Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1995, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1995, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 Fréttir Breytingar hjá leikskóla Ríkisspítalanna: Eftirréttur barn- anna felldur niður - er lítið spennandi, segir Marta Sigurðardóttir leikskólafulltrúi „Hugsunin var sú að færa matar- æðið til nútíma horfs. Venjulegt fólk er ekki með tvíréttaðar máltíöir heima hjá sér. Við fórum að velta fyrir okkur af hveiju við ættum að venja börnin á tvíréttaðar máltíðir þegar þær tíðkúðust hvergi. Við ákváðum að sleppa eftirrétti í til- raunaskyni í þrjá mánuði til að skoða hvort bömin borða aðalréttinn betur og hvort við höfum nógu miMð af ávöxtum en þetta hefur ekkert með spamað að gera. Þetta era bara nú- tímavinnubrögð," segir Marta Sig- urðardóttir, leikskólafulltrúi Rík- isspítala. Yíirstjóm leikskóla á vegum Rík- isspítala hefur staðið að tilraun meö að sleppa eftirrétti úr aðalmáltíö leikskólabarnanna í tæpa þrjá mán- uði og verður ákveðið á næstu dög- um hvort eftirréttur verður tekinn upp aftur eða honum sleppt til fram- búðar frá 1. október. Marta Sigurðardóttir segist ekM skilja hvers vegna Ríkisspítalarnir ættu að gefa bömunum eftirrétt, til dæmis sætsúpu, en ekM sé víst að eftirrétturinn falli niður þar sem barnanæringarráðgjafinn í eldhúsi Ríkisspítalanna sé mótfallinn því. „Sumarið var valið til að tilraunin kæmi sem minnst við bömin því að þá eru þau fæst og þá borðar maður léttar og aðalrétturinn er mjög fjöl- breytilegur og góður. Okkur fannst stundum að eftirrétturinn væri ekk- ert ofsalega spennandi, til dæmis lit- að sykurvatn með jarðarbeijabragði, þó að stundum væri kvarg og auðvit- að hrísgrjónagrautur sem þau sakna,“ segir Marta óg viðurkennir að bömin hafi saknað eftirréttarins, sérstaklega fyrst í sumar. Þau kvarti ekM undan hungri enda sé matur nægur og enginn hörguU á ávöxtum og brauði. Marta segir að leikskólafulltrúinn og forstöðumenn leikskóla ræði þetta næstu daga og hitti svo barnanær- ingarráðgjafa RíMsspítalanna áður en ákvörðun verður tekin. Verði mataræði leikskólabarnanna breytt tekur breytingin gildi 1. október. -GHS Stefnumót á golfvöllum -hérogerlendis Kristján Einaisson, DV, Selfossi: Þeir vom kátir strákamir sem fréttamaður DV hitti á Selfossgolf- velli á dögunum þar sem þeir skemmtu sér við þá göfugu íþrótt aö slá kúluna góðu. Fulltrúi hópsins, Guðmundur S. Guðmundsson, sagði að þeir hefðu spilað saman í sumar og fæm víða til að fá tilbreytingu í spilið og kynnast nýjum stöðum. „Við fórum í vor til Boumemouth á Englandi og áttum góða daga þar á frábærum völlum. Þá höfum við spilað á flestum völlum hér á suö- vesturhorninu. Það er keppni okkar í milli og má kalla þetta „Stefnu- mót“. Nú erum við hjá Ragnari sím- stöðvarstjóra á hans heimavelli," sagði Guðmundur S. Guðmundsson, f.v. landsliðseinvaldur í golfi og tengdapabbi golfkappanna Úlfars Jónssonar og Ragnars Ólafssonar. Golfmennirnir frá hægri: Elís Einarsson og Jón Halldórsson, faðir Úlfars, félagar i Golfklúbbnum Keili, Ragnar Helgason, Selfossklúbbnum, og Guðmundur S. Guðmundsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur. DV-mynd Kristján Akureyri: Fargjöld í „strætó“ munu hækka Gyifi Krístjánsson, DV, Akuieyri: Ákveðið hefur verið að fargjöld Strætisvagna Akureyrar hækM um 10-12% en þau hafa ekM hækkað í um tvö ár. Sem dæmi um hækkunina má nefna að fargjald fullorðinna hækkar úr 80 í 90 krónur, barna- fargjald úr 30 i 35 krónur, kort með 20 barnamiðum hækkar úr 400 í 450 krónur, 20 miðar fullorð- inna hækka úr 1280 í 1400 krónur og 25 miða kort framhaldsskóla- nema hækkar úr 110011200 krón- ur. Akureyrarbær hefur greitt um 19 milljónir króna meö rekstri strætisvagnanna og hefur sú upp- hæð farið vaxandi, mest vegna auMns tilkostnaðar samfara fer- ilþjónustu fatlaðra. Fargjöld hafa staðið undir nærri 40% kostnaðar við rekstur vagnanna. Búvörusamningurinn: Sjömannanefnd köHuðsaman Snurða hefur haupið á þráðinn í viðræðum ríMs og sauðfjár- bænda um endurskoðun á bú- vörusamningnum. Enn er þó stefnt að því að ljúka samnings- gerðinni fyrir næstu mánaðamót og til að liöka fyrir samnings- gerðinni hefur svokölluð sjö- mannanefnd verið kölluð saman