Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1995, Blaðsíða 24
36
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995
ftr
Það er eftirsótt að vera alþingis-
maður.
Þarf að hækka
laun í
eftirsótt starf?
„Ég get gert orð nágranna
mlns að mínum; hann skilur
ekki af hverju er verið að hækka
þessi laun eins og menn sækjast
eftir starfinu."
Tryggvi Skjaldarson, í Alþýöublaðinu.
Verður að
semja við álfana
„Það er í mínum huga engin
spurning að það eru til álfar en
það sem fólk áttar sig ekki á er
að það er hægt að semja við þá.“
Regína Hallgrímsdóttir, í DV.
Ummæli
Erlent fjármagn
„Menn verða að fara að átta
sig á því að það þarf að hleypa
erlendu fjármagni í sjávarútveg-
inn.“
Einar Víglundsson, í DV.
Af hverju fellur regnið?
„Ég var einu sinni spurður. Af
hverju skrifarðu? Ég svaraði: Af
hverju feUur regnið til jarðar?"
Cees Nooteboom, í Alþýðublaðinu.
Freistandi að
hafa marga leikara
„Það hefur jafnað freistað mín
að nota mikinn fjölda leikara i
verkum mínum og hingað til hef
ég komist upp með það.“
Ólafur Haukur Símonarsson, í DV.
Al Jolson syngur Sonny Boy í
The Singing Fool sem var fyrsta
talmyndin sem sýnd var á ís-
landi.
Fyrstu bíósýn-
ingar á íslandi
Á margan hátt er þess minnst
að eitt hundrað ár eru frá því
fyrsta kvikmyndin var gerð. ís-
lendingar voru frekar seinir að
tileinka sér þessa nýju menn-
ingu en þó er talið að fyrsta kvik-
myndasýningin hafi farið fram í
Iðnaðarmannahúsinu árið 1903
og voru myndirnar sem sýndar
voru frá Noregi.
Talmynd var fyrst sýnd hér á
landi 1. september 1930, bæði í
Gamla bíói og Nýja bíói. í Nýja
bíói var það The Singing Fool
með A1 Jolson í aðalhlutverki.
Blessuð veröldin
Fyrsta íslenska talmyndin
Þann 13. janúar 1949 var frum-
sýnd í Reykjavík fyrsta íslenska
kvikmyndin með tali. Mynd
þessi var Milli fjalls og fjöru eft-
ir Loft Guðmundsson ljósmynd-
ara. Aðallleikarar í myndinni
voru Brynjólfur Jóhannesson,
Alfreð Andrésson, Gunnar Eyj-
ólfsson og Inga Þórðardóttir.
Löngu áður hafði fyrsta leikna
myndin verið tekin upp hér á
landi. Var það Saga Borgarættar-
innar sem gerö var eftir skáld-
sögu Gunnars Gunnarssonar.
Talsverð rigning vestanlands
I dag verður vaxandi sunnanátt.
Stinningskaldi og talsverð rigning
verður vestanlands um hádegi og
þar má búast við allhvössum eða
hvössum vindi með áframhaldandi
rigningu og súld þegar líður á dag-
inn. Um landið austanvert verður
stinningskaldi eða allhvasst og fer
Veðrið í dag
að rigna undir kvöldið. Gengur í
hvassa suðvestanátt um landiö
sunnanvert í kvöld og nótt en norð-
antil verður vestan- og suðvestan
stinningskaldi eða allhvasst. Skúrir
verða þá um allt vestanvert landið.
Hiti á bilinu 9 til 15 stig. Á höfuð-
borgarsvæðinu verður allhvasst eða
hvasst og talsverð rigning síðdegis
en snýst í hvassa suðvestanátt með
skúrum í kvöld og nótt. Hiti 7 til 12
stig.
