárétt: 1 kvendýrið, 8 mjög, 9 skref,
10 lækkun, 11 stjökuðu, 12 gnýr, 13
borða, 14 haldi, 16 egg, 17 átt, 18 gælu-
nafn, 20 afkvæmi. ^
Lóðrétt: 1 svaladrykkur, 2 hámark, 3
skrökvuðu, 4 nef, 5 kvöld, 6 veiðar-
færi, 7 skammir, 12 andvarpa, 13
eimyrja, 15 lána, 19 fæddi.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 þróttur, 7 víl, 8 ilma, 10
Emil, 11 æru, 12 rangt, 13 æf, 14 sneið,
15 leir, 16 man, 17 ál, 18 óðara.
Lóðrétt: 1 þverslá, 2 rima, 3 ólinni, 4
tilgerð, 5 umræða, 6 raufma, 9 læti, 14
sel, 16 MA.