sem sMpuð er fulltrúum aðila \dnnumarkaðarins auk ftilltrúa ríMs og bænda. Kröfur bænda um 200 milljónir í auknar beingreiðslur og að birgöavandi greinarinnar verði leystur með útfiutningi þykja óásættanlegar innan ríkisstjórn- arinnar, miðað við þann ramma sem rætt hefur verið um. í við- ræðunum hefur ríkið lagt á það áherslu að framlög til sauðfjár- ræktar fari ekM yfir 2,7 milljarða á næsta ári, en það er sú upphæð sem rennur tíl greinarinnar í ár. -kaa í dag mælir Dagfari Rétt er ekki alltaf rétt Fréttir berast stöðugt af áfram- haldandi bardögum í Bosníu. Þess í milli eru gerðir friðarsamningar um vopnahlé og svo er áfram bar- ist af sama móði. Ekkert em þó þessi átök á við það stríð sem bloss- að hefur upp á milli tónskáldanna Jóns Ásgeirssonar og Hjálmars H. Ragnarssonar út af tónlist í nýrri kvikmynd um Jón Leifs. Myndin heitir Tár úr steini og má miMð vera ef ekM hrökkva fleiri tár held- ur en úr steininum þeim ama áður en yfir lýkur í þeirri styijöld sem nú hefur brotist út milli tónskáld- anna. Jón Ásgeirsson heldur því fram að Hjálmar hafi stohð stefjum frá sér og notað í tónlistinni í mynd- inni og skefur hvergi utan af. Sam- kvæmt ákæra Jóns á Hjálmar að hafa raddsett án leyfís, hljóðritað án leyfis, notað tónlistina án leyfis, gefið út geisladisk meö þessum sömu stefjum án leyfis og kórónað síðan stuldinn með því að eigna sér útsetningima án leyfis. Umrætt tónverk er gamalt þjóð- lag við vísur Vatnsenda-Rósu og kannsM hefur þetta meinta þjófn- aðarmál komið Vatnsenda-Rósu lít- iö á óvart enda var hún í tygjum við Natan sauðaþjóf og stelsýMn því ekki langt undan. En þótt Vatnsenda-Rósa hafi veri ýmsu vön þá er þaö ekM á hveijum degi sem Hjálmar H. Ragnarsson er þjófkenndur og hann bregður að sjálfsögðu hart við og segir að rétt skuli vera rétt. Hann hafi aldr- ei stohð einu né neinu frá Jóni frek- ar en öðram og svíður undan. Þegar stríðsaximar voru komnar á loft á báða bóga var boðað til sáttafundar með lögfræðingum og sérfræðingum og niðurstaðan varð sú að báðir skrifuðu undir vopna- hléssamning eins og þeir gera í Bosníu. Hjálmar viöurkennir að Jón eigi höfundarréttinn en tekur fram að Jón hafi sjálfur og áður gefið það út að hann væri ekM höf- undur að umræddum stefjum. Jón fellur frá kröfum á hendur Hjálm- ari að því marki að hann viður- kennir að hafa aldrei sagt frá því að hann væri höfundur að stefjun- um sem hann samdi. Hjálmar lofar að láta þess getið í afkynningar- texta meö kvikmyndinni að Jón sé höfundur stefjanna, ef því verður við komið og án kostnaðar fyrir framleiðendur. Hjálmar skrifar síðan heilsíðu grein í Mogga og lýsir því hvemig Jón Ásgeirsson hafi í aldarfjórðung látið það viðgangast að þjóðlagið með vísum Vatnsenda-Rósu hafi verið gefið út, leiMö og fjaUað um þaö án þess aö hans, þ.e. Jóns, hafi að nokkra verið getið, nema ef vera skyldi varðandi raddsetningu. Rétt skal vera rétt, segir Hjálmar. En er þá rétt alltaf rétt? Er þaö rétt að Jón Ásgeirsson sé höfund- urinn? Var það rétt af Jóni að vega að Hjálmari úr því að Jón hafði sjálfur aldrei haft orð á höfundar- rétti sínum? Er það rétt af Hjálm- ari að semja við Jón Ásgeirsson eftir að hann er búinn að þjófkenna hann? Stal Hjálmar laginu eöa stal Jón senunni? Og ef það var rétt- aö semja um vopnahlé fyrir tilstuðlan lögfræð- inganna, var þá rétt af Hjálmari að reiða til höggs með greinarskrifum eftir að málinu var lokið? Og var þaö rétt af Jóni Ásgeirssyni að falla frá kröfum vegna hins meinta þjófnaðar, úr því að stefinu var stolið og ef því var stolið? Og ætlar Hjálmar að sitja undir ákærunni án þess að hafast frekar að ef hann stal alls ekM stefinu? Það sem kann að vera rétt í þessu máli er hugsanlega alls ekki rétt og getur þess vegna verið rangt, ef menn semja um ranga niðurstööu með réttan málstað. Nú, svo er Uka hægt að gera það sama og þeir gera í Bosníu; semja um frið án þess að meina það og halda áfram vopnaskaki, vegna þess að myndin verður áfram sýnd og framleiðendurnir hafa alls engin efni á því að láta þess getið að Jón Ásgeirsson hafi samið nokkur stef, sem hann hefur kannsM alls ekM samið, enda þótt hann haldi því fram til aö geta þjófkennt Hjálmar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.