Sólarlag í Reykjavík: 19.38
Sólarupprás á morgun: 7.06
Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.51
Árdegisflóð á morgun: 4.19
Heimild: Aimanak Háskólans
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri skýjaö 9
Akurnes skýjaó 4
Bergsstaöir alskýjaö 9
Bolungarvík rigning 8
Egilsstaðir skýjaó 6
Keflavíkurflugvöllur alskýjaö 8
Kirkjubœjarklaustur skýjaö 7
Raufarhöfn skýjaó 7
Reykjavík alskýjaö 8
Stórhöföi alskýjaö 8
Bergen skýjaó 8
Helsinki þokuruön. 3
Kaupmannahöfn rigning 13
Ósló léttskýjaö 3
Stokkhólmur léttskýjaó 5
Þórshöfn skýjaö 9
Amsterdam þokumóöa 14
Barcelona hálfskýjaö 16
Feneyjar rigning 16
Frankfurt skýjaó 13
Glasgow þokuruón. 8
Hamborg þokumóöa 12
London rign/súld 16
Los Angeles þokumóóa 18
Lúxemborg skýjaö 12
Madríd þokuruón. 7
Mallorca léttskýjaö 20
Nice leiftur 19
Nuuk súld 1
Orlando léttskýjaö 25
París rigning 14
Róm skýjað 22
Valencia léttskýjaó 14
Vin þoka 13
Winnipeg heiöskirt 0
Sigvaldi Óskar Jónsson, höfundur bókar um Windows 95:
Kennsluefni sem varð að bók
„Vinnan við þessa bók er eigin-
iega framhald af vinnu sem ég
vann fyrir Tölvufræðsluna þar
sem ég kenndi. Við vorum ekki
sáttir við það kennsluefni sem við
höföum um Windows 3,1 og ég
vann upp kennsluefni sem varð að
bók. Bókin gekk mjög vel og það lá
eiginlega beint við að skrifa nýja
bók um Windows 95,“ segir Sig-
valdi Óskar Jónsson, rafmagns-
verkfræðingur og einn af eigend-
um tölvuverkfræðistofunnar Prím.
Hann hefur sent frá sér veglega
bók um hið nýja kerfl Windows 95
en þetta kerfi hefur verið mikið í
umræðunni mn tölvur að undan-
Maður dagsins
fornu og sýnist sitt hverjum um
gæði þess.
Sigvaldi sagði að hann hefði í
gegnum starf sitt fylgst vel með
þróun Windows 95: „Ég hef allt frá
árinu 1993 verið að vinna með
gögn um kerfið en þróunarfyrir-
tæki eins og Prím fá beint frá
Microsoft með löngum fyrirvara
allar breytingar sem verða. Fyrst
var hugmyndin að þessi nýja bók
Sigvaldi Óskar Jónsson.
yrði nokkurs konar uppfærsla á
þeirri eldri en niðurstaðan var að
breytingarnar voru það miklar á
útlitinu að ég endaði með alveg
nýja bók sem er þó með sömu upp-
byggingu."
Um Windows 95 sagði Sigvaldi:
„Það er mjög misjafnt hvað mönn-
um finnst um kerfið. Að mínu áliti
er þetta i langflestum tilfellum
betra kerfi én það gamla. Ég er
þegar farinn að kenna á kerfið og
það virkar mjög vel á byrjendur og
er ég fljótari að koma nemendum
af stað. Þeir sem eru aftur á móti
vanir ööru kerfi hanga dálítið í því
og eru lengur að komast upp á lag-
ið.“
Sigvaldi stofnaði ásamt þremur
félögum sínum Prím fyrir ári og
sagðist hafa verið að halda uppi á
ársafmælið fyrir nokkrum dögum.
„Við erum fjögur sem stofnuðum
fyrirtækið, þrír eru hér heima og
einn í Bandaríkjunum. Við hitt-
umst í háskólanum, vorum þar við
vinnu og ákváðum að fara út í að
stofna fyrirtæki. Við erum lang-
mest í sérhæfðri hugbúnaðar-
vinnu.“
Sigvaldi sagðist hafa haft lítinn
tíma fyrir áhugamál undanfarið
ár: „Allur tími minn hefur farið í
vinnuna og gerð bókarinnar. Ég
var þó nokkuö í íþróttum áður fyrr
og var í björgunarsveit og fór í
fjallaferðir en þetta hefur allt orðið
að víkja að sinni.“ Eginkona Sig-
valda er Sigurbirna Sigtryggsdótt-
ir, grunnskólakennari í Laugar-
nesskóla.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1320:
Eldfæri
Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki
Önnur um-
ferð í hand-
boltanum
Síðastliðið sunnudagskvöld
var leikin fyrsta umferð í 1. deild
handboltans og voru margir
spennandi leikir háðir sem lofa
góðu um framhaldið í vetur og
óvænt úrslit litu dagsins ljós.
í kvöld verður síðan leikin
önnur umferðin. í Garðabæ tek-
íþróttir
ur Stjarnan á móti íslandsmeist-
urum Vals. KR ieikur gegn FH í
vesturbænum, á Akureyri eigast
við KA og Afturelding, á Sel-
tjarnamesi leika Grótta og Sel-
foss, í Hafharfirði Haukar og
Víkingur og í Vestmannaeyjum
ÍBV og ÍR. Allir leikimir hefjast
kl. 20.00.
Skák
Hótunin Bc2 með ógnunum að
svarta kónginum virðist gefa hvítum
betra tafl í meðfylgjandi stöðu, sem er
frá stórmeistaramóti í Kaupmanna-
höfn á dögunum. En svartur á leikinn
og það gerir gæfumuninn.
Staðan kom fram í skák Kínverjans
Wang Zili, sem hafði svart, og Danans
Lars Schandorff. Hvað leikur svartur?
1. - Bel!! og nú eru hvítum skyndi-
lega allar bjargir bannaðar. Ef 2. Hxel
Hf2+ 3. Kh3 H7f3+ og mátar. 2. Hxf6
Dg3+ 3. Kfl Hxf6+ 4. Ke2 Rb4 og
hvítur gafst upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Þetta spil úr úrslitakeppninni í bik-
arkeppni BSÍ um síðustu helgi vakti
mikla athygli. Það kom fyrir í tveimur
leikjum í undanúrslitum. Annars veg-
ar i leik VÍB og Samvinnuferða - og
hins vegar i leik Hjólbarðahallarinnar
og +Film þar sem það réö úrslitum um
niðurstöðu leiksins. Guðlaugur R. Jó-
hannsson og Örn Arnþórsson náðu 6
spöðum á hendur NS, en samningur-
inn var 4 spaðar á hinu borðinu í leik
Samvinnuferða og VÍB. Sagnir gengu
hins vegar þannig í opnum sal í hinum
leiknum, AV á hættu og vestur gjafari:
* K7
* K10852
+ KD64
* D5
* 4
•* 97
* 85
* ÁG1087432
* ÁD86532
•* Á43
* ÁG
* K
Vestur Norður Austur Suður
Einar Valur Jónas Guðmundur
3* pass pass 44
p/h
Guðmundur valdi að stökkva i 4
spaöa og Valur átti erfitt með aö finna
framhald með ásalausa hendi og tvö
spil í laufí. Sagnir gengu á annan hátt
í lokuðum sal:
Vestur Norður Austur Suður
Jakob Hjalti Sigurður Eiríkur
3* 3+ pass 4G
pass 5* pass 6+
p/h
Hjalti ákvað að koma létt inn á á
þremur hjörtum og Eiríkur fór beint í
ásaspumingu og sagði síðan hjarta-
slemmuna sem óhjákvæmilega fór
einn niður. Spilið skapaði 22 impa
sveiflu í leiknum (síðasta spilið í
leiknum) en sveit Hjólbarðahallarinn-
ar tapaöi leiknum með 19 impa mun.
Spurningin er hvort 3 spaöar hefðu
ekki verið betri sögn hjá Eiríki (eðli-
legt að það sé kröfusögn) og þá hefði
hugsanlega veriö hægt að stýra spilinu
í 6 spaða. Ef þrjú lauf eru pössuð yfir
tO suðurs, er dobl sennöega besta
sögnin til að segja síðar fjóra spaða og
eiga þannig möguleika á að ná réttri
slemmu.
ísak Örn Sigurðsson